Þjóðviljinn - 15.12.1972, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. desember 1972
ída Ingólfsdótdr,
Steinahlíð, 60 ára
>að var fyrir röskum 12 árum,
að ég lagði leið mina i fyrsta sinn
heim að litla húsinu i Steinahlið til
þess að hafa tal af forstöðukonu
dagheimilisins þar, sem mér
hafði veriö sagt að héti Ida
Ingólfsdóttir, og meira vissi ég
ekki um hana þá. Þessi fyrsti
fundur okkar er ein af þeim
stundum, sem ég gleymi ekki.
Ég gleymi ekki þeim sérstaka
blæ hlýju og vinsemdar, sem
stafaði frá konunni og staðnum
öllum. Við ræddum saman i
þröngum gangi, þar sem komið
hafði verið fyrir litlu skrifborði ,
það var skrifstofuaðstaða for-
stöðukonunnar. Siðan leit ég laus-
lega á önnur húsakynni, sá litlar
stofur og enn minna eldhús. 6g er
ekki viss um að mér hafi þá á
stundinni orðið ljóst, að það að
annast þarna jafnstóran barna-
hóp og þá var i Steinahlið var
ekkert minna en kraftaverk. Og
gera það auk þess á þann hátt að
eignast ást og traust hvers barns
og skapa þennan ólýsanlega blæ
staðarins. En þessu kynntist ég
vel eftir að ég fór að verða dag-
legur gestur i Steinahlið og hlusta
á barnamas um ævintýri dagsins
þar. Þau ævintýri voru hvorki fá
né smá, og tda var alltaf umfram
allt góð i þeim frásögnum.
í Steinahlið gat það jafnvel
snúizt upp i einstakt happ að
verða dálitið þreyttur og miður
sin og geta siðan sagt með stolti:
„Veiztu að ég fékk að sofa i
rúminu hennar Idu?” Eg heyrði
lika unga herramenn lýsa þvi hik-
laust yfir að þeir ætluðu að vera i
Steinahlið þangað til þeir yrðu 17
ára og hjálpa Idu að passa litlu
börnin.
En tda er ekki aðeins fóstra,
sem vill börnum vel. Ég varð
fljótt margs visari um viðhorf
hennar til manneskjunnar og
þjóðfélagsins. Skömmu eftir
fyrsta viðtal okkar rak ég augun i
nafn hennar undir áskorun til
landsmanna um að losa sig við
smán hersetunnar, og það leið
ekki á löngu áður en ég var farin
að furða mig á þvi að hafa ekki
þekkt þennan ágæta samherja
lengi.
Ég býst ekki við að Alþýðu-
bandalagsfólk i Eeykjavik sé nú
jafn fáfrótt um Idu og ég var fyrir
12 árum og ætla ekki að fara að
kynna þenna prýðileg liðsmann ,
sem aldrei lætur sitt eftir liggja
þegar tekið er á til framdráttar
góðum málstað. Þessi orð eru
aðeins skrifuð til að nota það
tækifæri, sem afmælisdagar gefa
til þess að flytja afmælisbarninu
árnaðaróskir og þakkir, en ég er
ein úr þeim stóra hópi, sem á Idu
mikla þökk að gjalda.
Adda Bára Sigfúsdóttir.
•
Þar sem þjóðvegur með eril og
asa, hávaða og mengun, liggur
sunnanvert.Þar sem sólstöfuð eða
gráyggld sund og blánuð Esja
sést i norðri. Austan undir lágu
holti, i trjálundi og rósailm, heitir
Steinahlið; þar er ída.
Ida Ingólfsdóttir er ein af þeim
hamingjusömu manneskjum,
sem er alltaf að skapa og alltaf að
berjast. Hvern dag skapar hún
nýjan heim, nýjan raunveruleika
með öllum börnunum sinum.
Heim, sem þau skilja án skýr-
inga, þvi að hann er upplifaður
hverju sinni.
ída og Steinahliö eru i hugum
okkar fiestra óaðskiljanlegar
stærðir, ef önnur er nefnd er hin i
bakþankanum. Þegar úörnin
okkar eru að fara i Steinahlið til
daggæzlu, eru þau að fara til Idu,
og þetta litla fólk er hennar stétt,
og fyrir það berst hún þeirri
stéttabáráttu, sem ekki fer i
manngreiningarálit. Þeirri
stéttabaráttu, sem aldrei lýkur.
