Þjóðviljinn - 25.02.1968, Page 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVHjJINN — Sunnudagur 25. febrúar 1968.
Otgefandi: Sameiningarfiokkui aiþýðu - Sosiaiistaflokkurinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson. (áb.), Magnús Kjartansson.
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson
Framkvstj.: Eiður Bergmann
Ritstjóm. aígréiðsla. auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustig 19.
Sími 17500 (5 linur). — Áskriftarverð kr. 120.00 á mánuði —
Lausasöluverð krónur 7.00,
Afí samtakanna
pjöldi verkalýðsfélaga, þeirra á meðal flest öflug-
ustu verkalýðsfélög landsins, hafa boðað verk-
fall frá 4. marz, til að leggja áherzlu á kröfu verka-
lýðssamtakanna um verðtryggingu kaupsins. Verð-
trygging kaupsins var talin einn aðalávimningur
hinna margnefndu júnísamninga 1964, og hafa all-
ir kaup- og kjarasamingar síðan verið miðaðir við
að verðtryggimgin sem þá var samið um væri og
yrði í gildi. Þegar svo ríkisstjóm Bjarna Bene-
diktssonar, Gylfa Þ. Gíslasonar og félaga þeirra
ákvað í vetur að afnema einhliða ög gegn mót-
maelum verkalýðssamtakanna þetta aneginatriði
júnísamningajnna 1964, jafnframt því að gerð var
stórfelld gengislækkun og nýr.ri verð'hækkana-
skriðu sleppt lausri, hlaut verkalýðshreyfingin að
svara og freista þess að fá verðtryggingu launa
samningsbundina. Við umræðumar á Alþingi ítrek-
aði Bjarni Benediktsson hvað eftir annað að hann
teldi eðlilegra að verkalýðsfélögin semdu um þetta
atriði við atvinnurekendur, og það er það sem nú
er venð að reyna. Algert skilningsleysi og þrjózka
hinnarþröngu íhaldsklíku, sem raunverulega ræð-
ur Vinnuveitendasambandimu velduf því áð samn-
ingamenn þess hafa þverneitað að semja um verð-
tryggingu kaups. Alþýðusambandsþing hafði ein-
róma samþykkt kröfuna um verðtryggingu. Sama
hafði þimg Verkamannasambands íslands gert og
skorað á verkamanna- og verkakvennafélögin að
beita afli samtakanna til að knýja þá kröfu fram.
Verkfallsboðunin er því ekki annað en eðlilegt
svar verkalýðsfélaganma við hinum ósvífnu undir-
tektum Vinnuveitendasambandsins; verkalýðsfé-
lögin svara í samræmi við einróma samþykktir
æðsta aðila íslenzkrar verkalýðshreyfimgar, Al-
þýðusambandáþings. Og krafan er sannarlega ekki
úr hófi. Alþýðusamtökin láta sér ekki lynda fólsku-
bragð ríkisstjórnarinnar 'að afnoma verðtrygging-
uma sem vannst í júnísamningunum 1964. Aðrar
kröfur eru lítt á lofti hafðar. Verkalýðsfélögin fara
ekki fram á annað en að staðið sé við þá samninga
óbreytta sem nú gilda, en verkafólki sé ekki
skömmtuð 5% kauplækkun nú um mánaðamótin
og verðhækkamaskriðan látin falla bótalaust yfir
alþýðuheimilin.
J^Jorgunblaðið reynir í gær að lýsa þessum þjóð-
félagsátökum í venjulegum reyfarastíl um for-
ystumenn verkalýðsfélaganna. Mun sú forystu-
grein blaðsins sóima sér vel í safni Morgunblaðs-
greina um baráttu alþýðunnar fyrir bættum kjör-
um og auknum réttindum. Þar er að vísu ekki
flíkað neinni skilningsglætu á því hvað verkalýðs-
hreyfing og kjarabarátta er, einungis þusað um
Alþýðubandalagið! íhaldsblöðin öskra nú dag eft-
ir dag að „fólkið vilji ekki verkföll". En vill’ ekki
blaðið birta nöfn þeirra forystumanna Sjálfstæð-
isflokksins í verkalýðsfélögum sem vilja kjara-
skerðingu, vilja láta sér lynda og sínu félagi þá
kjaraskerðingu sem ríkisstjómin og Vininuveit-
endasambandið svonefnda hyggst nú skammta
yerkamönnum og öðrum launþegum. — s.
