Þjóðviljinn - 25.02.1968, Side 3
Sunnudagur 25. febrúar 1968 = ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 3
□ „Við ætlum ekki að eyða tímanum í það
að berjast við „Vinstrisósíalista“, segir Kurt
Brauer þingmaður Sósíalíska alþýðuflokksins í
Danmörku. „Við munum einbeita okkur að því
að berjast gegn hægriöflunum í dönskum stjórn-
málum og setja fram okkar eigin sósíalísku úr-
Viðtal sem
Orientering átti
við Kurt Brauer
þingmann
S F flokksins
danska og
Erik Sigsgaard
þingmann
Vinstrisósíalista
ræði“, segir Erik Sigsgaard þingmaður Vinstri-
sósíalista.
□ Blað norska SF-flokksins, Orientering,
átti við þá sameiginlegt viðtal er þeir voru báð-
ir staddir í Oslo nýlega og skýra þeir í því um
hvað þeir eru sammála og hvað ósammála.
;v’
Kurt Brauer og Erik Sigsgaard í ráðhúsinu í .Osló, en þar átti frcllamaður Orientering við-
' tai við þá og kallaöi einvígi í mestu vinsemd.
Þeir ætla ekki að berjast
gegn öorum
Vinstrisósíalistar fengu 2
próseiit‘átkvæða og komu fjór-
um fulltrúum á þing. Munaði
ekki svo mjóu að það lofi engu
um framtíðarstarf VS?
Sigsgaard (VS): Það sem
skipti mestu máli fyrir okkur
var að við fengum þó fulltrúa
á þing. Ég býst ekki við því að
við verðum mjög stór flokkur.
En með þeim sjónarmiðum sem
við höfum sett fram og með
áróðursherferðum okkar geri
ég ráð fyrir að við getum reikn-
að með nokkrum vexti. Við er-
um eini flokkurinn sem skýrt
. og skilmerkilega viðurkennir
. að hann stefnir að því að
breyta ríkj'andi samfélagsskip-
an í Danmörku. Þetta er ó-
venjulegt markmið í eyrunv al-
mennings og hann verður að
venjast slíkri framsetningu
vandamálanna.
Er ekki hætt við að það
verði anzi lítið pláss milli SF
og kommúnistaflokksins?
Sigsgaard (VS): Vinstriflokk-
unum í Danmörku hefur ekki
i tekizt að skapa sér sterka að-
stöðu vegna þess að þeir hafa
ekki sett fram skýra stefnu
til breytinga á núverandi þjóð-
skipulagi. Og ég mótmæli því
að við séum á milli kommún-
ista og SF. Oft erum .við langt
til vinstri við kommúnista, sem
halda fram rétttrúnaðarskoðun
í viðhorfum til þjóðfrelsishreyf-
inga, "og taka ekki sjálfstæða
afstöðu t.d. gagnvart viðhorfi
Sövétríkjanna til Havanaráð-
stefnunnar o.fl. En ég vil taka
það fram að við ætlum ekki
að fylgja stefnu mótmæláað-
gerðanna einna, við ætlum að
miða pólitískar gerðir okkar
við það þjóðfélag sem við lif-
um í.
Heldurðú að á næstunnj geti
orðið um sameiningu Vinstri-
sósíalista og SF að ræða?
Sigsgaard (VS): Ég er þess
fullviss að eftir svo sem fimm
til tíu ár, þegar eldri kynslóð-
in í SF hefur vikið — og þá
á ég ekki aðeins við gömlu
kynslóðina í líffræðilegri merk-
ingu, heldur einnig við jþá
yngri sem hafast andlega við
í fortíðinni — þá verður sam-
eining vinstriaflanna möguleg.
En i næstu framtíð býst ég við,
að flokkarnir verði þrír á
vinstri kanti í dönskum stjórn-
málum, það er til vinstri við
sósíaldemókrata.
Brauer (SF): Ég geymi um-
mælin um gömlu kynslóðina.
Hvers konar flokk vilja
Vinstrisósíalistar skapa?
Sigsgaard (VS): Við erum
þess fullviss að gömul skipu-
lagsform duga ekki lengur. Við
miðum að því að skapa opnari
flokk, þar sem kjósendur og
áhugamenn sem ekki þurfa
endilega að vera flokksbundn-
ir fái meirj áhrif. Við miðum
að því að brjóta niður pýra-
mídauppbyggingu flokkanna,
við viljum meira jafnræði. Þar
sem áður var voldugur for-
maður viljum við hafa nefnd.
