Þjóðviljinn - 04.11.1969, Blaðsíða 9
Þriöjudagiur 4. nóvember 1969 — ÞJÖÐVILJINN — SlÐA 0
Framsöguræða Magnúsar Kjartanssonar um rannsóknarnefndartillöguna
Heimildir raktar um stofnkostna
Búrfellsvirkjunar og orkusöluna
Við fyrstu umreeðu fjárlaga
vakti ég máls á kostnaðinum
við Búrfellsvirkjun, rakti hver
hann væri orðinn og hver hann
myndi verða þegar Búrfells-
stöðin yrði fullgerð, og benti á
að framleiðslukostnaður á raf-
orku frá Búrfellsvirkjun væri
nú um það bil tvöfalt meiri en
verð það sem álbræðslan greið-
ir, og að endanlegur framieiðslu-
kostnaður, eftir að Búrfells-
virkjun væri takin til starfa á
fullum afköstum, yrði um fjór-
um aurum hærri á kílóvatt-
stund en greiðsla bræðslunnar.
Þannig væri nú þegar sýnt að
við værum skuldbundnir tilþess
með samningi að seJja bræðsl-
unni orku undir kostnaðarverði
og yrði árleg meðgjöf okkar
fyrstu árin yfir 100 miljónir
króna, en síðar um 45 miljónir
króna á ári-
Þessar frásagnir vöktu mjög
almenna athygli, og þeir menn
sem bera ábyrgð á samningun-
'am við svissneska ádhringinn
töldu sig áð vonum komna í
vanda. Hv- raforkumálaráðherra
reis upp hér á þingi daginn eft-
ir f járlagaomræðurnar og kvaðist
þurfa að koma á framfæri leið-
réttingu, en því miður tókst ekki
betur til en svo að hann varð
að viðurkenna í miðjum um-
ræðum að hann heifði ekki lesið
frás&gn mína, og því gat hann
að vonum ekki heldur gert grein
fyrir svokallaðri leiðréttingu
sinni. Síðar um daginn fengu
öll fjölmiðlunartæki senda at-
hugasemd frá Jóhannesi Nordal
seðlabankastjóra, stjómarfor-
manni Landsvirkjunar, og Ei-
rfki Briem verkfræðingi, fram-
kyæjndastjóra Landsvirkjunar,
þar sem á ýmsan hátt var reynt
að bera brigður á þær tölur
sem ég hafði birt, og mun ég
ræða efni þessarar athuigasemd-
ar hér á eftir. Síðan hafa tekið
við hin venjulegu blaðaskrilf-
1 Vísir sagði á forsíðu að ég hefði
-G>
Dómarabréf
Framhald af 4. síðu. s
keppni UÍA. Hitt er svo ann-
að mál, að það eitt að sdgra
Huigin í knattspyrmu þykir
Þrótturum ekirert til að státa
af og eitt sér liítið gleðiefni.
Jói minn, okkur sýnast öil
þín skrif benda til, að þú hafir
staðið á bak við MiJdka og ekfci
séð sem bezt hvað fram fór, en
getið þér til uim framvindu
leiksins eftir hrópum hinna
kralkjkanna í kringum, þig. Senni-
lega heifði verið skynsamlegra
af þér að veita vanbrigðum þín-
um útrás með því að kastaskít
og hrækja á dómarann eins og
félagar þínir, í stað þess að
stofna miannorði þínu í voða
með bamailegum bréfaskriftum.
Með fýrirfram
sikjóta birtinigu.
þökik fyrir
Björn Magnússon,
Hörður Þorbergsson,
Bencdikt Sigurjónsson,
Einar Rafnsson,
allir frá Ncskaupstað.
Tímarit
Framhald af 2. síðu.
Forstjóri Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins, Pétur Gunnars-
'on, skrifar formóla að hinu
fyrsta hefti-
Ritstjóri er Sturla Friöriks-
son, en í ritnefnd eiga sæti
Friðrik Pálmason, Gunnar Ól-
afsson bg Halldór Pétursson-
Káputeiknimig er éftir Kristínu
Þoikelsdóttuir, teikaxtra-
reynzt uppvís að hrikalegri
reikningsskekkju, en í fbrustu-
grein Morgunblaðsins hefur ver-
ið sagt að tölur þær. sem ég
greindi frá hafi verið vísvitandi
ósannindi og þlekkingar-
Hvar eru
heimildirnar?
