Þjóðviljinn - 24.12.1970, Síða 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVIIaJINTJ — (Fimimtiuidiaeu'r 24. desember 1070.
Athugasemd frá
Ragnari Arnaids
Tvær Iciðréttingar verð ég
að gera í tilefni af orðaskipt-
um okkar Ólafs Gíslasonar í
Þjóðviljanum 20. og 22. des-
ember um framsöguræðu mína
á flokksráðsfundi AB í baust.
í svargrein minni hefur
prentvjilupúkinn það eftir mér,
að vinstri airmur hinnar sósí-
alisku hreyfingar hafi á sín-
Eiturefni
Framlhald af 12. sídu.
í Kambodju, dreifðu bandarískar
flugvélar efnum sem innihéldu
um 50% arsenik á 200.000 hekt-
ara svæði i landinu. Sagði pró-
fessorinn, að þetta hefði m. a.
leitt til þess, að 1/3 af gúmmí-
ekrum landsins hefðu eyðilagzt.
Prófessor Ton That Tung frá
Norður-Vietnam tfuillyrti að fjöldi
kvenna í Suður-Vietnam hefði
fætt vansköpuð böm vegna eit-
urdreifingar Bandaríkjamanna,
t>g franskur prófessor, Alexandre
Minkowskí að nafni kvað mjög
erfitt að gera sér grein fyrir
því, hver áhrif dreifing eitur-
efriá heíði á menn.
um tima staðnað „í ofsatrú á
á leið Sovétríkjanna til sósíal-
ismans“. Sjálfsagt má það til
sanns vegar færa, að þetta hafi
sums staðar gerzt. Hins vegar
stóg annað í handriiti mínu og
er rétt að það komi fram, en
ég orðaði það svo, að vinstri
armurinn hefði viða staðnað í
oftrú á leið Sovétrikjanna til
sósíalismans.
' Grein Ólafs birtisit í Þjóð-
viljanum rúmum mánuði eftir
að hún barst blaðinu. í vel-
virðingarbeiðni sem blaðið
birti af þessum sökum afitan
við greinina, er svo ólánlega
til orða tekið, að lesendur
kjmnu að ætla að grein Ólafs
hefði legið allan þennan tima
undir kodda hjá mér. En það
er ekki alveg rétt. Ag vísu var
líttnefnd grein send mér hing-
að norðu.r og tafðist í mínum
fórum svo sem eina viku, en
lengsit héld ég að hún hafi
dvailið í vörzlum póstmanna og
í allmarga daga munu jólaaug-
lýsingar hafa stjakað henni af
síðum blaðsins.
Varmiahlíð. 23. des. 1970.
Ragnar Arnalds.
Tveir
herrar
Á jióttaföstunnl drottnar guð
sá sem mamnimon nefnist yfir
áíþingi Islendinga, ogríkihans
verður sífellt urnfan gsmei ra,
svo seon marka má aif þvíað
orðið miljarður er nú óðum að
taka við a£ miHjóminni sem
hversdagsleg staarð. Hins veg-
ar fer lítið fyrir hinum upp-
hafnari yiðfangsefnum á þingi
i aðventunni, og ekki eru þar
haldin nein litlu jól þar sem
forsetar Jesia úr jóflaiguðspjall-
inu og þingmenn syngjaheims
um ból. Hafi einhver haift á-
hyglgjur af sólarheill þing-
manna af þessium sökum
kann honum þó að haf a létt
nokfcuð þegar frá því var
greint í fréttum að alþingi
hefði samþyfclkt lög um mál-
eifni evangelisk-lúterslaa trú-
fllokfcsins rótt fyrir lok jóJa-
föstunnar; það hlaiut þó alla-
vegana að vera til marks um
það að mammon ætti einhver
vígi óunnin.
Lög þessi fólu í sér smá-
vægilega fyrirfcomuilagsþreyt-
ingu á fyrri löggjöf um
kirkjuþing og kirkjuráð. Sú
löggjöf fjallar um það hvem-
ig evangélísk-lúterski trú-
flokfcurinn eigi að fara að því
að halda þing sín, hvemig og
hvar eigi að fcjósa þíngfuill-
trúa, hverjii’ hafi kosningarétt
og kjörgengi og þar fram eft-
ir götunum. Nú er þessi lög-
gjöif aifar einfcennilegt fyrir-
bæri Á Islandi er aragrúi af
frjólsum félagssamtökum og
þau eru í mfelJu að hallda þing.
