Þjóðviljinn - 01.10.1972, Síða 15
Sunnudagur 1. október 1972. feJÓÐVILJINN — SÍÐA Kj.
Viðtal við
Jóhannes
Framhald af bls. 9.
reikna. Allt er unnt að mæla og
reikna. Ollu er unnt að breyta i
tölfræðilegar upplýsingar, sem
tölvurnar eru mataðar áj þær
melta tölurnar og veita siðan
upplýsingar um meöaltöl,
. markgildi og guð má vita hvað.
betta er svo sem gott og blessað,
en ég held, að mannlifið sé, sem
betur fer, ekki svo einfalt, að all-
ar upplýsingar um það verði
skráðar á gataspjöld. En yfirvöld
samfélagsins viröast þvi miður
oftast ganga út frá þvi sem gefnu,
að það, sem ekki er unnt að mæla,
sé ekki til. Og hvað verður þá um
fyrirbrigði eins og listrænt gildi
Mánudagsmyndin
Framhald af bls. 1.
bóginn elskar hann móður
sina, sem er fögur, frjálslynd
og lifsglöð, ákaflega heitt. Það
er afstaða drengsins til henn-
ar, umhverfis sins, bræðra
sinna, sem reyna að kúga
hann, og kviknandi áhugi hans
á sviði kynlifsins, sem Louis
Malle — sem er i senn höfund-
ur kvikmyndahandrits og leik-
stjóri — segir frá i þessari
mynd.
Sjálfur hefur Malle komizt
svo að orði um myndina og
efni hennar, að hún ,,fjalli um
reglur og eðlileg atriði á sviði
siðfræði og stjórnmála, sem
drengir hafa áhuga á, þegar
þeir eru að vakna til vitundar
um umhverfi sitt og fara að
gera sér grein fyrir þvi, að
ýmis verðmæti, sem þeim er
innrætt að virða, eru aðeins
tilbúningur og hræsni”.
Þessi mynd hefur verið talin
djörf i meira lagi, þvi að i
henni gerist það, sem nær
aldrei sézt á hvita tjaldinu —
blóðskömm. Um brot sitt á
þeirri bannhelgi, sem rikt hef-
ur i kvikmyndum á sliki atviki
i mannlegum samskiptum,
segirMalle: ,,Ég legg áherzlu
á, að móðurástin er að kalla af
sama tagi og hin ,,venjulega”
ást. Ég tel það mikilvægast i
mynd minni, að ég fjalla af
hreinskilni um þetta atriði og
án hræsni”.
En þrátt fyrir þetta er
myndin ,,Sorg i hjarta”
gamanmynd og sem slik hefur
hún fengið mikið lof. Hér er
hægt að geta fáeinna ummæla
danskra blaða.
Aktuelt segir: „Hér sigrar
hið heilbrigða og eðlilega alls
konar afbakað yfirstéttarsið-
gæði”.
Ekstra Bladet gaf' myndinni
5stjörnurog sagði: ,,Guðdóm-
lega skemmtileg gamanmynd
um kynþroskaaldurinn. Hún
er i sannleika sagt mjög losta-
full og i sannleika ótrúlega
skemmtileg”.
Loks sagði danska útvarpið i
þætti um „kvikmynd vikunn-
ar”: „bað er óþarfi að óttast
sjónvarpið, þegar slik mynd
er i boði”.
Myndin verður sýnd næstu
mánudaga.
SAMVINNU-
BANKINN
eða tilfinningalegt samband viö
umhverfið? Þótt einhverjar ein-
staka raddir heyrist um listrænt
gildi gamalla bárujárnshúsa eöa
nauösyn þess, að maðurinn sé i
jákvæðu tilfinningalegu sam-
bandi við umhverfi sitt, virðast
þær hvorki ná eyrum ráðamanna
né almennings. Liklega vegna
þess, að ekki er unnt aö mæla
magn tilfinninganna. bvi er svo
auðvelt að láta allt reka á reiðan-
um og ryðja þessum gömlu bygg-
ingum bara úr vegi jafnóðum og
þörf er á nýjum banka eða bila-
stæði.
— Eitthvað hafa þessi hús ver-
ið athuguð.
— Jú. Eins og ég sagði áðan,
gerðu Hörður Agústsson og fleiri
góðir menn mjög nákvæma at-
hugun á gömlum byggingum i
Reykjavik og skrifuðu um það
mjög ýtarlega greinargerð en hún
liggur og rykfellur i Borgar-
skjalasafninu. Það eru sem sagt
nægar upplýsingar fyrir hendi til
þess að taka ákvörðun um heild-
arstefnu i varðveizlu gamalla
húsa i bænum. En menn humma
þetta fram af sér. Yfirvöldin virð-
ast hvorki vera með né á móti
gömlum húsum; þetta rekur
svona stjórnlaust áfram.