Sá sem hefur gefið sál sína
börnum hatar ranglæti. Sá sem
elskar börn og vill ieggja allt i
sölurnar til þess að skapa þeim
betri heim, forða þeim frá striði,
gera þau að betri manneskjum.
ida hefur a siðari árum tekið
vaxandi þátt i almennri stjórn-
mála- og stéttabaráttu sósialista
og gengið þar ötullega fram, sem
hennar er vandi.
Nú er Ida i Steinahlið sextiu
ára, ennþá falleg kona, verður
það sjálfsagt alltaf. Ennþá sama
fórnfúsa, réttláta, baráttuglaða
konan. Megi hún ávallt vera slik,
og við og börnin okkar njóta
hennar lengi enn.
Gestur Þorgrimsson
•
Ida Ingólfsdóttir, forstöðukona
i Steinahlið, er sextug i dag. Hún
fæddist að Innra-Hólmi i Akra-
neshreppi. Foreldrar hennar voru
Ingólfur Jónsson og Hlin Jóns-
dóttir, sem oft var kennd við Her-
disarvik.
Ég veit, að það eru margir, sem
hugsa til hennar Idu i Steinahlið i
dag. Og ekki væri ég hissa þótt
hún þyrfti að skreppa i næsta hús
og fá lánaða nokkra blómavasa,
þegar liður á daginn.
Ida hefur átt þvi láni að fagna
að lenda á réttri hillu i lifinu.
Henni liður vel með börnum, og
ég veit, að þvi trúir enginn nema
sá sem séð hefur hvaö börn eru
hrifin af henni. Það er oft eins og
allir hverfi, og eftir sitji bara hún
og þau ein.
ída Ingólfsdóttir hefur um ára
bii sett svip sinn á hreyfingu
vinstri manna i landinu. Hún var
lengi i forustu hernámsandstæð-
inga og hefur sinnt ýmsum
störfum i Alþýðubandalaginu á
siðustu árum.
Svo að ég komi mér að efninu:
Mig langar til að þakka henni
fyrir þau sextiu ár, sem hún hefur
prýtt þessa jörð. Mig grunar
nefnilega, að fólk afTiennar tagi
eigi drjúgan þátt i þvi að halda
tórunni i mannkyninu. Fólk, sem
ræktar garðinn sinn og alltaf á
nóg að gefa öðrum.
Ilallveig Thorlacius.
Dögg í spori
Ot er koinin hjá Leiftri bókin
I)ögg i spori eftir Steinunni Þ.
Steinunn Þ. Guömundsdóttir.
Guðmundsdóttur, en þetta er
fvrsta skáldsaga höfundar. Bókin
er tæpar 200 siður.
Sögusviðið er fyrst á bænum
Hlið i Þórsárdal. Dóttir hjónanna
á bænum, Ástrún, verður þunguð,
en barnsfaðir hennar gengur að
eiga aðra stúlku. Ástrún giftist
siðar ekkjumanninum Gesti, sem
gengur syni hennar , Grimi , i
föður stað. Margt fólk kemur til
sögunnar, en aðalsöguhetjan er
Grimur Gestsson, sem heldur til
borgarinnar og kynnist þar Hug-
disi. Leið hans liggur aftur heim i
sveitina, þar sem hann biður eftir
unnustu sinni.
JÓNSKAGAN
}ÓN SKAQAN
AXLASkipa
AUJNQLÍNU
MÍNNÍNQAROQ MyN'OÍR
AXLASKIPTI
A
TUNGLINU
Ævi manna er samslunginn vefur atvika, orsaka og afleiðinga. Ráðgáta lífsins
verður því oftast torskilin og yfir henni hvílir hula óræðis og óskiljanleika.
Oft verður manni ljóst hvernig lítil atvik verða aflgjafi
stórra atburða í lífi einstaklinga og stórra hópa manna.
Við lestur þessarar bókar séra Jóns Skagans verður manni þetta ljósara
en áður. Frásögnin er öll lifandi og skemmtileg í einfaldleik
hins frásagnarglaða sögumanns.
Þessi bók er skemmtileg myndasýning úr hinu daglega lífi.
ÞJÓÐSAGA
BYGGGARÐI SELTJÁRNARNESI - SÍMAR 13510, 26155 OG 17059
hef opnaö nýja málningavöruverzlun
að Grensásvegi 50—sími 84950.
ÞORSTEINN GÍSLASON, málarameistari.