Þjóðviljinn - 24.07.1973, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.07.1973, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 24. júli 1973. Spasský Eins og mönnum er kunnugt eru tölvur til margra hluta nytsamlegar. Sökum óskapleg ,,minnis" þeirra geta þær geymt upp- lýsingar, sem engum manni væri mögulegt að geyma í sínum kolli. Þetta kemur oft að góðum notum við ýmis konar vísinda- starfsemi, sem krefst mikillar nákvæmni. En tölvur geta lika brugðið á leik. Víða hafa visinda- menn kennt tölvum að tefla. Hefur þá verið rætt hvort tölva geti nokkurn tíma orðið svo góð í skák að hún sigri hvern einasta mann. Um það eru skiptar skoðanir, en menn halda stöðugt áfram að reyna að fullkomna tækni tölvunnar í skák. Botvinnik, fyrrverandi heims- meistari i skák hefur haft mjög mikinn áhuga á þessu efni. Fyrir nokkrum árum tefldi tölva,sem hann hafði kennt, við tölvu i Bandarikjunum. Sú bandariska var eins og „barn” i höndunum á þeirri rússnesku og varð fljótlega mát. Skýringin á þvi er eflaust sú að „matari” þeirrar rússnesku er míklu betri skákmaður en „matari” þeirrar bandarisku. Augljóst er, að tölvan getur ekki vitað meira en sá, sem leggur henni til upplýsingarnar. Fyrst i júni s.l. voru þeir Keres og Spassky i V-Þýzkalandi. Þá var skorað á þá i skák og áskorandinn var tölvan IBM 370/165. Þeir tóku áskoruninni, tefldu hvor um sig eina skák við tölvuna og hér koma þær: Hvltt: Spassky Svart: Tölva 1. e4 d5 2. exd Dxd5 3. Rc3 I)d8 4. d4 Bf5 5. Rf3* Rc6 6. d5 Rb4 7. Rd4 e6 8. Bb5 Ke7 Tölvunni lizt með réttu ekki á leiðina 8. .. c6 9. dxc bxc 10. Rxc6. Tölvan hefur teflt byrjunina veikt og maðurinn, þ.e. Spassky, á ekki i miklum erfiðleikum með að sigrast á vélinni. 9. a3 Rxd5 10. RxB Kf6 Tölvan er nú þegar búin aö tapa manni. 11. Re4 KxB Tölvan drepur það, sem hún getur, enda er hægt. vist varla annaö 12. Df3 Ke5 13. b3 Rgf6 14. Bb2 Rc3 15. DxR I)d4 16. DxD Kf4 17. De5 18. Dg5 mát Kg4 Tölvan teflir ávallt þangað til hún verður mát. 4. f3 Bf5 5. Bg5 Rc6 6. Bf 5 e6 7. fxe4 Bxe Nú varð tölvunni á i messunni. Ilenni sést yfir leppun riddarans á f6. Það er ekki von að svona klaufi standist þeim Spassky og Keres snúning. 8. ItxB Bd6 9. Df3 Bb4 Það sakar aldrei aö skáka, það gæti orðið mát. 10. c3 Be7 11. BxRc6 bxB 12. RxR gxR 13. Dxc6 Kf8 Nú gætir tölvan sin vel. Dd7 er augsýnilega slæmur leikur. 14. Bh6 Kg8 15. Df3 f5 UMSJÓN: JÓN G. BRIEM Nú stóðst hún ekki mátið. 24. Hg 1 Kh7 25. De5 f2 26. Kd2 Keres ætlar nú að reyna tölvuna með því að láta hrókinn á gl standa í uppnámi. 26. ... fxH(B) [ Tölvur tefla skák | i skákinni við Keres tókst tölvunni aö verjast nokkuö lengur , og sumir leikir voru mjög skynsamlegir. hennar Hvitt: Keres Svart: Tölva 1. d4 d5 2. e4 dxe 3. Rc3 Rf6 Nú sá hún einu leiðina til þess að koma i veg fyrir mátið. 16. Dg3 I?g5 17. Bxg5 Df6 Með þessum leik sýnir tölvan, að hún er ekki eins græn og hún sýnist. Aðrir leikir eru lakari. 18. Bf4 Kf8 19. BxD dxB 20. Dxd6 Kg8 21. g4 fxg 22. Rf3 h 5 Vill tölvan riddarann? ekki drepa 23. h3 gxR Hárrétt. Vélin vakti upp biskup i stað drottningar. Ástæðan: Þar sem Keres drepur aftur á gl fellur aðeins veikur biskup , en ekki sterk drottning. 27. HxB h4 Þar sem tölvan getur ekki komið i veg fyrir mát,notar hún tækifærið til að tryggja öryggi peðsins á h-linunni. 28. Dh5 mát. Hún á augsýnilega mikið eftir ólært þessi tölva til þess aö verða liðtæk i baráttunni um heims- meistaratitilinn. Jón G. Briem. Hundavinafélagið skorar á dómsmálaráðherra Stjórn Hundavinafélags Islands hefur óskað birtingar á eftirfar- andi samþykkt: „Stjórn Hunda vinafélags tslands mótmælir harðlega ofbeldisverki þvi, sem tveir lög- reglumenn á Húsavik frömdu á 8 ára dreng og ungum hvolpi hans, þriðjudaginn 3. júli, s.l., þegar lögreglumennirnir, annar óein- kennisklæddur og utan vinnutima óðu inn i garð, þar sem drengurinn var að leik með hvolpinum, leystu hann frá staur i nærveru drengins, tóku hann á brott með sér án undangengins dómsúrskurðar og skutu. Verknaður þessi ber vott um algert virðingarleysi fyrir þeim réttindum, sem sérhverjum Islenzkum borgara eru tryggð i stjórnarskránni, og tilraunir lög- reglumannanna til þess að rétt- læta þessa andlegu misþyrmingu á barninu með skipunum frá handhafa dómsvaldsins á staðnum er háðung við islenzkt réttarfar. 