Þjóðviljinn - 24.12.1970, Qupperneq 1
Fimmtudagur 24. desember 1970 — 35. árgangur — 294. tölublað.
□ Þjóðviljinn er í dag þrjú blöð, 12 + 8 + 8 síður.
Q Næs’ta blað kemur ekki út fyrr en þriðju-
□ daginn 29. desember.
□ Þjóðviljinn óskar lesendum sínurn og lands-
□ mönnum öllum gleðilegra jóla.
GLEÐILEG JÓL
■«>-.
Ssmkomukg um
kjör háseta á
fiskibátunum
FuIItrúar háseta á bát-
unuin ok útvegsmanna náðu
samkomulagi um s,jómanna-
kjörin á fundi í fyrrakvöld
og haföi fundurinn staðið í
hartnær tvo sólarliringa. í
gær voru fundir í vcrð-
lassráði sjávarútvegsins, en
fiskverðiö var ekki komið
hcgar h'aðiö fór í prentun
í gærkvöld. Mun samkomu-
lag sjómanna og útvegs-
manna hafa tekið mið af
fiskverðinu og mun liafa
verið gert ráð fyrir 25°/«
hækkun fiskverðsins. Voru
samningarnir undirritaðir af
hálfu Sjómannasambandsins
með fyrirvara um fiskverðið
og ákvæði um fæðispeninga.
Regis Debray
laus, fíaug í
gær tíl Chile
Regis Debray
SANTIAGO, Chile 23/12 — Rit-
höfundurinn franski Regis De-
bray fór í daig flugleiðjs frá Bol-
hhu til Chile ]>ar sem hann he£-
ur fengið griðastað. Debnay var
f dag látinn laus úr fangeisi, en
hann hefur afplánað um fjögur
ár af 30 ára fangel.sisdómi sem
hann hlaut fyrir „byltingairstarf-
semi“ en hann fiór til Bolivíu
til þess að hvtta þair ,,Ohe“ Gue-
vara. Félagi hans, argentinski
málarinn Cirobusto, sem dæmd-
ur var saimtímis honum var
með honum í ílhiigvólinni, en
einnig voru látnir lausir fjórir
bolivískir skæruliðar sem barizt
höfðu með Guevara. (Sjá einnig
fnét'i á 5. síðu).
TUGÞUSUNDIR FÆRÐAR í
HÆSTA SKATTAÞREP 1971
- vegna of lágrar skaffvisitölu
Q Miðað við meðalvísitölu framfærslukostnaðar
árin 1964 og 1970 og skattvísitölu áranna 1965 og
1971 tekur ríkissjóður tugi þúsunda af skattgreið-
endum með nauðþurftatekjur.
Skattvísitalan var ákveðin með
lögum nr. 90 árið 1965 og var
þá sett á 100 og notuð við álagn-
ingu á tekjur ársins 1964. Öljóst
er við hvað skattvísitala á að
miðast — tekjur eða vísitölu
framfærslukostnaðar og vegna
þessara óljósu ákvæða laganna
um skattvísitölu o. fl. hefur
fjármáilaráðherra iðulega skotið
sér undan því að ákveða nýja
vísitölu og notað jafnvel þá
sömu ár frá ári. Þannig hefur
myndin skekkzt æ meira og
sífellt vaxandi verðbólga veldur
því að tekjur sem fyrir sex ár-
um eða skemmri tíma voru há-
tekjur eru í dag lágtekjur.
Skattvísitala var ákveðin 100
1965, sem fyrr getur. 1966 var
skattvísitalan 112,5, 1967 var hún
ákveðin 129,0, 1968 var hún
óbreytt og eiftnig árið 1969. 1970
verður visitalan 140 og á næsta
ári verður skattvísitalan 168,
hækkar um 20% frá fyrra ári.
