Þjóðviljinn - 24.12.1970, Side 7
I
ntw
1 :
;■>>&&
:
Aðalheiður Vilhjálmsdóttir við lyfjaskápinn,
Jólavaktin hjá Flugumferðarstjórn.
Enginn tími til að
hugsa um hátíðina
Þóinrnjndua- Þóirairins&on verð-
ur á viðgerðarverkstæði Stræt-
isvagna Keykj avíkur á Kirkju-
sandi frá því kl. 5 á aðfanga-
dagskvöldið til kl. 2 um nótt-
in,a, en þannig vinnur hann
fimm kvöld í viku og stund-
ar svo á daginn nám í sö'gu og
uppeldisfræ'ðum við Háskólann.
— Nei, svaraði hann spuim-
ingum okkar um tilbreytinigu
á jólakvöldið, .það er yfirledtt
svo.,mikið ,að gera við vinnuna,
að það geísit ekki timi til ann-
ars, hvorki að hlusta á útvarp
né borða. Það veirðia tveir aðr-
ir með mér um kvöldið og þeg-
ar bilstjóramir hætta þurfum
við að aka þeim heim og þvo
bílana. Um miðnaetti kemur svo
maður sem vinnur alla nóttina.
— Fáið þið ykkur ekki einu
sinni kvöldkaffi?
— Nei, við borðum bara þeg-
ar heim kemur. Leiðinlegt?
Nei, nei, ég er búinn að vera
svo mörg jól við vinnu að mér
er orðið alveg sarna. Fjöliskyld-
unni finnsit það kannski svo-
lítið leiðmlegt.
Jólamat hvað sem
tautar og raular
Einna lengst frá heimilum
sinum um jólin eru auðvitað
þeir sem þá eru á sjónum og
eðtilegt a® þeir reyni að gera
sér einhvern dagamun. Þeir
sem alltaf eru á sjónum um
jólin eru t.d. varðskipsmenn-
irnir, þ.e. tvö varðskip errj í
höfn og tvö eru úti. Ekki má
gefa upp hvaða skip það eru,
sem verða á ferðinni yfir jóla-
hátíðina, en við töluðum við
brytann á öðru þeirra, Valgeir
Ólafsson í Hafnarfirði, og
spurðum hann m.a. hvort hann
ætlaði a® hafa sérstakan jóla-
mat.
— Jú, ég reyni auðvitiað að
bafa matinn sem hátíðlegast-
an sagði hann, ætla að gefa
hamborgarhrygig á aðfanga-
dagskvöldið og kjúklinga á
jóladiaginn, en hvort unnt veirð-
ur að borða máltíðirnar á rétt-
um tíma fer n.áttúrlega eftir
því hivemig er í sjóinn, verði
stormur og veltingur neyðumst
vi® kiannski til að flytja matar-
tímann eitthvað til, en jólamat
höfum við hvað som tauitar og
.rauiar.
— Gerið þið ykkur eitthvað
til d ægr astytti ngar umfram
venju á aðfangadagskvöldið?
— Ætu við spilum ekki og
teíflum og spjölium saman, og
ýmislegt er svo fleira gert að
gamni sínu, eftir því hvað
menn hafa góða hæfileika um
borð. Ekki er ólíklegt að marg-
ir fái jólagjafir með sér út,
einnig siendir félag eiginkvenna
skipstjóra og stýrimanna yfir-
leitt pakkia í skip sem etru úti
um jólin.
Ólík öðrum jólum
\
Aðalheiðuir Vilhjálmsdóttir
h j úkrunarkon a á handlækn-
ingadeild Landspítalans verður
að störfum á aðfangadags-
kvöld í fyrsta sinn á starfs-
ferli sínum. — Ég get ekki gert
mér gj-ein fyirir því, hvernig
jólahaldið verður, vegna þess
að ég hef ekki upplifað þétta
áður, en auðvitað reynum við
og sjúkljngarnir a’ð hialda gleði-
leg jól.
Enda þótt reynt sé að leyfa
sem flestum að fara heim
um jóiin, er þó ailltaf tailsverð-
ur fjöldi af sjúkldnigum, sem
þarí að halda hátiðina hér.
Heimsókniairtimi á aðfangadags-
kvöld er firá M. 6-9, og áður
en hann hefst er borðaður jóla-
mat'ir og hlýtt á messu. Flest-
ir sjúkliniganna fá ættingja og
vini í heimsókn, en það kemur
í okkar hlut að hafa ofan af
fyriæ þeim, sem fá lítið af
heimsóknum og það reynum
við a’ð gera með ýmsu móti.
Ég verð líka á vakt báða jóla-
daigana, svo að þessi jól verða
sennilega nokkiuð ólík því sem
ég hef hingiað til þekkt, en von-
andi verða þau okkur öllum
ánæigjuleg.
Siglir Ljósafossi inn
á jólakvöld
Það er rólegt vi'ð höínina á
aðfangadiagskvöld, þar sem
skipin liggja ljósum prýdd við
bryggju meðan sjómennirnir
eyða hátíðinni með fjölskyld-
um sánum. Flest skipin eru inni
þetta kvöld og þau sem úti eru,
ekki væntanleg. Þó er aldrei að
vita og bafnsögumennirnir
verða að vera tilbúnir að taka
á mó'ti skipum sem kunna að
koma. Að þessu sinni verður
Sigurður Þorgrímsson á vakt
ásarnt GuOmundi Jónssyni vél-
stjóra.
