Þjóðviljinn - 30.05.1973, Síða 11
MiOvikudagur 30. mai 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Alvarlegar gloppur
EF
GRANNT
ER
SKOÐAÐ
1 sambandi við framkomu og
kærumál Magnúsar V. Péturs-
sonar dómara i garð liðsmanna
1A eftir leik ÍBK og ÍA á dögun-
um hafa komið f ljós svo alvar-
legar gloppur f agakerfi Knatt-
spyrnusambands tslands að
ekki verður viö unað. Það hefur
sumsé komið i ijós, að dómari
getur hagað sér eins og honum
sýnist við ieikmenn, sýnt þeim
hvaða yfirgang og dónaskap
sem er án þess að nokkur aðiii
sé til sem getur komið lögum
yfir hann eins og aganefnd gerir
við leikmenn. Og það er alveg
sama þótt allir nefndarmenn
aganefndar verði vitni aö mis-
tökum dómara á velli, ncfndin
getur ekkert gert annaö en farið
og dæmt eftir skýrslu dómarans
þegar hún kemur, jafnvel þótt
allir aganefndarmenn viti
betur.
— Við erum aöeins af-
greiðslustofnun fyrir dómarana
og getum ekkert annað en farið
eftir skýrslum þeirra-, sagði
llreggviður Jónsson, stjórnar-
maður KSt og formaöur aga-
nefndar, við undirritaöan fyrir
skömmu er mál Magnúsar og
Skagamanna bar á góma. —
Það eina sem viö getum gert er
að milda þá dóma sem við fell-
um, þótt við kannski brjótuni
um leið hin ákveðnu lög aga-
nefndar, sagði Hreggviður.
Þetta sagöi hann vegna þess
að aganefnd braut lög þau sem
hún á og henni ber að dæma
eftir i máli Skagamanna og
Magnúsar. Hún vissi semsé að
Magnús átti sökina á uppþotinu
i Keflavík og hún vissi lika
hvernig framkoma Magnúsar
var og mildaði þvi mál Jóns
Gunnlaugssonar eins og henni
þótti frekast unnt en gat samt
ekki sýknað hann.
Samkvæmt lögum aga-
nefndar átti Jón að fara í 3ja
leikja bann en þar sem aga-
nefnd vissi aö sök allrar vit-
leysunnar var Magnúsar þá
fékk Jón aðeins eins leiks bann.
t 6. gr. um starfsreglur
aganefndar segir að fái leik-
maður tvær áminningar þ.e. tvö
gul spjöld þá fari hann i einsleiks
bann en fái hann rautt spjald
fyrir að móðga dómara fái hann
minnst 2 leiki i bann og i 9. lið 6.
gr. segir að brot framin á einu
leiktimabili hafa itrekunaráhrif
á þvi næsta en ekki lengur. Og
nú skulum við Ilta aðeins betur
á máliö.
Jón Gunnlaugsson hafði á sér
eitt gult spjald siðan i fyrra sem
flyzt yfir á þetta ár. Magnús gaf
honum síðan fyrst gult spjald i
Keflavik scm þýðir að Jón er
komin með 2 gul spjöld og um
leið eins leiks bann. En rétt á
Jón Gunnlaugsson fékk aðeins
eins leiks bann.
eftir gaf Magnús honum svo
rautt spjald og það þýðir 2ja
leikja bann og þvi átti að dæma
Jón i 3ja leikja bann en aga-
nefnd dæmdi hann aðeins i eins
leiks bann. Ilvað af þessu
geymist þá, ef Jón fær gult
spjald einhvern timann siðar i
sumar? Fer hann þá i 4ra cða 5
leikja bann — eða hvað gerir
agancfnd þá? Þvi braut hún
lögin og skildi allt eftir i óvissu
fyrir Jón og aöra i ÍA-liðinu?
Þá er það annar þáttur þessa
máls en það er að Magnús gaf
Þresti Stefánssyni gult spjald
sem þýðir áminning og sú fyrsta
sem þessi prúðasti leikmaður
islenzkrar knattspyrnu fær. En
þegar skýrsla Magnúsar barst
til aganefndar var ekkert á
þe ssa áminningu minnzt.
Magnús vissi upp á sig sökina og
frumhlaupiö og þorði ekki að
láta þessa furöulegu áminningu
fljóta meö, hún er þvi úr
sögunni. I annan stað horfðu
allir vallargestir I Keflavik á
Magnús gefa þjálfara, liðsstjóra
og varamönnum ÍBK
áminningu fyrir köli. Magnús
tók upp gula'spjaldiöog krossaöi
yfir bekkinn sem þýöir
áminning til allra þeirra sem
þar sitja. Þegar svo dómara-
skýrsla Magnúsar berst
aganefnd er þaöaðeins Siguröur
Steindórsson liðsstjóri ÍBK sem
fær áminningu. Enginn hinna
sem Magnús áminnti er þar
nefndur á nafn. Hvers vegna
þorði Magnús ekki að standa við
geröir sinar þegar til skýrslu-
gerðarinnar kom?
