Þjóðviljinn - 23.11.1972, Síða 6
B.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. nóvember 1972
MÁLGAGN SÓSÍALISMA/
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgcfandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Kramkvæmdastjóri: Eiöur Bcrgmann
Ititstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (áb.)
Auglýsingastjóri: lleimir Ingimarsson
Kitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17300 (5 linur).
Askriftarverö kr. 225.00 á mánuöi.
Lausasöluvcrð kr. 13.00.
Prentun: Blaðaprent h.f.
ÍHALDIÐ VII I FELA HIÐ SANNA
FYRIR ÞINGI ALÞÝÐUSAMBANDSINS!
Tölur okkar um kaupmátt launa og til-
færslu fjármuna frá launamönnum á við-
reisnarárunum reynast vera réttar, og
þær hitta i mark. Þetta var staðfest á
alþingi i fyrradag, er Jóhann Hafstein
stökk upp i ræðustól utan dagskrár al-
þingis til þess að mótmæla Þjóðviljanum
sérstaklega. Þetta gerir Jóhann vegna
þess að tölur okkar eru sannleikanum
samkvæmar og sök bitur sekan. í öðru
lagi svarar hann dagblaði i umræðum á
alþingi vegna þess, að hann treystir ekki
ritstjórum Morgunblaðsins til þessað hafa
uppi nægilega öflugt andóf gegn málflutn-
ingi Þjóðviljans. Er það fagnaðarefni, að
forystumenn Sjálfstæðisflokksins skuli nú
telja Þjóðviljann svo sterkan að nú dugi
ekki Morgunblaðið og Visir né útibúið
Alþýðublað til þess að hafa i fullu tré við
Þjóðviljann, ekki veiti af ræðustólum
alþingis i viðbót!
Jóhann Hafstein og Gylfi Þ. Gislason
bera ábyrgð á þvi, að á viðreisnarárunum
var fjármagn flutt frá launamönnum til
afætu- og arðránsstéttanna.
Þeir bera ábyrgð á þvi, að gengið var
fellt fjórum sinnum á stjórnarferli þeirra
— gagngert til þess að færa til fjármuni
frá launamönnum. Þeir bera ábyrgð á þvi,
að hundruð og þúsundir íslendinga voru
landfótta á viðreisnarárunum. Þeir bera
ábyrgð á þvi, að um tima var sjötti til sjö-
undi hver félagsmaður alþýðusamtak-
anna atvinnulaus. Þeir bera ábyrgð á þvi,
að togaraflotinn drabbaðist niður á við-
reisnarárunum og vanrækt var allt of
lengi að endurnýja þann hluta bátaflotans,
sem tryggði frystihúsunum hráefni. Þeir
bera ábyrgð á þvi, að iðnaður landsmanna
dróst saman á árunum 1964-1967. Þeir
bera ábyrgð á niðurlægjandi utanrikis-
stefnu íslendinga sem fylgt var á viðreisn-
arárunum. Og þannig mætti telja svo
lengi, að dygði i mörg þykk bindi, enda
afglaparegistur Jóhanns Hafsteins og
Gylfa Þ. Gislasonar.
En þessu á að gleyma, og þó alveg sér-
staklega meðan þing Alþýðusambands ís-
lands stendur yfir. Jóhann Hafstein kvart-
aði einmitt sáran undan afhjúpunum
Þjóðviljans á viðreisnarstefnunni, vegna
þess að ASÍ þing stendur yfir.
Það væri mjög bagalegt, sagði Jóhann, ef
þessar tölur kæmu fram, ,,á sama tima og
þing Alþýðusambandsins sæti á rök-
stólum.” Þessar upplýsingar á semsé að
fela. Þeir sem ráðgast um kjör alþýðu-
stéttanna i landinu þessa dagana eiga sizt
af öllum að fá að vita um það hvernig við-
reisnin stóð i látlausu striði gegn launa-
fólki og færði auðstéttinni með löggjöf á
alþingi ávinninga kjarabaráttunnar á
silfurdiski. Það er bagalegt að þetta skuli
nú koma fram! Bagalegt? Fyrir hvern?
Bagalegt fyrir Jóhann Hafstein og liðs-
menn hans á þingi Alþýðusambands ís-
lands. En það er ekki bagalegt, heldur
nauðsynlegt fyrir alþýðustéttirnar i land-
inu að hið sanna komi i ljós.
