Þjóðviljinn - 02.06.1973, Qupperneq 13
Laugardagur 2. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
Nú sigraöi Halldór í
Golf
einvíginu
við Ágúst
Skemmtileg keppni á EÓP-mótinu
Erlendur vann bezta
afrek mótsins, 59,20m í kringlukasti
Friftrik I>ór i sisurstökkinu. (>.9« m.
Um helgina fara fram tveir
leikir i 1. deildarkeppninni i
knattspyrnu. Samkvæmt leikja-
bókinni áttu þeir aö verá þrir um
helgina og einn á mánudag en leik
ÍBV og 1A hefur verið frestað til
12. júni sökum feröar u-
landsliðsins til Italiu.
Það verða þvi tveir leikir sem
fram fara um helgina, leikur ÍBK
og IBA fer fram i dag i Keflavik
og hefst kl. 16 en hinn leikurinn
annað kvöld og þá mætast Valur
og KR á Laugardalsvellinum kl.
20.
I leiknum i dag verðum við að
reikna meðauðveldum sigri IBK.
Akureyringarnir sem töpuðu
stórt fyrir UBK um siöustu helgi
eru ekki liklegir til að stöðva
Keflvikingana eins og þeir leika
um þessar mundir. Við spáum
IBK öruggum sigri.
Hinn leikurinn, milli Vals og
KR, verður eflaust mun jafnari
og erfitt er að spá nokkru um úr-
slit i honum. Þegar þessi lið
mættust i Reykjavikurmótinu
sigraði Valur með eins marks
mun. Það er ekki óliklegt að um
eins marks mun verði aö ræða i
þessum leik á annan hvorn vegin.
Þá er það leikurinn á mánu-
dagskvöld en þá mætast Fram og
Breiðablik á Laugardalsvellin-
um. Einnig er erfitt að spá um úr-
slithans. Islandsmeistararnir eru
ekki farnir að vinna leik ennþá og
leggja sjálfsagt alla áherzlu á að
það takist aö þessu sinni. En
Blikarnir eru engin lömb að leika
viö og verða þeim eflaust mjög
erfiðir. •
Eins og við spáðum varð 1500 m hlaupið
hápunktur EÓP-mótsins sl. fimmtudag en þar háðu
þeir Halldór Guðbjörnsson og Ágúst Ásgeirsson
mikið einvigi eins og i 3000 m hlaupinu á Vormóti ÍR
en að þessu sinni varð Halldór hlutskarpari og
sigraði nokkuð örugglega. Keppni þeirra var mjög
skemmtileg og sigur Halldórs ekki tryggður fyrr en
á siðustu metrunum, aðrir þátttakendur i hlaupinu
blönduðu sér ekki i þessa baráttu en alls tóku 19
hlauparar þátt i mótinu. Hinsvegar bar afrek
Erlends Valdimarssonar hæst er hann kastaði
59,20 m i kringlukasti og kastseria hans var óvenju
glæsileg þar eð öll köst hans 6 voru yfir 56 m.
Keppni var afar hörð i nokkrum
greinum en einna hörðust og
jöfnust var hún i 100 m hlaupi
kvenna. Þar var keppt i 2 riðlum
og fóru 3 fyrstu úr hverjum riðli i
úrslit. Þar gerðist það að Ingunn
Einarsdóttir 1R hljóp á sama
tima og Lára Sveinsdóttir, 12,5
sek., en Lára var dæmd sjónar-
mun á undan. 1 3ja sæti varö
Sigrún Sveinsdóttir með timann
12,7 sek.
Lilja Guömundsdóttir sigraöi
með yfirburðum i 800 m hlaupi,
hljóp á 2:25,0 min., en önnur varö
Anna Haraldsdóttir FH á 2:38,6
min., og 3ja Lára Halldórsdóttir
FH, 2:52,3 min.
Hinn efnilegi hlaupari úr
Armanni, Sigurður Sigurðsson,
sigraði i 100 m hl. sveina á 11,5
sek. Sigurður er aðeins 14 ára
gamall svo timi hans er mjög
góður.
Stefán Hallgrimsson sigraði i
400 m grindahlaupi á 55,9 sek. en
Framhald á bls. 19
Holaí
höggi
Það bar. til tiðinda nú i
vikunni að tveim golfleikurum
tákst að slá „holu í höggi” eins
og það er kallað en mögu-
leikarnir til að það heppnist
eru sagðir 1 á móti 10 þús. eða
svo.
Það var Ilannes Þor-
steinsson, stór efnilegur golf-
leikari á Akranesi, sem gerði
þetta á 5. braut á golfvcllinum
aö Göröum á Akranesi og
Eggert tsfeld á 9. braut á golf-
vellinum á Seltjarnarnesi.
cc-
keppni
lýkur
í dag
CC-keppninni i golfi hjá GR
sem hófst sl. fimmtudag og
hélt áfram i gær lýkur i dag á
GR-vellinum i Grafarholti.
Þetta er 72ja holu keppni fyrir
meistaraflokk og mótið er eitt
af stigamótum sumarsins. Við
munum skýra frá úrslitum
þess á þriöjudaginn.
Tveir leikir
í l.deildum
helginna
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson