Þjóðviljinn - 03.01.1973, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 03.01.1973, Qupperneq 7
Miðvikudagur 3. janúar 1973Í ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 7 Sænski kvikmynda- stjórinn frægi, Ingmar Bergman, hefur sem kunnugt er ekki látið sér nægja kvikmyndirnar einar á síðari árum, en starfað talsvert sem leik- stjóri við Dramaten í Stokkhólmi. Nú er hann farinn að vinna fyrir sjón- varp líka og af því tilefni hafði bandaríska vikuritið ,,Newsweek" við hann viðtal, sem hér birtist í lauslegri þýðingu. Segir blaðamaðurinn M. Kasin- dorf, um Bergman, sem nú er 54 ára, að hann sé ihugandi, hlédrægur og ekki lengur jafn upptek- inn af sambandi manns- insvið sjálfan sig, aðra og guð og áður var. Blaðamaðurinn vikur eðlilega fyrst að sjónvarpsleikritinu, „Myndum úr hjónabandi,” sem Bergman vinnur nú að og á að koma i sænska sjónvarpinu i april nk. Hvers vegna hefur hann ákveðið að skrifa fyrir sjónvarp og stjórna þar jafn- hliða kvikmyndagerðinni? — Mér fannst mjög gaman að skrifa sjónvarpshandritið, þvi að þegar skrifað er kvikmynda- handrit verður einlægt að skera niður samtölin, aðstæðurnar sjálfar eru alltaf mikilvægast- ar. En þegar skrifað er leikrit er Ingmar Bergman viö upptökur á siöustu kvikmynd sinni, „Hvisl og hróp” sl. vor meö leikkonunum Ingrid Thulin (t.v.) og Liv Ullman. Enn ein mynd um konur, en þó mest um manneskjur. „Hvað varðar okkur um list?” bara hægt að láta fólkið tala. Ég byrjaði á þessu uppkasti bara að gamni minu, en fékk svo meiri og meiri áhuga á þvi. — Ertu að reyna að ná til annars konar áhorfendahóps gegnum sjónvarpið? Ég bý á eyju sjö til átta mánuði ársins. bar bý ég með bændum og sjómönnum og það rann skyndilega upp fyrir mér eftir sex ár, að kvikmyndir segja þessu fólki ekkert. Sjón- varpið er þeim allt, það er gluggi þeirra að umheiminum. Eftir mat á eynni tek ég bátinn og næ i blöðin. Og er ég er bú- in að lesa þau kveiki ég á sjón- varpinu til að horfa á fréttirnar og þar er alltaf eitthvað að sjá. Sinfóníusveitarinnar Vladimir Askenasi er I senn einleikari og stjórnandi á auka- tónleikum Sinfóniuhljómsveitar- innar annað kvöld, 4. janúar, en öll verk cfnisskrárinnar eru eftir Mozart. Á fundi með blaðamönnum I gær var Askenasi mjög iofsam- legur i garö islenzku sinfóniu- hljómsveitarinnar og harmaði að geta ekki verið hér lengur i einu. En hann kvaðst hafa um 100 tón- leika viðs vegar um heim árlega og jafnvel verða að spila enn meir nú, þar sem húsbygging þeirra Þórunnar konu hans hér reynist talsvert kostnaðarsöm. Það er fremur óvenjulegt, að einleikari stjórni jafnframt hljómsveitinni, sem hann leikur með, en þetta finnst Askenasi mjög gaman, sagði hann, að visu Og þegar maður hittir annað fólk i pósthúsinu eða búðinni daginn eftir er það alltaf að tala um eitthvað sem það sá i sjón- varpinu. Mig langaði að ná til þess. — 1 mörgum siðari mynda þinna hefurðu einbeitt þér að konum og þeirra vandamálum. Hvað ertu að reyna að segja karlmönnum um konur og hvað ertu að reyna að segja konum um þær sjálfar? — Ég geri engan greinarmun á körlum og konum. Mér finnst við öll eins. En það sem er slæmt er hve mismunandi menntun karla og kvenna er. Væri körlum ekki kennt að vera karlar og konum ekki kennt að erfittað sumu leyti, en þar á móti gæti maður gert hvaö sem maður vildi, en stundum væri erfitt að samræma skoðanir einleikara og stjórnanda. A efnisskránni annað kvöld eru Haffners-sinfónia Mozarts (nr. 35 i D-dúr) og pianókonsertar hans nr. 23 i A-dúr og nr. 20 i d-moll. Tónleikarnir verða að venju i Há- skólabiói og hefjast kl. 20,30. Þótt varla þurfi að kynna Vladimir Askenasi islenzkum tónlistarunnendum má rifja upp hér, að hann er nú 35 ára, fæddur i Gorki, en stundaði nám við Tón- listarháskólann i Moskvu frá 1944 til 1955, m.a. hjá Lev Oborin. Hann hlaut önnur verðlaun I Chopinkeppninni i Varsjá 1955 og fyrstu verðlaun i tónlistarkeppn- inni i Bruxelles 1956, en hefur sið- an verið á sifelldum hljómleika- ferðum og hvarvetna fengið af- vera konur, en öllum væri okkur kennt að vera manneskjur, væri ástandið betra, þvi að mörg vandamálanna eru afleiðing þessarar heimskulegu upp- fræðslu i siðmenningu