Hins vegar hefur alþingis-
mönnum ekki til hugar komið
að setja löggjöf um þinghald
þessara félaigai, hvoriki stjóm-
málafélaga, verklýðsifélaga,
menningarfélaga, mannúðarfé-
laga né ainnarra, þetgar
evangelísk-lúterski trúflJokkur-
inn er undan skilinn. Alþingi
lítur réttilega svo á að mönn-
um eigi að vera bað frjálst
að stofna félöe og haga starf-
semi þeirra að eigin geðþótta,
enda er sú afstaða ein í sam-
ræmi við ákvar' i stjómar-
skrárirmar um flédagafrelsi,
skoðanafrelsi og trúfreilsi. Það
er aðeins evangélísfc-lúterski
trúfllokkurinn sem ekki hefur
frelsi til að ákveða hvemig
hann hagar þingum sínum.
Hitt er þó ennþá furðulegra
að það var trúfloktourinn sjólfr
ur sem beitti sér fyrir bví að
þessi löggjöf var sett 1957. Og
eikiki er síður frióðlegt að at-
huga hvers vegna þau tilmæli
komu fram. Eina ástæðan var
sú að evangelísk-lúterski trú-
flokkurinn vild: flá peninga úr
rfkissjóði fyrir að halda þing
og leggja á sig störf í þágu
trúarinnar. 1 13du grein lag-
anna segir svo: „Kirkjuþings-
menn fá greidda úr ríkissjóði
dagpeninga og ferðakostnað.
Kýs kirkjulþingið þriggja
rnanna þingfararkaupsnefnd,
sem endursfcoðar reikninga
kirfcjuþingsmanna, en kirfcju-
mólaráðherra úrskurðar þá og
ákveður upphæð dagpeninga".
Og í 17du greininni er komizt
svo að orði: „Kirkjuráðsmenn
fá greiddan framlagðan kostn-
að og aðstoð eft'r reikningi,
er kirkjumálaróðuneytið úr-
skurðar". Einnig hér er um
algert einsdæmii að rasða. önn-
ur frjáls félagasamtök, þar á
meðal alllr aðrir trúflokkar,
standa sjáiltf straum af þing-
haldi sínu, og eru þau þing
ýms þó mjög kostnaðarsöm.
H:ns vegar virðist það hafa
verið sameiginlegt mat þjóð-
kirkju og alþingis, að hvorki
evangeflislkir klerkar né leik-
menn myndu fást til aö þ'.nga
nema tryggt væri að þeir
fengju greiðslu samkvæmt
uppmælingataxta fyrir lofr
söngva sína og bænagerð.
Það eina máii sem virtist
skera sig úr á þing: á jóila-
föstunni, reyndist þairinig
einnig til marks um ríki
mammons. Engu að síður er
bað vafalaust rétt sem Matt-
heus hefur etftir Kristi: „Eng-
inn getur þjónað tveimur
hemtm, því að annaðhvort
mun hann hata annan og elska
hinn, eða aðhýllast annan og
iítilsvirða hinn. Þér getiðekki
þjónað guði og mammon"
— Austri.
!
í
!
k
i
Sigurjón Pétursson, borgarráðsmaður:
AÐ FELA FÉ
Sigurjón Pétursson borgar-
ráðsmaður Alþýðubandalags-
ins mun á næstunni fjalla um
ýmsa þætti borgarmála í
nokkrum pistlum I Þjóðvilj-
anum. Birtist sá fyrsti i dag,
annar kemur I blaðinu milli
jóla og nýjárs og sá þriðji
fljótlega upp úr áramótunum.
Þegar reikningar Reykja-
víkurborgar etu. sk'oðaðir,
kemur ætíð í ljós að ýmsir
liðir hafa farið fram úr fjár-
hagsáætlun en aðrir hafa ekki
notað alla sína fjárveitingu.
Þetta kann að virðast eðli-
legt og jafnvel óihjákvæmi-
legt.
Fyrirfram er aldrei hægt að
sjá fyrir öll útgjöld eða allar
tefcjur. Það, sem er e. t. v.
eftirtektarvert við þetta er
það að það gætir vaxandi
tilhneigingar hjá valdhöfum
borgarinnar til að vanáætla
tekjur en ofáætla kostnað.
Þannig óætlanir gefa þeim
möguleika á að róðskast með,
oft mikla, fjármuni sem eru
óbundnir þ. e. uitan fjórhags-
áætlunar.