Fimmtugur í dag:
Tryggvi Haraldsson
póstvarðstjori
Tryggvi Haraldsson póstvarð-
stjóri frá Kerlingardal í Mýr-
dal er fimmtugur í dag. Á þess-
um mérku tímamótum á aevi
hans vil ég minnast hans með
fáum orðum um leið og ég
óska honum allra heilla á kom-
andi tímum, konu hans og
fjölskyldu.
Þar sem landslag \ er mest
sérkennilegt af djúpu sam-
ræmi lands og hafs — litofnu
skrúði. streymandi kulda af
jöklum og anda suðursins af
hafi, — þar stóð vagga Tryggva,
þar fékk hann fyrstu mótun.
trausta og örugga, er hefur
dugað honum til dáða í hverri
raun. Hvergi á fslandi öllu eiga
litir íslenzkrar náttúru jafn
samofin skil í mótun fegurðar
og fyrir vestan Sand í æsku-
byggðum' afmælisbamsins. Þess-
ir þættir í fegurð sinni, tign
og göfgi, eiga líka ríka mótun
i skapgerð hans, langtum frem-
ur en margra annarra Mýrdæl-
inga. Fersónuleiki hans og
skapferli eru samofin glæsi-
mennsku, karlmennsku og ótrú-
legri góðvil<J í garð alls.
er lifir og hrærist eftir lög-
málum hinnar gróandi festu, er
mest hefur orðið til heilla ís-
lenzkri þjóð.
Tryggvi frá Kerlingardal
hvarf ungur að heiman í ham-
ingjuleit eins og margir jafn-
aldrar hans á líðandi öld. Hann
fór fyrst til náms en síðar til
atvinnu á fjörrum slóðum. í
nokkur ár. var hann lögreglu-
þjónn í Reykjavík, en hvarf
brátt úr því starfi og gerðist
póstmaður í pósthúsinu í
Reykjavík. Þar lágu leiðir okk-
ar fyrst saman. Ég kynntist
Tryggva fljótlega eftir að hann
Nýtt stjórnarfrumvarp:
Siglingamálastofnun
ríkisins stofnsett
■ Á þriðjudaginn var lagt
fram á Alþingi stjórnarfrumv.
um Siglingamálastofnun ríkis-
ins, og fjaliar frumvarpið um
nýja stofmm er hafi með hönd-
um þau margvíslegu verkefni
sem Skipaskoðun rikisins hef-
ur nú með höndum. _
í 2. grein frumvarpsins eru
talin upp verkefnin sem Sigl-
ingamálastofnun ríkisins á að
fjalla um á þessa leið:
Hlutverk Siglingamálastofn-
unar ríkisins er:
1. — *Að vera ríkisstjórninni
til ráðuneytis um siglingamál
og skipasmíðar.
2. — Að annast eftirlit með
nýsmíði skipa, búnaði, breyt-
ingum og innflutningi og al-
mennt eftirlit skipa og annað
samkvæmt lögum um eftirlit
með skipum og reglugerðum,^.
settum samkvæmt þeim. Smíða-
teikningar eru háðar viðurkenn-
ingu Siglingamálastofnunarinn-
ar.
3. — Að annast framkvæmd
alþjóðasamþykkta um öryggi
mannslífa ó hafinu, sem ísland
er aðili að, og gefa út skips-
skjöl fyrir íslenzk skip sam-
kvæmt þeim.
4. — Að annast framkvæmd
alþjóðahleðslumerkjasamþykkta,
$em ísland er aðili að, og á-
kveða hleðslumerki skipa og
gefa úr hleðslumerkjaskirteini
samkvæmt þeim.
5. — Að ákvarða hleðslu-
merki fyrir fiskiskip eftir nán-
ari reglum, er ráðherra setur.
6. — Að fylgjast með rann-
sókn sjóslysa hjá siglingadómi
og sjódómi. Rita umsögn um
sjópróf til saksóknara ríkisins.
Birta árlega niðurstöður rann-
sókna á sjóslysum.