Jóhann Hafstein og Geir Hallgrimsson
boða nú nýja viðreisn! Það þarf æði mikið
blygðunarleysi til þess að þora slikt eftir
þá útreið, sem viðreisnarflokkarnir fengu
i siðustu kosningum. Það hlýtur að valda
almenningi beinum hryllingi að hugsa til
þess, að enn skuli vera til menn sem ekki
einasta verja gömlu „viðreisnina” heldur
heimta i þokkabót ,,nýja viðreisn”. Þvi
,,ný viðreisn” yrði sjálfsagt af sama toga
og sú fyrri, og henni hefur verið lýst hér
fyrr i forustugreininni. Launamenn á Is-
landi frábiðja sér slikt. Þeir muna við-
reisnarárin, hrollvekjuna, hörmungar at-
vinnuleysis og verkfallsmeta.
Enda þótt svo óliklega færi, að Jóhann
og Geir ynnu sigur á andstæðingum sinum
innan Sjálfstæðisflokksins, er útilokað að
Sjálfstæðisflokkurinn vinni sigur á ný.
Þeir hafa misst „valdaaðstöðu sina og
ekki liklegt að þeir endurheimti hana i
bráð”, svo að notuð séu orð Morgunblaðs-
ins i gær um kristilega demókrata i
Vestur-Þýzkalandi.
Hvenœr á að stað-
festa samninginn við
Efnahagsbandalagið?
/Æ\ £m\ ('tu
ím
8
m
þingsjá þjóðviljans
Gróði og meiri gróði
Bjarni Guönasoii.mælti i fyrra-
dag fyrir þingsályktunartillögu.
sem hann flytur ásamt Eðvarði
Sigurðssyni og Braga Sigurjóns-
syni um að fela rikisstjórninni að
láta undirbúa löggjöf um verð-
aukaskatt, sem lagður yrði á sölu
fasteigna, annarra en ibúðar- og
atvinnurekstrarhúsnæðis.
Bjarni sagði, aö fyllilega tima-
bært væri að skattleggja hagnað
af sölu lóða og lendna, sem hækk-
að hafa i verði án tilverknaðar
eiganda. Nú sleppa menn við
skattgreiðslu af söluhagnaði fast-
eignaef eignin hefur verið i eigu
seljanda lengur en ýmist 3 eða 6
ár. Bjarni sagði að þetta væri
ekki óeðlilegt, þegar um ibúðir og
atvinnuhúsnæði væri að ræða, en
allt annað ætti að gilda um aðrar
fasteignir, svo sem lendur og lóð-
ir.
túngmaðurinn sagði, aö mörg
dæmi væru um það, að slikar
eignir seldust á himinháu verði
án þess að eigandinn hefði á
nokkurn hátt unnið til hækkunar-
innar. betta gerðist t.d. við skipu-
lagningu ibúðarhverfa i borg og
bæ. Sem dæmi nefndi Bjarni, að á
þessu ári keypti Keflavikurkaup-
staður lóðir og lendur af hluta-
félagi nokkru fyrir 35 miljónir
króna, og varð á siðasta alþingi
að breyta lögum, svo að rikið
gæti hlaupið undir bagga með
kaupstaðnum við þessi kaup.
Skattgreiðendur verða svo að
standa undir stórkostlegum
gróða, er fellur i hlut seljenda án
nokkurs eigin tilverknaðar og
an þess að slikur seljandi greiði
nokkurn skatt af hagnaði sinum.
1 þessu sambandi mirgitist
Bjarni einnig á sölu lands tindir
sumarbústaði.
Bjarni sagði, að flutningsmenn
ætluðu rikisstjórninni að kveða á
um, hvort tekjur af þeim skatti,
sem hér væri stungið upp á, rynnu
til rikisins eöa sveitarfélaga, en
skattlagningin ætti að vera veru-
leg. Að lokum lét hann þess getið,
að fjölmargar nágrannaþjóðir
hefðu þegar tekið upp slikan skatt
og furðu gegndi, að slikt skyldi
ekki hafa fengizt samþykkt hér
fyrr.
Peningagjafir
til Styrktarfélags
vangefinna
Fyrir nokkru bárust
Styrktarfélagi vangefinna tvær
stórar gjafir. 60.000 kr. frá
öldruðum hjónum á Selfossi og
50.000 kr. — frá börnum og
tengdabörnum Andreu K. Guð-
mundsdóttur og Halldórs Högna-
sonar i minningu 100 ára afmælis
Andreu.
i fyrirspurnatima á alþingi i
fyrradag var á dagskrá fyrir-
spurn Gylfa Þ. Gislasonar um
það, hvenær samningur íslands
við Efnahagsbandalagið yrði
lagður fyrir alþingi.
Gylfi Þ. Gislason sagði, að
samningurinn hefði verið undir-
ritaður 22. júli s.l. og siðustu for-
vöð væru að fullgilda hann nú um
mánaðamótin, ef hann ætti að
taka gildi um áramót. Gylfi ftélt
þvi fram, að lslendingar ættu tvi-
Bragi Sigurjónsson mælti á
alþingi i fyrradag fyrir þingsá-
lyktunartillögu, sem hann flytur
ásamt fleiri Alþýðuflokksþing-
mönnum um eignarráð á landinu,
gögnum þess og gæðum.