Nýsamþykkt fjárhagsáætl-
un Reykjavíkurborgar fyrir
árið 1971 er talandi tákn um
þessa tilhneigingu. Þegar full-
trúar minnihlutans bentu á
þessar augljósu veilur í gerð
fjárhagsóætlunarinnar var
þeim helzt engu svarað, eða
að sagt var, eins og borgar-
stjóri sagði þegar einn þátt-
urinn var ræddur: Þessar
tekjur skila sér, hvort sem
áætlað er fyrir þeim eða
ekki. Þess vegna greiði ég
atkvæði gegn tillögu minni-
hlutans.
Við skulum nú líta á einn
þátt fjárbagsáætlunarinnar,
það er tefcjuöflun borgarsjóðs,
og athuga saman þá fjárhags-
áætlun sem borgarstjórnar-
íhaldið lagöi fram — og sam-
þykkti, og tillögur rikkar
minnihlutafulltrúanna og á
hverju við byggðum þær.
Til er tekjuliður sem heitir
„Gjaldársútsvör“. ÞeSsi útsvör
greiða þeir, sem látnir eru
greiða útsvör á því sama
óri og tekjur skapast, t. d.
úttendingar.
Á árinu 1970 voru þessi út-
svör áætluð 7 miljónir króna.
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins töldu þetta vanáætlað
og gerðu tillögu um að þessi
tekjustofn yrði áætlaður 8
miljón krónur. Það felldi
íhaldið.
30. nóv. s. 1. voru þessar
tekjur komnar í 8.728.431,00
eða rúmlega 728 þús. hærri
en borgarfulltrúar Alþýðu-
bandalagsins lögðu til að þær
væru áætlaðar og 1.728 þús.
hærri en íhaldið samþykkti
að áætla þær. Dálagleg fúlga
það!
Tillaga fjárhagsáætlunar
fyrir árið 1971 er að þessi
liður verði 9 miljónir. Með
hliðsjón af þeirri miklu
hækkun er varð á þessum lið
á síðasta ári og eins þegar
litið er til þess að allt kaup-
gjald hefur hækkað, og það
hve atvinnuhorfur eru betri
nú en á undanfömum árum,
þá lögðu minnihlutaflofckarn-
ir í borgarstjórn til að þetta
yrði áætlað kr. 11 miljónir í
stað 9 milj. Auðvitað var
það fellt.
Annað dæmi: Byggingaleyfi
voru áætlu’ð fyrir árið 1970
kr. 1.200 þús. 30. nóv. s.l. var
þessi tekjustofn kominn í
kr. 2.086.006,00i. í fjárhags-
áætlun fyrir árið 1971 áætlar
meirihluitinn að þetta verði
kr. 2 milj. eða Iægra en það
var orðið í nóvemberlok s.l.
Þetta lögðum við minni-
hlutafulltrúarnir í borgar-
stjóm til að yrðj áætlað 2.600
þús. og miðuðum þá við
fyrri áætlun og það sem inn
er komið og töldum okkur á-
ætla variega.
Einnig þetta felldj íhaldið
og ekki aðeins þetta heldur
allar tjllögur okkair til að leið-
rétta greinilega ágalla áætl-
unarinnar.
Sigurjón Pétursson
Eitt dæmi enn: Þegar leigú-
tekjur byggingasjóðs voru á- g
ætlaðar, „gleymdist" að á- £
ætla fyrir leigutekjum af í- qj
búðum í Breiðholiti III, en í- jk
búðum þaT verður úthlutað ®
á fyrrj helmingi næsta árs. k
Þagar fulltrúar minnihlut- N
ans bentu á þetta og gerðu Ej
tillögur um leiðréttingu, þó ®
felldi meirihl-jtinn það og
borgarstjóri gerði þá grein
fyrjr atkvæði sínu, sem vitn-
að var í áðan:
— Tekjurnar koma, þótt °
ekfci sé áætLað fyrir þeim, g
Förum við kannski bráðum p
að hætta að gera fjórhagsá- n
ætlun því tekjumar koma JJ
hvort sem er? Kannski hætt- ■
um við líka við reikningdnn, k.
því tekjumar eyðaist án hians. B
Væri svo hægt að leggja N
kosningar niður þá væri nú ^
fyrst gott fyirir íhaidið að
stjóma í Reykjavík.
Spychalski marskálkur sem lét í Cyrankiewicz (t.v.) ræðir við
gær af embætti forseta Póllands vesturþýzkan fréttamann nýiega
AAannaskiptin í Póllandi
Framihald af 1. síðu.
jörðum ísl. kr.) sem variðmyndi
til að bæita láglaunafólki og bá
sérstaklcga bammörgum fjöl-
skyldum verðhækkanimar á Íífs-
nauðsynjum. Hann bœttí því
einnig við að verðlag á ýmsum
varanllegum neyzluvörum, svo
sem hvers fconar heimilistæfcjum,
myndi verða lækkað í samræmi
við lækfcum á framleiðsiLukostn-
aði þe'.rra sem gera mætti ráð
fyrir að verða myndi þau tvö
ár sem verðstöðvunin á að gilda.
