Þjóðviljinn - 05.05.1972, Síða 8
g SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Föetudaigur 5. mai 1972.
i
rr
•2
LrJ
I
!
*
I
I
!
I
I
I
*
i
I
I
I
i
Spjallað við Matthías Hallgrímsson
nýkominn heim frá Englandi
„Það tók þá mánuð
að venja mig af
sífeUum einleik "
— Það ták þá mán-
uð að venja mig af
þessum sífellda einleik
og „pati“, sem ég hafði
vanið mig á hér heima
í gegnum árin“, sagði
Maíthías Hallgríms-
son hinn kunni knatt-
spymumaður ÍA og
landsliðsins, er við
röbbuðum við hann í
gær. Matthías kom
heim um síðustu helgi
éftir vetrar langa dvöl
í Englandi þar sem
hann stundaði æfing-
ar allan tímann, og er
nú byrjaður æfingar
með ÍA af fullusa
krafti.
— Ég hef aidrei áður æjft eins
vel og í vetur og ég tel mig
vera núna í eins góðri æfingu
og ég framast get komizt í.
— Eru æfingar frábrugðnar
því sem þú hefur kynnst hér
heima hjá atvinnumönnunum?
— Já þetta er allt annað. Við
æfðum tvisvar á dag oftast nær
og svo eru æfingarnar bæði erf-
iðari og að flestu leyti ólíkar því
sem maður átti að venjast. Þeir
leggja mjög mikla áherzlu á
stutta spretti. Þetta 10 metra
sprecti og þar um líkt. Hér
heima hefur verið lögð áherzla
á lengri spretti, en þjálfarinn
spurði mig einu sinni að því,
hvenær menn tækju mikið
lengri spretti en 10—15 m. og
það var erfitt að svara því. Þá
leggja þeir mjög mikla áherzlu
á snerpuna. Ég finn eftil vill
einna mestan mun á mér hvað
henni viðkemur.
— Er mikil áherzla lögð á
þrekþjálfun?
'— Já hún er stór liður í
æfingunum. Þegar æft var tvisv-
ar á dag, þá æfðum við fyrir
hádegi eingöngu þrek í klukku-
tíma, og svo var æft tvo tíma
eftir hádegið og þá allar aðrar
æfingar.
— Hvernig þrekþjálfun
leggja þeir áherzlu á?
— Mest lyftingar allskonar
og að sjálfsögðu mest lagt upp
úr því að styrkja fæturna. Svo'
eru allskonar leikfimiæfingar og
fleira.
— Ertu líkamlega sterkari en
þegar þú fórst út?
— Uss, það er ekki hægt að
líkja því saman, ég er bæði
sterkari og sneggri. En ég er
ekkert fljótari á lengri spretri
en þetta 10—15 m. en maður
vinnur mikið forskot á snerp-
unni.
— Nú erm búinn að fara á
æfingu hjá ÍA, hvernig lýst þér
á liðið?
— Alveg sérstaklega vel, það
er í toppæfingu, hefur senni-
lega sjaldan verið í beri æfingu.
Og ég tók strax eftir hvað æf-
ingarnar hjá Ríkharði eru líkar
þeim æfingum, sem maður var
með þarna úti. Hann hefur
greinilega tekið upp allt það
nýjasta sem nú er verið að æfa.
Það eina sem er frábrugðið, er
að hann er enn með Iengri
sprettæfingar en við vorum með
úti, og að öðru leyti eru æfing-
arnar hjá honum mjög líkar
þeim sem ég kynntist úti.
— Er ekki mikill agi hjá
ensku atvinnumönnunum við
æfingar og leiki?
— Jú, hann er gífurlegur. Það
má kalla það algeran járnaga
og menn komast ekki upp með
neitt múður. Ég get sagt þér
dæmi, að stundum voru æfing-
ar þannig að maður mátti að-
eins spyrna með vinstra fæti
hvernig sem á stóð. Ef útaf
þessu var brugðið, þá var dæmt
á það og mönnum hegnt með
því að hlaupa nokkra kílómetra.
— Þú spilaðir eitthvað með
Bornemouth í vetur?
— Jú ég lék oft með vara-
liði félagsins óg eins lék ég
alltaf á sunnudögum með á-
hugamannaliði.
— Er ekki mikill munur að
leika gegn atvinnumönnum eða
áhugamönnum eins og hér'
heima?
