Þjóðviljinn - 12.11.1972, Qupperneq 16
t
Almennar upplýsingar um Helgar- kvöld- og næturþjón-
MOBVIUINN1 læknaþjónustu -eru gefnar Læknafélags simi 18888. borgarinnar i simsvara Reyfejavlkur, usta lyfjabúðanna i Reykja- vík vikuna 11.- 17. 'nóvember er I Laugarnes og Ingólfs Apóteki.
Sunnudagur 12. nóvember 1972;
Slysavaröstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstö&inni.
Simi 21230.
[ ENDURNÝJUN
■ VESTURBÆJ ARINS
llluli svæftisins sem nú á að skipuleggja I samvinnu Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesshrcpps.
Talsverðar umræður hafa átt sér stað um
nýtt ibúðahverfi i Vesturbænum, og hefur verið
talað um 1000 ibúa hverfi en sumir álita að
þetta verði 5—7 þúsund manna hverfi. Nú
standa yfir umræður milli fulltrúa Reykja-
vikurborgar og Seltjarnarnesshrepps um
skipulag svæðisins.
Við snerum okkur fyrst til
Sigurjóns Péturssonar full-
trúa Alþýöubandalagsins i
borgarráði og spurðum hvort
borgarráð væri búið að sam-
þykkja þetta skjpulag.
— Nei. Þetta hefur ekki
fengið neina afgreiðslu i
borgarstjórn. Mér kom svolit-
ið á óvart að sjá frétt um þetta
i morgunblaðinu, og hélt aö
blaðamaðurinn heföi fengið
spurnir af þessu máli vegna
þess að það væri á leiðinni til
borgarráðs, en máliö hefur
ekki borið á góma þar ennþá.
Sækja Kll-ingar
fast á?
— Hefurðu heyrt að KR-ing-
um sé mjög umhugað að þetta
hverfi risi til að fá til sin meira
af ungu fólki?
— Nei, ekki hef ég nú heyrt
það, en aftur á móti er vitað að
ýmsar þjónustustofnanir i
Vesturbænum sjá fram á erf-
iðleika vegna þess að i hverf-
inu fækkar og þá um leið fækk-
ar börnum og unglingum.
Þá snerum við okkur til
Geirharðs Þorsteinssonar,
arkitekts, en hann og Hró-
bjartur Hróbjartsson arkitekt
munu sjá um skipulag svæðis-
ins.
Fyrst og fremst
fjölbýlishús
Geirharður sagði að málið
væri alveg á byrjunarstigi, en
ljóst er að þarna verða fjöl-
býlishús fyrst og fremst og
einnig mætti ætla að eitthvað
yrði af raðhúsum á svæðinu.
Svæðið afmarkast af sólar-
lagsbrautinni, eða ástarbraut-
inni, að norðanverðu. Að sunn-
anverðu takmarkast hverfið
af þeirri byggð sem fyrir er og
það eru engin áform um að
rifa nein hús.
Geirharður kvaðst ekki vita
með neinni vissu hvenær
byggingarframkvæmdir
myndu hefjast, en búast mætti
við að þær hæfust eftir tvö til
þrjú ár. A svæðinu er djúpt
niður á fast og munu skipu-
leggjendur verða bundnir af
þeirri staðreynd að byggingar
verða að vera stórar svo að
kostnaður við grunn dreifist á
margar ibúðir.
Tefur skipulag
hjá báðum
Þá höfðum við samband við
Sigurgeir Sigurðsson, sveitar-
stjóra Seltjarnarnesshrepps,
en umræður hafa staðið yfir
alllangan tima um samvinnu
borgarinnar og hreppsins við
skipulag svæðisins. Ger má
ráö fyrir makaskiptum, ,,og
reyndar nauðsynlegt fyrir
báða aðila að þessi mál komist
sem fyrst á hreint, þvi að þetta
tefur skipulag hjá báðum”,
sagði Sigurgeir.
— Hver á þessi tún þarna?
—- Það eru nokkuð margir
eigendur að þeim, a.m.k. okk-
ar megin. Þetta eru eignar-
lönd, sem þarf að kaupa, en
Reykjavikurmegin eru þetta
erfðafestulönd. Landamerkin
eru heldur óskemmtilega lög-
uð, eru i einskonar tröppu-
göngi niður mýrina.
