Þjóðviljinn - 01.10.1972, Page 2
2.S1ÐA — ÞJÓÐyiLJINN Sunnudagur 1. október 1972.
HRUN
Sál mín
er umvafin
trylltum tónum
takmarkalausum
trylltum
tónum.
Mig langar
að hrópa
hrópa
svo hátt,
að heimurinn
hrynji
í þúsund
mola.
Til hvers
eraðæpa
öskra
og góla,
því hvar
eru takmörk
illsku __
og
naturs.
Hvar ertu
guð
góður
og grimmur,
hvar
liggur
þinn vegur
með
lýsandi
Ijós.
Veiztu bara
að heimurinn
sjálfur
erekkert
nema,
sori
og
grimmd
Björk Ben.
Misþyrmingar
undir banda-
riskri yernd
Brasiliska herforingjastjórnin beitir pynding-
um í œ ríkara mœli, en tilverugrundvöllur
hennar er vernd og aðstoð Bandaríkjanna
Einhver ýtarlegasta
skýrsla sem Amnesty Int-
ernational, alþjóðasamtök
um sakaruppgjöf, hefur
gefið út, fjallar um pynd-
ingar í Brasilíu, og er þvi
haldið fram og beiting
þeirra sé orðin regla þar í
landi. Orsakirnar eru rakt-
ar til stjórnarfarsins, en í
Brasilíu hefur ólýðræðisleg
herforingjastjórn verið við
völd siðan 1964.
Misþyrmingar á handteknu
fólki og harðræði við fanga hafi i
fyrstu eftir valdatöku herforingj-
anna frekar heyrt til undantekn-
inga, en hafi siðan sifellt ágerzt,
eftir þvi sem ástandið i landinu
versnar i réttarfarslegum og póli-
tiskum efnum.
Amnesty-skýrslan nefnir nö.fn
á 1.081 persónu sem hafi verið
pynduð og tilgreinir vitnisburð
fjölmargra. Þá fylgir listi um 472
pyndingameistara i sérstöku ein-
taki sem sent er brasilisku stjórn-
inni. Verður hann ekki birtur fyrr
en brasilisku stjórninni hefur gef-
iztkostur á að bera fram skýring-
ar og bæta úr ástandinu.
Þá er frá þvi skýrt að þúsundir
pólitiskra fanga hafi nú verið að
biða réttarhalds i meira en þrjú
ár.
A grundvelli yfirlýsinga frá
sjónarvottum, lögfræðingum,
blaðamönnum, prestum og föng-
um, er skýrt frá þvi hvernig fólk
hefur verið lamið, gefið raflost,
einkum i kynfæri, fært á aftöku-
pall i tilraunaskyni og kvalið með
enn öðrum hætti. Konu er nauðg-
að frammi fyrir manni sinum,
börn pynduð i augsýn foreldra, og
vitni verjenda látin sæta harð-
ræðum.
Slikar aðferðir geru nú orðnar
daglegt brauð i svo aö segja öllum
fangelsum landsins, þrátt fyrir
það, að kyrrð er i landinu og engin
vopnuð barátta i gangi gegn
stjórnvöldum. Ein aðal pyndinga-
miöstöðin er Cenimar, upplýs-
ingaskrifstofa flotans i Rio de
Janeiro.
I skýrslunni er gerö sú athugas,
að „Brasilia telji sig fylgiriki
Frh. á bls. 15
Borgarbíll
frá Mazda
Þessi laglegi smábill er
smiðaður hjá Mazda verk-
smiðjunum i Japan og er eink-
um hugsaður til heimabrúks
þar sem umferðarvandamálin
eru geigvænleg og þörf fyrir
litla og lipra bila. Billinn er
um 3 metra langur, 1.3 m á
breidd og hefur 2 strokka
vatnskældan mótor, 359 ccm.
Erlendir kaupmenn hafa
sýnt þessum bil mikinn áhuga
m.a. Danir en þeir vilja hafa i
honum 1000 ccm mótor.
Blóðbaðið
í umferðinni
30% ibúa Danmerkur munu
einhverntima á ævinni verða
fyrir smávægilegu eða stór-
vægiiegu slysi af völdum um-
ferðar og 1.5% mun láta lifið.
Þetta kemur fram i grein sem
birtist nýlega i dönsku timariti
og er áætlunin byggð á skýrsl-
um lögreglunnar.
Varðandi dauðsföil i um-
ferðinni stendur Danmörk ver
að vigi en Sviþjóð, sem stafar
af þvi að Sviar hafa sérstakt
eftirlit með bilum sem eru 2ja
ára og eldri og þeir hafa einnig
sérstakt umferðaröryggis-
ráðuneyti. Sviar verja tiltölu-
lega miklu meira fé til varnar-
ráðstafana i umferðinni en
Danir.
Hvergi er hættulegra að
ferðast en á vegum Danmerk-
ur segir i greininni. A hverju
ári koma um 50 þúsund manns
undir læknishendur vegna
umferðarslysa og um 1200
manns láta lifið.
Jæja, þetta er þá siðasti
möguleikinn fyrir þig að
standast prófið.
11111 Síiííiíi:
Swedish
Polar Water
Fyrir norkkum árum hefði
fólk skellt upp úr ef einhver
hefði látið sér detta i hug að
selja venjulegt vatn. En nú er
svo komið i löndum Mið- og
Suður-Evrópu, að þar fæst
varla ómengað drykkjarvatn.
Sviar eru meðal þeirra sem
ætla að gera góðan bissness i
sölu á vatni, og þar hefur verið
stofnað fyrirtæki er nefnist
Swedish Polar Water sem hef-
ur reist áfyllingarverksmiðju
nyrst i Sviþjóð. Fyrirtækið
gerir ráð fyrir að selja yfir
milljón litra af vatni i pappa-
öskjum, þyrstum meginlands-
búum.
Lasergeisli í
göngustöfum
fyrir blinda
Sænskt fyrirtæki hefur
framleitt nýja gerð af göngu-
stöfum fyrir blint fólk. 1
. stafnum en komið fyrir
Lasergeislatæki, sem „sér”
allar hindranir sem kunna að
vera i vegi hins blinda manns.
Þegar hindrun er framundan
sendir tækið frá sér boð og um
leið koma varnaðarhljóð.
Hvað hét nú afturkonan min ?
JVej,
vi elsker”
Nú syngja þeir i Noregi nej, vi
elsker dette landet
Á austurþýzkum
skíðum
í Grœnlandi
Það er mun meira af austur-
þýzkum varningi i dönskum
verzlunum en almenningur
gerir sér grein fyrir, segir i
dönsku fjármálabl. Og það er
ekki vist að Bandarikjamenn i
herstöðinni i Thule geri sér
grein fyrir, að þegar þeir
kaupa skiði innflutt frá Dan-
mörku þá eru þeir um leið að
styrkja kommúnistana i A-
Þýzkalandi i sessi.
Og svo elskan min óska ég þér
árangursrikrar krossferðar