7. — Að annast framkvæmd
laga um varnir gegn óhreink-
un sjávar af • völdum olíu og
reglugerða samkvæmt þeim í
samræmi við alþjóðasamþykkt
um sama efni. sem fsland er
aðili að.
8. — Að annast framkvæmd
laga og reglna um mælingu
skipa, svo og mál, er varða al-
þjóðasamþykkt um mælingu
skipa.
1. janúar ár hvert. Þar skal og
felld hafa verið niður af skipa-
skrá á árinu og annan gagn-
légan fróðíeik um íslenzkan
skipastól. v
9. — Að annast framkvæmd
laga um skráningu skipa. Ann- i
ast skýrslugerð um íslenzkan
skipastól. Gefa árlega út skrá
yfir íslenzk skip, miðað við
birta skrá yfir einkaleyfisnöfn
skipa, skip í smíðum, skip, sem
10. — Að annas.t af fslands
hálfu samstarf við Alþjóðasigl-
ingamálastpfnunina (IMCO) í
samráði við utanríkisráðuneyt-
ið, svo og samstarf við aðrar
alþjóðastofnanir varðandi þau
mál, sem eru í verkahring
stofnunarinnar.
11. — Að annast mál, er
varða siglingalög og sjómanna-
lög, að því leyti sem þau varða
ráðningu skipa, skip og búnað
þeirra, siglingaöryggí og önn-
ur mál, sem ráðuneytið kann
að fela stofnuninni, varðandi
siglingar og áhafnir skipa.
kom í póstinn, og með okkur
tókst fljótt hin bezta vinátta,
sem aldrei hefur rofnað. Ég
fann brátt, að við áttum sam-
leið í mörgu. Mér geðjaðist vel
hin hispurslausa og drengilega
framkoma hans, hinn hlýi andi
er ávallt fylgir honum, hin
mikla festa er einnlifennist i
skapsmunum hans — og þó
langtum fremst framsækni
hans til aukinnar sóknar í
stéttarlegum efnum starfsfé-
laganna. Síðar áttu kynni okk-
ar og samstofna skoðanir að 1
leiða til meira, sem frægt er
orðið og markað hefur tíma-
mót i baráttu starfsbræðra og
systra í kjara- og launabarátt-
unni. ,
Tryggvi hefur tvívegis verið
formaður P.F.Í. f fyrra skiptið
var hann formaður á kyrrlátu
tímabilá. þegar lítt leyndi á
kjark hans og baráttuþrek. En
í síðara skiptið varð annað
uppi á teningnum. Þá urðu
harðar deilur og mikil átök í
launamálum póstmanna, sem
ullu ' miklum tímamótum og
straumhvörfum í launabaráttu
opinberra starfsmanna, því P.
F.í. knúði þá fram kröfur sín-
ar með samtakamætti undir
forustu hans. Stórvægilegar
launahækkanir ' náðust með
stöðvun yfirvinnu og ótrúlegri^
samstöðu stéttarinnar. í þess-®-
um átökum reyndi mjög á
stjórn hans og kænsku. Hann
varð að skipuleggja baráttuna
— en þó öllu fremst að fylgj a
málunum eftir með málafylgju
og rökfestu í umræðum og á
samningafundum með valda-
miklum og reyndum forustu-
mönnum í æðri stöðum. — Þeir
síðamefndu urðu að láta síga
undan — urðu að semja og
lúta hinu skipulagða félagslega
valdi, sem var reiðubúið til að
láta hinn ósána akur félagslegs
jarðvegs opinberra starfsmanna
á íslandi fá fagran þlóma, bera
ávöxt í ~ samhug og stéttarlegum
þroska á vettvangi nýrra bar-
áttuaðferða. Þetta tókst á þann
hátt að brotið er blað í launa-
og kjaramálum ríkisstarfs-
manna. sem frægt verður um
alla sögu.
Ævi og starf Tryggva Har-
aldssonar er þegar orðið marg-
þætt og margofið sérkennileika
þess er alþýðumaðurinn á bezt.
