Þjóðviljinn - 09.12.1972, Síða 7

Þjóðviljinn - 09.12.1972, Síða 7
Jólablaö 1972 ÞJÓÐVILJINN - StÐA 7 Athugasemdir um íslenzkar sjómannabækur Eins og fyrr var um getið i þessum pistlum eru bókaskrif á íslandi svo til eingöngu tengd þeim bókum, sem gera nokkurn veginn alvarlegt tilkall til að telj- ast til fagurbókmennta. Auk þess er f jallað um sagnfræðirit innlend og stundum um eitthvað af þvi sem heitir þjóðlegur fróðleikur og getur þýtt margt. Aðrar bækur verða útundan — höfundum og útgefendum sjálf- sagt til sannrar gleði. (Oftar en ekki hefi ég heyrt útgefendur tala um, að mikið væri skemmtilegra að lifa ef að gagnrýnendur hættu sinni illu iðju. Hefur hver sér til ágætis nokkuð). Ein helzta ástæð- an fyrir þessu ástandi er kannski sú, að einstakar bækur innan hvers bókaflokks eru lygilega svipaðar hver annarri — á þetta ekki hvað sizt við ákveðna tegund „kerlingabóka” eins og minnzt var hér á laugardaginn var. Það sýnist skynsamlegra að fjalla um slika flokka almennt með ákveðin dæmi i huga, en eltast við hverja bók út af fyrir sig. Þetta er reynd- ar mjög vanþakklátt verk. Eitt sinn skrifaði ég langa grein um andabækur hér i blaðið, sem var i sjálfu sér erfitt verk, þvi andlaus- ari og hrútleiðinlegri textar eru ekki til, nema ef vera kynni sjö stunda skýrslur sem gefnar eru á sumum flokksþingum. Þar að auki munu aðstandendur bókaút- gáfu ekki i annan tima hafa orðið jafn argir út af þvi, sem sett hefur verið i þetta blað og einmitt þessari litlu skýrslu. bæ. Höfundur er ekki sérlega há- tiðlegur i umtali um tilorðningu bókarinnar. Hann ætlar blátt áfram að breyta nokkrum greina- drögum i „jólahangikjöt og kannski lika kalkún ef bókarkáp- an lukkast nógu vel”. Reyndar er nýtni höfundar um margt aðdá- unarverð. Bókin er 168 bls. og er lesmálið drýgt með ýmsum hætti. Til dæmis eru þarna einar sex siður orðrétt endurtekning af þvi sem sami höfundur skrifaði fyrir tveim árum um Arinbjörn skip- stjóra á Sigurði i bókina Menn- irnir i brúnni, sem reyndar kom út á sama forlagi. En þetta er vist ekki á móti náttúrulögmálunum eins og t.d. að reyna að éta tvisv- ar sama hangikjötið. Satt að segja er bókin eins og kynningin gefur til kynna — blaðamennska, treyst persónu- legri reynslu höfundar, nokkuð sundurlaus eins og verða vill um slik skrif. Þarna eru vangaveltur um sjávarútveg, sem eiga varla forvitni annarra en sjómanna sjálfra, eins og lýsing Halamiða (eða kannski vita sjómenn þetta allt eins vel eða betur?). Aðrar eru liklega beinlinis ætlaðar land- kröbbum eins og athugasemdir GENGISFELLINGAR ALIFSREYNSLUNNI EFTIR ÁRNA BERGMANN Ofveiöi. Á ári hverju byrja útgefendur hávært kapphlaup um það hver sé „sjómannabókin” i ár. Hér mun um álitlegan markað að ræða, ef taka má mið af þvi að það má fastlega búast við að kunningjar manns, viðriðnir sjómennsku fái 2—4 slikar bækur á hverjum jól- um. Sjómennskufrásagnir eiga sér mikla forsögu og á þeim vett- vangi hafa orðið til bækur sem góðum tiðindum hafa sætt hjá les- endum — við skulum minna á Virka daga Ilagalins, i verum Theódórs Friðrikssonar og þætti Jónasar Árnasonar. En á siðari árum gerist svo það sem landlægt er á Fróni. Sæmilegar markaðs- horfur verða til þess að ólikleg- ustu menn fara á stjá og sækja á sömu mið allir i einu af ofurkappi — og er sama hvort um er að ræða sild, mink eða bókaflokka. Út- koman er ávallt sú sama og við venjulega ofveiði: það gengur á stofninn, fiskarnir smækka. „Sjó- mannabókin” hefur vafalaust smækkað, söguefnin rýrnað eftir þvi sem fleiri karlar eru settir niður fyrir framan segulbands- fróða skribenta. Að ekki sé taíað um þá skæravinnu að setja saman úr blaðagreinum og öðru prentuðu máli slysakrónikur lengri en sjálft skammdegið. Tvær sjómannabækur hafa ver- ið lesnar með þennan pistil i huga. Um borð i Sigurði eftir As- geir Jakobsson og Einn i ólgusjó eftir Svein Sæmundsson. Ég geri varla ráð fyrir þvi að bókarteg- undinni sé gert rangt til með þessu vali, nema siður væri; hér eru allavega menn á ferð sem hafa drjúga þjálfun T að fara með penna. Kalkún fyrir jólin. Litum þá fyrst á bók Ásgeirs Jakobssonar, Um borð i Sigurði. Þetta er greinasafn um dvöl fyrr- verandi sjómanns og nú blaða- manns og bókahöfundar um borð i þekktu aflaskipi og á tslendinga- slóðum i Bremerhaven og Grims- um kjör sjómanna, sem eru út af fyrir sig góðra gjalda verðar svo langt sem þær ná. Höfundur sleppur mjög létt frá lýsingum á mannlifi um borð, og hugsar les- andi með söknuði til betri lýsinga á sama vettvangi á meðan. Það er helzt i stuttri „Kvöldstemmn- ingu” að Asgeir nær sér dálitið á strik. Með fylgir ýmislegur tittlingaskitur hversdagslegrar blaðamennsku eins og frásagnir af kökusamsætum og góðgerðum fjallmyndarlegra islenzkra eigin- kvenna i Grimsbæ. Vikið er að bjór, sem er helzta baráttumál is- lenzkra rithöfunda um þessar mundir, eftir að Nestor þeirra hefur afgreitt stéttabaráttuna sem þvælu úr dauðum Þjóðverj- um. Einnig að gleðikonum — með vettvangslýsingum og priskúr- ant. Um þá hluti má segja bókar- höfundi til lofs, að hann hvorki slefar af hálfduldri hrifningu eða tyllir sér á háfætt siðferðishross — hvort tveggja sést i sjómanna- bókum. Viðhorf hans til mála eru yfirleitt meö skárra móti. Nema stundum hleypur einhver fjand- inn i lifrina á honum, eins og þeg- ar viðbrögð hans við of miklu mengunartali brjótast fram i svo- felldri setningu: „Heimurinn deyr i rauninni um leið og ég og þú”. Þetta er einmitt viðhorf sem hefur orðið mörgum veiðimanna- samfélögum til glötunar fullkom- innar og tslendingum ber þvi að kveða niður með ofstopa hvenær sem á þvi krælir. Skemmtun af þessari bók er svipuð þeirri sem hafa má af vettvagnslýsingu þjálfaðs blaða- manns sem ekki er húmorslaus. Erindið er helzt tengt einkar hóg- værri áminningu til landkrabba um kjör togarasjómanna. Fróð- leikurinn sem einn landkrabbi les úr bókinni er sem hér segir: a) Nýjustu fiskleitartæki jafna ekki mun á aflaklóm og fiskifæl- um i skipstjórastöðum, heldur auka hann (Þessi fróðleikur er tvitekinn i bókinni og kemur auk þess fram i Mennirnir i brúnni). b) tslenzkir sjómenn nenna ekki á mellufar lengur erlendis vegna þess að „þær eru betri og ódýrari heima”. Sjö sildir. Þá er komið að Pétri sjómanni. Sveinn Sæmundsson hefur i sjöttu bók sinni skráð ævisögu Péturs Péturssonar, sem fæddur var i efnaðri fjölskyldu á upp- lausnarstigi, fór á sjó innan við fermingu og sigldi á farskipum allar götur siðan, fyrst islenzku og svo aðallega norskum. Liklega er þetta dæmigerðari „sjó- mannabók” en greinasafn As- geirs. Er sögumaður þó siður hátiðlegur við sjálfan sig en þeir garpar i skipstjóraskrúða, sem margir þættireru til af. Auk þess má búast við þvi að skrásetningin sé i skynsamara lagi, frásögnin greið, setningar stuttar, hátið- leiki og skáldlegheit utan dyra. Miklu skemmtilegust til aflestrar er frásögn Péturs sjó- manns affyrstu sjómennskuárum hans. Nefnum til dæmis sildar- vertið sem hann fer á 13 ára. Henni lauk eítir mikil og spaugi- leg harmkvæli á þvi að nðtin og báðir nótabátarnir týndust, aflinn reyndist sjö sildir. Ýmislegt er og álitlegt i köflum um Fossana gömlu, sem af þessari bók að dæma voru furðu seigir við að koma sér i strand og önnur vand- ræði. Manni kemur til hugar, að ekki þurfi endilega stjórnmála- menn til að klussa öllu til and- skotans, eins og þjóðtrú er hér á landi. Þar gerast og skrýtlur, tengdar imynduðum draugagangi og öðru þvi sem fróðlegt er. Ekki meira um það. En bókin dofnar að mun eftir þvi sem lengra dregur, enda þótt Pétur sjómaður lendi reyndar i mörgu vafstri, sem heimaalningi þættu mikil tiðindi. Atvikin eru. mörg og hvert öðru lik, eins og oft vill verða i „sönnum frásögnum”. Og þau verða i frásögunni eigin- lega hvorki stór né smá, þótt til- efnin séu mjög misjöfn, sem of- sækja reyndar flestar islenzkar minningabækur frá sjó sem landi. Þaö þarf alltaf að þvo