Þjóðviljinn - 26.11.1972, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 26.11.1972, Blaðsíða 16
DIÚOVIUINN Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Sunnudagur 2«. nóvember l!)72 Kvöldvarzla lyf jabúöanna vikuna 25. nóv. - 1. dcs. veröur i Holts Apóteki og Laugavegs Apótcki. Nætur- og helgidagavarzla er i Borgar Apóteki. Slysavaröstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstööinni. Simi 21230. 32. þing ASÍ gerði engar ályktanir 11111 atvinnulýðræði — en öllum ályktanadrögum var vísað til miðstjórnar Miklar umræöur uröu um atvinnulýðræði á siðasta kvöldfundi 32. þings Alþýðusambands islands. Fyrir þinginu lágu i upp- hafi drög að ályktun um atvinnulýðræði. Töldu ýmsir að ekki væri tíma- bært að samþykkja ályktun af þessu tagi á þinginu þar sem lítið hefði verið fjallað um málið i félögum innan ASi. Þess vegna varð það að samkomulagi/ í atvinnulýöræðisnefnd þingsins, að leggja fyrir þingið styttra plagg um atvinnulýðræði þarsem að- eins væri tæpt á helztu skilgreiningum. Karl Steinar (luönason var framsögumaöur nefndarinnar. Siöan tók til máls Kaldur óskars- son. Hann sagöi aö eðlilegt væri aö miða viö aö stiga fyrstu skref til atvinnulýðræðis i þeim 155 l'yrirtækjum i landinu sem hefðu 50 starfsmenn og fleiri. Hann laldi aö með tillögu þingnefndar- innar væri veriö aö visa upp- haflega álitinu frá. Skúli Póröarson tók undir ummæli Baldurs. Sigurjón l’étursson álti sæti i atvinnulýðræðisnefnd og geröi hann grein lyrir þvi hvers vegna nelndin taldi ekki ráðlegl aö sam- þykkja upphaflegu tillöguna. Hess vegna heföi nelndin flutt til- lögu sina, en hún var svo- hljóðandi: 32. þing ASÍ álitur aö aukið atvinnulýöræöi sé eitt þýðingar- Frh. á bls. 15 Preyttar konur á ASÍ-þingi. Myndin tekin i lok þingsins á föstudagsmorgun af fulltrúum Verkakvenna- félagsins Framsóknar. Fulltrúar Dagsbrúnar á ASÍ-þinginu Sendu þrjú tonn af fatnaði til Angóla í marz síðastliönum kom hingað til lands á vegum nokkurra félagssamtaka Antonio Neto, fastafulltrúi þjóðfrelsíshrey fingar Angóla (MPLA), í Stokk- hólmi. Eins og kunnugt er hafa Angólabúar um 15 ára skeið háð baráttu gegn nýlendustefnu Portúgals, sem um margar aldir hefur arðrænt og kúgað þjóðir Angóla, Mozambique og Guinea Bissau. Þjóðfrelsishreyfingar þessara landa, MPLA, FRELIMO og PAIGC, hafa háð hetjulega bar- áttu gegn kúgurum sínum, sem ráða yfir fullkominni tækni i vopnabúnaði. Nú er svo komiö aö þriðji hluti Angóla er á valdi þjóð frelsishreyfingarinnar og er þar búið að setja á stofn skóla, sjúkrahús og læknamiðstöðvar og verið að skipuleggja uppbyggingu sjáll'stæðrar þjóðar. Þjóöfrelsishreyfingin berst nú i 10 af 15 héruðum landsins á 500.000 ferkilómetra svæði og er allt ástand þar hið hörmulegasta, fátækt og skortur á öllum nauð- synjum. Antonio Neto leitaði til ýmissa aðila um aðstoð og skoraði á Is- lendinga að veita Angólabúum alla þá hjálp, sem þeir mættu. Taldi hann upp helztu vörur, sem aö gagni gætu komið, og nefndi t.d. lyf, fatnað. niðursuðuvörur, byggingavörur o.fl. Menningar- og friðarsamtök is- lezkra kvenna, sem voru meðal þeirra samtaka, sem stóðu að heimboði Antonios Netos, gengust i mai s.l. fyrir fatasöfnun meðal félagskvenna, sem eru 210 að tölu. Söfnunin gekk mjög vel og söfnuðust á skömmum tima 3 tonn af fatnaði. Ýmsir aðilar reyndust félaginu hjálplegir við að koma sendingunni af stað. Nú hefur MFIK borizt bréf frá fulltrúa stjórnar MPLA þar sem segirm.a.: ..Fyrir hönd stjórnar- innar og hinnar striöandi þjóöar Angóla færum viö ykkur hjartan- legar þakkir meö von uni áfram- haldandi stuöning ykkar viö rétt- láta baráttu þjóðar okkar fyrir al- geru sjálfstæöi.” XFrétt frá M.F.I.K.) Miljón kvenna? RÓM. Vændi stendur mcð mikl- um blóma á ttalíu og hefur jafn- vel vcrið borin fram tilgáta þess efnis af hálfu opinberrar kven- verndarnefndar, að gleðikonur landsins færu mjög aö nálgast eina miljón. Þetta myndi þýða, að tiunda hver kona á aldrinum 15—10 ára legði fyrir sig vændi. Vændi er ekki lögleyft á Italiu, en upp hefur risið þétt net af hóruhúsum sem starfa undir alls konar yfirskini og birta einkenni- legar en ótviræðar auglýsingar i ýmsum helztu blöðum landsins. Gleðikonur fara I hópum um götur helztu borga, og á hverri viku kemst upp um nýja sima- vændishringi, sem oft nota mjög ungar táningastelpur. Tízkusýning Fannýar og Faco á Hótel Sögu í kvöld Verzlunin Fanný gengst fyr- ir tizkusýningu að Hótel Sögu. Súlnasal, annað kvöld, og hef- st hún um klukkan 10. Sýndur verður kvenfatnaður frá Fanný og herrafatnaður frá Faco. Sýnendur eru félagar úr sýningasamtökunum Karon. Milli 5-7 á morgun verður snyrtisýning i glugga Fannýar i Kirkjuhvoli, en þar verða sýningarstúlkur kvöldsins snyrtar af einum þeirra herramanna sem sýna um kvöldið á Sögu. Myndir hér að ofan er af einni afgreiðslustúlkunni i Fanný, Þórdisi Sigurðardótt- ur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.