— Hvað er til ráða?
— Ja, ég veit ekki. Ég held þó
að eina færa leiðin sé að vekja al-
menning til meðvitundar um um-
hverfið og þau tilfinningalegu
tengsl, sem maðurinn hlýtur
óhjákvæmilega að vera i við
iverustaði sina. Siðan verður aö
fá fólk til að tjá sig um þessi mál
án allrar feimni, en á þvi held ég
að hafi verið mikill misbrestur.
Ég held að margir séu hræddir
við að opna munninn vegna ótta
um, að þeir séu að tala um eitt-
hvað, sem þeim kemur ekki við.
Nú eru til sérfræðingar á öllum
mögulegum sviðum, hver hugsar
um sitt, og hinn almenni borgari
er smám saman farinn að trúa
þvi, að ekki sé rétt að hætta sér út
i umræður um mál, sem eiga
heima i höndum sérfræðinga.
Mál eins og samband við um-
hverfið og listrænt gildi húsa, mái
sem snerta hvern einasta mann
og hver einasti maður hlýtur i
rauninni að hafa einhverja skoð-
un á, geta lika horfið af daglegum
umræðuvettvangi, vegna þess að
á þvi sviði eru einnig til sér-
menntaðir menn.
Hinir ýmsu sérfræðingar samfé-
lagsins vinna svo hver á sinu
sviði, og oft virðist sambandið
milli sérfræðingahópanna vera
harla takmarkað.
Eins og ég sagði áðan, þá er
þetta mjög stórt og viðamikið mál
og snertir miklu fleiri mannlifs-
þætti en viðhald og verndun gam-
alla húsa.
— Jæja viltu segja eitthvaö að
lokum, Jóhannes?
— Ekki annað en þaö, að þrátt
fyrir allt held ég, að almenningur
sé að glæða hjá sér skilning á
nauðsyn þess, að umhverfi
mannsins sé ekki i æpandi mót-
sögn við fegurðarsmekk hans. Til
dæmis lfzt mér mjög vel á, hvað
allt yfirbragð nýju ibúðarhverf-
anna er miklu skemmtilegra nú
eftir að menn fóru að mála húsin
með liflegum litum, heldur en
þegar þessi hverfi virtust vera
endalaus breiða eggsléttra hvitra
og grárra flata. — ó.P.
Pyntingar
Framhald af bls. 2.
Bandarikjanna i forréttindaað-
stöðu” með tilliti til hinnar miklu
aðstoðar sem herforingjastjórnin
fær til hers sins og lögreglu. Þvi
er bætt við, að pyndingamiðstöðin
Cenimar er til húsa i 6.hæð fluta-
málaráðuneytisins, en i næstu
herbergjum er flotamálasendi-
nefnd Bandarikjanna með aðset-
ur.
Danmörk
Framhald af bls. 1.
með „sanngjörnum kjörum”
(reasonable terms) ef þeir höfn-
uðu aðild. En mikill meirihluti
dansks útflutnings fer til EBE-
landanna og Bretlands, svo að
þessi yfirlýsing Mansholts • er
býsna alvarlegs eðlis.
Þá er óhætt að segja að úrslit-
anna héðan sé beðið með mikilli
óþreyju i Bretlandi, þvi að danskt
NEI getur haft þar mikil áhrif.
Margir Verkamannaflokksmenn
telja að rikisstjórn thaldsflokks-
ins geti ekki annað en visað aðild-
arumsókninni aftur til umræðu i
neðri deild þingsins, ef svo fer að
Danir segi NEI. Málið hafi hingað
til verið reifað þannig að öll þau 4
riki sem sóttu um inngöngu i
EBE, verði þangað samferða.
Verði tvö þeirra fyrir utan, séu
forsendurnar fyrir aðild Bret-
lands allt aðrar orðnar. Telja
sumir jafnvel, að i þvi falli mundi
stjórnin ekki eiga þingmeirihluta
fyrir ákvörðun sinni um aðild.
Það kann að reynast örlagarikt
að Norðmenn greiddu atkvæði
á undan Dönum og á þann hátt
sem þeir gerðu. Alltaf varljóstað
andstaðan við Efnahagsbanda-
lagið var magnaðri i Noregi en
Danmörku, og það kann þvi að
þykja undarlegt að dönsku at-
kvæðagreiðslunni skyldi valinn
þessi timi. Það þvi fremur sem
það var aldrei ætlun Krags eða
annarra fylgismanna aðildar i
Danmörku að láta niðurstöður
Norðmanna hafa áhrif á sig. Krag
var við þvi búinn að Danmörk
færi ein Norðurlanda inn i EBE
En danski forsætisráðherrann
tók ekki þessa ákvörðun um tima-
setningu þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar af frjálsum vilja. Upphaf-
lega átti hún að fara fram i júni
sl., en henni var festað þangað til
i haust.