í einni af ræðum þeim sem
hv. raforkumálaráðiherra flutti
spurði hann hvar ég hefði feng-
ið þá vitneskju sem ég greindi
frá um kostnað við Búrifells-
virkjun. Alþýðublaðið virtist
telja þetta athyglisvert sjónar-
mið því það spurði á forsíðu
hvaðan mér væri kominn þessi
fróðleikur og hefur síðan fylgt
því viðhorfi eftir í grein eftir
stjórnmálaritstjórann. í þessu
sjónarmiði virðist það felast að
kostnaður við Búrféllsvirkjun sé
eitthvert leyndarmál, að ég hafi
verið að' stunda einskonar njósn-
ir með því að hnýsast í leyni-
plögg sérfræðinga og ráðherra-
Þetta er að sjálfsögðu fráleitt
sjónarmið sem verður að kveða
niður; það er ekiki aðeinis réttur
alþingismanna að afla sér vitn-
eskju um opinber mál sem varða
alla þjóðina, heldur tvímælalaus
skylda þeirra- Og mér er að
sjálfsögðu engin launung á því
hvaðan ég hef vltneskju mína;
hún er að langmestu leyti sótt í
þessia bók.
Þetta er ein af sfcýrslum þeim,
sem bandaríska verkfræðifirmað
Harza, sem hannaði Búrfells-
virkjun og hefur fylgzt- með
öllum framkvæmdum þar, gef-
ur út. Slífcar skýnslur eru gefnar
út árslfjórðungslega og sú bók
sem ég er með hér, er nýjasta
skýrslan, gefin út i júlímiánuði
í sumar- og hún nær fram til
30- júní. Ráðherrann (hlýtur að
kannast við þessa Skýrslu. F.n
þangað er sótt sú vitneskja, sem
ég greindi frá,
1 bðkinni er að finna skýrslur,
töflur bg línurit um alla þæbti
verksins- Tafla nr. 30 fjallar um
kostnað við fyrri áfanga Búr-
fellsvirkjunar. Þar er fyrst tafla
sem ber ylfirskriftina „Original
estimated costs“ — það er að
segja „upphafleg kostnaðaráætl-
un“. Niðurstöðutölumar eru þær
að í upphafi hafi verið áætlað
að kostnaður í gjaldeyri yrði
19-500 000 dollarar, kostnaður í
íslenzlcri mynt 6-354.000 dollar-
ar„ eða heildarkostnaður 25-854-
000 dollarar- Síðar í þessari töflu
er svo kostnaðurinn eins og hann
er metinn, miðað við 30. júní
1969. Þá er lcostnaður í gjald-
eyri metinn 24 028000 dollarar,
kostnaður í íslenzkri mynt
8-544.000 dollarar, bg heildar-
kostnaður 32.572000 dollarar-
Hér er semsé um að ræða hækk-
un frá upphaflegri áætlun úr
25,8 miljónuim dollara í 32,6
miljónir dollara eða um 26%,
rúman fjórðung. Þetta em þær
tölur sem ég gerði grein fyrir
í ræðu minni við fyrstu um-
ræðu fjáriaga- Sé einJiver hriika-
leg reikningissfcékkja. í þessuim
tölum er það sök bandarísfca
verlcfræðifyrirtækisins Harza en
ekki mín- Séu þessar tölur vís-
vitandi uppspuni og blelakingar,
eins og Morgunblaðið sagði í
iforustogrein, er það Harza sem
hefur ástundað svo fráleita iðju-
Liðir sem ekki
eru með
Tala sú sem Harza gefur nú
upp um endanlegan, heildar-
kostnað við fyrri áfanga Búr-
fellsvirkjunar er engan veginn
tæmandi. Á töflu þeirri sem ég
hef ritnað til eru taldir upp
neðanmáls kostnaðarliðir sem.
ekki eru meðreiknaðir, á þessa
leið: „Water rights, interest
during construction, commit-
ment fees, custom duties, taxes,
financing cbst and devaluation
loss on local cost component not
inclúded‘‘. Það er að segja þarna
eru ekki meðreiknaðir liðirnir
greiðsla fyrir vatnsréttindi og
ýmis réttindi önnur, vextir á
byggingartímanum, toJilar, skatt-
ar og gengistap á innlendum
kostnaði. Og hér er að sjálfsögðu
um mjög verulegar fjárhæöir
að ræða sem unnt er að meta
með sæmilegri nákvæmni.
Tökum fyrst liðinn gengistap
á innlendum kostnaði. f athuga-
semd þein’a Eiríks Briems og
Jóhannesar Nordals er öldungis
ekki reiknað með þessum lið.
