Þjóðviljinn - 15.12.1972, Page 20

Þjóðviljinn - 15.12.1972, Page 20
UÚOVIUINN Föstudagur 15. desember 1972 Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar' eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Apótek Austurbæjar og Laugavegsapótek annast helgar-, kvöld- og næturþjón- ustu vikuna 9. desember. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstööinni. Simi 21230. ísland viðurkennir DDR í desember Þann 22. desember — daginn eftir undirritun samninga Þýzka alþýðu- lýðveldisins og Sambands- lýðveldisins Þýzkalands — verður formlega gengið frá viðurkenningu Þýzka Tveir báts- brunar í Keflavík 1 fyrradag kviknaði i tveim bát- um i Keflavik. Var annar i slipp en hinn var bundinn við bryggju. Það var Sigurbjörg KE 14 sem i kviknaði i slippnum. Eldurinn kom upp klukkan 7 um kvöldið. Var þá aðeins liðinn hálftimi frá þvi smiðir yfirgáfu bátinn. Byrjaði eldurinn i káetunni. Ekki leið á löngu áður en hann var kominn i brúna. Þaðan barst eldurinn i kortaklefann eða asdikið, eins og sjómenn nefna hann. Skrokkur skipsins og véla- rúm sluppu að mestu eða alveg við skemmdir af eldinum. Hins vegar hitnuðu tækin i asdikinu og þola þau það illa án þess að skemmast. Sigurbjörg var i slipp vegna vélayfirhalningar. Atti aðeins eftir aö setja vélina niður. Ekki er vitað hvernig kviknaði i bátnum. Telja visir menn að 32 volta straumur sem á bátnum er hafi kveit i. Hinn bátsbruninn varð i Kefla- vikurhöfn, en þar brann litillega báturinn Sjöstjarnan, sem er i eigu samnefnds fyrirtækis,— Sjöstjarnan skemmdist litið. a Iþýöulýöveldisins — af íslands hálfu. Þetta kom fram í viötali er frétta- maöur Þjóðviljans átti í gær viö Lindner, verzlunar- fulltrúa DDR á Islandi p>á 7. desember hefur dvalizt hér á landi verzlunarsendinefnd frá DDR . Nefndin fer héðan i dag, föstudag. Hún átti viðræður viö islenzka aðila,en viðræðurnar eru framhald viðræðna sem fram fóru i Berlin i september undir forustu Björgvins Guðmunds- sonar af hálfu viðskiptaráðu- neytisins. Viðræðum um lang- timaverzlunarsamning milli rikj- anna er nú lokið, o| verður samningurinn undirritaður i janúarmánuði. Verzlunarfulltrúinn skýrði og frá þvi er áður kemur fram um formlega viðurkenningu af tslands hálfu á DDR. Þá staðfesti hann, að keypt hefur verið hús við Ægissiðu þar sem veröur sendi- ráð Þýzka alþýðulýöveldisins á íslandi. Stórsigur vinstri flokkanna í Japan Kommúnistaflokkurinn er orðinn þriðji stærsti flokkur landsins Sigur Tanaka forsætisráðherra i Japan og flokks hans i nýaf- stiiðnum kosningum kom ekki á óvart, en meginfyrirsagnir á fréttum hlaða þar i landi af kosningunum eru um hina gcysi- legu aukningu á fylgi kommúnistaflokksins, scm nú er orðinn þriðji stærsti flokkur landsins. Fyrir kosningar var kommúnistaflokkur Japans fimmti stærsti flokkur landsins, með 14 þingsæti, en fékk nú 38 þingsæti. Frjálslyndi flokkurinn, flokkur Tanaka, fékk 282 sæti , sósia1 i s tafIokkurinn 118, Komeito-flokkurinn (tengdur Búddatrú) fékk 29, lýðræðis- sósialistaflokkurinn 19. t fyrstu ræðu sinni eftir kosningarnar lýsti Tanaka yfir sárum vonbrigðum með úrslitin, einkum virtist hann óttast stór aukið fýlgi vinstri flokkanna. Sósialistaflokkurinn, sem beið mikinn ósigur i kosningunum 1969, vann núna 31 þingsæti. Þessi framgangur vinstri flokkanna mun gera Tanaka ókleift að sýna nokkra undanlátssemi gagnvart Bandarikjunum, segir banda- riska blaðið llerald Tribune. Kosningasigur kommúnista mun hafa það i för með sér, að þeir geta miklu meir en áður látið að sér kveða i þinginu og á ýms- um vettvangi stjórnmála öðrum. Þeir fá greiðari aðgang að sjónvarpsumræðum, og