okkar. Ég er þvi ekki að reyna að segja körlum frá konum. Ég er að reyna að segja frá reynslu minni af manneskjum. Kannski má segja, að ég hafi dálitið meiri áhuga á konum af þvi að ég er karlmaður. Það er meira uppörvandi að vinna með leik- konum, þvi að þær eru tengdari starfi sinu og ekki á eins tauga- veiklaðan hátt og karlleikarar, sérstaklega i sambandi við kvikmyndagerð. Það er talað um kvenfrelsun nú, en fyrir Askenasí á blaöamannafundinum i gær. burða dóma. Þau Þórunn Jó- hannsdóttir kynntust 1958 er fyrsta Tsjækovskikeppnin var haldin i Moskvu, en siðan kom Þórunn þangað til framhalds- náms og giftust þau 1961 og eiga nú þrjú börn, sem öll heita bæði islenzkum og rússneskum nöfn- um. hundrað árum skrifaði Ibsen leikritið Brúðuheimilið og höf- uðvandamál þess leikrits eru enn vandamál okkar tima. Það gerir mig svartsýnan, hve hægt allt gengur og hve langt er frá þvi, að menntunin hafi orðið til að við lærðum eitthvað um okk- ur sjálf. — Um hvað býstu við að fjalla i næstu myndum þinum? — Einmitt núna er ég á þvi skeiði, að mig langar mest til að skemmta. Ef þú litur út, þá er dimmt og drungalegt og það er erfitt fyrir fólk að lifa. Það ætti að fá góða skemmtun i viðtæk- ustu merkingu, þess orðs, eitt- hvað, sem tengir fólk nánar hvertöðru. Það væri dásamlegt að fá fólk til að vera ekki svona sakbitið og óhamingjusamt. — Það er sagtr, að verk þin standi föstum rótum i Sviþjóö. Hvað er það i þessu landi sem hefur mest áhrif á þau? Ég veit það ekki, en þegar ég kem til annarra landa finn ég mjög til óraunveruleika. Ég held að það standi i einhverju sambandi við birtuna. Birtan á Norðurlöndum og i noröurhluta heims er mjög sérstök. Ljós og birta er eitthvað það fyrsta sem ungbörn upplifa. Ljósið kemur, ljósið dvinar. Hér fyrir norðan eru næturnar stundum bjartar og stundum eru þær mjög lang- ar og erfiðar. Ég er mjög háður þessari hrynjandi birtunnar og lifsreynsla min tengd henni. Og sé ég tengdur henni, þá eru myndirnar minar það lika, þvi að þær eru tilraun til að tjá lifs- reynslu mina. Svo ef mig langar að kvikmynda martröð, þá á hún ekkert skylt við þrumur og dimman kastala að nóttu til. Martröð i kvikmynd hjá mér er bjart sólskin. Vegna þess að ég þoli ekki bjart, sifellt sólskin dag eftir dag. — Sumir gagnrýnenda héldu þvi fram, að i myndinni „Skömmin” værir þú að reyna að segja, að meiri hluti mann- kynsins léti sig list engu skipta. Er það satt? — Já. Hvað skyldi fólk varða um list? Ég spyr sjálfan mig, hversvegna gerirðu 35 kvik- myndir, hversvegna heldurðu þessu starfi áfram i yfir 30 ár, hversvegna vaknarðu á morgn- ana og langar til að skapa nýja hluti? Svariö er af þvi að mann langar að komast i samband við annað fólk og segja þvi ýmislegt um það sjálft og sjálfan sig. Fyrir hundrað árum mátti breyta heiminum með lista- verki. Tolstoy breytti heimin- um. Strindberg breytti heimin- um. Margir aðrir listamenn — Rousseau, Voltaire, Schiller — gerðu það. En nú hefur list hlé- drægara hlutverk. Og ég er ekki að kvarta yfir þvi. Það er stað- reynd. Og hvað með það? Við höldum áfram. Kannski tekst okkur á hógværan hátt að breyta einhverju félagslega, mjög hægt. En ekki mjög miklu. Það er hvild að vita og skilja þetta. Manni ber aðeins skylda til að segja sannleikann um það sem maður sér. Það er léttir. — Hver heldurðu að verði framtið alvarlegra kvikmynda, þeirra, sem reyna að segja okk- ur eitthvað um okkur sjálf? — Fólk verður æ vanara list. I fyrstu veldur hún þvi öryggis- leysi og leiða vegna þess að þvi finnst það verða að skilja eitt- hvað. En smám saman gerir fólk sér ljóst, að listin á ekkert skylt við skilning, heldur tilfinn- ingar. Fólk mun smám saman skilja, að alvarlegar kvikmynd- ir höfða aðeins til tilfinning- anna, en ekki gáfulegra skil- greininga og útskýringa. Mér stendur nákvæmlega á sama, hve margt fólk kemur að sjá myndirnar minar. Ég geri kvikmyndir og sviðset leikrit til að þetta sé notað, rétt eins og borð eða stóll. Reynist ein eða tvær myndanna vera meira en borð eða stóll, kemur mér það ekki við. Askenasí bæði stjórn ar og leikur einleik á sannkölluðum Mozart-tónleikum

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.