Skattavísitalan er notuð til
þess að ákveða persónufrádrátt
þ. e. skattfrjálsar tekjur og þeg-
ar núverandi ríkisstjórn tók við
lýsti hún því yfir að einungis
yrðu lagðir skattar á hærri tekj-
ur — lágtekjur fengju að vera í
friði fyrir skattlagningu. En nú
er svo komið að allir þeir sem
á þessu ári hafa haft yfir 188
þúsund krónur fá tekju-
skatt. Einstaklingar fá frá-
dregnar frá skatti 134.400 krón-
ur, þ. e. einstaklingur sem hefur
13 þúsund krónur á mánuði
verður að borga tekjuskatt hafi
hann ekki annan skattafrádrátt.
Frá 1964 hefur vísitala fram-
færslukostnaðar hækkað um
95,7% og til þess að halda í1 við
þá hækkun ætti frádráttur hjóna
frá tekjum til tekjuskatts að
vera 219.200 kr. — ríkissjóður
stelur 30 þúsund krónum og
skattleggur þær í hæsta þrepi fyr-
ir vikið. Persónufrádráttur ein-
staklings ætti að vera 178.000
krónur — fjármálaráðherra hirð-
ir yfir 40 þúsund af einstaklingn-
um, sem eru svo skattlögð í
hæsta þrepi, því að þrepin fær-
ast til að sama skapi sem per-
sónufrádrátturinn.
Hefði skattvísitalan fylgt fram-
færsluvísitölunni væri hún því
196 stig í stað 168 og vantar
því 18 stig upp á að skattvísi-
talan nái meðaltalsvísitölu fram-
færslukostnaðar á þessu - ári.
HAPPDRÆTTX
ÞJÓÐVILJANS
Dregið i
gærkvöld
í gærkvöldi var dregið í
Happdrætti Þjóðviljans 1970
hjá borgarfógetaembættinu í
Reykjavík, en þar sem
fulllnaðarskil hafa enn ekki
borizt í happdrættinu verða
vinninigsnúmer’in geymd inn-
sigluð hjá borgaxfógeta í
nokkra daga.
Innheimtumenn og um-
boðsmenn happdrættisins
eru hvattir til að ljúka
störfum sem allra fyrst svo
hægt verði að birta vinn-
ingsnúmerin Tekið er á
móti skilum á afgreiðslu
Þjóðviljans að Skólavörðu-
stíg 19 kl. 10-12 og á-skrif-
stofu Allþýðu'bandalagsins
að Laugavegi li M. 10-12.
Þjóðvil.iinn bakkar þeim
fjölmörgu stuðningsmönn-
um sínum, sem liagt hafa
blaðinu lið nú sem 'oft áð-
úr með því að káupa rniða
í happdrættinu ' og óskar
þeim öllum gleðilegra jólla.
Húsiiæðismálastofnun ríkisins:
Veitt embættí frumkvæmdu■
stjóru og skrifstofustjóru
Hópur uppþotsmanna fer ránshendi um matvælaverzlun i Gdansk
Félagsmálaráðherra hefur skip-
að Sigurð Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóra Húsnæðismála-
stofnunar ríkisins og Skúla Sig-
urðsson skrifslofustjóra sömu
stofnunar. Tekur embættisveit-
ingin gildi frá og með 1. jan.
næst komandi. ^
Umsækjendur um starf fram-
kvæmdastjóra vora tveir Sig-
uröur Guðmundsson, skrifstofu-
stjóri stofnunarinnar og Guð-
mundur Vigfússon. Fj-allaði stjóm
stofnunarinnar um umsóknirnar
og taldi báða umsæ'kjendur hæfa
til starfsins, en ráðherra sldpaði
Sigurð. Eggert G. Þorsteinsson
var skrifstofustjóri til ársins
1965, og hefur Sigurður gengt
embættinu síðan. Umsækjendur
um það starf vom hins vegar
fjórir, þeir Skúli Sigurðsson, lög-
fræðingur, sem hlaut embættið, Guðjón Sverrir Sigurðsson, fyrr- um starfsm. Iðju, Amar Ingólfs- son og Páll S. Pálsson bókari. Mælti húsnæðismálastjóm með Skúla Sigurðssyni.
