Þjóðviljinn - 26.11.1972, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 26.11.1972, Blaðsíða 12
12.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2íi. nóvcmbcr 11172 SKIIJN EFTIR . . . Teiknimyndasaga frá Kína 39. Wang sendir þjón sinn eftir Hsiang-lien. Shih-mei rekur í rogastanz er hann sér konu sina aftur og skipar þjóni sinum að visa henni á dyr. En embættismaðurinn blandarsér i málið: „Hvers vegna að reka hana á dyr? Hún hefur ekki sungið orð!” 40. ,,Hún lftur svo illa út. Ég þoli ekki að horfa á hana” segir Shing-mei óðamála. „Það er varla hægt að ásaka hana fyrir það,” segir Wang brosandi. „Hjúskaparmál hennar er sennilega i ólagi ...” Og hann horfir rannsakandi á Shih-mei sem hengir höfuðið þungur á brún. Auglýsingasími ÞJÓÐVILJANS hvort heldur um er a3 ræða popp eða sígilda tónlist. DUAL STEREO SAMSTÆÐUR á viSráðanlegu verði fyrir fólk á öllum aldri. Verð frá kr. 21.000,00 KLAPPARSTlG 26, SlMI 19800, RVK. OG BREKKUGÖTU 9, AKUREYRI, SlMI 21630 er 17500 DMVIUINN LITLI GLUGGLNN Það skipti bara máli hver fengi f lesta. En pabbi var ekki viss um að Anna hefði rétt fyrir sér, eða að hann heyrði á rödd Önnu að hún var ekki viss, svo að hann sagði: — teldu. Anna gat talið upp á tuttugu og níu. ONNO + INNI Anna var farin að skrifa stafi. Það sá á að hún færi bráðum í skóla. Hana klæjaði i fingurna. Auðveld orð svo sem ANNA og MAMMA og PABBI átti hún létt með að skrifa. Á pappír, á dúkinn, á glugga, á rykið á bílnum og á veggfóðrið bak við símaskrana. — Heyrðu nú, f inndu þér aðra staði til að skrifa á, sagði pabbi, — við nennum ekki að setja nýtt vegg fóður, þó að þú getir skrifað ANNA. Það var mamma sem veggfóðr- aði, svo að pabbi gat staðið á sama. Stuttu seinna kom hann með blað. — getur þú skrifað ANNA aftur á bak, spurði hann. Það gat hún auðveldlega. Það varð ANNA. — getur þú skrifað MAMMA aftur á bak, spurði hann. Það gat hún. AMMAM stendur þarna. las pabbi upphátt. — AMMAMsegir Anna þegar hún fær súkkulaði. Svo skrifaði Anna lika PABBI aftur á bak. IBBAP, las pabbi, það er tóm tjara. — eigum við að koma i teninga- spil, sagði Anna allt í einu. Þau gerðu það. Það var spil sem pabbi kallaði Önnu — því það líktist ekki öðrum teningaspilum. Þau gerðu bæði i einu með tveimur ten- ingum hvort. — hver hef ur flesta punkta, spurði pabbi. — það hef ég, sagði Anna. Og svo setti hún einn kross hægra megin við strikið á blaðinu. — við getum notað miklu fleiri en fvo teninga, sagði Anna. — við skulum bíða með það, sagði pabbi. — því þá gengur spilið hægar. Og mer finnst mest gaman að spila hratt. Önnu langaði samt til að þau reyndu með fimm teninga hvort. — því nenni ég ekki, sagði pabbi. — hver hefur nú flest? — það ert þú, sagði Anna og setti kross í pabba dálk, vinstra megin við strikið á blaðinu — nú mátt þú ekki snúa blaðinu á haus, sagði pabbi. — því þá fæ ég þína krossa. Anna sneri blaðinu. Þetta var rétt. Þá skrifaði hún Anna í sinn dálk og PABBI i hinn dálkinn. Ef maður sneri PABBI á haus, þá voru þetta ekki neinir venjulegir stafir. En ANNA á haus varð að NN. — þú heitir NN á haus, sagði pabbi. — þú heitir tóma dellu á haus, sagði ANNA. Og svo skrifaði hún fleiri orð á haus. — KAREN heitir N og svo bull, sagði pabbi, —og MAMMA HEITIR WW W. Morgunleikfimin hans Valdimars er víst ágæt fyrir þá sem ekki hreyfa sig allt of mikið í vinnunni. Svo sem til að minna kyrrsetumenn á hollustu likamsræktar birtum við meðfylgjandi mynd. Hún er að vísu af manni i jóga-stellingum. en þar er vfst um eins konar morgunleikfimi bæði sálar og likama að ræða. Og ekki viljum við efast um, að það hafi hin beztu áhrif á allt heilsufarið að sperra sig svona.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.