1 lögum þeim, sem heimila bæjarstjórnum og sveítarfélögum að takmarka eða banna hunda- hald, eru skýr ákvæði um opin- bera málshöfðun gegn þeim, sem brýtur lögin, og eru viðurlögin sektir. Það hlýtur þvi að vekja furðu hugsandi manna, að .yfir- völd þessara staða geti kveðið upp sameiginíegan dauðadóm yfir öllum hundum á viðkomandi stöðum á grundvelli reglugerða og lögreglusamþykkta, sem ganga miklu lengra en lögin leyfa, eða gefið út hótunarboð um liflát hundanna i skjóli slikra reglugerða. Stjórn Hundavinafélags Islands skorar á yður, herra dómsmála- ráðherra, að stöðva þegar i stað þessar ómannúðlegu aðfarir að mönnum og dýrum i nafni rétt- visinnar, á sama hátt og fyrr- verandi dómsmálaráðherra, Jó- hann. Hafstein, stöðvaði yfirvof- andi hundadráp i Kópavogi árið 1969. Jafnframt krefst stjórn félagsins tafarlausrar opinberrar rannsóknar á þessum atburði. Ofbeldisverknaðurinn á Húsa- vik er óhugnanlegt dæmi um fáránleik hundabannsins og van- mat manna á tilfinningalegum áverkum. Hundabönnin á íslandi eru löngu úrelt og óraunhæf fyrir- bæri, sem haldið er uppi af þver- móðsku og hleypidómum, þrátt fyrir gjörbreyttar aðstæður og kröfur timans. Þau hafa valdið Islandi alvarlegum álitshnekki á erlendum vettvangi, sakir mannúðarleysis og grimmdar, enda minna framkvæmdir þeirra á galdraofsóknir miðalda. Þau eru smánarblettur á islenzkri lög- gjöf, þar sem þau meina islenzkum borgurum sömu réttindi og allar menningarþjóðir fá.að njóta og verða ekki fram- kvæmd nema með broti á 8. gr. Mannréttindasamnings Evrópu- ráösins. Þau brjóta i bága við mannlegt eðli og munu þvi aldrei ná tilgangi sinum, en hafa á hinn bóginn valdiö fjölmörgum and- legum meiðslum , þótt menn beri slik sár ekki utan á sér.” Sovétmenn saka Kínverja um eiturlyf j abrask Um leið og batnandi fer sambúð rikja, sem búa við ólikt stjórn- skipulag fer æversnandi sambúð rikja sem búa við skylt þjóðskipu- lag. Þá erfyrstog fremst átt við Sovétrikin og Kina; skrif so- vézkra og kínverskra blaða um bandariska heimsvaldastefnu eru nú um stundir meinleysihjal eitt miðað við þær snörpu árásir,sem fara þeirra á milli. Kinverjar saka Sovétmenn um sósialheims- valdastefnu, kúgun smáþjóða, afturhvarf til kapitalisma, gifur- legt misrétti i skiptingu lifsgæða. Sovétmenn saka Kinverja um fjandskap við friðarstefnu, við- leitni til að blása að styrjaldar- glóðum, smáborgaralega þjóð- rembu og ævintýramennsku, illa meðferð á skapandi mennta- mönnum o.s.frv. Hér fer á eftir sýni af þessari skothrið. Sovézka fréttastofan APN sakar Kinverja um að þeir græði morð fjár á sölu eiturlyfja til Vesturlanda: Sjötiu prósent af þvi heróini, sem neytt er i Bandarikjunum koma frá Kina, að þvi er ind- verska timaritiðNew Wave segir. Er þetta verzlun? Nei, þetta er barátta gegn heimsvaldastefnunni. Egypzkur blaðamaður, Heykal að nafni, hefur nýverið gefið út bók, „Kairóskjölin”. Hún hefur að geyma yfirlýsingu Sjú En-lai varðandi aðferðir til að brjóta niður andlega hermenn, sem börðust I Vietnam : „Sumir þeirra eru teknir að neyta ópiums, og við aðstoðum þá til þess. „Tilgangur- inn með þessari „aðstoð” er út- skýrður þannig: ,,Þú manst, hvernig vestræn riki þröngvuðu okkur til ópiumneyzlu? Þau börð- ust gegn okkar með hjálp ópiums. Við ætlum að berjast gegn þeim með þeirra eigin vopnum.” New Wave hefur lýst aðferðum Pekingstjórnarinnar i þessari baráttu. Fimmti hver hermaður hefur snúið heim 'frá Vietnam sem eiturlyfjaneytandi. Þetta er hið „þögla strið”. Þvi fylgja ekki neinir sprengjuhveilir, aðeins hringl i gullpeningum og skrjáf i grænum bankaseðlum. Eiturlyfin eru orðin að meiriháttar utanrik- Framhald á bls. 15.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.