Þjóðviljinn - 24.09.1969, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Mlðrvifeudiagur 24. september 1969.
— málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Utgefandl: Utgáfufélag 0|ó5vll|ans.
Ritstjórar: Ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttarltstjórl: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýslngast].: Olafur Jónsson.
Framkv.stjórl: Eiður Bergmann.
Rltstjórn, afgrelðsla, auglýsíngar, prentsmlðja: Skólavðrðust 19. Simi 17500
(5 linur). — Áskrlftarverð kr 150,00 á mánuðl. — Lausasöiuverð kr. 10.00.
Meðalár
VillSUJ aðbyltingar-
stjóminíS- Vietnam
verði viðurkennd?
árabilinu 1962 - 1966 bjuggu íslendingar við
einstök góðæri. Ár eftir ár settu sjómenn okk-
ar ný aflamet og á sama tíma hækkaði afurða-
verðið í sífellu á erlendum mörkuðum. Á þessu
árabili hækkuðu útflutningstekjur okkar um
meira en 100%, en þær tekjur urðu í heild uim 20
miljörðum króna hærri á þessu tíimabili en þær
hefðu orðið í meðal'árum. Hver einasti raunsær
maður gerði sér það ljóst á þessum árum að svo
einstæð höpp gætu ekki orðið varanleg; jafnt afla-
magn sem verðlag hlyti á nýjan leik að nálgast
meðallag. Þvi hefði það átt að vera sjálfsögð fyr-
irhyggja á þessum velgengnisárum að nota drjúg-
an hluta af hinum nýju fjármunum til þess að
efla atvinnuvegi þjóðarinnar og styrkja efnahags-
kerfi hennar. En viðreisnarstjómin lét kröfur
Alþýðubandalagsins um slíka stefnu sem vind
um eyru þjóta. Togaraútgerðin var látin úreldast,
þróun bátaflotans varð mjög einhliða, freðfisk-
framleiðsla dróst saman, íslenzkur iðnaður lenti í
vandkvæðum — en verzlunarmusteri, þjónustu-
hallir og bankar spruttu upp eins og gorkúlur á
haugi. Þannig urðu undirstöður efnahagskerfis-
ins veikari en yfirbyggingin miklu umfangsmeiri
og kostnaðarsamari.
jþessar staðreyndir þúrfa menn að muna þegar
málgögn ríkisstjómarinnar þrástagast á því að
íslendingar hafi síðustu árin búið við einstæða
ytri örðugleika. Sú kenning er fölsun. Umskipt-
in eru fólgin í því einu að óvenjulegu velgengnis-
skeiði lauk og meðalár tóku við. Afkoma þjóðar-
búsins er nú ósköp svipuð og hún var 1962 ag
1963, en þau ár var ekkert' atvinnuleysi á íslandi
og raunverulegar ráðstöfunartekjur manna mun
meiri en nú. Erfiðleikar launafólks stafa einvörð-
ungu af rangri stjórnarstefnu, framtaksleysi og
fyrirhyggjuskorti þeirra sem með völdin fara.
, ð
Vopn ríkisstfórnarinnar
r
Jslendingar hafa nú af því tveggja ára reynslu að
ríkisstjórnin fæst ekki til þess að gera þser
ráðstafanir sem duga til þess að tryggja atvinnu-
öryggi í landinu. Keppikefli ríkisstjómarinnar er
hins vegar það að hagnýta atvinnuleysið í átök-
um við launamenn. Kjarasamningar þeir sem
gerðir voru í ár og í fyrra mótuðust af þessum
aðstæðum; með atvinnuleysinu voru launamenn
neyddir til að sætta sig við mun skarðari hlut en
þjóðartekjurnar réttlæta. Á sama hátt notar rík-
isstjómin atvinnuleysið til þess að lama andstöðu
þjóðarinnar gegn innrás erlends fjármagns.
Mönnum er sagt að þeir eigi um þá tvo kosti að
velja að vera atvinnulausir í landi sínu eða eft-
irláta útlendingum að nýta orkulindimar.