Við neitum að eyða mestu af
tímp okkar til skipulagsmála;
til að safna peningum. Þess í
stað viljum við hafa meiri
pólitískar umræður.
Mun sósíalíski alþýðuflokk-
urinn verja miklum tíma til
þess að berjast gegn klofnin^s-
mönnunum í VS á hinu nýja
þingi?
Brauer (SF): Nei, þeirri or-
ustu var lokið hinn 17. des-
ember í fyrra, á landsfundin-
um okkar. Ég var á fyrsta
þingflokksfundinum eftir kosn-
ingarnar og við höfðum hrein-
lega ekki tíma til að velta slíku
fyrir okkur. Við höfum stefnu-
skrá sem við munum reyna að
fylgja fram á þingi að svo
miklu leyti sem mögulegt er.
Við viljum ná raunhæfum ár-
angri.
/•Sigsgaard: Ég er sammála
Brauer; ummæli hans eiga líka
við okkur. Það er þýðingar-
meira að nota tímann til þar-
áttu við borgarana, að beina
spjótum sínum að hægriöflun-
um, en berjast hver gegn öðr-
um á vinstrivængnum.
Brauer (SF): Ég tel ekki at-
burðina á landsfundi okkar
gríðarlega þýðingarmikla. Ég
vildi gjarna taka undir vígorð
sem SF félaginn Mogens Fog,
sem nú er rektor við háskólann
í Kaupmannahöfn setti fram
í hátíðarræðu: Raunhæfan sósi-
alisma hér-og nú. Þetta vígorð
er vegvísir fyrir starf okkar.
Sigsgaard sagði að hann mið-
aði að því að velta núverandi
þjóðskipulagi. Einmitt, og með
þeim vilja verða menn einnig
að sýna, að þeir séu færir um
það, en láta ekki orðin tóm
duga. Mótmælastefna ein dug-
ir ekki í daglegu lífi. Annars
er ég sammála Sigsgaard um
það, að Vinstrisósíalistar eru
ekki 4 milli SF og kommúnista.
Danskir kommúnistar eru oft
mjög íhaldssamir í viðhorfum.
Ég held að það sé ærlegur
vilji í nýja flokknum á því að
hafa áhrif á þróunina í danskri
pólitík. Ég veittj þvi athygli
að Sigsgaard lét í Ijós ánægju
með það að flokkur hans skyldi
þó fá fulltrúa á þing, og taldi
það „hið þýðingarmesta fyrir
okkur“. Thomas Lund lét það
i Ijós við Information að hann
hefði orðið fyrir miklum von-
‘ brigðum með það, að Vinstri-
sósíalistar skyldu ekki fá fleiri
atkvæði. Mér íinnst að hann
ætti að leiðrétta ummæli sín
eða fá Sigsgaard til þess, því
að hann virðist vera á annarri
sfcoðun.
Hefur Sigsgaard nokkuð að
segja um ummæli Bráuers um
mótmælastefnu?
Sigsgaard (VS): Mörgum
virðist að ein af orsökunum
fyrir klofningnum í SF hafi
verið sú að smátt og smátt
færðist flokkurinn svo langt til
hægri að hann var talinn af-
leggjari af sósíaldemokrötum.
Við vildum ekki vera með 1
þessari stefnu. Við miðum að
því að vera flokkur sem setur
fram sósíalísk úrræði. Hlut-
verk okkar er það að sýna að
þessi sósfalísku úrræði eru
framkvæmanleg. Við ætlum að
móta viðhorf okkar í tillögur
í löggjafarstarfinu á þingi.
Væri hægt að koma á sam-
starfi með Vinstrisósíalistum
og SF um það að hafa áhi'if
á löggjafarstarfið á þingi?
Sigsgaard (VS): Ég er ekki
viss um að það verði fram-
kvæmanlegt í fyrstu. Aksel
Larsen verður persónulega að
taka á sig mikið af ábyrgðinni
á því sem gerzt hefur. Það
verður eflaust hægt að ræða
um nánari samvinnu, þegar
Aksel Larsen ákveður að hverfa
úr dönskum stjórnmálum.
Hvað segir Brauer um þetta?
