Þjóðviljinn - 24.07.1973, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.07.1973, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 24. júli 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Stóraukinn útflutn- ingur iðnaðarvara á fyrstu 5 mánuðum ársins. Þátttaka i 4 vörusýningum i haust í fréttatilkynningu frá fJt- flutningsmiðstöð iðnaðarins segir, að útflutningur hafi aukizt um 55.7% á fyrstu 5 niánuðum þessa árs, miöað við sama tima 1972. Mest er aukningin i útflutningi á skinnavörum og ullarteppum, en minnst á kisilgúr. Útflutningur iðnaðarvara hefur verið mjög hagstæður fyrstu fimm mánuði þessa árs. Á sama tima i fyrra nam þessi útflutningur (án áls) 436 miljónum króna, en i ár 697 Vörutegund Skinnavörur Prjónavörur og fatnaður Ullarteppi Ullarband Niðursuðuvörur Kisilgúr Annað miljónum króna, sem jafn- gildif tæplega 56% aukningu. Hluti aukningarinnar mun stafa af birgðasöfnun fyrir áramót og hluti er vegna verð- hækkunar útflutningsvaranna i krónutölu. Mest hefur aukningin verið á útflutningi skinnavara, eða 90.8%,en næst mest á útflutn- ingi ullarteppa, eða 87.5%. Útflutningur allra vöru- flokka hefur aukizt verulega eins og sjá má á meðfylgjandi töflu: jan.—mai jan,—mai Aukning 1973 frá m.kr. m.kr. 1972% 109 208 90.8 91 128 40.7 24 45 87.5 16 26 62.5 86 126 46.5 7'8 101 29.5 32 44 37.5 samtals 436 679 55.7 % Stærstu liðir i starfsemi út- flutningsmiðstöðvarinnar á næstunni eru ma.Jslandskynn- ing hjá stórverzluninni Eaton’s i Winnipeg i Kanada i byrjun ágúst. Þar verða á boðstólum islenzkar iðnaðar- vörur af mörgu tagi. Er kynn- ing þessi haldin til reynslu, en ef vel tekst til , hyggst Eaton’s endurtaka hana að ári i Winni- peg i tilefni afmælis Islend- ingabyggðarinnar þar, og sið- ar i öðrum verzlunum sinum viðsvegar i Kanada. Um miðjan ágúst verða keramikvörur frá Glit hf. sýndar á alþjóðlegri gjafa- vörusýningu i London. Sýn- ingarþátttakan er einn liður i þeirri áætlun Glits að auka út- flutning fyrirtækisins stórlega á yfirstandandi ári, um leið og framleiðsla fyrirtækisins er endurskipulögð. betta er i fyrsta sinn i langan tima, sem islenzk framleiðsla er kynnt á gjafavörusýningu. I septembermánuði sýna allmörg islenzk iðnfyrirtæki vörur sinar á kaupstefnu i Þórshöfn i Færeyjum. Fram- kvæmd islenzku sýningarþátt- tökunnar þar er orðinn árviss liður i starfsemi Útflutnings- miðstöðvarinnar, en þetta er fimmta árið, sem Islendingar sýna þar. Að þessu sinni munu væntanlega sýna þar Búvöru- og Iðnaðardeild Sambandsins, Sölustofnun lagmetis, Alafoss, Glit, Gráfeldur, Verksmiðjan Ekkó og fleiri. t byrjun október fer fram tslandskynning i stórverzlun- inni L.S. Ayres i Indianapolis i Bandarikjunum. Hefur fyrir- tækið keypt einkum ullar- skinna-og keramikvörur fyrir um 6. miljónir kr.,sem verða þar á boðstólum. Langt liðið á samningatimabilið Enn ósamið við tvö Nú eru Alþýðusa mband islands og Vinnuveitendasam- band islands að setja sig i stellingar fyrir væntanlega kjarasamninga i haust. Eins og mcnn muna var samið stuttu fyrir jól árið 1971 og eru þvi liðin hátt i tvö ár á samningatímabilið. Samt sem áður hefur ekki enn verið samiö við tvö félög iðn- nema. Hörður Harðarson, nemi í húsgagnasmiði, skýrði blaðinu frá þvi, að þegar allt stefndi að verkfalli i siðustu samningum, hefðu kaupkröfur verið látnar ganga fyrir, en öllum auka- kröfum frestað fram yfir jól. Meðal aukakrafna voru kröfur iðnnema. Ósamið eftir rúmt ár Siðan gerist það, að ASl og VVl gera rammasamning um kaup og kjör iðnnema, sem gilda átti fyrir timabilið 13. júni 1972 til 1. desember 1973. Var þessi rammasamningur borinn undir félög iðnmeistara og samþykktur hjá öllum nema þremur — Félagi meistara i húsgagnaiðn, Félagi hárgreiðslumeistara og Félagi hárskerameistara. Tvö þau fyrr- nefndu eru ekki innan Vinnuveit- endasambandsins. Eins og menn vita, hafa iðn- nemar hvorki