Jóhann
°g Gylfi
svara
hlust
endum
1 þættinum Beina linan i út-
varpinu á miðvikudagskvöld kl.
7,20 gefst útvarpshlustendum
tækifæri til að spyrja fulltrúa
stjórnarandstöðunnar spjaranna
úr. Jóhann Hafstein og Gylfi Þ.
Gislason verða fyrir svörum og
munu svara spurningum um hlut-
verk, stöðu og störf stjórnarand-
stöðuflokkanna.
Hlustendur geta borið upp
spurningar sinar i simatima
þáttarins milli kl. 4 og 7 á morg-
un, mánudag, i sima 20855.
Ráðinn nýr
framkvæmda-
stjóri
Neskaupstaöur 10/11 —Ráðinn
hefur verið nýr framkvæmda-
stjóri að félagsheimilinu Egils-
búð. Höskuldur Stefánsson hefur
verið i þessu starfi i nokkur ár og
lætur nú af starfi. Við tekur Hall-
dór Haraldsson. Hj.G.
ÍOO þúsund kr.
gjöf tu
N áttúrugripa-
safns Austurlands
Neskaupstað, 10/11 — A
aðalfundi SON fyrir viku var
samþykkt að gefa 100 þúsund kr. i
byggingarsjóð Náttúrugripasafns
Austurlands i tilefni af 40 ára
afmæli félagsins i byrjun nóvem-
ber. Hj.G.
Að virða
það sem
vel
er gert
Skiltiö að tarna stendur á Vestur-
landsvegi rétt fyrir framan vega-
mót Vcstur- og Suðurlandsvegar
og þarfnast það ekki nánari skýr-
ingar. En það hefur verið komiö
upp lömpum yfir skiltinu, þannig
að það sést i myrkri og eru þessir
lainpar nýkomnir upp. Þarna
hefur verið unnið þarft og gott
verk, sem þakka ber. — S.dór.
Ási í Bœ fjallar um sjónvarpið á 3. síðu og Haraldur
Guðbergsson á bls. 5 — hvor á sinn hátt
Læknisleysið er
verst á Flateyri
FLATEYRI, 11/11 — Hér er
hörkubylur að norðaustan og
götur nær ófærar vegna snjóa.
Sér varla milli húsa hér i þorpinu.
Þá eru vegir ófærir innanfjarðar
og snjóruðningstæki vantar til aö
ryðja flugbrautir, sagði Trausti
Friðbertsson, kaupfélagsstjóri á
Flateyri.
Siðastliðinn þriðjudag var
Breiðdalsheiði rudd til þess að
komast fram og til baka og varð
heiðin brátt ófær á ný og hefur
verið svo siðan.
Plássið er svo til einangrað
þessa stundina. Finnur fólk þá
meira til þess öryggisleysis að
hafa engan lækni hér á Flateyri.
Hefur læknir ekki verið hér und-
anfarin ár og áttum við að hafa
aðgang að lækni á Þingeyri. Nú er
sá læknir farinn þaðan og verðum
við þá að sækja lækni til tsafjarð-
ar.
Tvær hjúkrunarkonur útdeila
lyfjum hér i þorpinu i neyðartil-
fellum.
Unnið hefur verið að endurbót-
um við frystihúsið og er nú verið
að taka i gagnið gott geymslu-
rými á næstunni. T.F.
Þj óðhátíðardagur
Grimseyinga
var í gær
Það kann að hafa farið framhjá
einhverjum gegnum árin, en eigi
að siður cr það staðreynd, að
Grimseyingar halda sina eigin
þjóðhátið 11. nóvember ár hvert,
og hafa gert siðan 1907.
Þjóðhátiðardagur Grimseyinga
er fæðingardagur Þjóðverjans
Williards Fiske, en hann var
mikill velgerðarmaður eyja-
skeggja, svo sem kunnugt má
vera. Það var séra Matthias
Jochuinsson, sem var aðalhvata-
maður þess, að Grimscyingar
minntust hans með þessum hætti.
—h m.