Brauer (SF): Ég vil ræða þá
fullyrðingu Sigsgaards að SF
hafi færzt of mikið til hægri.
Mér virðist að með samstarfi
við sósíaldemókrata og með
verkalýðsmeirihluta að bak-
hjarli höfum, við haft beztu
möguleika til að framkvæma
stefnu okkar um „raunhæfan
sósíalisma — hér og nú“. Eftir
kosningarnar 22. nóvember 1966
hafði ákveðnu marki verið náð.
Verkalýðsmeirihluti var mynd-
aður af fulltrúum sjónarmiða
lengst til vinstri sem núverandi
ritstjóri SF blaðsins, Gert Pet-
ersen túlkaði og yzt til hægri
en þar stóð sósíaldemókratísk-
ur borgarstjóri. Til þess að
halda þessum meirihluta sam-
an og gera hann vinnufæran
neyddist SF til að ganga aðeins
til móts við önnur sjónarmið.
Eftir kosningamar 22. nóvemb-
er var maður neyddur til að
halda jafnvægi á hnífsegg ef
maður átti að gera sér vonir
.um að ná einhverju skynsam-
legu fram. Það var mjög mikil
hætta á því að maður félli
niður hvort sem var hægra eða
vinstra megin við hnífseggina
og eyðilegði þar með það, sem
leitazt var við að byggja upp.
Mér virðist sem sumir hafi
fallið niður vinstramegin á og
eftir landsfund SF sem settur
var 16. desember í fyrra og
með stofnun Vinstrisósíalist-
anna. SF stendur aftur á móti
enn á egginni en féll ekki nið-
,ur til hægri.
Nokkur atriði varðandi Aksel
Larsen í tilefni af ummælum
Sigsgaards. Mönnum hættir oft
til að líta á Aksel Larsen ann-
að hvort eins og hann sé í
einhverri svimandi hæð, eða
sem smákarl afar langt niðri.
Aksel Larsen er þýðingarmikill
stjórnmálamaður en einnig
manneskja. Ég held að bezt sé
að koma fram við hann eins og
venjulegan mann, sem hægt er
að ræða við og er opinn fyrir
röksemdum annarra. A.m.k. er
þetta min persónulega afstaða
og eftir henni fer ég í sam-
starfi okkar í þingflokknum.
Þegar talað er um ráðríki Aks-
els Larsen ættu menn að taka
eftir því að einmitt þessa dag-
ana var hann að segja af sér
formennsku í þingflokknum að
eigin ósk.
Sigsgaard (VS): Það hefði
gert ákveðna hluti auðveldari
ef hann hefði gert það fyrr. En
nú getur hann dregið sig smám
saman í hlé í fullvissu þess
að völdin munu halda áfram
að vera í höndum þeirra ?em
eru yzt til hægri í SF. Hefði
hann gert það fyrr mundi for-
ystan hafa verið samsett af-
fólki með meiri breidd í sjón-
armiðunum.
Verðaukaskattur, hinn Svo-
nefndi moms, verður mjög á
dagskrá i Noregi á næstunni.
Hver er afstaða ykkar til hans?
Brauer: Danski SF flokkur-
ínn sveik kjósendur sína með
því að fðllast á verðaukaskatt-
inn sem flokkurinn hiafði í
kosningabaráttunni 1966 sagzt
vera andsnúinn. Þegar blaðinu
var snúið í þessu máli kvald-
ist ég persónulega. En samt
tel ég nú að það hafi verið
rétt að fallast á verðauka-
skattinn. það samhengi sem
verður að setja hann í rétt-
lætir þetta sjónármið, og sömu-
leiðis sú staðreynd áð maður
varð að taka tillit til þess hvað
hinn sameinaði verkalýðsmeiri-
hluti taldi sig þannig koma
fram, með tíð og tíma.
