Þjóðviljinn - 24.09.1969, Síða 13
MJftvlkuctaigiuir 24. septemlber .1969 — ÞJÓÐVILJnsnST — SlÐA J3
I
Alþjóðabanki stofnaður tíl
efíingar sjávarútveginum ?
RÓM 22/9 — Fiskimálastjóri
írlands, Brendan O’Kélly, lagði
til á ráðsteínu í Róm í dag að
komið yrði á fót sérstakri al-
þjóðastofnun sem vinna ætti að
þvi að efla sjávarútveg um ail-
an heim. O’Keliy lagði einnig
til að í sambandi við þessa al-
þjóðastofnun yrði rekinn alþjóð-
legur fjárfesitingarbanki sem
starfaðí í þágu sj ávarútvegsins.
Kostnað við sitarfsemi siíkrar
stofnunar ættu að beira þau ríki
sem hiagsmuni hafa af eflingu
sjávarútvegs. Tilgangur stofnun-
arinnar ætti að vera að S|fna
öllum tækniupplýsingum f og
miðla ]x>im til hlutaðeigandif að-
ila og hvetja til aukinnar fjár-
festingar í sjávarútvegi. þar sem
þörfin er mest. •
. O’Kelly sagði að sjávarútýeg-
ur og fiskiðnaður væri verr sett-
ur en aðrar framlciðslugreinar
til fjáröflunar. Hann hélt ræðu
sína á ráðstefnu sem Matvæla-
og landbúnaðarstofnun SÞ
(FAO) gengst fyrir.
Verkfalli lýkur
í París
PARÍS 22/9 — Félög starfs-
manna við strætisvagnana og
neðanjarðarlestir í París og yf-
iirvöld borgarinnar hafa komizt
að samkomulagi um styttri
vinnutima og betri vinnuskil-
yrði. Talið er því líklegt að j
verkföllunum, sem lamað hafa
allar samgöngur í París, ljúki. .
En þótt samgöngur í París
komist aftur í gang, er þreng-
ingum stjómarinnar þó ekki
lokið enn. Starfsmenn á frönsk-
um flugvöllum hafa tekið upp
á þeim sið að fara nákvæmlega
eftir öllum reglum til að und-
irstrika kröfur sínar og hefur
það valdið miklum truflunum á
flugi. í næstu viku mun stjóm-
in hefja mjög erfiðar samninga-
viðræður um kaup við félög
verkamanna í rafmagns-, gas-
og kolaðinaði.
Enginn miðskóli
Fra.mhaid af 16. siðu.
en sú reyndist ekki fær. Er
ljóst að nokkrir unglingar sem
hetfðu stundað skóla í F.gils-
staðakauptúni fá enga skóla-
vist í vetur. í Austurlands-
kjördæmi eru hótt á þriðja
hundrað unglingar sem ekki
eiga kost á öðru skólanámi en
skyldufræðslunni. og allstór
hópur verður að láta sér
nægja bamaprótf.
Málaferli
Framhald af 1. síðu.
Þjóðviljinn innti sýslumann
eftir því, hvort fyrirmynda veeri
að leita i löggjöf annarra landa
um eignairrétt á botnium vatna,
eða hvort dömar hefðu gengið í
nágrann alöndunum í hiliðstæðum
málúim. Kvaðst hann ekkert villja
fullyrða um það en benti þó á, að
t.d. í Noregi myndu giílda aðnar
reglur um þetta efni en venja
hefur verið hér á landi.
Fróðlegt verður að fylgjast
með framvindu þessa máls og
munu margir biða úrslita þess
með nokkurri öftirvæntingu, ekki
aðeins landeigendur við Mývatn,
heidur og ýmsir aðrir jarðaig-
endiur er lönd eiga að vötnum
annars staðar á landinu. Getur
' niðurstaða diómsdns í þessu máli
skipt miklu fyrir hagsmuni
þeirra, þar sem hér er umi prtóif-
mál að ræða.
íslenzk frímerki
ný og notuð kaupir hæsta verði RICHARD RYEL
Háaleitisbraut 37 (áður Kópavogi).
Sími: 84424. — (Bezt á kvöldin).
GLÆSILEGT
SVEFNHERBEGISSETT
SKEIFAN 1
KJÖRGAROI SiMI. I8SBO-I6975
Kyimið ykkur okkar
glæsilega húsgagnaúrval á 700 fei^n. gólffleti.
FramSelbum og
seljum alls konar
bólstrub húsgögn
BÓLSTRARINN, Hverfisgötu 74 - Sími 15102
Viðtal við Ragnar
Fraimhalld atf 4. síðu.
— Telur þú liklegt að þing-
inu takist að íulhnóta og af-
greiða stefnuskirána?
— Ég reikna með að stefnu-
skráin verði atfgreidd á þing-
inu en þó með þeim fyrirvara
að ýmsir þættir henuar eru enn-
þá alit of ófullkomnir- StelEnu-
skráin hefur að vísu verið nokk-
uð lehgi til umræðu innan Æ-F,
en samt vantar enn töluvert á
að verkið sé fullmótað- Hug-
myndir byltingarsinnaðra sósíal-
ista um valdatöku verkalýðsins
og framkvæmd sósíalismamns
hafa tekið miklum breytingum
á undanfömum árum og eiga
sjálfsagt efftir að þróast enn
meira á næstu árum. Umræður
um þessa hluti hafa verið allt
of fábreytilegar og feimnislegar
um langt skeið. Þróun slíkra
hugmynda er eitt af helztu verk-
efnum Æ.F. á naestu árum-
— Hvað viltu segja að lokum
Ragnar?
