Þjóðviljinn - 15.12.1972, Síða 7

Þjóðviljinn - 15.12.1972, Síða 7
Föstudagur 15. desember 1972 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 7 Frá Laugaveginum sést ekkert hvað aðhaf/.t er handan við bárujárnið, en... ... ef skyggnzt er innfyrir girðinguna sést hvar gröftur er hafinn fyrir grunni hússins. (Ljósm. A.K.) Þriggja hæða þjónustuhýsi að Laugav. 7 Skrifstofuvélar h/f áforma nú byggingu 3ja hæða húss við Laugaveg 7 Rvik, en þar niður undan hefur til langs tima verið eitt stærsta bilastæði miðbæjar- ins. Þessi bygging mun þó ekki minnka bilastæði þetta verulega,þvi kjalh ari hússins verðu inn- dreginn og þar undir verða bilastæði. Ottó Michelsen, stjórnarformaður Skrif- stofuvéla h/f, sagði blaðinu að Skrifstofuvél- ar hefðu haft makaskipti við Landsbankann á lóð- um, en Landsbankinn hefði i stað fengið lóðina að Laugavegi 75. Hús- næði það sem ekrifstofu- vélar eru nú f er i eigu ESSO, en fyrirtækið hefur til þessa tima flutt 6 sinnum á 25 ára starfs- ferli. Húsið verður 3 hæðir og er fyrirhugað að leigja Landsbank- anum megnið af neðstu hæðinni, auk verulegs þúsnæðis i kjallar- anum, og er aformað að Lands- bankinn flytji Vegamótaútibú sitt að Laugavegi 7. Ilver hæð verður ca. 286 fer- metrar.og fullbyggt er áætlað að húsið muni kosta um 21 miljón króna. Blaðið spurði eftir þvi hvernig slik bygging væri fjármögnuð, og sagði Ottó, að hluti fjárins væri fenginn frá hluthöfum sem fjár- mögnuðu bygginguna, en að sjálf- sögðu ætti fyrirtækið nokkurt fé eftir 25 ára starf. Það sem á vant- aði bjóst Ottó við að fengist úr al- mennum by gginga r s jóðu m landsmanna. —úþ. Ólíkur námsáhugi skólakrakka í þróunarlöndum og velferðarríkjum STOKKHÓLMI — Sænskir skólakrakkar hafa minni áhuga á skólanum en nemendur i öðrum löndum. Þetta kemur fram i bráðabirgðaniðurstöðum i alþjóölegri könnun sem tók til nemenda á ýmsum aldursskeiðum i22 löndum, að þvi er Sænska dagblaðið skýrir frá. 30 þúsund nemenduf í Svíþjóð tóku þátt i könnuninni. Neikvæðastir allra voru sænskir tiu ára krakkar, siðan hollenzkir, þá vesturþýzkir, flæmskumælandi belgiskir og finnskir. Mestur námsáhugi meðal tiu ára nemenda reyndist vera i þróunarlöndunum. Þessi alþjóðlega rannsókn náði til tiu ára krakka, fjórtán ára og efstu bekkinga i menntaskólum og iðnskólum. 1 Sviþjóð var lika kannað viðhorf nemenda i siðasta bekk skyldunámsins. Opinberar niðurstöður könnunarinnar verða birtar næsta vor. Skáld ársins—Bók ársins HELGAFELL Unuhúsi Veghúsastíg 7 Sími 1-68-37 Guðsgjafaþula Skemmtilegasta bók skemmtilegasta íslendingsins. Guðsgjafaþula bók ársins eftir skáld ársins, Halldór Laxness. 37 Laxnessverk handa yður að velja úr til jólagjafa. Ritsöfn Steins Steinarr, Stefáns frá Hvítadal, Hannesar Hafstein, Jónasar Hall- grimssonar í útg. Tómasar, Jóns frá Kaldaðarnesi i útg. Kristjáns Albertssonar, Arnar Arnarssonar. Ritsafn Jóns Sigurðs- sonar frá Kaldaðar nesi. Ljóð sögur, greinar, þýðingar í útgáfu Kristjáns Albertssonar. Ritsafn Daviðs Stefánssonar frá Fagraskógi, öll verk skáldsins í sjö bindum. ,, Kópamaros" nútíma þjóð- félagsskáldsaga um unglingavandamál eftirÞráin Bertelsson. ,, Langferðir", Ijóðabók eftir Heiðrek Guðmundsson frá Sandi, rammíslenzk og listilega fögur Ijóð. ,,Að Laufferjum", fágætlega falleg Ijóð Ólafs Jóhanns Sigurðs- sonar. Meistaraverk Sigurðar Nordals um Stephan G., Einar Benediktsson og Hallgrím Pétursson. „Skeggræður gegnum tiðina." Samtalsbók Halldórs Laxness og Matthiasar Johannessen Ljóðasafn Tómasar Guðmundssonar, ný útgáfa allra Ijóða skáldsins í útgáfu Kristjáns Karlssonar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.