Minnis- |
! blað um J
■ r ■ ■ b, |oíin — S
baksíða \
2
Gierek flokksritari boðar tveggja ára verðstöðvun
Munnaskiptí í æðstu
embættum í Póllandi
Cyrankiewicz forsætisráðherra verður forseti í stað
Spychalski, Piotr Jaroszewicz nýr forsætisráðherra
VARSJÁ 23/12 — Eins og við hefur verið búizt hefur verið
skipt um menn í ýmsum æðstu embættum í Póllandi, en
mannaskiptin eru bein afleiðing uppþotanna í nokkrum
pólskum borgum í síðustu viku eftir að tilkynnt hafði
verið að landbúnaðarvörur og aðrar lífsnauðsynjar yrðu
hækkaðar verulega í verði.
Helztu breytingamar sem gerð-
ar haifa verið á æðstu st.iórn
laindsins eru þær að Joszeif Cyr-
ankiewicz lætur nú af emibætt'
forsætisiráðherra sem hann hef-
ur gegr.t lengur , en nokkur
starfsbróðir hans í Bvrópu, eða
í 21 ár (að frádregnuim tveimur
érum í upphafi sjötta áratutgsins
þegar hann var varaforsætisráð-
herra). Cyrankiewicz tekur við
emibætti ■ íorseta af Spychalsikj
marsikiálki, en því embætti fylgja
emgin raiuoveruleg völd.
Nýi forsætisráðherrann
í embætti forsætisráðherra hef-
ur verið skipaður Pjotr Jarosze-
wicz, sem verið hefur varafor-
sætisráð'herra og vairaifulltrúi í
framikvæmdanefnd filokiksins. —
Hann hefur eiinkum annaztsam-
skipti Pólverja við önnur ríki
sem aðild eiga að efnaihagssam-
vinnunefnd ríkja Austor-Evrópu.
Hann er sórfræðingur í iðnaðar-
og ef.nahagsmálum og hefur
verið varaforsætisráðherra í átj-
Því haifði verið spáð þegar á
mánudaginn að hann myndi taika
við af Cyrankiewicz, sem geld-
ur þess að hann fordæmdi upp-
þotin, þótt kunnugir segi aðhann
hafi sjálfur verið andrvígur á-
kvörðuninni um verðhækkanim-
ar sem hleyptu þeim af stað.
Rreytingar á flokksstjórn
Samitfmis hafa verið gerðar
breytingar á æðstu stoifinun
Verkamannaflokksiins pólska, —
framkvæmdanefindinni.
Jaroszewicz verður nú fuill-
gildur meðilimur í nefndinni,
sömuleiðis Mieczyslaw Moczar
sem var einn æðsti leiðtogi and-
spyrnuihreyfiin'garfnnar gegn Þjóð-
verjum á hemámsárunum, og
hefuir verið m jög umræddur og
umdeiMur á síðustu árum fyrir
Unnid að viðgerðum eftir uppþotið í Gdansk í síðustu viku
augflijósa viðleitni til að nota
sér stuðning fyrri féiaga sinna
£rá stríðsárunum, „partisananna"
svonefndu, til að etflla áih.rif sín
eða jafnvel brjótast til valda í
fldkknum.
Vcrðstöðvun í tvö ár
Edward Gierek, hinn nýi leið-
togi fflokksins, sem tók við af
Gomulka um síðustu hefligi, skýrði
pólska þjóðþinginu fré því í dag
að ákveðiö hefði verið aðstöðva
allt verðlag í landinu næstu tvö
ár, nema á vö.rum sem firamiboð
er misjafint á efitir árstíðum, svo
sem grænmeti, ávöxtum, mjólk
o.s.frv.
Láglaunafólk styrkt
Þá skýrði Gierek fré því að
pólska rikdð réðii yfir um 7.000
miljónum zloty (rúmlega 20mil-
Framhald á 2. siðu.
JÓLAFAGNAÐUR
Jólafagnaður Vemdar verður
haldinn í Templarahöilinni,
Eiríksgötu 5 á aðfangadag.
Framreiddur verður hátíðarmat-
ur og jólapöklcum úthlutað. All-
ir, sem ekki haifa tækifæri til
að dvelja með vinum eða vanda-
mönnum á þessu hótiðakvöldi
eru velkomnir á jólafagnaðinn.
Húsið verður opnað M. 3 eftir
hádegi j dag.