— Ég býst við ró'legiri vakt,
sagði hann blaðinu, þó er
Ljósafoss væntanlegur siðdeg-
is á aðf angadiaig eða um kvöld-
ið og verðum við að taka á
móti honum. Gullfoss kemiur á
jóladaginn.
Þegar skipin koma á ytri
höfnina sigla þeir Guðmundur
út að því á ytri höfnina og Sig-
urður eÖa sá hafnsögumaður
sem er á vakt siglir því inn
og leggur að bryggju. Hann
sagði að túrinn tæki um 20
miínútur og ef ekkerf kæmi ó-
vænt upp á á aðfangadaigs-
kvöldið myndu þeir Guðmund-
ur skiptast á um að skreppa
heim og borða jólamatinn með
fjölskyldum sánum, en að öðru
leytá gerðu þeir sér engan
dagamun þetta kvöld firemur
en önnur, læsu blöðin, hlust-
uðu á útvarp og röbbuöu sam-
an.
— Það sækist auðvitað eng-
inn eftir því að vinna þetta
kvöld, sagði hann, en við skipt-
umsit á um þetta og fjölskyld-
ur okkar verða að sætta sig
við að vdð séum að heiman á
jólunum sum árin.
Góðgerðir frá
flugmálastjórn
— Það er sarna, hvað miað-
ur verður gamall, auðvitiað
langar mann til að eiga fH á
jólunum, — 'sagði Geir Hall-
dórsson hjá fluigumferðarstjóxn
á Reykjaivákurflu.gvelli, en hiann
er á þeirrj vakt, sem verður
a® störfium á aðfangadiaigs-
kvöld. — Hins vegar verðum
við að ganga út frá því siem
gefnu í þessu starfi, að við
getum þurft að vinna, hvaða
daig sem er, því að ekki má
umsjón með fluigumferð falla
niður. En allt flug innlendra
aðila liggur niðrj á aðfanga-
daigskrvöld, og umferðin yfir
hafi® er minni en venjulega.
Við getum . þess vegna tekið
það rólega og gaett okkur á
góðgerðum, sem flugmálastjóm
sendir okkur, sælgæti, rjóma-
tertur, öl, tóbak og flejra. Svo
opnum við jólakort, sem okkur
h'afa borizt víðs ve'gar að, og
Fluigbjorgunarsveitin hefur nú
undanfarin ár sent okkur
myndarlega jólakörfu með
skreytingum, og hún puntar
upp á sitaðinn. Annars er okk-
ur ekki mikil vorkunn, því að
vaktin byrjar ekki fyrr en hálf
átta, þannjg að maður hefur
tíma til að borða jólasteikina
áöur, en gjafimar bíða venju-
lega, þar til við höfum hvílt
okkur vel á jóladag.
Kerti og:
grenigrein
Jón Sigbjörnsson magnara-
vörður sér um útsendingu út-
varpsins á aðfangadagskvöld,
en hún er óslitið frá sex til
hálfeitt — Ætli maður fái ekki
sendan jólamat að heiman, —
segir hann, en jólagjafimar
bíða líklega betri tíma. Þegar
fólk ©r orðið eins gamalt og
ég, getur það beðjð með að
opna pakikana.
Fi mmtudaguir 34. dlesieirrib!ar 1970 — ÞJÓÐVTLJINN — SlÐA J
Sigurður Þorgrímsson hafnsögumaður
Jón Sigbjörnsson, scm stjórnar útsendingu útvarpsins á aðfanga-
dagskvöld.
Þórmundur Þórarinsson í þvottasal strætisvagnanna
Það er enginn tímj til a®
láta sér leiðast eða hugsa
heim, þvá að maður verður að
haifla allan hugann við dag-
skrána. Annars gæti hún
brenglazt illilega. Ég man
raunar ekki eftir öðm en dag-
skrájn á aðfangadagsikvöld hafi
alltaf komizt til skila, án þess
að nokkuð hafi út af borið,
og maður getur einna helzt
glatt sig við, a® liklega hafi
fólk einhverja ánægju af
henni.
Dagskrájn verður á engan
hátt frábrugðin því sem verið
hefur á aðfangadagskvöld. Út-
varpað er frá aftansöng í Dóm-
kirkjunni ki. 6 og frá messiu
sem hefst M. 11.20, jólahuig-
vekju flytur að þessu sinni
sóra Sverrir Haraldsson prest-
ur á Borgarfirði eystra, og við
höfum tekið hana upp á seg-
ulband í gegnum síma. Ýmis-
legt fleira má nefna, en ann-
ars er dagskráin þetta kvöld
jafnan með hefðbundnu sniði.
En ætli við þulurinn gefum
okkur ekki tíma til að kveikja
á jólaketrti, og svo höfum vi®
dálitia grenigrein til að horfa
á, þegar tími gefst til.
Myndir: A. K.
Viðtöl: - vh og gþe,.