Sósialdemókratar sitja nú i
minnihlutastjórn i Danmörku en
njóta stuönings SF-flokksins. Það
var eitt siðasta verk Aksels Lar-
sens, aðeins fáum vikum áður en
hann lézt, að fá þvi framgengt við
Jens Otto Krag, að fresta þjóðar-
atkvæðagreiðslunni i Danmörku
þangaö til Norðmenn væru búnir
að ganga að kjörborðinu.
Upphaflega var ætlun ráða-
manna i Danmörku og Noregi að
löndin styddu hvort annað til inn-
göngu i Efnahagsbandalagið, en
þetta fór á annan veg, og nú
magnast andstöðuhreyfingin i
Danmörku af sigri NEI-manna i
Noregi.
Það kann þvi svo að fara að
þetta siðasta verk Aksels Larsens
verði þungt á metum hvað snertir
endanlega útkomu málsins i Dan-
mörku. Og ef það verður til þess
að Danir segi NEI við Efnahags-
bandalaginu, þá er það glæsilegur
endapunktur á ævistarfi þessa
merka stjórnmálamanns.
íþróttafélagið Gerpla, Kópavogi
Vetrarstarfið hefst 2. október.
Leikfimi: Rythmik — slökun — þj^ar, stúlkna- og
frúa-flokkar.
Áhaldaleikfimi barna: piltar og stúlkur.
Kennarar Margrét Bjarnadóttir og Friðbjörn Örn
Steingrimsson.
Innritun i sima 41662 og 40251.
Borðtennis: Byrjenda- og framhaldsflokkar.
Þjálfari Olav Forberg.
Badminton: Æfingar þriðjudaga og sunnudaga.
Upplýsingar i sima 81423 og 42467.
Eðvarð Sigurðsson
Framhald af 5. siðu.
ig okkar afsakanir, en unga fólkiö
á hverjum tima er það sem við á
að taka, og það er mikill ábyrgð-
arhluti, ef verkalýðshreyfingin
hefur ekki búið þaö undir þau
skyldustörf, sem óhjákvæmilega
liggja fyrir þvi.
Hér eru fræðslumálin i viðri
merkingu meginvettvangur til að
skóla nýja krafta til starfa i
verkalýðsfélögunum og vekja á-
huga ungu kynslóðarinnar. En
framtiö verkalýðshreyfingarinn-
ar er undir þvi komin, að nýir
kraftar séu ávallt fyrir hendi, til
að halda á lofti hugsjón verka-
lýðshreyfingarinnar.
Hvenær sazt þú fyrst Alþýðu-
sambandsþing, og hvaða þing er
þér minnisstæðast?
— Ég sat fyrst Alþýðusam-
bandsþing 1942, og það þing var
að þvi leyti merkilegt, að það var
fyrsta þingið eftir skipulags-
breytingu Alþýðusambandsins
1940, þegar tengsl þess við Al-
þýðuflokkinn voru rofin, og allir
félagar i verkalýðsfélögunum
gátu i fyrsta sinn orðiö fulltrúar á
þingi án tillits til stjórnmálaskoð-
ana. Þetta var mikið viðburðaár,
en þingið sjálft var i raun og veru
meira afleiöing verka, sem áður
var búið að vinna i verkalýös-
hreyfingunni, heldur en hitt, að
það sem slikt hefði frumkvæði að
mótun nýrrar stefnu. En á þessu
þingi var kosin ný forysta, þar
sem róttækra afla gætti verulega.
Söguleg bónorðsferð
En ef ég ætti að nefna það Al-
þýðusambandsþing, sem mér er
minnisstæöast, þá er það þingið
1958, þegar sjálfur forsætisráð-
herrann kom i bónorðsferð til
verkalýðshreyfingarinnar i þeim
tilgangi að fá hana til að fallast á
kauphækkun.
Þaö tókst ekki að fá samþykki
verkalýðshreyfingarinnar til
sliks, og var það siðan notað sem
átylla til stjórnarslita. Þetta mun
vera einn umdeildasti atburður i
sögu verkalýðssamtakanna i all-
marga áratugi, en ég hef aldrei
verið i neinum vafa um, að verka-
lýðshreyfingin gerði þá rétt.
