Þjóðviljinn - 24.12.1970, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVIUTNN — Fimmtudagur 24. desember 1970.
——
— Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsls —
Otgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.)i Magnús Kjartansson,
Sígurður Guðmundsson.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Fréttastjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Siml 17500
(5 linur). — Áskriftarverð kr. 195.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 12.00.
Pa.blo Picasso: Móðir og bam
„effC'r", ftjT
Jesús Maríuson
Jesús sonur Maríu ér bezti bróðir minfl:
hann býr í hjarta fnínu
•— þar kveikir hann í rökkrinu rauða
márgt eitt sinn
á reykelsinu sínu.
Og jafnan þegar allir hafa yfirge'fið mig
og enginn vill mig hugga
þá birtist hann sem stjarna í austri og sýnir sig
á sálar minnar glugga.
Og þó hef ég ei beitt slíkum brögðurti
nokkum rrtiann:
ég hef brennt á vör hans kossinn
og hrækt síðan á nekt harts og rtítt og slégið hann
og rteglt hanrt Uþp á krossinn.
En hvað svo sem ég geri er hann mín éirta hlíf
er hrynur neðsta þrepið
því hvað oft sem hann deyr þá er e'ftir
éitthvérf líf
seim enginn getur drepið.
Og Jesús soUur Maríu rnaétir öss éitt kvöld
sem mannlégléikárts kraftur:
æ vértu ekki að grafa ’ónum gröf mírt blinda öld
— hann géngur sífellt aftur.
Jóhannes úr Kötlum. — Úr Sjödægru.
Sjötíu og fimm ára á jóladag;
Margrét Óhfsdóttir
Hraunbraut 6, Kópavogi
Margrét Ólafsdóttir, biúsfreyja
að Hraunbraut 6 í Kópavogi,
verður 75 ára á jóiladag.
Margrét er Hrútfiröingur að
ætt og uppruna. Hún fæddist
að Kolbeinsá í Bæjarhreppi,
dóttir hjónanna Elísabetar
Stefánsdóttur og Ólafs Bjöms-
sonar. Ólst hún þar upp í hópi
margra systkina. Síðar bjó hún
þar sjálf um skeið eftir að
hún giftist Guðlaugi Jónssjmi.
Ennfremur áttu þau um tíma
heima á Borðeyri og loks á
nýbý'li er Lyngholt heitir og er
rétt fyrir innan Borðeyri. Eftir
að þau brugðu búi fluttust þau
suður, fyrst til Reykjavíkur og
síðar í Kópavog, og hefur
heimili þeirra verið þar i mörg
ár.
Margrét og Guðlauigur eru
bæði vel gefin og hafa hlotið
mikla mannkosti í vöggugjötf.
Þeim hefur orðið briggja bama
auðið en þau em: Böðvar,
kennari og skáHd, búsettur í
Kópavogi, Sigurbjörg iðnverka-
kona, einnig búsett í Kópavogi,
og Júlíana, húsfreyja að Hrúts-
stöðum í Dalasýslu. Ekki hefur
eplið þar fallið langt frá eik-
inni, því að öll hafa þau erft
greind og mannkosti foreldra
sinna.
Heimili Margrétar ólafsdótt-
ur hefur jafnan staðið opið
ættingjum og vinum t>g sá hóp-
ur er ekki smár sem notið
hefur gestrisni hennar og
mýndarskapar í húsmóður-
starfi. Efeki hefur þó alltátf
verið auður í garði þótt annað
mætti ætla af móttökum og
viðurgerningi á heimili hennar.
En það er ekki einungis eðlis-
læg rausn hennar sem hefur
gert heiittiH hénnar aðlaðandi
fyrir vini og venzlafólk, held-
ur einnig sú alúð og hjarta-
hlýja sem þar mætir hverjuxn
ög einum og þá ekiki síður
smátfólkinu en þeim fullorðnu.
Hefj ég kynnzt þvá allvel hve
böm, og nú f seinni tíð einnig
bamaböm vina hennar og
skyldmenna hiafa laðazt að
Margróti og heimili hennar og
fundið sig þar mikla aufúsu-
gesti.
Samúð Margrétar með beim
sem minna hafa mátt sín og á
einhvern hátt hafa farið halloka
í strangri lífsbaráttu hetfur
jafnan verið einlæg og afdrátt-
arlaus. Hún hefur siálf kynnzt
erfiðri lífsaðstöðu alþýðufólks
t>g dregið af því rétta iærdóma.
Hún hefur stutt hreyfingu al-
þýðunnar af heilum hug og
lagt sitt atf mörkum til
þess að tímamir framundan
mættu verða betri og bjartari
en þeir sem hennar kynslóð
átti við að búa í uppvexti og
mótti lengi við búa.
Þetta átti ekki að verða nein
afmælisgrein, aðeins stutt
kveðja frá mér ■ og fjölskyldu
minni til bín, Margrét ■ mín, í
tilefni bessara tímamóta í ævi
binni. Og ég veit að undir bá
kveðiu og hnkkir fvrir liðna
timia taka alii,r beir mörgu sem
notið hafa velviidar þinnar.
rausnar og vináttu á langri
leið Þú mátt g.iaman vita bað
á bessum afmæiisdegi að við
metum bis öll mikils og óskum
bess af einlægum huga að eiga
big að og á meðal okkar f
mörg ár enn. En í þvi felst að
siálfsögðu nokkur eigingimi
sem éa veit að bú skiiur og
fyrirgefur eins og svo margt
annað.