Þingmaðurinn sagði, að tillag-
an fjallaði um að fela rikisstjórn-
inni að láta semja frumvarp um
skipan eignarréttar á landi. Við
samningu frumvarpsins verði
lýst alþjóðareign, að svo miklu
leyti sem skýlausar eignarheim-
ildir annarra liggja ekki fyrir.
Ennfremur verði stefnt að þvi, að
með timanum verði allt land
alþjóðareign, en bújarðir megi þó
ganga kaupum og sölum til bú-
rekstrar. Stöðuvötn i afréttum og
öll fallvötn verði lýst alþjóðar-
eign, svo og allur jarðvarmi undir
mælalaust að fullgilda samning-
inn af sinni hálfu strax, þó að
Efnahagsbandalagið neitaði að
fullgilda af sinni hálfu hvað tolla
á sjávarafuröum snertir fyrr en
bandalagið teldi viðunandi lausn
orðna i landhelgisdeilunni.
Einar Agústsson, utanrikisráð-
herra, sagði að rikisstjórnin hefði
ekki tekið ákvörðun um, hvenær
hún legði samninginn við
Efnahagsbandalagið fyrir alþingi
til staðfestingar.
100 metra dýpi og verðmæti,
sem finnast kunna i jörðu fyrir at-
beina rikisins, eða leyfi rikisins
þarf til að leita eftir. Bragi sagði,
að fornar eignarréttarhugmyndir
varðandi landeign, sem enn mót-
uðu löggjöf i þessum efnum, væru
til orðnar við gjörólikar aðstæður
þeim, sem nú riktu.
Þessar eignarréttarhugmyndir
bændasamfélagsins hefðu grund-
vallazt á rélti til heyöflunar,
beitarnota, eldiviðartekju og
slikra hluta, en nú væri öldin önn-
ur og þvi timabært að koma á ný-
skipan i þessum efnum.
Bragi gat þess, að i mörgum
nágrannalanda okkar, svo sem i
Noregi, Sviþjóð, Skotlandi og
Englandi, væru öll fallvötn og
stöðuvötn i rikiseign.
Laxarækt í Laxá
Bragi Sigurjónsson.sem situr á
alþingi sem varamaður Alþýðu-
flokksins, beindi þeirri fyrirspurn
til menntamálaráðherra i fyrir-
spurnatima á alþingi i fyrradag,
hvort ráðuneytið hefði ekkert við
það að athuga frá náttúruvernd-
ar- og vistfræðilegu sjónarmiði,
að stofnað yrði til laxaræktar i
Laxá i Suður-Þingeyjarsýslu ofan
Brúarfossa og i Mývatni, en lax
hefur ekki verið þar áður. Einnig
spurði Bragi, hvort ráðuneytið
hefði i hyggju að banna slikar
framkvæmdir.
Magnús Torfi Ólafsson,
menntamálaráöherra, 'sagði að
fyrir tæpu ári hafi verið gerð i
Náttúruverndarráöi samþykkt
um að laxarækt á þessum slóðum
kynni að valda röskun, sem ekki
væri hægt að segja fyrir um, hve
alvarleg yrði nema að undan-
genginni rannsókn. Ráðherrann
skýrði frá þvi, að Finni Guð-
mundssyni fuglafræðingi og
nefnd liffræðinga, sem unnið hef-
ur aö athugunum á lifkerfi
Mývatnssvæðis, hafi verið falið
að rannsaka hugsanleg áhrif
laxaræktar og muni þeir skila
bráðabirgðaskýrslu i næsta mán-
uði og lokaskýrslu á næsta ári.
Ráðuneytið tæki þá fyrst afstöðu
til málsins, þegar niðurstöður
rannsókna lægju fyrir.
Stefán Jónsson. sagði að lita
yrði á þessa fyrirspurn Braga i
samhengi við aðra fyrirspurn
hans, sem lögð hefði verið fram
en ekki væri komin til umræðu,
þar sem spurt væri, hvort ekki
væri ætlunin að fullvirkja Laxá
III. Alkunnur væri áhugi Braga
Sigurjónssonar á Gljúfurvers-
virkjun og Suðurárveitu, en sann-
leikurinn væri sá, aö engum dytti
i hug frekari virkjun Laxár, þeg-
ar laxinn væri kominn upp fyrir
Brúar. Stefán sagði að ef miljón
laxaseiði væru sett i efri hluta
Laxár ættu 100.000 að skila sér til
baka i neðri hlutann.
ENDURHÆFING
ALÞÝÐUFLOKKSINS
SEGIR TIL SÍN