niður mastrið og pæla rennusteina, hve mjög sem mann langar i bjór. Þarna sáum við þetta skip, hér tókum við. timbur, þarna losuðum við oliu, hinum megin var dýrt, annars staðar skitbillegt, og svo fórum við i sólbað. Endurtekn- ingin sækir á. Þrenns konar endurtekningar eru áleitnastar: a) Sögumaður bjargar málum þegar illa stendur á (og þá er ekki verið að draga af sér eða spyrja um vaktir), gerir það sem örðum bar að gera, en fær aldrei nema skömm i hattinn fyrir. b) Sögumaður glimir við Bakk- us („ég var þyrstur”), og á ýms- um stigum þeirrar viðureignar lætur hann alls konar dólga stela af sér með þrautseigju sem nálg- ast íramferði heilagra manna. c) Sögumaður fer út að skemmta sér og hittir m.a. konur. Þeir hlutir eru alltaf afgreiddir með sama hætti. Tökum dæmi af nokkrum blaðsiðum: „Ég skemmti mér nú konunglega i Hamborg um nóttina og er ég nú ekkert að tiunda hvernig það gekk íyrir sig. En auðvitað naut maður allra þeirra lystisemda sem hafnarborgin hafði upp á að bjóða”. (206) ,,En stúlkurnar á Bali. Þær.eru kapituli út af fyrir sig, þó ekki verði nú sagt nánar frá þvi hér” (220). „Verð ég nú að segja eins og er að þarna (i Ban- kok) voru dömur sem gáfu stúlk- unum á Bali ekkert eftir"(221). Enginn hneykslast á þvi þótt farmenn hugsi stift til kvenna þegar i land kemur — hins vegar er full ástæða til að andmæla svona leiðindaíormúlum. Sleggjudómar. Og enn eina islenzka synd ber þessi bók i rikum mæli. Sögumað- ur kemur við i mörgum höfnum, og ætlast enginn til þess að hann reiði fram skilgreiningar á ástandi i hverju landi fremur en túristarnir hraðfleygu. En land- anum gengur bölvanlega að venja sig af hraðri sleggjudómasmið um borgir sem hann sækir heim. Mælikvarðinn er alltaf mjög svip- aður: a) Hverl er verð á brennivini —- og kvenfólki? b) Er hægt að gera góð kaup við l'ólk sem landar ráða við, eða láta þeir sömu landar i minni pokann i'yrir ósvifnum sölumönnum? („Arabaskril” eða „svikulum Gyðingum”). c) „Þetta þýddi ekki að bjóða mönnum upp á heima”. Það má auðvitað segja sem svo, að þessi mælikvarði sé „eðli- legur” en hann er jafnömurlegur fyrir þvi. Það liggur við að maður fyllist þórðargleði ylir þvi, þegar einhver af þeim „lúsuga skril” hefur platað sjálfumglaðan Is- lending. Stórt og smátt Eins og fyrr segir er hér ekki boðið upp á umsögn um tvær bæk- ur — sem sjálfsagt eru, þrátt fyrir allt, skemmtilegri en hin hátið- legri sjómannaskrif, að ekki sé talað um sjóslysadýrkunina. Þær eru blátt áfram teknar sem dæmi um algeng islenzk „lifsreynslu- skrif”. 1 þau er týnt eitt og annað eftir hraðfleygum duttlungum minnisins. Stórt og smátt hverfur i einn graut. Það sem forvitnilegt væri er kannski afgreitt með einu orði eða aðeins dylgjað um („ég nefni engin nöfn”), en siöurnar fylltar með hversdagslegustu at- vikum i hversdagslegasta bún- ingi. Tilefni til bókagerðar eru of- notuð gifurlega. Það er verðfall á lifsreynslunni, ekki siður en á gjaldmiðli okkar elskulegum. Meira að segja fróðleiksviðleitnin er dottin upp fyrir. Kjarni máls- ins er einhvers staðar utandyra. I Einars sögu rika mátti lesa margt skemmtilegt, enda hafði sjálfur Þórbergur um fjallað. En þar var á 800 siðum ekki hægt að fá botn i það, hvernig menn verða ríkir á tslandi. Og i sjómannabók- unum tekst örsjaldan að stækka kynni eða reynslu einstaklings- ins, sögumanns, hefja hana til viðari sýnar yfir þann veiðiskap sem við höfum stundað af kappi um aldir. Samt er það svo, að svona bókagerð er mun viðfelldnari en til dæmis vanburða stælingar á alþjóðlegum reyfaramynstrum. Um þessar bækur má segja svip- að og t.d. sparðatining úr héruð- um — þetta er hluti af þvi sem tengir ibúa landsins saman, fyllir upp i eyður kunningsskapar hvers og eins við annað fólk. Þær eru partur af islenzkri sérvizku. Fyrir það má þeim fyrirgefa sumt. En ekki mikið. Þvi alla hluti má gera misvel. Arni Bergmann.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.