þeir fengu miklu meira en lágmarks- styrk til að fá fulltrúa i hinni mikilvægu stjórnunarnefnd þjóð- þingsins, sem m.a. semur fjár- lagafrumvarpið. r Ný utanrikisstefna Astralíu Ekki taglhnýtingar USA SYDNEY — Hin nýja rikisstjórn Astraliu hefur tilkynnt að siðustu áströlsku hermennirnir og til rána „Aöalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins i Suður- laudskjördæmi haidinn i Hvera- gerði 8. des. 1972 skorar á rikis- stjórnina að hvika livergi i land- hclgismálinu og veita brezkum og vestur-þýzkum sjóræningju m Okkur vantar fólk til að bera út blaðið Blaðburðarfólk óskast i eftirtalin hverfi: Hjaröarhaga Skjól Seltjarnarnes 1 og 2 Míöbæ Sogamýri Nökkvavog þJÚÐVIlllNN hernaðarráðgjafarnir verði kvaddir heim frá Suður-Vietnam fyrir áramót. Samþykkt Alþýðubandalagsins á Suðuriandi um landhelgismál: engan frið til rána i islenzkri fiskveiðilögsögu. Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi sinum við rikisstjórnina i þessu lifshags- munamáli þjóðarinnar og heinir þeirri áskorun til allra lands- manna að sýna i hvivetna, að þeir standi allir sem einn að baki rikisstjórninni i þessu örlagarika máli". Astralia var eitt af þeim rikjum sem Bandarikjastjórn fékk til þess að senda lið til Suður- Vietnam og taka þátt i bardögum gegn herjum Þjóðfrelsis- hreyfingarinnar. Hin nýja rikisstjórn Verka- mannaflokksins i Ástraliu undir forsæti Gough Whitlam hefur gjörbreytt stefnu landsins i utan- rikismálum þá viku sem hún hefur verið viö völd. Stjórnin hefur bannað viðskipti við Suður-Afriku, gert áróðurs- skrifstofu Rhodesiu burtræka, slitið stjórnmálasambandi við Formósu, viðurkennt Peking stjórnina og afnumið herskyldu. Þá þykir það tiðindum sæta að fulltrúar Astralfu á þingi Sameinuðu þjóðanna eru hættir að vera taglhnýtingar Bandarikj- anna og hafa tekið upp sjálfstæða utanrikisstefnu, m.a. greitt atkvæði með þróunarlöndunum. 25 vélstjórar í hr aðfr y stihúsum semja Kjaradeila stendur nú yfir milli 25 vélstjóra i Reykjavik við Vinnuveitendasamband tslands og Vinnumálasamband sam- vinnufélaganna. Hefur samningum verið skotið til sáttasemjara. Var haldinn samningafundur i fyrradag er stóð til kl.'2 um nóttina. Brandt endur- kjörinn kanzlari BONN 14/12 Willy Brandt var í dag endurkjörinn kanzlari Vestur-Þýzka- lands næsta kjörtímabil. Hlaut Brandt 269 af 271 atkvæðum þingmanna stjórnarflokkanna, en 223 stjórnarandstæðingar greiddu atkvæði gegn kosningu hans. V eitum engan frið Bazel Vill herja formaður samt á Israel Bonn — Þrátt fyrir mikinn ósigur Kristilega demókrata- flokksins i þingkosningunum i Vestur-Þýzkalandi, hefur þingflokkurinn endurkosið Rainer Barzel sem flokksleið- toga á þinginu næsta árið. Aðeins 204 af 234 þingmönn- um flokksins greiddu atkvæði. Fékk Barzel 165 atkvæði 25 greiddu atkvæði gegn honum en aðrir seðlar voru ýmist auðir eða ógildir Þjóðaratkvæði á Norður-Irlandi LÖNDON 14/12 Brezki irlandsmálaráðherrann Whitlaw skýrðifráþvi i dag að hinn 8. marz næstkomandi yrði efnt til þjóðaratkvæða- greiðslu á Norður-írlandi. Yrðu kjósendur látnir scgja vilja sinn um það hvort Norður-irland skyldi áfram vcrða hluti á Bretlandi eða sameinast irlandi. Vopn og skotfæri sprengd í loft upp SAIGON 14/12 Byggingar i Saigon hafa nötrað siðastliðið dægur vegna gifurlegra sprenginga i stærstu vopna- birgðastöð hers Suður- Vietnams i grennd við borgina, sem stendur i björtu báli. Skæruliðar Þjóðfrelsis- lireyfingar Suður-Vietnams kontu sprcngingunum af staö, og siðan hafa verið látlausar keðjusprengingar, og miklir eldar brutust út þegar i stað. Skákmótið í Texas SAN ANTONIO Stórmeistararnir Anatoli