Þeir segja ofur einfaldlega að
heildarkbstnaður verði 3760 milj-
óriir króna, 'deila í þá uppíhæð
með 88 bg fá þannig dóllara-
kostnað sem nemur 42,7 milj-
ónum dolJara- En málið er ekki
svona einfalt. Þetta verk hefur
verið unnið á þreföldu gengi,
fyrst var dollarinn 43 krónur,
síðan 57 krónur og loks 88 krón-
ur. Gengistapið kemur fram af
því að erlend lán hafa verið
tekin 'fyrir svo til öllum kostn-
aðinum- Auðvelt er að skýra
þetta atriði út með dasmi fyrir
þá sem ekki hafa hugsað þessa
hlið málsins. Meðan gengi doJl-
arans var 43 krónur viar inn-
lendur kostnaður af fram-
kvæmdunum ca. 215 miljónir
króna, eða fimm miljónir doll-
ara. Þessi taia, 215 miljónir
króna, er látin standa óbreytt
í ,. útreikningum þeirra Eiríks
Briems og Jóihannesar Nordals,
en þegar kemur að því að end-
urgreiða fimm miljón dollar-
ana sem teknir voru að láni til
þess að standa undir þessum
kcstnaði er andvirði þeii’ra brð-
ið 440 miljónir króna vegna
gengislækkananna- Þama kem-
ur fram gengistap sem nernur
225 miJjónum króna og það verð-
ur Búrfellsvirlíjun að greiða
með þeim tekjum sem hún fær
tfrá viðskiptavinum sínum. Það
gengistap sem þannig kemur
fram á árunum fram að gengis-
lækíkuninni haustið 1968 mun
nema um 290 miljónum lcróma,
eða sem svarar 3-280000 doll-
urum.
Heildarkostnað-
urinn
Þegar þessi kostnaður er með-
talinn verður heildairkostnaður
samkvæmt áætlun Harza 35.852-
000 dollara. Þá eru ótaldir vextir
á byggingartímamium secn vænt-
anlega nema um 10% eða 3,6
miljónum dollara. Þá vantair í
þessa tölu, eins og getið er, um
í skýrsilu Harza, lán’skostnað —
sem trúlega hefur verið um 1%
— greiðslu fyrir vatnsréttindi,
eftirgjöf á tollum frá ríkinu,^
þann hluta tolla sem Lands-
virkjun hefur orðið samningi
samJovæmt að greiða vegna
verktaka, og skatta fyrir sitarfs-
menn þandarisíka verkfræði-
firmans- Erfitt er að rneta þessia
liði af£ fullri náfcvæmni, en kumn-
ugustu menn telja að þeir verði
ekkl undir 2,5 miljónum doll-
ara- Ætti þá fyrri áfangi Búr-
fells að kosta um 42 miljónir
dbllara eða um 3.700 miljónir
króna- Þá er enn óreiknuð gas-
,aflsstöðin sem mun kosta hátt
á þriðja hundrað miljónia króna.
Sé hún meðtalin verður kostn-
aðurinn um 4 000 miljónir,króna,
og orkuverð á kílóvattstund yfii’
45 aurar — á sarna tíma og
svissneska álbræðslan greiðir 22
aura. 1 þessum útreikningum er
algeríega sleppt kostnaðarliðum
sem enn kunna að bætast við.
Til dæmis stendur nú yfir deila
milli verktakanna og Lands-
virkjunar og mun hún snúast um
hvorki meira né minna en 7—
800 miljónir króna sem verktak-
amir vilja fá í viðbót við þær
greiðslur sem áður hefur verið
samið um.
Þetta er sá kostnaður sem telst
til fyrri áfanga. Erfiðara er að
meta áframhaldið með nobkurri
nákvæmni, viðbótar-vélbúnað og
miðlunarmannvirki. í fyrra var
lagt hér fyrir þing frumv- til
' laga um breytimgu á lögum um
Landsvirkjun. Frumvarpið fól
í sér lántökuheimild vegna
virkjunarframkvæmdanna, og
þar var greint frá þeirri áætlun
Landsvirkjunarstjómar aðstofln-
kostnaður seinni áfanga Búr-
fellsvirkjunar væri áætlaður
661 miljón króna eða 7,5 miljón-
ir dollara- Sé miðað við þá tölu,
sem hvbrki Landsviricjun né hv.
ráðherra geta gagnrýnt, verður
heildarkostnaður yfir 50 miljón-
ir dollara eða um 4-500 miljónir
króna- Kostnaður á ktlóvatt-
sbund — með þeirri útreiknings-
aðferð sem Jóhannes Nordal og
Eiríkur Briern nota í athuga-
semd sinnl verður þá um 26 aur-
ar í kilóvattsibund. Greiðsla ál-
bræðslunnar verður hins vegar
aðeins 22 aurar í kílóvattstund,
en bað jafngildir því að árieg
greiðsla álbræðslunnar verði til
frambúðar ca- 45 * miliónum
króna undir kostnaðarverði, eins
og ég rakti í ræðu minni við
fyrstu umræðu fjáriaga.
