Þjóðviljinn - 25.02.1968, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 25.02.1968, Blaðsíða 1
Sunnudagur 25. febrúar 1968 — 33. árgangur 47. tölublað. Sósíalistafélag Reykjavíkur □ Aðalfundur Sósíalistafélags Reykjavíkur verður haldinn n.k. þriðjudag, 27. febrúar, kl. 8.30 í Tjarnargötu 20. $ Q Venjuleg aðalfundarstörf. — Nánar getið í þriðjudagsblaði. VERKALYÐSFELOG UM LAND ALLT HAFA BOÐAÐ VERKFALL 4. MARZ ef ekki verSur fallizt á kröfu alþýSusamfakanna um verSfryggingu kaupsins Alþýðubanda- lagið í Reykja- neskjördæmi Aðalfundur Alþýðubandalags- ins í Reykjaneskjördæmi verður haldinn að Fólkvangi á Kjalar- nesi, í dag, 6unnudag og hefst klukkan 14.30. DAGSKRA: 1. Skýrsla stjórnar og ársreikn- ingar bandalagsins. 2. Fjárhagsáætlun og ákvörð- un skattgjalda deildanna- 3. Lagabreytingar. 4. Kosning stjórnar og endur- skoðenda. 5. Önnur félagsmál. — Stjórnin. Sclja merki í dag Hinn árlegi merkjasöludagur Slysavamafélags íslands verður í dag, en í 30 ár hefur deildin eafnað fé með þessu móti á góu- daginn. Börn er vildu selja þessi merki eru beðin að mæta í bamaskóla borgarinnar snemma í dag. Benedikt Þórðar- son látinn Benedikt Þórðarson bóndi á Kálfafelli í Suðursveit lézt í Landspítalanum sl. stmnudag. Hann verður jarðsettur frá Kálfafellsstaðarkirkju á morgun, mánudag, 26. febrúar. □ Fjöldi verkalýðsfélaga um land allt hefur nú boðað verkfall frá og með 4. marz ef ekki hefur verið samið um aðalkröfu alþýðusamtakanna, verðtryggingu kaups, fyrir þann tíma. Snorri Jónsson framkvæmda- stjóri Alþýðusambands íslands fullyrti í gær að í félögum þeim sem boðað hefðu verkföll þennan dag væri mikill meirihluti félagsmanna Alþýðusambandsins. □ Meðal þeirra félaga sem boðað hafa verkfall frá 4. marz* eru Verka- mannafélagið Dagsbrún í Reykjavík, Verkamannafélagið Hlíf í Hafn- arfirði, Verkalýðsfélagið Eining á Akureyri, Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði, Iðja félag verksmiðjufólks í Reykjavík, Trésmiðafél. Reykja- víkur, Félag jámiðnaðarmanna í Reykjavík, Hið íslenzka prentarafé- lag, Verkalýðsfélagið Þór á Selfossi, félög bifvélavirkja, blikksmiða og skipasmiða í Reykjavík, flest verk^Iýðsfélögin á Austurlandi, verkalýðs- félögin á Akranesi og í Borgamesi,og er langt frá allt talið. N. k. miðvikudag frumsýnir Lcikfélag Reykjavíkur nýtt leikrit eftir Jökul Jakobsson og nefnist það „Sumarið 37“. Leilkstjóri og einn af aðal'Ieikendum er Helgi Skúlason og sést hann hér á mynd- inni í hlutverki sínu í leikritinu, en nánari frásögn og fleiri myndir eru á 12. siðu. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.). Viljum ekki kjaraskerðingu segir Eðvarð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar • Þegar afnumdar eru vísitölu- bætur á kaup, hrjá efnahagslíf þjóðarinnar stórar sveiflur ýmist í verðhækkunum eða kaupgjaldi og er það óviðunandi ástand fyr- ir allla aðila. Það er fyrst og fremst verið að koma í vcg fyrir slíkt ástand í efnahagslífinu, þegar vcrkalýðshreyfingin lætur nú sverfa til stáls með vcrkföll- um 4. marz af því að hún fær ekki að búa við verðtryggt kaup, sagði Eðvarð Sfigurðsson, formað- ur Dagsbrúnar í viðtali við Þjóðviljann í gær. • öll saga verkalýðshreyfingar- innar hefur sýnt að ^Æfarasælast er að búa við vísitölubundið kaup og stuðlar það að jafnvægi í efnahagslífinu. Það hefur verk- að sem hemill á verðhækkanir, sagði Eðvarð. • Ég hef sérstaklega í huga reynslu áranna frá 1960 til 1964 m°ð linnulausum ófriði á vinnu- markaðnum borið saman við Eðvarð Sigurðsson tímabilið frá 1964 til 1. nóvem- ber á síðastliðnu ári, þegar visi- talan mældi uppbætur á kaup í samræmi við verðhækkanir. • Frá 1960 til 1964 var sífelldur ófriður á vinnumarfcaðnum og samið var um talsverðar kaup- hækkanir í prósentuvís öðru hvoru með löngum og stuttum verkföllum, en þessar kaup- hækkanir náðu aldrei kaupmætti