JJíkisstjóm sem þannig leyfir sér að nota at-
vinnuleysið vitandi vits sem vopn gegn lands-
mönnum tekur skammsýn s'téttársjónarmið og
hagfræðikreddur fram yfir þjóðarhag. — m.
í fréttatilkynningu £rá Þjóð-
frelsishreyfingunni í Suðuir-
Víetnam segir, að öll ungkrata-
samtök Norðurlanda, þar með
talið ungkratasambandið á Is-
landi, haii sent forseta bylting-
arstjómarinnar í Suður-Víet-
nam heillaósikaskeyti í tilefoi af
stdfnun byltingarstjómarinnar.
Þetta skeyti var sent sameigin-
lega frá samtökunum sem þing-
uðu saman í Osló dagana 16-,
17. og 18. ágúst sl. Verður þetta
efeki sikilið á annan hátt en
þann, að íslenzkir ungkratar
krefjist þess, að byltingarstjórn-
in í Suður-Víetnam verði við-
urkennd. Hljótum við að fagna
þessu mjðg, sérstaklega þar sem
utanríkisráðherra Islands er Al-
þýðuflokksmaður. Ættu ungir
jafnaðarmenn því að hafa sér-
lega góða aðstöðu til að þrýsta
á íslenzku ríkisstjómina til að
viðurkenna byltingarstjópnina í
Suður-Víetnam.
Hitt er aftur á ,móti grunsam-
legt, að íslenzkir ungkratar hafa
RÓTTÆKIR
PENNAR
í umsjá Æskulýðsfylkingarinnar - sambands ungra sósíalisfa
Ritnefnd skipa: Ólafur Ormsson, Guðmundur Hallvarðsson,
Magnús Sæmundsson og örn Ólafsson.
-<s>
24. þing ÆF
24. reglulegt þing Æskulýðs-
fylkingarinnar hefst föstudaigs-
kvöldið 3. október.
Helztu mál þingsins veröa:
1. Stefnuskrá Æskulýðsfylking-
arinnar.
2. Verklýðsmál.
3. Sjálfstæðisbarátta.
4. Æskulýðsfylkingin og vinstri
hreyfingin.
5. Skipulagsbreytingar ÆF.
Framkvæmdanefnd ÆF.
Hvað segir Emil?
gjörsamlega þagað hór heima
um kröfur sínar um að bylt-
ingarstjómin verði viðurkennd-
Skæðar tungur herma, að þegar
íslenzkir ungkratar hitta skoð-
anabræður sína á Norðurlönd-
um, vilji þeir teljast menn með
mönnium, og þykist fordæma
stefnu Bandaríkj anna í Víetnam,
en hér á íslandi sé þeim bannað
að láta nokkrar slíkar skoðan-
ir í ljós-
Væri því full ástæða tíl að
krefja unga jafnaðanmenm
skýrra svara um það, hvortþeir
fagni stofnun byltingarstjómar-
innar í Suður-Víetnam, eins og
stóð í heillaóskaskeyti þeirra,
hvort þeir styðji eindregið
Þjóðfrelsishreyfinguna í S-Viet-
nam, eins og þeir þóttust gera
á fundinum í Osló. B.
Hernámsandstæð-
ingar úti á iandi!
Sérver hernámsandstæðingur verður að
eignast hljómplötuna með Sóleyjarkvæði
Jóhannesar úr Kötlum í tóngerð Péturs
Pálssonar. Flestir minnas'f flutnings Pét-
urs og félaigaj á Sóleyjarkvæði árið 1965, en
þá fluttu þau það á vegum Samtaka her-
námsandstæðinga í Reykjavík og á nokkr-
uim stöðum úti á landi.
Nú er hljómplatan komin út, þar sem
Pétur, Arnar Jónsson, Kristín Anna, Mar-
grét Guðmundsdó'ttir, Karl Guðmundsson
og fleiri syngja og lesa. — Leikstjóri er
Eyvindur Erlendsson.