Þjóðþingið samiþyfcfcti einróma
allar ákvarðanir hinna nýju
ráðamanma og staöfesti einnig
mamnasfciptin í æðstu emibættum
rikisins, en Gierek haflði skýrt
þinginiu frá þvi að þaer áfcvarð-
anir myndu nú verða ræddar á
almennum fundum sem haldmir
yrðu um aíllt Pólland á næstunni.
Ur matvælaverzlun í Póllandi
íkveikjur við Öskjuhlíð
Einhverjir pörupiltar virðast
hafa óblandna ánægju af því að
kveikja í skúrum við rætur
Öskjuhlíðar, en tvær íkveikjutil-
raunir munu hafa verið geröar
þar í fyrradag, og aðrar áður.
SlökikviHðið í Reykjaivík var
síðdegis í fyrradag kvatt að
geymsluskúr á þessum slóðum,
en hann hefuir áður orðið fyrir
barðinu á pörupiltum. í það sinn
tókst að bjarga þaðan höggmynd
eftir Guðmund frá Miðdal, en að
þessu sinni var fátt verðmætt í
skúrnum, og slökkviliðinu tókst
fljótlega að kæfa eldinn. Um
síðari brunann var tilkynnt
skömmu síðar, og fór þá slötokvi-
lið flugvallarins á vettvang, og
réð niðurlögium eldsins.
Dómsuppkvaðning í
Burgos á laugurdtsg
MADRID 23/12 — Fullvíst þykir nú, að d&nur í múli
Baskanna 16 í Burgos, sem herréttur fjallaði um nýlega,
verði kveðinn upp á laugardag, en því hefur verið frestað
nokkrum sinnum án skýringa. Þá segir í óstaðfestum
fregnum, að ræningjar vestur-þýzka konsúlsins Beihl hafi
lofað að láta hann lausan, ef gengið verði að þremur kröf-
um þeirra.
1 fyrsta lagi fara þeir fram á,
að enginn af föngunum 16 verði
dæmdur til dauða, í annan stað
krefjast þeir, að 37 fangar úr
röðum Baska verði látnir lausir,
og loks að landamæragæzlu verði
hætt, svo að þeir geti flúið frá
Spéni. Frétt þessa birti dag-
blaðið Diario Basco í San Se-
bastian, og formælandi vestur-
þýzka sendiráðsiris kvaðst hafa
lesið hana, en vildi ekki stað-
festa hana.
Sú tilgáta hefur komið fram,
að hætt verði við fyrirhugaðan
dauðadóm yfir 6 úr hópnum og
kann því svo að fara, að spænsk
stjómvöld hyggist ganga að fyrr-
greindum kostum ræningja Beihl
Tilgátan er m. a. rökstudd á
þann veg, að dauðadómar verði
vart kveðnir upp um jólin.
Mennirnir 6, sem hingað til
hafa verið áHtnir eiga dauða-
dóm yfir höfði sér hafa allir lýst
því yfir, að þeir starfi í sam-
tökunum Eta, sem berjast fyrir
sjálfstæði Baskahéraðanna og
sósíölsku þjóðskipulagi. Þeir eru
ákærðir fyrir hlutdeild í morði
Melcton Manzanas, sem var lög-
reglustjóri í San Sebastian.
Svo sem fram hefur komið
hafa réttarhöldin í Burgos vakið
mikla reiðiöldu á Spáni og er-
lendis, og hafa andstæðingar
Frankó-stjómarinnar efnt til
margvíslegra aðgerða og verk-
falla í mótmælaskyni við þá
málsmeöferð sem mennirnir hafa
hlotið.
SinfóníuhljQmsveit íslands:
/
Tonleikar í Háteigskirkju
þriðjudaginn 29. desember og miðvikudaginn 30.
desember kl. 21.00.
☆ ☆ ☆
Stjórnandi: Ragnar Björnsson.
Einleikari: Haukur Guðlaugsson organleikari.
Flutt verðia verk eftir Bach, Handel og Mozart.
☆ ☆ ☆
Áskriftarskírteini á 1. bekk til og með 13. bekk
gilda á tónleikana 29. desember og frá 14. bekk
til 28. bekk gilda 30. desember.