— Að lolcum vll ég segja að
við Islendingar munum innan
mjög fárra ára verða að velja
á milli sósfalískrar þjóðlfélags-
byltingiair og algerrar innlimun-
ar í alþjóðlegt arðránskerfi
bandarísika auðvaldsins.
Það sem býs á bak við þetta
er að ísienzlcri auðvaldsstétt er
ekki treystandi fyrir fjámmun-
um og hagsmunum íslenzku
þjóðarinnar, hún er svo ósjálf-
stæð og veikburða að hún telur
sig nú orðið hafa mestan hag
af því að selja aðstöðu sína er-
lendum aðilum, hún telur sig
græða meira á því að verða um-
boðsaðili erlendra auðhringa
hér á landi heldur en að reka
sjálfsteeðan íslenzkan atvinnu-
rekstur. Þjóðin sameinuð sem
ein heild gegn þessum átform-
um mun geta staðizt hina er-
lendu ásaelni. Það þýðir að þjóð-
in verður sjálf og öll að ráða
yfir framleiðslutæ'kjum s;"im
og f jármagni. Ó. O.
ÞÚ
LÆRIR
MÁLIÐ
1
MÍMI
10004
Plymouth '54
til sölu. Skipti koma
til greina á minni bíl.
t.d. Volíkswagen.
Upplýsingar í síma
82939 og Skipasimdi 28,
eftir M. 7 á kvöldin.
Cgntlnental
Hjólbarða viðgerðir
OPIÐ ALLA DAGA
(LfKÁ SUNNUDAGA)
FRÁ KL 8 TIL 22
SÚMMÍVINNUSTOFAN HF.
Skiphoiti 35, Reykjavlk
SKRIFSTOFAN: ibm 3 06 88
VERKSTÆÐIÐ: (M310 5S
Tilkynning
til bifreiðaeigenda
'• Athygli bifreiðaeigenda, sem rétt eiga til endur-
greiðslu á gjöldum frá árinu 1968 vegna pess að
þeir hafa afhent lögreglustjóra skrásetningarmerki
bifreiða sinna til geymslu um tíma, er vakin á því,
að þeir þurfa að framvísa kvittun fyrir gjöldunum
til imnheimtumanna ríkissjóðs og óska eftir endur-
greiðslu fyrir lok þessa ménaðar. en þá fellur end-
urgreiðslurétturinn niður. Bifreiðaeigendur í
Reykjaivík þurfa ennfremur að sanna rétt sinn til
endurgtreiðslunnar með vottorði frá Bifreiðaeftirlitj
ríkisins um að viðkomandi skrásetnirugarmerki
hafi legið þtar inni til geymslu.
Fjármálaráðuneytið.
Norðlendingar! N orðl endjin gur!
Aðalfundir
klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR á Mið-Norður-
.landi verða á viðkomandi stöðum sem hér segir:
1. Fimmtudaginn 25. sept. á SAUÐÁRKRÓKI —
Suðurgötu 3 — kl. 17,00.
2. Fimmtudagimn 25. sept. á HOFSÓSI — Fund-
arsal kaupf. — kl. 21,00.
3. Föstudaginn 26. sept. á SIGLUFIRÐI — Hótel
Höfn — kl. 21,00. '
4. Laugardaginn 27. sept. í ÓLAFSFIRÐI —
Tjamarborg — kl. 17.
5. Sunnudaginn 28. sept. á HVAMMSTANGA —
Félagsheimilinu — kl. 15,30.
6. Sunnudaginn 28. sept. á BLÖNDUÓSI — Hótel
B'lönduós — kl. 21,00.
DAGSKRÁ fundanna er þessi:
I. Ávarp formanns klúbbsins.
II. Úthlutum viðurkeneingar- og verðlaunamerkja
Sanwinnutrygginga fyrir öruggan akstur.
III. Fnásögn fulltrúa klúbbsins af stofnfundi LKL
ÖRUGGUR AKSTUR.
IV. Framsöguerindi og umræður um umferðarmál.
V. Kaffiveitingar í boði klúbbsins.
VI. Aðalfumdarstörf samkvæmt samjþyikiktum
klúbbsinfe.
VII. Kvikmyndasýning.
STEFÁN JASONARSON frá Vorsabæ, form. Lands-
samtaka Klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR og
BALDVIN Þ. KRISTJÁNSSON félagsmólafullarúi,
mæta og tala á öllum fundunum.
Klúbbfélagar og þeir, sem verðlaunamerki eiga að fá
eru sérstaklega hvattir til að sækja fundina!
Allt áhugafólk um umferðaröryggismál velkomið.
Stjómir klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR
á Hvammstanga, Blönduósi, Sauðárkróki. Hofsósi,
Ólafsfirði og Siglufirði.
DANS-
Kennsla í gömluim dönsum og þjóðdönsum
hefst mánudaginn 29. september.
Flokkar fyrir fullorðna verða í Alþýðu-
húsinu v/Hverfisgötu. — Barnaflokkar að
Fríkirkjuvegi 11.
Innritun í alla flokka að Fríkirkjuvegi 11.
laugardaginn 27. september kl. 2.
Upplýsingar í símum 15937 og 12507.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur.
KENNSLA
4