Sendið okkur línu og við sendum plöf-
una um hæl í póstkröfu. — Platan er einn-
ig fáanleg í flestum hljómplötuverzlunum.
/ ÆSKULÝÐSFYLKINGIN,
Tjarnargötu 20 — Rvk.
24. þing Fylkingarinnar
og verkefnin framundan
Rætt við Ragnar Stefánsson, fors. ÆF, sartlbands ungra sósíalista
Ragnar Stefánsson hefiur nú
í rúmlega þrjú ár verið helzitt
forustumaður Æsikulýðsfylking-
arinnar, sambands ungra sósíal-
ista. Ragnar hefur verið forseti
Æ.F. á því tímabili sem starff
Æskulýðsfylkingarinnar hefur
verið öflu-gra og þróttmeira út
á við en nokkum tínma áður.
Æskulýðsfylkingin hefur skipu-
lagt fjölda aðgerða til situðnings
þjóðfrelsisbaráttu Víetnambúa,
til stuðnings kröfunum um
brottför bandariska hermáms-
liðsins frá ísllandi og úrsöign Is-
lands úr N-A T.O., og stiaðið fýr-
ir aðgferðum tíl stuðnimgs bar-
áttu verkamanma gegn fjand-
samlegu rfkisvaldi atvinnurek-
enda. Þessar aðgerðir hafa vak-
ið mikla aithygli og deilur í þjóð-
félaginu, oftar en eirru sinni
hafa td. lögregluyfirvöld séð
ástæðu til þess að heita kyllfum
og öðrum bareflum gegn frið-
sörnum aðgerðum Æ-F.
Æskudýðsfylkingin er orðin
virkt afl, sem lastur niú æmeira
að sér kveða í baráttuni gegn
auðvaldsþjóðfélaginu á íslandi,
í baráttunni fyrir sósíalísku
þjóðskipulagi á Islandi.
Róttækir pennar áttu eftir-
faranndi viðtal við Ragnar Stetf-
ánsson, forseta Æ F. nýlega.
— Hvað er helzt að frétta af
starfi og baráttu Æskulýðsfylk-
ingarinnar, Ragnar?
— I byrjun öktóber verður
haldið 24. þing ÆF. í Reykja-
vík- Á síðasta reglulega þingi,
sem haldið var í fyrra var gerð
sú lagabreytíng að þdng skuli
framvegis haldið árlega. Helztu
verkdfni 24. þingsins verða að
fullmóta stefnuskrá Æ-F-, einn-
ig murt fjallað ítarlega um til-
lögur sem fela í sér mjögveiga-
miklar breytingar á skipulagi
Æskulýðsfylkingarinnar. Þá
verður fjallað um skipuliagningu
sjálfstæðisbaráttunnar, það verð-
ur að öllurn Ifkindum veiga-
mesta baráttumál Æ-F. á vetri
komanda- Verkalýðsmálin og
starfið að beim verður sjáltfsagt
mjög mikið til umræðu á þing-
inu, en það mál sem ef ttl vill
verður mesta hitamál þingsins
er staða Æ.F. innan vinistri
hreyfi ngarinnar. Ég sagði áðan
að sjálfstæðisbaráttan væri
veigamesta mélið, en ég vil
leggja á það áherzlu, að ég tel,
að í vetur verði verkálýðsbar-
áttan og sjálfstæðisbaráttan ekki
aðskildar, þesei mál eru nú
meira samfléttuð en þau hafia
verið nokfcru sinni áður.
— Þú saigðir áðan Ragnar, að
staða Æ.F. innam vinstri hreyf-
ingarinnar yrði é£ tíl vill mesta
hitaimálið. Má skilja það þannig
að ágreiningur sé um framtíð
Æ-F. innan vinstri hreyfinigar-
innar á meðal félaga?
