Þjóðviljinn - 20.06.1973, Page 15
Miðvikudagur 20. júni 1972. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Kanada
Framhald af 4. siöu.
Bæöi fiskimálaráðið og
fiskimálaráðuneytið hafa lagt
til að þetta gerðist með laga-
setningu á hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna.
Þessi tilhögun að breyta al-
þjóðalögum með marghliða
samþykkt er sú bezta undir
tilteknum kringumstæðum, en
sú spurning, sem margir
spyrja nú er þessi: — Höfum
við efni á að bíða eftir löggjöf
frá alþjóðahafráðstefnu?
Þegar þing okkar samþykkti
lögin um eftirlit með mengun
á heimsskautahafsvæðum okk-
ar, vissi þingið vel, að von var
á alþjóðalöggjöf. Þinginu var
hins vegar ljóst að væntan-
leg alþjóðalög myndu ekki
þróast nægjanlega fljótt til að
bægja frá aðsteðjandi hættu
né yrðu í samræmi við þarfir
stundarinnar að því er snertir
nútímasiglingar og aðstæður á
höfum úti.
Viðmiðun.
Þau iög, sem sett hafa verið
viðvíkjandi mengun frá skip-
um hafa þróast í samræmi við
sjónarmið strandríkja eins og
Kanada, sem eiga verzlunar-
flota og strandlengju, sem
liggur að hafsvæðum sem þörf
er á að vernda. Meðal annarra
lagagreina í áðurnefndum
mengunarlögum, er ákvæði um
að skip sem sigla inn á þau
hafsvæðið sem umræðir, skuli
hlýta kanadiskum reglum um
byggingu skipa, kanadiskum
siglingareglum og kanadisk-
um öryggisútbúnaðarákvæð-
um jafnframt því sem þau
hlýta refsingarákvæðum lag-
anna ef þau valda tjóni með
mengun.
Það er augljóst að þarna
er um að ræða hliðstæðu við
landgrunnsveiðarnar. Það
reyndist ekki vera í samræmi
við kanadiska hagsmuni og
ábyrgð að bíða eftir alþjóða-
lögum um ráðstafanir gegn
mengun.
Útlendum skipum verður
ekki meinað að veiða á svæð-
um við strendur norður af
Kanada en við viljum stjórna
þeim veiðum öllum. Við leggj-
um heldur ekki til að útlend-
um fiskimönnum verði mein-
að að veiða á landgrunnssvæð-
unum útaf vestur- og austur-
ströndinni, en við viljum geta
séð til þess, að á þessum svæð-
um sé íylgt siglingareglum og
við viljum hafa hönd í bagga
með' hversu mikið er veitt á
þessum svæðum og hvaða teg-
undir eru veiddar.
Er elcki eru sjáanleg nein
önnur úrræði 1 il að gera það
sem gera þarf í þessu efni í
tæka tíð, en þau, að gera ein-
hliða ráðstafanir, þá ætti
kanadiska stjórnin nú þegar
að fara að leggja drögin að
þeim ráðstöfunum“.
íþróttir
Framhald af bls. 11.
Lára Sveinsdóttir A 26,7
Kristin Björnsd. UMSK 27,4
Ása Halldórsd. Á 28,5
Ragnh. Pálsd, UMSK 28,9
100 m. hlaup sveina se|<.
Sig. Sigurðss. Á 11,6
Skeggi Þörmar KR 12,5
Helgi Jónss.FH 12,7
Guðjón Árnas. Á 12,8
110 m. grindahlaup se|(
Stefán Hallgrimss. KR 15,3
Borgþór Magnúss. KR 15,9
JónS. Þórðars. IR 17,5
Kúluvarp metr.
Hreinn Halldórsson, HSS 17,13
Erlendur Valdimarss. IR 17,07
Guðni Sigfúss. Á 13,23
Guðni Halldórss. HSÞ 13,14
Stangarstökk
Guöm. Jóhanness., UMSK 3,80
100 metra hlaup sek.
Vilmundur Vilhjálmss. KR 11,0
Marinó Einarss. KR 11,4
Trausti Sveinbjs., UMSK 11,5
Karl W. Fredriksen UMSK 11,6
Sigurður Kristjánss. IR 11,9
1500 metra hlaup min.