Þáttur Jóhannes-
ar og
Raunverulega verður kostnað-
urinn þó nokkm meiri. Þegar
Jóbannes Nordal og Eiríkur
Briem tala um að virkjunin við
Búrifell gefi 1720 miJjón kíló-
vattstundir á ári reikna þeir
með óraunsæjum nýtingartírna.
Álverið á sem bunnugt er að
fá 140 megavött, og þar verður
væmitanlega um að ræða 8.500
sbunda nýtingartíma á ári eða
1-100 gígavattstundir. Afgangur-
inn, 70 megavött sem ætlaður
verður íslenzkum viðskiptavin-
um, nýtist aldrei svona vél- Til
dæmis er nýtingarbími Sogs-
virkjunar um 5 000 stundir á
ári. Þótt alltaf væri nóg vatn
handa Búrfellsvirkjun fæst
aldrei miklu meiri nýting en
um 7000 stundir á ári- Með
því móti fást út úr virkjuninni
tæpar 1600 Gwh, bg er slíioxr
reikn’ingur raumsærri en taJa
þeirra félaga, 1720 Gwh- En þá
yrði kostnaðarverð á kílóvatt-
stund raunar 28 aurar.
Mig langar .að minnast & enn
eitt atriði úr athugasemd þeirra
Jóhannesar Nordals' og Eiriks
Briems, sem sýnir hversu langt
þeir seilaist til röksemdanna-
Þótt ekki sé búið að fuJlprófa
aflvélainar þrjár í Búrfelli og
þrjár séu ekki einusinni komnar
til landsins, segjast þeir gera
sér vonir um að þær muni skila
allt að 15% meiri aifköstum en
reiknað hefur verið með i áætl
unum, og á grundvelli þeirrnr
vonar lækka þeir raforkuverðið
um þrjá aura á kflóviaitbstund í
áætlunum sínum. Að sjálfsögðu
er fráleitt að fullyrða noMcuð um
afköst aflvéla sem ekki er feng-
in reynsla af. Auik þess er það
engin nýjung að aflvélar geti
skilað meiri orJcu en áætlanir
sýna, en þau afkösit eru hagnýtt
í sérstökum toppum en ekki að
staðaldri. En í samfoamdi við Búr-
fellsvirkjun er um ýmsa aðra
óvissu að ræða, t.d- áhrif hugs-
anlegra ísamyndana sem geta
orðið mjög' afdrifarílc. Vonandi
gengur allt jafn vel og hugurinn
ginnisí, en við áætlanir verður
að miða við staðreyndir — ekki
vbnir einar-
I heild verð ég að segja að
málflutningur þeirra Eiríks
Briems og Jóhanmesar Nordals
hefur valdið mér miklum von-
brigðum- Þeir eru einhverjir
æðstu trúnaðarmenn þjóðarinn-
ar, annar þeirra sjálfur aðal-
bankastjóri seðlabankans, og
það er skylda þeirra að leggja
fyrir okkur staðreyndir, eins
og þær eru og draga ekkert und-
an, hvort sern' mönnum falla
þær staðreyndir betur eða verr-
Þess í stað ástunda þeir blekk-
ingar í athugasemd sinni og
reyna að fela staðreyndir með
almennum áróðri. .Mér finnst
ástæða til að víta hér „á alþingi
þessa framkomu opinbeiTa trún-
„aðarmanna.
Skammir duga
ekki gegn staá-
reyndum
Ég hef nú gert grein fyrir því
hvernig útreikningar mínir eru
fengnir- Undirstaðan er áætlun
sem Harza hefur gert fyrir þrem-
ur mánuðum. Við þá áætlun hef ý
ég bætt kostnað a rli öum, sem
Harza viðuricennir að eklci eru
meðtaldir, og kostnað við seinni
áfanga met ég eins og hann var
áætlaður í fyrra af Landsvirkj-
unarstjóm, þegar frumvarp um
lántöfcuheimild var lagt fyrir al-
þingi. Ég hef þannig lagt fram
öll gögn fyrir þá sem hafa hug
á því að vefengja útreikninga
mína. En þá verða menn að
gera það með fullum rökum en
ekki almennum staðhæifingum og
póKtískum skammaryrðum í fbr-
ustugreinum blaða.