Við þær aðstæöur varð það að
koma fram, að verkalýðshreyf-
ingin gat ekki staöið að skerðingu
á kjörum verkafólks. I þessu
sambandi vil ég vitna til þess,
sem ég hef hér áður sagt um af-
stöðu verkalýðssamtakanna til
rikisstjórna.
Hvað telur þú að verkalýðs-
hreyfingin hafi bezt gert, slðan þú
gekkst þar til starfa, og hvar er
árangur lakastur?
— Þegar maður litur til baka,
er þaö orðinn býsna langur timi,
sem ég hef fylgzt með og verið
virkur þátttakandi i starfi verka-
lýðshreyfingarinnar, eða siðan
1930.
Það er erfitt og ógerlegt að
meta neinn einn atburð, sem þann
er hæst beri, frá þessu timabili,
en til að gera langt mál stutt, þá
fer ekki milli mála, að á þessum
42 árum hefur orðið alger bylting
á lifskjörum verkafólks, og að
minu mati hefur verkalýðshreyf-
ingin bæði á faglegu og pólitisku
sviði verið sterkasta framvindu-
aflið.
Að byggja
réttlátt þjóðfélag
Ég ætla mér ekki þá dul, að
fara að lýsa þeim kjörum, sem
verkafólk i landinu bjó við um og
eftir 1930 eða kjörunum, sem það
býr við i dag.
Hitt er svo annað mál, hvort
þeir draumar, sem við bjuggum
yfir á þeim árum hafi rætzt fylli-
lega. Við áttum okkar drauma
um nýtt tsland, allt annarrar
geröar en þá var og lika annarrar
gerðar en er i dag.
Ég veit ekki, hvort við höfum
gert okkur hærri vonir um lifs-
kjör, en þau, sem við búum við
nú, en þar meö er engan veginn
sagt, að verkafólkiö beri meira úr
býtum hlutfallslega úr þjóðar-
auðnum en það geröi fyrr.
Vonir okkar um umbyltingu á
stjórnmálasviöinu og um að
„byggja réttlátt þjóðfélag” hafa
ekki rætzt i þeim mæli, sem viö
væntum. Það verkefni er enn fyr-
ir hendi og biður úrlausnar, ekki
sizt unga fólksins.
Þvi aöeins komum við hugsjón-
um verkalýöshreyfingarinnar i
höfn, að verkalýösstéttin leysi
þetta sögulega hlutverk.
kj.
U mhverf isvemd
Framhald af bls. 16.
i litlu útvarpstæki i fréttum að
Þingeyingar heföu sprengt stiflu
við Mývatn. Þaö var sú frétt sem
gladdi þá mest, meðan lögreglan
var að saga af þeim hlekkina.
Upp úr aðgerðunum við Mar-
dalaforr reis mjög sterk náttúru-
verndarhreyfing og hefur þeim
fræöum sem að henni lúta, þ.e.
vistfræðinni heldur betur vaxið
fiskur um hrygg siöan. Formaður
þessarar hreyfingar. Per
Gaarder mun að öllum likindum
koma hingaö til lands siöar i vet-
ur og flytja erindi um umhverfis-
vernd i þessum þáttum. Þá er og
fyrirhugað að i þessum þáttum
verði siöar i vetur umræður um
sérislenzk vandamál i um-
hverfisvernd. — S.dór
FÉLAGSLÍF
Laugarneskirkja
Messa kl. 2 e.h. Athugiö
breyttan messutima. Barna-
guðþjónusta kl. 10.30. Séra
Garðar Svavarsson
Kirkja óháðasafnaðar-
ins.
Messa kl. 2 (Kirkjudagurinn)
Séra Emil Björnsson.
Neskirkja.
Messa kl. 11. Séra Jón Thorar-
ensen Fermingarmessa kl.2.
Séra Frank M. Halldórsson.
Bústaðakirkja.
Barnasamkoma kl. 10.30.
Guðþjónusta kl. 2. Afhentar
verða gjafir til kirkjunnar
Séra óiafur Skúlason.
Félagsstarf eldri borg-
ara,
Langholtsveg 109-111. Mið-
vikudaginn 4. okt verður opið
hús frá kl. 1.30. e.h. meðal
annars hefst þá bókaútlán aft-
ur. Fimmtudaginn 5. okt. hefst
handavinna og föndur kl. 1.30
e.h. Athugið breytta handa-
vinnudaga.
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18 III. hæð (lyfta)
Simi 24-6-16
Perma
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 Simi 33-9-68.
Móðir okkar.
AMALÍA H. SKÚLADÓTTIR
andaðist laugardaginn 30. sept.
Skúli Hallsson Hallur Hallsson
Hulda Hallsdóttir.