— Það hefur ekkj prðið vart
við slíkan ágreining í seinni tíð,
enda hafa þessi mál verið lítið
til umræðu innan Æ.F- Æsku-
lýðsfylfcmgin hefur einbeitt sér
að pólitísfcu starfi út á við, og
reynt að láta baráttumálin sitja
fyrir, en leitt hjá sér að mifclu
leyti innbyrðis ágreiningsimál.
Það er liklegt að þetta verði
stefnan áfram hjá Æ.F.. þó
ekfci sé hægt að fullyrða neitt
um það fyrr en að loknu þing-
imu.
— Hvað áttu við með því að
sjálfstæðisbaráttan og verka-
lýðsbaráttan séu nú samflétt-
aðri en nokfcru sinni fyrr?
— Það yrði of langt mál að
fara mjög ítarlega út í þá sálma,
en ég get nefmt sem dæmi, að
aumleg frammistaða íslenzkrar
verkalýösforustu undanfarinn
áratug, hefur leitt af sér svo
léleg kjör islenzkra launiþega að
þjóðin er orðin eftirsóknairvert
bitbein erlendra auðhrimga. At-
vinnuleysið, sem einnig hefur
verið Ibarizt slælega gegn, mun
verða í vetur eitt sterkasta á-
róðursvopn íslenzkra landsölu-
manna til frekari sölu á hags-
munum þjóðarinnar. I þessu
sambandi má nefna bað, að nú
munu standa yfir alvarlegar við-
ræður milli íslenzfcu ríkisstjóm-
arinnar og bandaríks álhrinigs
um að reisa nýja álverksmiðju
í Geldingamesi (nálægt Reykja-
vfk). Segja rná að ef íslenzk
. verkalýðshreyfing heldur ekki
betur á sínum miálum í vetur
en verið hefur, þá muni geta
gerzt þeir atburðir sem rnuni
veikja mjög aðstöðu íslenzkrar
verkalýðshreyfingar um ófyrir-
sjáanlega framtíð, og að íslenzk-
ir verkamenn geti átt hagsmuni
sína og tfiramtið undir eriendum
auðhringum í mifclu rijkarimæli
én nú er.
— Verður ekíki fjallað um bar-
áttuna gégm. dvöl bandaríska
hersins á Islandi og aðildina að
NATO á þessu 24. þingi ÆF?
— Því miður er ekki hægt að
segja, að nú standi yfir öf luig
Ragnar Stcfánsson
baráitta gegn aðild Islands að
N.A.TO- en vonir standa tíl að
þessi barátta fari harðnamdi í
haust og í vetur. Það er greini-
legt að meðal yngra fólks er
mikil amdstaða gegn N-A.T-O- og
dvöl þandaríska hersins á ís-
landi, með skiptáögðúm óg vel
undirbúnum aðgeröum og öfl-
ugri baráttu þessa unga fólkis
gæti náðst góður árangur. Yms-
ir atburðir hafa orðið til að
sfcýra betur fyrir almenningi hið
raunverulega eðli N.A.T-O-, eins
og t.d. valdarán fasísku her-
foringjanna í Grikklandi- Flest-
um er nú Ijóst að þetta valda-
rán var framið með stuðningi
N.ATO. og C.I-A., leyniþjón-
ustu Bandaríkjanna. Þá hefur
stöðugt öfluigri þjóðfrelsisbar-
átta íbúa Aisíu og Suður-Ame-
ríku orðið til að fletta ofam atf
raunverulegu eðli bandariskrar
heimsvéldisstefnu.
— Hvað með útgáfumálin,
verða þau ekki tókin til um-
ræðu á þinginu og þá sérstak-
lega framtíð NEISTA, málgagns
Æ.F.?
— Jú, það verður sjálf-
saigt eitthvað um þau mál
rsett, það hefur réyndar
áður verið tekim um það
ákvörðun að Neisti skuli korna
út mánaðarlega. Þótt þessi á-
kvörðun hafi ekki komizt í
framkvæmd, tel ég ólíklegt að
þeirri ákvörðun ,verði nofckuð
breytt á þessu þingi.
Framhald á 13. síðu.