Það mál sem ég hef hér vak-
ið athygli á er stórmál, og ég
tel það skyldu allra aíþingis-
manna að gera sér fulla grein
fyrir því- Þetta er ekki aðeinis
stórmál vegna þess að í því felst
mat á fortíðinni, samningum
þeim um raforkusölu sepi gerð-
ir vora við álbræðsluna- Við,
andstæðingar þeirra samninga,
vöruðum við því að svona myndi
fara. en okkur er að sjálfsögðu
fjarri skapi að hælast um þótt
reynslan hafi staðfest aðvaran-
ir okkar- Stjórnar’flokkamir og
sérfræðingar þeirra töldu sig
auðvitað vera að gera rétt og
það er ekkert ánægjuefni að
þær liugmyndir hafa reynzt tál-
sýnir. Það sem skiptir megin-
móli er hins vegar að hagnýta
þessa reynslu til þess að leggja
á ráðin um framtíðina. Við höf-
um nú um langt skeið heyrt ó-
rökstuddan áróður þess efnis að
framtíð Islendinga eigi að vera
í þvi fólgin að gera nýjar stór-
vjrkjanir, þar á meðal einhverja
mestu vatnsaflsviikjun heims á
''-.'.stfiörðum, til þess að selja
exjendum auðhringum orkuna
með svipuðum lcjörum og ál-
bræðslan nýtur- Um það verð-
ur naumast deilt að það getur
aldrei fært okfcur blómlega
framtið að selja raforku undír
kostnaðarverði og verða að
skattleggja íslenzka atvinnu-.
vegi bg íslenzfcan almenning til
þess að greiða með raiforicunni
til útlendinganna, Nú þegar er
svo ástatt að heildsöluverð frá
Landsvirkjun til rafveitna á Suð-
uriandi er 48 aurar á kílóvatt-
stund, á sama tíma og álbræðsl-
an greiðir 22 aura. Áfbrmað er
að þetta verð hækki um 15%
alveg á næstunni, oflan á 15%i
hækkun sem kom til fram-
kvæmda í fyrra. En þótt verðið
á raforlcunni til íslendinga haldi
áfram að hækka, helzt það ó-
breytt handa álbræðslunni; við
verðum að greiða .sifhækkandi
verð til þess að standa undir
hallanum af viðskiptunum við
útlendingana. Ég bið 'aJJa aliþing-
ismenn sem mál mitt heyra að
hugleiða þessar staðreyndir af
fullri alvöru og af fullu raain-
sæi-
Þetta eru ástæðumar Ifyrir þvf
að ég hef ásamt hv- þm. Þórami
Þórarinssyni flutt tillögu um
rannsóknameflrid. Við höfúm
engan hug á því að ná okbur
niðri á hv. ráðherra eða sérfræð-*
ingum hans; þetta mól er miklu
stærra en svo að venjulegar póli-
tískar skilmingar eigi rétt á sér
í samibandi við það- Hér er um
að ræða óhjákvæmilegt rann-
sóknarefni, þar sem allar stað-
reyndir verða að koma Nfram í
dagsJjósið, og ég tel það skyldu
hveirs einasta þingmanms að
kynna sér þessar staðreyndir
persónulega, vegna þess að á
okbur hvílir sú áhyrgð að taka
á’kvarðanir um framitóðina-
Kastaðist úr bíl
Harður árekstur varð á rniót-
um Ibanigiholtsvegar og Skeiðar-
vogs á sunnudaigBkvöJdið. Kást-
aðist annar ökumiamna, 65 ára gam-
aQl, út úr bifredðinni og slas-
aðist. Var hann fluttur á sJysa-
varðstofuna og lá þar enn er
blaðið hafði tai af rannsóknar-
lögreglunni s.d. í gær. Þó var
ekJd taJið að mieiðsli hans væru
lífshættuleg.
Kvöldið áður voru nokkirir
drengír að kJifra í niýbygiging-
unni við GaimJa garð, þ.e. fé-
la.gsheimili stúdenta. Féll einn
drenigjanma niður og miun hafa
fallið þrjá metra. Medddisthann
og var fluttur á slysavarðstof-
una.
SKÓR SKÓR SKÓR SKÓR SKÓR SKÓR SKÓR SKÓR
tó O Gerið góð kaup ’ M O
M Kveninnjskór Vmnubovnsur tsS
XfX Margir litir VÖRUSKEMMAN cn
Milrið úrval Grettisgötu 2 Ballerinaskór
% Karlmannaskór Bamaskór í úrvali 9 litir 'O
Mikið úrval GOTT VERÐ Allar stærðir bd
m xn
SKÓR SKÓR SKÓR SKÓR SKÓR SKÓR SKÓR SKÓR
■ >Wt5tr
Kwam
4