Sigsgaard (VS): Ég hef eng-
in grundvallarsjónarmið gegn
óbeinni skattlagnirigu hvort
sem um er að ræða söluskatt
eða verðaukaskatt. Mér finnst
það þýðingarmeira að líta á
áhrifin af skattlagningunni
hvort sem hún er bein eða ó-
bein. Sá mælikvarði sem skipt-
ir máli fyrir mig er það hvort
öll skattlagningin verður rétt-
látari eða ekki, hvórt hún mið-
ar að því að jáfna tekjurnar
eða ekki. Þess vegna muhu
Vinstrisósíalistar fýrirfram ekki
snúast gegn ákveðnum tillög-
um, en meta það hvort tillög-
urnar miði að tekjujöfnun eða
ekki. Okkur þótti miður að
sósíaldemókratar skyldu halda
svona fast í verðaukaskattinn
einsog hann var settur frarrp í
tillögunni, og við teljum að
hann muni ekki stuðla að rétt-
látari skiptingu gæðanna. Þetta
er grundvöllur okkar sjónar-
miða. Aftur á móti er það
ekki árangursvænlegt að halda
því fram að neyzluskattar séu
slíkir að maður verði að berj-
ast gegn þeím hvað sem það
kostar.
Bakú — mið-
stöð tyrkneskra
fræða í Sovét-
ríkjunnm
Moskvu — 1 Tungumál af
altai-málaflókknum eru mjög i
útbreidd á svæði, sem nær
frá Litlu Asíu til norð-aust-
ur Síberíu. Þessum tungu-
málum er skipt í þrjá flokka,
tyrknesku, mongólsku og
Tungus-Manchu. Um það bil
20 þjóðir í Sovétríkjunum
tala þessi mál, meðal annars
i Uzbekistan, Kazakhstan,
Azerbajdsjan, Túrkmeníu,
Kirgisíu, Tataríu, Bashkiríu,
Jakútíu og víðar.
Auk Tyrkja í Tyrklandi búa
þjóðir af tyrkneskum upp-
runa í Suður-Azerhajdsjan, i
Iran og írak, Uigurar í Kína.
Fræðimenn viða um heim
hafa löngum haft mikinn á-
huga á að kynna sér sögu,
menningu, bókmenntir, listir
og tungumál, þessara þjóða.
Rannsóknii í tyrkneskum
fræðum hafa verið mikið
stundaðar í Sovétríkjunum
undanfarna áratugi, einkum í
Azerbajdsjan. Þar er nú ver-
ið að vinna að tungumála-
atlasi tyrkneskrar tungu,
eins hefur verið samið orða-
safn azerbajdsjanskrar tungu
með skýringum og mállýzku-
orðaforða.
Fram að þessu hafa sovézk-
ir fræðimenn í þessari grein
ekki gefið út eigið tímarit,
en á þessu ári hefst útgáfa
fræðiritsms «Sovétskaja Turk-
ologia. og verður það gefið
út í Bakú á rússnesku og
ensku.
Guðrún Kristjánsdóttir.
Áróður fyrir
umferðar-
öryggi á
Austurlandi
Neskaupstað. — Undanfamar
vikur hefur Ólafur Guðmunds-
son, lögreglufulltrúi úr Reykja-
vík, ferðázt um Austurland á
'vegum Fræðsludeildar hægri
umferðar.
t ■
Hefur hann efnt til almennra
borgarafunda um umferðarör-
yggismál. heimsótt barna- og
unglingaskóla og flutt þar
fræðsluerindi og sýnt kvik-
myndir.
Hægri umferðina væntan-
legu ræðir Ólafur lítið að
þessu sinni nema þá á fundum
H-nefndanna. en gerir ráð fyr-
ir að ferðast um aftur nálægt
H-degi að vori og þá auðvitað
með áróður fýrir hægri kanti.
Síðustu tvo daga hefur Ólaf-
ur venð staddur í Neskaup-
stað og var fréttamönnum boð-
ið á fund hjá honum ásamt
H-nefnd byggðarlagsins, en í
henni eiga sæti tíu menn frá
ýmsum félagasamtökum. Ólaf-
ur kvaðst nú hafa gert yfir-
reið um Austurland nema fyr-
ir sunnan Reyðarfjörð, en í
þá átt heldur hann héðan. Til
þessa hafi aðsókn að fundum
yfirleitt verið mjög góð og hafi
mætt allt að 30% íbúa í sum-
um byggðarlaganna fyrir ut-
an skólafólkið. Allstaðar væri
mikill áhugi fyrir bættri um-
ferðamenningu og ýmsir hafi
tekið til máls. Málhressastir
hefðu menn verið á Völlum og
í Fljótsdal. Lagfæring á veg-
um væri víðast hvar ofarlega
í huga manna — ekki sízt ak-
reinaskipting á blindhæðum og
bættur frágangur við ræsi.
— H.G.
*