Karpov og Tigran Petrosjan frá Sovétrikjunum og Lajos Portisch frá Ungverjalandi urðu efstir og jafnir á alþjóð- legu skákmóti i San Antonio i Texas, en þvi lauk i fyrradag. Fengu þeir allir 10 1/2 vinning og deila með sér fyrstu verðlaununum, sem eru 7000 dalir, pða rúmar 600 þús. isl. krónur. Flestir sterkustu skákmenn heims tóku þátt i þessu móti. Portisch tefldi við Danann Bent Larsen i siðustu umferðinni, og sigraði Portisch eftir 34 leiki. Heimsmeistarinn Bobby Fischer kom til að horfa á siðustu umferðina. Hann brást ekki vana sinum og kom stundarfjórðungi of seint, og tafðist keppnin að sama skapi, þar sem ekki þótti tilhlýðilegt að byrja áður en hann kæmi. Fischer hafði ýmislegt á horn- um sér. Hann neitaði öllum myndatökum og skammaðist mjög út i sovézku skák- mennina fyrir að tefla upp á jafntefli. Meðal keppenda voru Karpov og Mecking frá Brasiliu, Keres fra Sovétrikjunum, Hort frá Tékkóslóvakiu, Byrne frá USA. og Kaplan frá Puerto Rico. BEIRUT — ldi Amin, hinn herskái forseti Uganda, hefur nú boðizt til að gerast Araba- leiðtogi og stjórna „alþjóðleg- um frelsisher" i styrjöld gegn israel. Til skamms tima var Amin einn helzti vinur tsraels meðal Afrikuþjóða, en snerist gegn þessum fyrrverandi vinum sinum skyndilega og rak alla fsraelska hernaðarráðgjafa úr landi, en þeir voru fjölmargir i Uganda. Amin var sjálfur við herþjálfun i tsrael i 5 ár og kveðst þar öllum hnútum kunnugur. Væri nú ekkert fyrir Araba að gera annað en fylgja sér og herja á Israel. Þessa kokhreysti sýndi Amin i ræðu sem hann hélt til að fagna Feisal Arabiukonungi, sem nú er i opinberri heim- sókn i Uganda. Geimfararnir frá tunglinu II O U S T O N 14/12 Bandarisku gcimfararnir leggja af stað frá tunglinu á fi mmtudagskvöld. Er þeir hafa náð til geimfarsins á tunglferjunni, cr Appoilo 17. ætlað að vcra tvo sólarhringa á braut umhverfis tunglið. Geimfararnir Gernan og Schmitt hafa safnað miklu inagni af tunglgrjóti, sem talið cr geti veitt mikla hjálp til að ráða gátuna um uppruna og aldur fylgihnattar jarðar. Stjórn Gaullista á fallanda fæti PARÍS —Skoðanakönnun vegna væntanlegra þingkosninga i Frakklandi leiddi i ljós aö 45 prósent franskra kjósenda ætla að kjósa kosningabandalag sósialista og kommúnista, en að- eins 38% styðja Gaullista-flokk- inn sem uú fer með völd i landinu. Kosningarnar eiga að verða i marzmánuði n.k. 1 þessari sið- ustu skoðanakönnun um siðustu helgi kom i ljós að fylgi vinstri flokkanna hafði aukizt um 2% sið- asta mánuðinn, en fylgi Gaullista hrakað um 4%. Miðflokkarnir, sem nú eru i stjórnarandstöðu, reyndust hafa 15% fylgi, og hafði það aukizt um 2%. Ef úrslit þingkosninganna verða i samræmi viö þetta, geta Gaullistar ekki myndað stjórn á eigin spýtur. Georges Pompidou nær þá ekki kosningu i fyrstu lotu sem forseti, en samkvæmt frönsku stjórnarskránni er þá gengið til kosninga aftur viku sið- ar, og er þá talið liklegt, að Gaullistar biðli til miðflokkanna um stuðning gegn vinstri flokkun- um. Samningar ekki ennþá gerðir PARiS 14/12 — Viðræðum full- trúa Norður-Vietnamstjórn- ar, Le Duc Tho, og Kissingers, ráögjafa Nixons, er lokiö i Paris i bili a.m.k. Kissinger er kominn til Bandarikjanna til að gcfa Nixon skýrslu um viðræðurnar. Stjórn Thieu i Saigon hefur farið fram á vopnahlé um jólin, en herlið hennar á viðast hvar i vök að verjast. Þjóðfrelsishreyf- ingin vill hins vegar ekki fallast á vopnahlé, og stjórn Norður-Viet- nams leggur áherzlu á að friðar samningar verði undirritaðir nú þegar, þannig að friður komist á strax og einskis vopnahlés verði þörf.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.