— Jú hann er mikill. Það er
mildu meiri harka í leik þeirra
og það þarf ekki atvinnumenn
til. Hjá áhugamönnunum ensku
er mjög mikil harka, miklu
meiri en hér hjá okkur.
-— Tapa menn ekki því
mjúka og netta í leik sínum við
æfingar og leiki með Englend-
ingum?
Matthías Hallgrrímsson á hér í höfgi við franskan leikmann. Myndin er tekin í fyrrasumar.
Það verður gaman að sjá Matthías leika eftir Englandsdvölina.
— Það er nú hætt við því.
Þeir tóku mig strax í gegn fyr-
ir of mikinn einleik og það
tók þá mánuð að ná því úr
mér. Maður missir óneitanlega
þetta fína í leik sínum, en mað-
ur fær líka mjög margt í stað-
inn sem er raunhæfara í leikn-
um. Ég varð annaðhvort að
hætta eða taka upp þessa hörku
sem þeir æfa upp og valdi síð-
ari kostinn mér til góðs alveg
ótvírætt.
— Hvað kom þér mest á ó-
vart hjá þessiun atvinnumönn-
um, sem þú kynntist þarna?
— Það var nú flest sem kom
manni á óvart, en það vakti sér-
staka athygli mína hvernig þeir
taka tapi og sigri. Það er lítil
gleði við sigur og það er litla
breytingu á þeim að sjá þótt
þeir tapi Ieik. Þeir eru aðeins
kannski sárir en ekkert meira.
Þetta er nokkuð ólíkt þeim
sveiflum sem eru hjá okkur.
Mikil gleði við sigur og mikið
ergelsi við tap. Hjá þeim er það
helzt að merkja við tap, að það
er æft stífara á eftir. Annars er
þetta eftil vill vegna agans, sem
ríkir meðal leikmannanna.
— Og nú eru landsliðsæfing-
ar framundan hjá þér er ekki
svo?
— Jú, ég hef verið valinn í
landsliðsæfingar, en ég bað um
að fá að hvíla mig í eina viku
svo ég byrja sennilega ekki fyrr
en eftir helgina næstu.
— S.dór.
!
UMSB 60 ára
Umgmennasamband Borgar-
fjarðar varð 60 ára 26. apríl s. I.
í því tilefni var haldið samsœti í
félagsheimilinu Logalandi í
Reykholtsdal.
-4}
Vaiur vann
Viking 1:0
Valur sigraði Víking 1:0 í
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu
í fyrrakvöld. Markið skoraði Her-
mann Gunnarsson. 2 mínúmm
fyrir leikslok.
Þar voru samankomnir 200
gestir. Sambandinu bárust margar
góðar gjafir og kveðjur. Gjafir
frá ÍSÍ, UMFÍ, aðildarfélögunum
og Þórarni Magnússyni, sem um
árabil var mótsstjóri á héraðsmót-
um sambandsins. Hann færði
sambandinu bikar, sem keppt
verður um í frjálsum íþróttum.
★
Þá veitti sambandið í tilefni af
afmælinu 10 gullmerki í viður-
kenningarskyni innan þess. Þá
kom út myndarlegt afmælisrit er
Jón A. Guðmfundsson bóndi að
Kolslæk í Hálsasveit ritstýrði.
Íslandsglíman verður
hái á sunnudaginn
Forráðamenn UMSB eru hér á myndinni, sem er tekin á afmæl-
ishófi sambandsins 26. apríi sl.
Íslandsglíman 1972 sú 62 í röð-
inni verður háð n. k. sunnudag
7. maí og hefst keppnin kl. 14.00
— Glímt verður í Leikfimisal
Vogaskólans.
Skráðir keppendur eru 10 frá
4 félögum og Héraðssamböndum.
— Meðal keppenda eru flestir
snjöllustu glímumenn Iandsins,
svo sem Sveinn Guðmundsson
Ármanni, Jón Unndórsson K.R.,
Sigurður Jónsson Víkverja og
Ingi Yngvason H.S.Þ.
Gísli Halldórsson forseti Í.S.f.
setur mótið, en glímustjóri verð-
ur Þorsteinn Einarsson, íþrótta-
fulltrúi.
Sveitagþíma íslands 1972 fer
fram á tímabilinu 20. maí til 30.
júní n. k. — Keppt er í fimm
manna sveitum. — Þátttökutil-
kynningar skal senda í pósthólf
Glímusambands íslands nr. 997,
Reykjavík fyrir 15. maí n. k. —
Framhald á 9. síðu.
f