til þess að bæta fyrir verðhækk- anir á öllum mögulegum svið- um þá- • Þetta snerist alveg við árið 1964, þegar vísi talan fór að mæla uppbætur á kaupið eftir 1964 og hefur hún mælt um 19% bætur á kaup til 1. nóvember siðast- liðinn og vorum við þá að nálg- ast kaupmátt launanna 1959. • Verðtrygging kaupsins er þessvegna mikið atriði hjá verkalýðshreyfingunni og mér finnst allt í húfi þessa stund- ina, að verkalýðshreyfingin fái að halda áfram að búa við vísi- tölubætur á kaup í samræmi við verðhækkánir. • Þetta er áreiðanlega hag- Framhald á 12. síðu. Erfitt reyndist í gærdag að fá^ heildaryfirlit yfir þau verkalýðs- félög, sem tilkynnt höfðu um verkfall fyrir hátegi í gær, þar sem hvert félag tilkynnir um verkfall fyrir sig til ríkissátta- semjara eða héraðssáttasemjara. Hafði enginn einm aðili heild- aryfirlit ' yfir tilkynningu um verkföll verkalýðsfélaga á land- inu og voru verkfallstilkynning- ar óðum að berast í gærdag ýmist til ríkissáttasemjara eða héraðssáttasemj ara. Þegar Þjóðviljinn , hafði sam- band við Torfa Hjartarson, rík- issáttasemjara í gærdag vissi hann um eftirtalin félög, sem tilkynnt höfðu verkfall miðað við 4. marz næstkomandi: Verka- mannafélagið Dagsbrún, A.S.B., Trésmiðafélag Reykjavíkur, Fé- lag járniðnafjarmanna, Félag bif- vélavirkja, Félag blikksmiða, Fé- lag jámiðnaðarmanna í Árnes- sýslu, Iðja, félag verksmiðju- fólks í Reykjavík, Mjólkurfræð- ingafélag íslands, Bifreiðasljóra- félagið Sleipnir, Félag kjötiðnað- armanna, Félag bókbindara, Hið islenzka prentarafélag, Nót, sveinafélag netagerðarmanna, Starfsstúlknafélagið Sókn, Félag skipasmiða, Verkamannafélagið Hlíf, Verkalýðsfélag Akraness, Árvakur og Framtíðin á Eski- firði1, Aldan á Sauðárkróki, Verkalýðs- og sjómannafélagið á Stöðvarfirði, Þór á Selfossi, Bjarmj á Stokkseyri og Báran á Eyrarbakka. Þá höfðu þessi félög tilkynht um verkfall 4. marz næstkom- andi til Steindórs Steindórsson- ar, sáttasemjara á Norðurlandi, þegar Þjóðviljinn hafði sambapd við Steindór skömmu fyrir há- degi í gær: Verkalýðsfélagið Eining á Ak- ureyri, Bílstjórafélag Akureyr- ar, Verkalýðsfélagið á Skaga- strand og Verkcimannafélag Raufarhafnar. Áðalfundur í A.S.B: ASB fól nefnd ASÍ að boða til verkfalls Liðsfundur ÆF Verkalýðsmálanefnd Æ.F. ofnir til liðsfundar um verkalýðsmál I dag kl. 4 í Tjarnargötu 20 (uppi). Skorað er á alla Fylkingarfélaga scm eru meðlimir í aðildarfélög- um A.S.Í. að mæta. Nýlega var haldinn aðalfund- ur A.S.B., félags afgreiðslustúlkna í brauða- og mjólkurbúðum. Samþykkt var að veita 18 manna nefnd A.S.I. umboð til að semja um vísitölubætur á kaupið við atvinnurekendur, svo og boða til verkfalls í samvinnu við 18 manna nefndina, ef þurfa þykir. Stjóm félagsins var endur- kjörin, en hana skipa: Birgitta Guðmundsdóttir, formaður, Auð- björg Jónsd. Valborg H. Jónas- son, Sigríður Guðmundsdóttir og rósa Kolbeinsdóttir. I varastjórn vom kosnar Ragnheiður Karls- dóttir, Sesselja Jónsdóttir og Sig- ríður Þórðardóttir. Einnig var endurkcsið í trún- aðarráð félagsins. I því em Guð- rún Finnsdóttir, Elín Bjömsdótt- ir, Hlíf Hjátoiarsdóttir, Hallvéig Einarsdóttir, Sigfrið Sigurjóns- dóttir og Hera Guðjónsdóttir. Birgitta Guðmundsdóttir Aöalfundurinn staðfestí. ein- róma þá ákvörðun sem tekin hóifði verið í trúnaðarmannaráði Framhald á 12. síðu. Góu fagnað íkvóld Það er í kvöld sem Kvenfélag sósíalista heldur góufagnað sinn í Tjamargötu 20 og ber á borð marg- víslegan rammíslenzkan mat. Borðhaldið hefst kl. 7 og dagskrá verður eftir- farandi: Upplestur: Jónas Árnason alþingismaður Hljóðfœraleikur: Nemendur úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Myndasýning: íslenzkar litskuggamyndir. Almennur söngur verður við borðhaldið og eru allir sósíalistar og velunnarar Kvenfélagsins vel- komnir á fagnaðinn. 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.