Þrek hans i átökum stéttræn-
um eru rík í áhrifum og í
látleysi sínu og drengilegri
framkomu á vinnustað og alls-
staðar, sem hann fer. vekur
hann athygli og aðdáun. Hann
myndi sóma sér jafnt á veldis-
stóli, í fögrum garði bóndans
og í röðum og forustu fram-
sækinna manna í stéttarbar-
áttu nútímans. En hlutverk
hans hefur orðið það síðast-
talda. Þar hefur hann gengið
á hólm við ofurefli, unnið sig-
ur, borið heilan skjöld og úr
hildi, og án þess að kveikja
illindi um of, án þess áð mót-
staðan bæri þau sár af hólmi,
að þau greru ekki við fyrstu
líkn. Þetta er að vera sannur
sigurvegari — sigurvegari og
foringi fyrir liði af stjóm
leikkænsku — bera orð af
mótstöðunni, er verður meira
eftir því sem athugull skoðari
kannar það betur, íhugar það
meira.
Tryggvi Haraldsson er
kvæntur frænku sinni, Svövu
Hjaltadóttur. Eiga þau sex
börn, öll hin mannvænlegustu.
Heimili þeirra er fagurt, þar
er gaman að koma og dveljast
með með þeim og njóta frið-
ar hamingjusamrar sambúðar,
er byggist á trúnaði, ást og
skilningi í góðu fjölskyldulífi.
Ég óska vini mínum, Tryggva
Haraldssyni, til hamingju með
daginn og alls hins bezta á
komandi árum. Konu hans og
börnum óska ég jafnframt til
-hamingju með dagmn, " föður
hans og móður og öllum ætt-
ingjum og vinum.
Jón Gíslason.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■•■•■•■■■■,
UNNUR EIRÍKSDÓTTIR:
Leikfangaland
Kóngurinn í Leikfangalandí
býr í hvítri höll
í þá höll gengur enginn með svarta sál
eða svartan líkama
drottningin er hvít og mjúk eins og hunang.
Þau eru góð.
Þau eru svo góð að þau gleyma engum.
Gljáandi fugla senda þau um allan heim
og gjöfunum rignir niður:
napalmeldum fallegum kúlum sem springa
nátthröfnum kynjamönnum
gimilegar steikur og hvítfáguð bein
finnast á ökrunum.
Jafnvel svarthærðum snjóbömum
gleyma þau ekki
og senda þeim annarlega geisla
norður í Skammdegismyrkrið.
Svona er fólkið gott í Leikfangalandi.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Norræn frí-
merkjasýning
í Reykjavík
Fyrlr hálfu öðru ári var
stofnaður í Reykjavík frí-
merkjaklúbbur og hafa meðlim-
ir hans sérstakan áhuga á söfn-
un frímerkja frá Norðurlönd-
um. Strax og klúbburinn var
stofnaður gerðist gerðist hann
aðili að samtökum sams konar
klúbba; Scandinavian Collect-
ors Clubs, sem hafa aðsetur sitt
í Chicago.
Klúbburinn hefur alla tíðhaft
á stefnuskrá sirani kynningu ls-
lands á alþjóðavetvangi. Strax
í byrjun sótti klúbburinn um
upptöku í alþjóðasamtök fjí-
merkj asafnara, Federation Int-
ernational de Philatelie. Á
næstu heimssýningu er. haldin
verður í Prag dagana 22. juní
til 7. júlí 1968 er Island í fýnsta
skipti verulega kynnt á slíkri
sýningu.
Þar sýna 6 íslenzkir aðilar á
um 19 fermetrum í 5 deildum
sýningarinnar. Tveir vel þekkt-
ir íslenzkir frímerkjateiknarar
sýna m.a. þar verk sín: Stefán
Jónsson, arkitekt pg Halldór
Pétursson, teiknari.
Er til stóð að Klúbbur Skandi-
naviu-safnara hæfi útgáfublaðs
bauð tímaritið Frimerki klúbbn-
um tvær síður í. hverju blaði.
Hefur blað klúbbsins, Safnar-
inn, komáð út á bann hátt tvisv-
ar sinnum og er upplag hans
bví nær 1000.
Aðalmálið framundan er nor-
ræn sýning f Reykjavík 1970.
Þessi hugmynd vár sett' fram
í Reykjavík í sumar og hefur
þegar fengið byr undir báða
vængi á hinum Norðui’löndun-
um. Á þessa sýningu má búast
Framhald á 9. síðu.
4