Þrátt fyrir að agancfnd horfði
uppá þetta eins og allir aðrir
vallargestir getur hún ekkert
gert i málinu. — Við erum
aðeins afgreiðslustofnun fyrir
dómarana-, scgir formaður
hennar.llér er greinilega meira
Magnús bókar.
en litil brotalöm I kerfinu.
Þessar gloppur sem I Ijós hafa
komið á starfi og reglum aga-
nefndar eru svo stórar að það
hlýtur að verða verkefni næsta
þings KSt að fylla upp i þær og
eins að koma I reglur aga-
nefndar ákvæðum sem ná yfir
alvarleg brot dómara ekki siður
en leikinanna. —S.dór
Rúmenar
Til aö
Sigurvegarar i BC-keppninni. Óttar sigurvegari er f.v. Einar Guðnason er annar f.v.
Óttar sigraöi í
BC golfkeppni
Um síðustu helgi fór fram
á golfvelli Suðurnesja
Bridgestone — Camel
keppnin í golfi en það er
2x18 holu keppni á tveim
dögum. Svo fóru leikar að
óttar Yngvason GR sigraði
á samtals 153 höggum eftir
harða keppni við þá Einar
Gunnarsson GR og
Björgvin Þorsteinsson GA.
Keppnin hófst á laugardag og
mættu 100 keppendur til leiks.
Ótta.r Yngvason fór fyrri hringinn
á 74 höggum sem var bezti
árangur keppninnar en aðal
keppinautar hans, þeir Einar
Guðnason og Björgvin Þor-
steinsson, fóru fyrri hringinn á 75
og 78 höggum þannig að Óttar
hafði all gott forskot, einkum á
Björgvin þegar siðari hringurinn
hófst á sunnudaginn.
Óttar gekk þá ekki eins vel, þvi
að hann fór hringinn á 79 höggum,
en Einaribrást einnig bogalistin,
hann fór siðari hringinn á 80
höggum og Björgvin fór á sama
höggafjölda og daginn áður eða
78. Óttar fór þvi 36 holurnar á
samtals 153 höggum. Einar á 155
höggum og Björgvin á 156 högg-
um.
En aðrir frægir kappar voru
ekki langt frá þeim svo sem Þor-
björn Kjærbo, Jóhann Bene-
diktsson og Þórhallur
Hallgrimsson sem voru jafnir á
157 höggum og Loftur ólafsson
núverandi íslandsmeistari sem
fór á 158 höggum, en þetta er
fyrsta mótið sem hann tekur þátt
i i vor vegna anna við próflestur
og próf.
Þetta mót var stigamót en röð
efstu manna sem við birtum i
Þjóðviljanum fyrir skömmu
breyttist ekkert við þetta mót.
1 keppninni með forgjöf sigraði
Marteinn Guðmundsson,fór á 136
höggum.en Heimir Stigsson varö
annar á 142 höggum.
Næsta stigamót verður CC-
keppni Golfklúbbs Reykjavíkur
og hefst það á fimmtudag en
lýkur á laugardag á vellinum við
Grafarholt.
leiörétta
mis-
sagnir
Þar sem þörf er á að leiðrétta
missagnir sem fram hafa komið i
sumum fjölmiölum borgarinnar
varöandi 3000 m hlaup sem fram
fór sl. fimmtudag á Vormóti I.R.
viljum við undirritaðir tima-
verðir á fyrsta manni taka fram,
að enginn ágreiningur var meðal
okkar um röð tveggja fyrstu
manna i mark. Það lék enginn
vafi á þvi, að Agúst Asgeirsson
sigraöi. Frá okkar hendi var
gengið frá umræddu hlaupi á
staðnum svo sem venja er til.
Hákon Bjarnason
Páll 01. Pálsson
Sveinn Sigmundsson
nær
öruggir
í úrslit
H.M.
Rúmenar eru nú nær öruggir
um að komast I 16 liða úrslita-
keppni HM i knattspyrnu eftir 1:0
sigur yfir A-Þjóðverjum á sunnu-
daginn. Leikurinn fór fram i
Búkarest og það var Dumitreche
sem skoraði inark Rúmena á 53.
minútu.
Staðan i riðli 4 er nú sú, að
Rúmenar hafa 7 stig eftir 4 leiki,
A-Þjóðverjar hafa 4 stig eftir 3
leiki, Finnar 3 stig eftir 3 leiki og
Albanir hafa ekkert stig eftir 4
leiki.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson