Þjóðviljinn - 07.10.1969, Qupperneq 1
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ bendir á leíSir til jbess crð
Útrýma atvinnuleysi, bæta lífskjörin
og auka stórlega þjóðarframleiðsluna
„Okkar er að sanna þjóðinni að hún á annarra
kosta völ“, sagði Ragrnar Arnalds, formaður Al-
þýðubandalagsins, í setningarræðu sinni við upp-
haf flokksráðsfundar Alþýðubandalagsins á Akur-
eyri á laugardaginn, og í ræðu Lúðvíks Jóseps-
sonar, formanns þingflokksins, benti hann á leið-
ir út úr ógöngunum. Með ræðu Lúðvíks kom
glöggt fram að Alþýðubandalagið er fært um að
leysa vandamál efnahags- og atvinnulífs og á
flokksráðsfundinum kom glöggt í ljós að forusta
Alþýðubandalagsins, er einhuga í að fylgja fram
kröfum launafólks um mannsæmandí lífskjör á
íslandi, útrýmingu a.tvinnuleysis og stóraukna
þjóðarframleiðslu landsmanna sjálfra.
Glatt á hjalla í Borgarbíói
Fjölsóttur og ánægjulegur hátíðuríundur
Tugir ungmenna scttu svip sinn
a hátíðarfund Alþýðubandalags-
ins, sem efnt var til að loknum
fundi flokksráðsins á sunnudag-
inn. Dagskráratriðin, sem ílutt
voru, hiutu frábærar undirtekt-
ir 300 fundarmanna, scm fylltu
sal Borgarbíós á Akureyri-
Soffía Guömundsdóttir setti
hátíðarfundinn og ílál síðan Sig-
urði Blöndai sikágajrverði fundar-
stjórastörf. Dagskráraitriði voru
fráfbær upplestur Guðrúnar Step-
hensens á ljóðuim norðlenzkra
skálda, einsöngur Guðmundur
Jónssonar ópexiusöngvara, ræður
Jónasar Árnasonar og Ragnai’s
Arnailds og dagsfkrá Magnúsar
Jónssomar um Borðeyrardeiluna;
„Með hnúum, hnefutn og
samstöðun,ni.“ Dagskráin var
ílutt af ungu fólki og setti
skemimtilegur fiutningur qgfraim-
ganga þess eftii'minndlejgan svip
á þessia dagskrá >um þýðingu
samstöðunnar. Ræða Jónasar
Árnasonar uim efnið: „Svað vill
unga fólkið?“ hitti nákvæmlega
í márk og var flutt við óskipta
ánægju og aíixygii hinna ungu
áheyrenda. Og í'æða Ragnars
Arnalds, formanns Alþýðu-
bandalagsins, vakti óskipta og
verðuga athygli fundai’gósta- —
Var það miál fundanmanna að
tæpast hefði áður vei'ið haldinn
jafnveliheppnaður stjórnmálá-
fundur á Akiureyri og fjöiimenn-
ari var fundurinn en menn
Lúðvík Jósepsson ræddi m.a. í ræðu sinni um áróður stjórnar-
flokkanna. sem ala á vantrú á möguleikum Íslendinga til þess að
lifa mannsæinandi lífi i landinu á eigin atvinnuvegum. Hann
benti á að vantrúarkenningin hefur haft sín skaðvaenlegu áhrif.
Áhrif hennar samfara erfiðleikuim atvinnuveganna undanfarin ár
hafa haft þau áhrif að margir spyrja: Er í run og veru unnt
að lifa mannsæmandi lífi á íslandi án erlends stórreksturs? Ég
svara þeirri spurningu hiklaust játandi. íslendingar geta lifað
góðu lífi í landinu og tryggt sér hér jafngóð kjör og betri en það
bezta sem við þekkjum með öðrum þjóðum. Hér þarf ekkeirt at-
vinnuleysi að vera — hér er unnt að tryggja öllum næga atvinnu
við arðbær störí við atvinnuyegi landsmanna sjálfra, sé byggt
á auðlindum sem þjóðin á og þær hagnýttar. Atvinnuleysinu er
hægt að útrýma strax séu tækifæirin notuð og rétt stefna tekin
upp. — Þannig komst Lúðvík meðal annars að orði í ræðú sinni
og benti síðan á nokkur verkefni á sviði atvinnumála. sem geta.
ef framkvæmd yrðu, stóraukið þjóðarframleiðsiuna og tryggt betri
lífskjör á íslandi. — Verður nokkur grein gerð fyrir þessum höf-
uðverkefnum, sem Lúðvík nefndi:
• — Festa skal kaup á 15 nýtízku skuttogurum. Árleg framleiðslu-
verðmæti þeirra mundn nema um 114 til tveimur miljprðum
króna, ef afli þeirra væri unninn í landinu að verulegn
lcyti.
