Þjóðviljinn - 02.06.1973, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Laugardagur 2. júni 1973.
MOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSiALISMA/
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson (áb.)
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur).
Askriftarverö Jir. 300.00 á mánuði.
Lausasöluverö kr. 18.00.
Prentun: Blaöaprent h.f.
OKKAR SJÓNARMIÐ
Fundi forseta Bandarikjanna og Frakk-
lands i Reykjavik er lokið. Um niðurstöð-
ur liggur ekki ýkja margt fyrir, en oft var
þess getið i fréttum, að höfðingjarnir
hefðu verið þungbúnir. Trúlegt er að
skammt hafi miðað við að samræma ýms
andstæð sjónarmið þeirra tveggja for-
ysturikja auðvaldsheimsins, sem forset-
arnir eru fulltrúar fyrir.
Við íslendingar getum hins vegar fagn-
að þvi, að með fundi þessum gafst gott
tækifæri til að fylkja liði um þjóðleg-
ar kröfur okkar og til að tjá andstöðu is-
lenzku þjóðarinnar við alþjóðlega heims-
valdastefnu arðráns og kúgunar, sem
Nixon og Pompidou eru einir helztu full-
trúar fyrir.
Kröfugangan og útifundurinn, sem
Samtök herstöðvaandstæðinga, Æsku-
lýðssamband Islands og Vietnamnefndin
efndu til tókust með ágætum.
Við hlið hinna eldri fylktu þúsundir is-
lenzks æskufólks sér undir kröfur dagsins.
En þær voru m.a.
Gegn hersetu Bandarikjanna á Islandi,
Gegn innrás Breta og yfirgangi tveggja
NATO-rikja á íslandsmiðum.
Gegn liðveizlu Efnahagsbandalagsins
við andstæðinga tslands i landhelgismál-
inu.
Gegn aðild íslands að NATO.
Það var ekki sizt athyglisvert við kröfu-
gönguna og útifundinn i fyrradag að þar
skipaði sér hlið við hlið fólk úr flestum is-
lenzkum stjórnmálaflokkum og kom það
einnig fram i vali ræðumanna.
Við Islendingar erum friðmenn, og vist
var þeim Nixon og Pompidou sýnd fyllsta
kurteisi meðan þeir dvöldu hér. Enginn
þarf þó að efast um, að kröfur herstöðvar
andstæðinga, sem svo myndarlega voru
fram bornar i fyrradag, eiga sterkari
hljómgrunn meðal íslendinga, heldur en
sú undirlægjuhugsun, sem birtist i leiðara
Visis i gær, þar sem segir á þessa leið:
Meðan æðstu menn Bandarikjanna og
Frakklands og um leið NATO og Efna-
hagsbandalagsins sátu á hljóðskrafi hér i
Reykjavik notaði brezki NATO-flotinn
tækifærið og gerði alvarlegustu tilraun
sina til þess að sigla niður islenzkt skip.
Fordæming okkar á siðasta athæfi
brezka flotans er alger og um hana er öll
islenzka þjóðin sammála. Það er rétt að
menn taki vel eftir þvi, að það voru ekki
aðeins brezkir togarar, sem þátt tóku i að-
förinni að vitaskipinu Árvakri.
Þau skip, sem hingað hafa verið send
beint á vegum brezku rikisstjórnarinnar
gengu hvað harðast fram i þessari um-
búðalausu tilraun til að sigla niður óvopn-
að skip.
,,Við eigum þvi að temja okkur hina réttu
framkomu gestgjafans. Við eigum ekki að
trana okkur fram með okkar staðbundnu
sjónarmið. Við eigum að einbeita okkur að
þvi að láta gestum okkar liða vel.”
Þetta voru orð leiðarahöfundar Visis, —
og hvilik auðmýkt og takmarkalaus þjóns-
lund hlýtur ekki að búa að baki slikum
boðskap. En seint mun koma að þvi, að
hlutverk hins feita þjóns, sem auðmjúkur
biður eftir mola af borði herra sins, eigi
upp á pallborðið hjá Islendingum.
Þau skip, sem brezka rikisstjórnin
sendir á fslandsmið, leyfa sér ekki aðeins
að brjóta islenzk lög, heldur þverbrjóta
þau af ásettu ráði og hvað eftir annað al-
þjóðlegar siglingareglur með visvitandi á-
siglingatilraunum, sem þó hafa tekizt
sjaldnar en efni standa til. Slikt eru beinar
hernaðaraðgerðir, tilraunir til mann-
drápa. Okkur eru litils virði óskir Nixons
Bandarikjaforseta um gagnkvæma vin-
áttu okkar og brezkra stjórnvalda.
Með hverjum degi sem liður tekur
NATO á sig þyngri ábyrgð. Kröfu okkar
hefur ekki verið sinnt á þeim vettvangi, en
við eigum fleiri leiki, sem brátt mun koma
að.
TILRAUN TIL MANNDRÁPA
Enskir íslandsvinir hefja fundahöld
Gerðu Jónas að heiðursfélaga
Stuðningur við málstað Islands dagvaxandi í Englandi
Allar fréttir, sem hingaö berast
frá Englandi bera meö sér, aö
málstaöur okkar islendinga I
landhelgismálinu á vaxandi sam-
úö og skilningi aö mæta, lika þar.
Þetta er ekki sfzt aö þakka öt-
ulu starfi ýmissa enskra baráttu-
manna, sem lagt hafa á sig
óhemju mikiö starf til aö kynna
rök okkar islendinga. Slikt veröur
aldrei fullþakkaö.
Nýlega var hér i Þjóöviljanum
skýrt frá starfi islandsvinafélags,
sem nýlega var stofnaö i Miö-
Englandi.
i gær efndi þetta félag ásamt
háskólastúdentum til fundar i
Warwick, sem er borg I nágrenni
Birmingham. Tókst fundurinn i
alla staöi mjög vel, en meöal
ræöumanna var Jónas Arnason,
alþingismaöur.
Viö höföum i gær samband viö
Derek Smith, sem er annar
tveggja helztu forystumanna i Is-
landsvinafélaginu, og spuröum
hann frétta.
— Jú,fundurinn tókst mjög vel,
sagöi Derek Smith, og var fjöl-
sóttur. Langmestur hluti fundar-
manna var hlynntur Islendingum
og flestir voru mjög hissa á, hve
margir mættu, þar sem stúdentar
eru flestir i prófum. I lok fundar-
ins strengdu menn þess heit aö
láta fundinn verða upphaf að
voldugri herferö til stuðnings Is-
lendingum, og mjög hörö gagn-
rýni kom fram á gerðir brezku
rikisstjórnarinnar og þá ekki siö-
ur á forystuaöila i Verkamanna-
flokknum.
1 lok fundar var Jónas Árnason
gerður aö heiðursfélaga i félagi
háskólastödentanna i Warwick,
en meö þvi vildu menn undir-
strika samúö sina meö málstaö
Islands og þakka Jónasi hans
mikla kynningarstarf.
A fundinum talaöi m.a. einn
starfsmaöur verkalýösfélaga og
harmaði hann, að verkalýösfélög-
unum haföi ekki verið boðið að
standa einnig aö fundinum og
lagði áherzlu á samvinnu verka-
lýðs og námsmanna til stuðnings
Islendingum.
Ég vil svo bæta þvi við, sagði
Derek Smith að fyrir fundinn
komum við Jónas Árnason fram i
Midland-sjónvarpsútsendingu
BBC, sem taliö er aö nái til 3ja
miljóna áhorfenda, og Jónas var
svo i aðalfréttatima BBC, sem
nær til 24 miljóna, en þar ræddi
Mikel Barrett, kunnur fréttamað-
ur viö Jónas og var þaö samdóma
álit allra, sem ég hef heyrt i, að sú
kynníng hafi haft verulega
þýöingu gagnvart almennings-
álitinu i Bretlandi.
Þetta sagði nú þessi ágæti
stuðningsmaður okkar i Bret-
landi, en hann ásamt félaga sin-
um, David Jarvis, hefur gengizt
fyrir stofnun Islandsvinafélags-
ins.
Svo að menn hér heima geti
ÁRÁSIN Á
ÁRVAKUR
Fréttatilkynning Landhelgisgœzlunnar í gœr um atburðarásina og skemmdirnar á skipinu
1. júni 1973.
I morgun var varðskipið
ARVAKUR statt 24 sjómilur SSA
af Hvalsbak og voru 11 erlendir
togarar á svæðinu, ásamt drátt-
arbátnum IRISHMAN og brezku
freigátunni SCYLLA F-71.
Kl. 0621, áður en ÁRVAKUR
kom að fyrsta togaranum, og áö-
ur en varöskipið haföi nokkuö að-
hafzt, sigldi IRISHMAN á bak-
borðshlið ARVAKURS. Viö
áreksturinn kom dæld i eldhús og
gat á bakborös horn varðskipsins.
Fyllstu siglingareglna var gætt af
hálfu varðskipsins. Siðar reyndi
IRISHMAN, með aðstoð freigát-
unnar SCYLLA F-71 og brezka
togarans VIVARIA GY-648, að
koma dráttarvir I skrúfu varð-
skipsins en það mistókst. Kl. 0810
haföi IRISHMAN tekið inn drátt-
arvirinn og hóf ásiglingatilraunir
aö nýju og kl. 0819 sigldi IRISH-
MAN aftur á bakborössiöu AR-
VAKURS með þvi að bakka á
varðskipið, en ÁRVAKUR haföi
þá mjög litla ferö sökum þrengsla
af fyrrtöldum skipum.
Kl. 0910 skar varðskipið
ARVAKUR á stjórnborös-togvir
brezka skuttogarans GAVINA
FD-126, sem var á þessum slóð-
um. Sigldu þá togararnir
BELGANUM GY-128 og VI-
VARIA GY-648, svo og dráttar-
báturinn IRISHMAN samtimis á
ÁRVAKUR. IRISHMAN og
BELGAUM á bakborössiöuna, en
VIVARIA kom á stjórnborössiö-
una, sveigði fyrir framan varð-
skipið og dældaöi stefni þess.
Ekki kom leki aö varöskipinu, en
gat kom á skuthylki varbskipsins.
Eins og kunnugt er, er varð-
skipið ARVAKUR ekki búiö fall-
byssu. Engin slys urðu á mönn-
um.
Eftir ásiglingar dráttarbátsins
IRISHMAN og brezku togaranna
BELGAUM GY-218 og VIVARIA
GY-648 hefir bráðabirgöaathugun
á tjóni eitt i ljós eftirfarandi
skemmdir á ARVAKRI:
Stefnisbogi fyrir ofan dekk hef-
ur lagzt inn, stjórnboröshorn á
bakka fyrir ofan dekk hefur lagzt
inn, dæld á stjórnborðssiðu fram-
an við kýrauga á herbergi annars
vélstjóra, fjórar allverulegar
dældir á bakborös rennusteini frá
brimbrjót aftur fyrir eldhús, stór
dæld á eldhúsþili og afturþili eld-
húss, dæld og gat inn i bakborðs
réttihylki að aftan og' þil rétti-
hylkis gengið inn i stýrisvélar-
rúm. Dæld á bakboröshorni aö
aftan og gat á efra skuthylki.
Á þessu sést að verulegar
skemmdir hafa oröið á varðskip-
inu.
Jónas Arnason.
þakkað þeim stuðninginn birtum
við hér heimilisfang félagsins:
Friends of Iceland — c/o Derek
Smith and David Jarvis
8 Farquhar Road
Edghaston — Birmingham 15
England
Rekstr-
artap
A aöalfundi Hagtryggingar h.f.,
sem haldinn var 26. mai s.l. kom
fram, aö heildartekjur félagsins
voru áriö 1972 rúmar 50 miljónir
króna og höföu iðgjaldatekjur
aukizt um 6.1 miljón frá árinu áö-
ur, eða um 14,9%.
Rekstrartap félagsins varö
tæpar 1.3 miljónir króna, þegar
afskrifuð hafði verið rétt 1 miljón
króna, og greiðir félagið þar af-
leiöandi engan arð fyrir siðastlið-
ið ár.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Valdimar J. Magnússon, sagði
m.a. að sú hækkun iðgjalda sem
nýlega var heimiluð væri langt
frá að vera nægileg.