Agúst Asgeirss. 1R 4:02,8
Sigfús Jónsson, IR 4:07,2
Markús Einarss. UMSK 4:17,2
Erl. Þorsteinss., UMSK 4:26,3
Gunnar Þ. Sigurðss. FH 5:01,6
Guðm. R. Guðm.ss. F.H. 5:14,6
400 metra hlaup sek.
Vilmundur Vilhjálmss., KR 50,3
Böðvar Sigurjónss., UMSK 53,6
Magnús Geir Einarss., 1R 56,3
Kringlukast metr.
Erlendúr Valdimarss. IR 55,10
Hreinn Halldórss. HSS 46,40
Guöni Halldórss. HSÞ 41,94
Guðm. Jóhanness., UMSK 37,62
Þristökk metr.
Friðrik Þór Öskarss. 1R 15,13
Helgi Hauksson, UMSK 13,71
Jóhann Péturss. UMSS 13,69
Vilmundur Gislason, HSK 12,94
1000 metra boðhlaup min.
Sveit KR 2:05,4
Sveit 1R 2:05,9
A-sveit UMSK 2:07,6
B-sveit UMSK 2:17,6
Hástökk kvenna metr.
Kristin Björnsd., UMSK 1,60
Margrét Svavarsd. KR 1,45
Anna Laxdal, KR 1,45
Björk Eiriksd. IR 1,45
100 metra hlaup sek.
Sigrún Sveinsd. A 12,6
Ingunn Einarsd. IR 12,8
Asta B. Gunnlaugsd. IR 13,4
Ása Halldórsd. Á 13,5
Hafdis Ingimarsd., UMSK 13,7
Kringlukast metr.
Guðrún Ingólfsd. USÚ 35,10
Arndis Björnsd. UMSK Gunnþórunn Geirsd. 28,26
UMSK 24,66
Guðrún Jónsd. UMSK 20,44
400 metra hlaup sek.
Lilja Guðmundsd. IR 59,3
Ingunn Einarsd. IR 60,2
Svandis Sigurðard. KR 63,3
1500 metra hlaup min.
Ragnhildur Pálsd. UMSK 4:58,8
Anna Haraldsd. FH 5:09,9
Lára Halldórsd. FH 5:45,9
Helga Þórarinsd. FH 6:20.4 gsp
Heimdallur
Framhald af bls. 6.
Eftir að sá eini úr þingliöi Sjálf-
stæðisflokksins, sem sótti fundinn
af öllu liðinu boðuðu, hafði hellt
skömmum yfir Geir fyrir óþjóð-
leg ummæli hans vegna
Evertonsmálsins, snerist
fundurinn gegn varafor-
manninum.
En lengur ber ekki Heimdallar-
mönnunum, heimildarmönnum
okkar, saman.
Einir segja að tillagan hafi
verið borin til baka, aörir að
henni hafi verið visað til
flutningsmanna aftur til nánari
athugunar.
Hvort er rétt skiptir ekki máli,
heldur hitt, að varaformanni
flokksins, manninum sem ætlar
sér formannssætið hefur mis-
tekizt að halda saman ungliðum
flokksins, Heimdellingunum, -úþ
Halló krakkar
Framhaid af bls. 2.
Kaupmannahafnarbúar
að mótmæla veru Dana í
Nato. Þeir minna á við-
brögð Nato við innrás
Breta í landhelgina okk-
ar. Við ætlum að taka
þátt í þessari göngu og
hafa myndavél með og
senda ykkur myndir.
Hér í Danmörku hafa
börn og unglingar fengið
mikið að ráða sér sjálfir;
t.d. eru nemendaráð í
öllum skólum, sem hafa
þó nokkur völd. Nú væri
gott tækifæri fyrir okkur
að kynna okkur þessi
mál. Skrifiðokkuref það
er eitthvað sérstakt sem
ykkur langar að vita.
Heimilisfangið er:
Litli glugginn
C/O Helga Hjörvar
Folkvarsvej 14, 5
2000 Köbenhavn F.
Danmark.
Rogers og
Gromyko
undirrita fjóra
samninga
WASHINGTON 19/6. —
Utanríkisráðherrar Banda-
ríkjanna og Sovétrikjanna,
þeir William Rogers og
Andrei Gromyko, undirrit-
uðu i dag fjóra samninga
milli rikjanna. Fjalla þeir
um samstarf i listum og
vísindum og gagnkvæm
skipti á niðurstöðum úr
vísindarannsóknum á sviði
ha f ra n nsókna, land-
búnaðar og flutninga.