• — Aukning á frystum fiski sem næmi ujn 30 þúsund tonnmn
á ári ,er auðveld með eðlilegri endurnýjun bátaflótans og
samfelldari og ha.gkvæmari rekstri. Slík aukning myndi færa
þjóðarbúinu viðbótargjaldeyristekjur sem næmu Wi milj-
arði á ári.
• — Uíkisvaldið verður að hafa forustu um að koma upp niður-
suðu- og niðurlagningariðnaði, svo unnt sé að fullvinna
ýmsar tegundir sjávaraflans. Að nokkrum árum liðnum ætti
sú framleiðsla að nema tveimur miljörðum króna í útflutn-
ingsverðmæti á ári. Þó að þessu marki yrði náð stæðurn
við enn að baki Norðmönnum í þessari framleiðslugrein.
• — Á sviði iðnaðar er nærtækast að tryggja fulla xvýtingu þeirra
iðnaðarfyrirtækja sem fyrir éru í landinu. Slíkt verður að
gera með breyttri viðskiptastefnu og sanngjörnum og nauð-
synlegum rekstrarlánum til iðnaðarins. Skipasmíðar á þeg-
ar að gera að fastri framleiðslugrein og tryggja á að allir
fiskibátar landsmanna verði smiðaðir innanlands. — Þá á að
koma upp fullkominni veiðarfæragerð og nýjum iðnfyrir-
tækjum einkum til vinnslu úr innlendum liráefnum. Hægt
væri með þessum ráðstöfunum að auka framleiðslu iðnaðar-
ins um 2-3 miljarða króna á ári ef réttilega væri á haldiö.
• — í landbúnaði bíða stórfeild verkefni. Skipuleggja verðtir land-
búnaðarframleiðsluna til liagsbóta fyrir bændur og neytend-
ur. Jafnframt verður að tryggja betur en nú er. að bænd-
ur fái sambærileg kjör og aðrar vinnandi stéttir. Með
breyttu skipulagi, nýjum framieiðslugreinum og með full-
vinnslu á skinnum og ull og öðrum framleiðsluvörum land-
búnaðarins, væri auðvelt að auka tekjur þjóðarbúsins af
landbúnaði um 1 miljarð króna á ári, þegar á næstu árum.
Hér hafa verið nefnd fáein dæmi um stóraukna framleiðslu í
aðalundirstöðuatvinnugreinum landsmanna. Þessi dæmi eru að-
eins hluti þess sem unnt væri að benda á.
Möguleikar þjóðarinnar til aukinnar framleiðslu og þar með
til batnandi lífskjara eru ©kki einvörðungu bundnir við þessa und-
irstöðuatvinnuvegi. Þjóðin á miklar auðlindir í orku jarðhita
og fallvatna og hún á land með sérstæða náttúru, sem dregur að
ferðamenn. Auðvitað hljótum við að xjotfæra okkur þessar auð-
lindir og þau tækifæri, sem tengd eru við ísland sem ferða-
mannaland. En auðlindirnar eiga landsmenn sjálfir að nýta. Jarð-
hitann og fallvötnin eiigum við að virkja stig af stiigi eftir því
sem möguleikar eru fyrir hendi til öflunar lánsifjár með eðlileg-
um hætti og okkar fjárhagur leyfir.
Lúðvík fjallaði um ýmis fleiri mál í ræðu sinni. en af því serrx
hér hefuir verið upptalið er auigljóst: Möguleikar fslendinga eru
miklir, ef þeir nýta auðlindi.r sínar sjálfir og taka. upp nýja
stjórnarstefnu, sem tryggir fulia atvinnu. mannsæmandi lífskjör
og stóraukin framleiðsluverðmæti þjóðarinnar. — sv.
— MYNDIR að norðan eru á 6. og 7. síðu.