Guðmundur Vigfússon.
Hjálparsveit skúta heldur
flugeldusýningu ú sunnudug
Ef veður leyfir mun Hjálp-
arsveit skáta í Reykjavík gang-
ast fyrir flugeldasýningu við
Skátabúðina við Snorrabraut,
sunnudaginn 27. desember.
Verða þar sýndar allar gerðir
flugelda, blysa og sóla auk
þess sem skotið verður upp
svokölluðum Tívolísólum og
gkrautflugeldum. Sýningin hefst
Stundvíslega klukkan 17.00 og
er áætlað, að hún standi yfir
í tæpar 15 mínútur.
Tilgangurinn með sýnjng-
unni er, að vekja athygli
flugeldamarkaði Hj álparsveit-
arinnar, en sveitin hefiur und-
anfarin tvö áir gengizt fyrir
flúgeldasölu fyrir áramótin. Að
þessu sinni ver’ð'a flugeldamark-
aðdmir tveir, eins og fyrr seg-
ir í Skártabúðinni við Snorrá-
braiut og svo í Volvosalnum
Við Suð'urlands'braut. Auk þess
verður sielt úr öllum bifreið-
um sveitarinnar, en þær eru
fjórar. Verða þær ó eftirtöld-
um stöðum: Við Melabúðina
Hagámel; við Austurstræti; við
Austúfver. Háialeitisbraut; og
við Breiðholtskjör Amarbakka.
Eins og fytfr vetfður lögð á-
herzla á gott vöruú.rval og góða
þjónuistu og hefur úrvalið
aldrei verið íjölbreýttara. M.
a. verða nú til sölu svokallað-
ar Tívolisólir, og fylgjia þeim
sérstakir skotþalliar.
Eins og fyrr, verða nú til
söki hinir vinsælú fjölskyldu-
pokar. Verð þeirra er frá 300.On
til 500.00 kr„ eri verðgildi pok-
anna ér 10% hserra, eða 330*00
til 550,00 krónur. Etf þá veitt-
ur 10% afsláttur ef keyptir
erú slíkir pokar.
Fl ageldasalan er helzti tekjú-
l'iður Hjálparsveitarinnar, en
þrátt fyrir, að allt starf sveit-
arinnar sé unnið í sjálfboða-
liðsvinnu, þá er kostnaður við
reksitur sveitarinnar mjkill og
fer ávallt hækkandi. Til dæm-
is var kostnaðurinn á síðasta
starfsári tæplega 700.000,Oo kr.
Framlög frá ríki og borg voru
þá aðeins ca. 15% af kostnað-
inum, þannig að sveitin væri
illa stödd, ef fliugeídasölunnar
nyti ekki við.
(Frá Hjálparsveit skáta
í Reykjavík).
ur og skartgripir
KORNELIUS
JÖNSSON
skólavördustig 8
•V-i
&
Prentmyndastofa
Laugavegi 24
Sími 25775
y.K. Gerum allar tegundir S.K
**- myndamóta fyrir
yður.
Frú Rufmugnsveitu
Reykjuvíkur
til rufmugnsnotendu
Rafmagnsveitunni er það kappsmál, að
sem fæstir verði fyrir óþægindum vegna
straumleysis nú uim jólin sem endranær.
Til þess að tryggja öruggt rafmagn á að-
fangadag, jóla- og gamlársdag, vill Raf-
magnsveitan benda notendum á eftir-
farandi:
Reynið að dreifa elduninni, þ.e.
jafna henni yfir daginn eins og
kositur er.
☆ ☆ ☆
Forðizt, éf unnt er, að nota mörg
straumfrek tæki samtímis, t.d. raf-
magnsofna, hraðsuðukatla og brauð-
ristar — einkanlega méðan á eld-
un stendur.
☆ ☆ ☆
Farið varlega með öll raftæki til
að forðast bruna- og smertihættu.
Illa meðfamar lausiataugar og jóla-
ljósasamstæður eru hættulegar. —
Útiljósasamstæður þurfa að vera
vatnsþéttar og af viðurkenndri
gerð.
☆ ☆ ☆
1 r ...
Eigið ávallt til nægar birgðir af
vartöppum (,,öryggjum“). Helztu
stærðir eru:
10 amper ............... Ijós
20-25 amper ............. eldavél
35 amper ................ íbúð
Ef straumlaust verður, skuluð þér
gera eftirtaldar ráðstafanir:
☆ ☆ ☆
Takið straumfrék tæki úr sam-
bandi. — Ef straumleysið tekur að-
éins til hluta úr íbúð, (t.d. élda-
vél éða Ijós) gétið þér sjálf skipt
um vör í töflu íbúðarinnar.
☆ ☆ ☆
Ef öll íbúðin er straumlaus, getið
þér einnig s'jálf skipt um vör fyr-
ir íbúðina í aðaltöflu hússins.
☆ ☆ ☆
Ef um víðtækara strau’mleysi er
að ræða, skuluð þér hringja í
gæzlurtienn Rafmagnsveitu Reykja-
víkur.
Bilanasími er ............. 18230
Á skrifstofutíma er sími .... 18222
☆ ☆ ☆
Vér flytjum yður beztu óskir um GLEÐI-
LÉG JÓL og EARSÆLD Á KOMANDI
ÁRI, rnéð þökk fyrir samstarfið á hinu
liðrta.
kFMAGNSVEITA
ÍEYKJAVÍKUR
(Geymið auglýsinguna.)