Samningarnir voru undirritaðir
i viðurvist þeirra Nixons og Bréz-
jnéfs við stutta athöfn i utanrikis-
ráðuneytinu i Washington. Samn-
ingarnir eru afrakstur mikillla
viðræöna sem staðiö hafa siðan
Nixon fór til Moskvu fyrir rúmu
ári. Eru þeir fyrsti áþreifanlegi
árangurinn af viðrðum þjóðmær-
inganna tveggja.
A fyrstá degi heimsóknar
Brézjnéfs sátu þeir félagar i fjög-'
urra tima heimspekilegum
viðræðum um samskipti land-
anna i framtiðinni. I dag ræddu
þeir mál sem varða afvopnun og
viðskipti landanna.
Forsvarsmenn beggja aðila
hafa látið i ljós von um að þeir
geti lagt grundvöll að hrööum
framförum i samningum um tak-
mörkun árásarvopna búnum
kjarnaoddum. Ýmsir aðilar i
Bandarikjunum vilja þó meina að
slikir samningar verði ekki reiðu-
búnir til undirskriftar fyrr en
eftir eitt til eitt og hálft ár.
AÐVÖRUN
um stöðvun atvinnurekstrar vegna van-
skila á söluskatti.
Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik
og heimild i lögum nr. 10, 22. marz 1960,
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir janúar-marz s.l., og nýálagðan
söluskatt frá fyrri tima, stöðvaður, þar til
þau hafa gert full skil á hinum vangreiddu
gjöldum ásamt áföllnum dráttarvöxtum
og kostnaði. Þeir, sem vilja komast hjá
stöðvun, verða að gera full skil nú þegar
til tollstjóraskrifstofunnar við Tryggva-
götu.
Lögreglustjórinn i Reykjavik,
18. júni 1973
Sigurjón Sigurðsson
Frá stjórn Landshafn-
arinnar í Þorlákshöfn
Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu
hafnarstjóra við Landshöfnina, rennur út
20. júli.
Upplýsingar um starfið gefa
Gunnar Markússon, i sima 99-3638 og
Benedikt Thorarensen, i sima 99-3614 og
99-3601.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Tónleikar
i Háskólabiói fimmtudaginn 21. júni kl.
21.00
Stjórnandi Páll P. Pálsson
Einleikari Werner Taube, cellóleikari.
Flutt verða verk eftir Leif Þórarinsson,
Mállnes, Stevens, Endres, Gentilucci,
Lachenmann, Krauze.
Aðgöngumiðar i bókabúðum Lárusar
Blöndal og Eymundssonar og við inn-
ganginn i Háskólabió.
Auglýsið í Þjóðviljanum
ATVINNA
Meinatæknar
Sjúkrahúsið i Húsavik óskar að ráða nú
þegar eða næsta haust 1 til 2 meinatækna.
Góð launakjör.
Upplýsingur veita yfirlæknir, simi 41385, og l'ram-
kvæmdastjóri, simi 41433
Sjúkraliús Húsavikur.
Y f irh j úkr un ar kon a
Staða yfirhjúkrunarkonu við Sjúkrahúsið i
Húsavik er laus til umsóknar frá 1.
september n.k. Umsóknarfrestur er til 31.
júli n.k.
Æskilegt er. að umsækjandi sé skurftstofuhjúkrunarkona,
simi 41333, og framkvæmdastjóri, sfmi 41433.
Sjúkrahús Húsavikur.
Ljósmæður
Starf ljósmóður við Sjúkrahúsið i Húsavik
er laust til umsóknar frá 1. október n.k.
Upplýsingar um starfið veitir fram-
kvæmdastjóri, simi 41433, eða yfirhjúkr-
unarkona, simi 41333. Umsóknarfrestur er
til 31. júli n.k.
Sjúkrahús Húsavikur.
Matráðskona
Starf matráðskonu i eldhúsi Sjúkrahúss-
ins i Húsavik er laust til umsóknar frá 1.
október n.k. Æskilegt er að umsækjandi
hafi húsmæðramenntun eða verklega
starfsreynslu. Upplýsingar um starfið
veitir framkvæmdastjóri, simi 41433, eða
yfirhjúkrunarkona, simi 41333. Umsókn-
arfrestur er til 31. júli n.k.
Sjúkrahús Húsavikur.