Þjóðviljinn - 15.12.1972, Page 16
16. StÐA — ÞJÓÐWLJINN Föstudagur 15. desember 1972
SKII IN EFHR . . .
Teiknimyndasaga frá Kína
71. Pao fursti virðir beiðni hans ekki svars og gefur skipun um að hann
skuli sviptur tignarklæðunum og varpað i fangelsi. „Ég væri jafn
dómharður þótt lögbrjóturinn væri einn prinsanna, hvað þá tengda-
sonur keisarans”, segir hann.
72. Prinsessan heyrir um handtöku Shih-mei og flýtir sér til Pao fursta
og krefst að fá að heyra alla málavexti. Þegar hún heyrir um afbrot
Shih-mei biður hún um að fá að hitta sækjandann.
PIERPONT-URIN
handa þeim sem
gera kröfur um
endingu. nákvæmni
ogfallegt
útlit.
Kven- og
karl-
manns
úr af
mörgum
gerðum
og verð-
um.
HERMANN JÓNSSON, úrsmiður,
Lækjargötu 2 - Sími 19056.
Xmiikinn er liakhjarl
BUNAÐARBANKINN
.1
GLLiiGÍAxN
Jörn Birkeholm:
HJÁLP
Það er fíll
undir rúminu mínu
Hér segir frá þvi
sem gerðist,
kvöld eitt,
er seint var orðið, hjá sómamannin-
um herra Greppi.
Það var kvöld.
Herra Greppur lá i hægindastóln-
um sínum og las í blaði. Hann lá á
þann undarlega hátt, sem hann var
vanur með fætur teygða beint upp i
loftið. Við og við las hann upphátt:
,,Svartur, smáskrítinn köttur hef-
ur tapazt. Þegar hann hljóp burt
hafði hann rauða slaufu um hálsinn.
Sá, sem finnur köttinn, má hafa
hann að láni í f jórtán daga, meðan
við erum i sumarleyfi."
Þessa mynd hefur hann úlfur Helgi,
sem er 7 ára, teiknað fyrir okkur af
jólasveininum. Við þökkum honum
kærlega fyrir.
,,Þetta var nú sorglegt," taut-
aði herra Greppur. ,,Bara hann finn
ist nú aftur."
Herra Greppi þótti þetta afskap-
lega leiðinlegt, en hann hélt þó
áfram að lesa blaðið, þar til skyndh
lega var barið að dyrum. Hann reisti
sig upp á endann, ýtti búrinu með
fimmfætta hárklóranum innundir
háa rúmið og opnaði dyrnar.
Á tröppunum fyrir utan stóð Diðr-
ik bakarameistari með poka í hend-
inni.
,,Gott kvöld, Greppur," sagði
hann og gægðist tortryggnislega inní
stofuna. ,,Hvernig hefurðu það?"
,,Ég hef það aldeilis ágætt," sagði
herra Greppur. ,,Vilt þú ekki koma
inn fyrir."
„Jú takk," sagði herra Diðrik.
,,Ég tók kökupoka með mér, því
mér datt í hug, að þig gæti langað í
köku, áður en þú færir í háttinn.
Gjörðu svo vel."
Sjaldan færri útköll
Aö því er Rúnar Bjarna-
son slökkvi liðsst jóri i
Reykjavik skýröi frá á
blaðamannafundi hafa út-
köll slökkvi liðsins í
Reykjavík frá 1. jan. sl.
verið 337 á 342 dögum og
hafa útköll sjaldan verið
færri, en voru það þó árið á
undan eða 316.
En starf slökkviliðsmanna er
ekki bara bundið við slökkvistörf,
þeir gegna einnig sjúkra-
fluttningum og það sem af er
árinu hafa sjúkraflutningar
verið 9501, þar af 990 slysa-
flutningar. 1 fyrra voru
flutningarnir 9004, þar af slysa-
flutningar 871.
Svæði slökkviliðs Reykjavikur
nær yfir Seltjarnarnes, Kópavog
og Reykjavik, eða um 100 þúsund
manna byggð. — Slökkviliðsmenn
i Reykjavik eru 60 á fjórskiptum
vöktum.
4 eldri Ferðafélags-
árbækur komnarút
Fiórar eldri árbækur Feröafé-
lags islands, sem um skeið liafa
verið svo til ófáanlegar, eru ný-
komnar út ljósritaðar, en þetta
eru árbækurnar 1942 og 1943, 1953
og 1954.
Árbókin 1942 fjallar um
Kerlingarfjöll og er til orðin fyrir
samvinnu nokkurra félaga i
Ferðafélaginu, en Jón Eyþórsson
hafði aðalritstjórn með höndum. 1
Árbók 1943 eru ferðaþættir frá
ýmsum stöðum og var hún unnin i
samvinnu við Bandalag isl.
farfugla.
Árbókin 1953 er um Mýrasýslu
og eftir Þorstein Þorsteinsson
sýslumann, en Haraldur Sigurðs-
son bókavörður skrifaði Arbók
1954 um Borgarf jarðar-
sýslu norðan Skarðsheiðar, en
sýslunni sunnan heiðar er lýst i
Árbók 1950.
Ljósprentun bókanna hafa
Offsetmyndir hf. annazt.
Næsta árbók Ferðafélagsins,
1973, verður um Svarfaðardal og
er eftir Hjört Eldjárn á Tjörn, en
auk hans lýsa Eiður Guðmunds-
son frá Þúfnavöllum og Kolbeinn
Kristinsson frá Skriðulandi
fjallaleiðum milli Eyjafjarðar og
Skagafjarðar. Með nafn Eiðs var
nýlega rangt farið hér i blaðinu og
er hann beðinn velvirðingar á
þeim friistökum.