samningsrétt né verkfallsrétt og sjá sveinafélög i hverri grein um samninga fyrir nemana. Einnig hefur Iðnnema- samband Islands að sjálfsögðu afskipti af þeim. félög Samninganefnd meistara og sveina i húsgagnaiðn hefur starfað að þessu máli og hafa amk. fjórir fundir verið haldnir, en ekkert gengið. Langt er nú liðið frá siðasta fundi og hefur INSl sent meisturum tvö bréf, þar sem sambandið bauðst til að semja beint við þá, en það hefur stundum tiðkazt. Hvorugu hefur verið svarað og þegar gengið var eftir svörum var sagt, að málið yrði tekið fyrir á fundi um miðjan ágúst! Fráleit röksemd Meistarar hafa neitað að ræða við nema á þeim forsendum, að skólatími iðnnema hafi verið lengdur svo mjög á kostnað meistara, að ekki sé grundvöllur fyrir kauphækkunum. T.d. felldu meistarar i húsgagnaiðn ramma- samninginn vegna einnar greinar, sem kvað á um, að iðn- nemar, sem lokið hafa við verk- námsdeild iðnskóla, skuli vinna samfleytt i eitt ár án þess að fara I skóla og hafi þeir þá 40% hærra kaup það ár. Hörður sagði, að þessi röksemd væri fráleit, þar sem öll önnur meistarafélög hafa samþykkt samninginn, þrátt fyrir lengingu skólatimans. Annars er þessi framkoma meistaranna dæmigerð fyrir allt viðhorf þeirra til nemanna. Þannig, sagði Hörður, að um Framhald á bls. 15. Sólarstrendur og — þurrt um allt landið Um helgina var sól um mestallt landið, nema nokkur þoka við ströndina Austanlands. Samkvæmt upplýsingum frá veðurstofunni, má búast við, að sölskinið lialdist a.m.k. næstu daga. Er það gleðiefni bændum, sem þurfa að konia iun lieyi, og sóldýrkendum, en nóg hefur verið af rigningunni fyrst i sumar, þó mest hér sunnanlands. Um helgina lá fólk i sólbaði bæði i görðum og sundlaugum hér i Reykjavik, og eins voru margir, sem komu sér úr borgarrykinu, og m.a. var fjöldinn svo mikill i Heiðmörk, að var eins og helm- ingur borgarbúa væri þar saman kominn, það var eins og hálfgerð þjóðhátið, eða 17. júni. A Vestfjörðum hefur verið sól undanfarna eina til tvær vikur, svo veður hefur ekki hindraö bændur frá slætti og hirðingu heyja, en t.d. i Arnarfirði hófst þó sláttur ekki fyrr en á föstudag i siðustu viku, vegna seinnar snrettu. t Húnavatnssýslu hefur einnig verið gott veður og sól að undan- förnu, og er sláttur og hirðing heyja i fullum gangi. A Hallormsstað er sól og bliða, þótt sjáist til þokunnar, sem er á fjörðunum. Ekki er eins heitt á Austurlandi og annars staðar á landinu, en þar hefur ekki heldur komið dropi úr lofti að undan- förnu. Gras spratt seint og fara bændur sér hægt við sláttinn, slá fyrst það sem bezt er sprottið, og eru bændur þar sem annars stað- ar mislangt komnir i hirðingu heyjanna. Á Suðurlandi var á mörgum stöðum byrjað að slá fyrir um það bil viku, en fram að þeim tima hafði verið rigning. Er það i seinna lagi, en að sögn kunnugra var sprettan það sein, að ekki hefði verið æskilegt að hef ja slátt- inn fyrr. Litur nú út fyrir, að bændur nái inn nægilegu heyi handa skepnunum, og er sláttur viðast hvar hálfnaður á Suður- landi. Einhver brögð munu að þvi, að erfiðlega gangi að fá gert við vinnuvélar yfir sumartimann, en það er sá timi, sem þær eru not- aðar hvað mest. Guðni Guömundsson landar úr báti slnum að lokinni metafla-veiöiferö. Yestfirzkur færamaður Aflaði fyrir 92.000 kr. í tveimur róðrum Frá fréttaritara okkar á Súg- andafirði, Gisla Guömundssyni. Héðan er gerður út á handfæra- veiðar bátur, sem Einar heitir og er 5 brúttósmálestir að stærð. Eigendur hans eru þeir Egill Kristjánsson og Guðni Guð- mundsson. Föstudaginn 20. júli fór annar eigandinn, Guðni Guðmundsson á sjó á bátnum, einn sins liðs. Kom hann að landi um miðnætti með 1309 kiló, sem hann landaði morg- uninn eftir. Lagöi hann þá af stað i annan róöur kl. 10 að morgni og kom aftur að landi eftir 36 tima með 2772 kiló. Aflaverðmæti úr þessum tveim róðrum var samanlagt kr. 83.700,90+kr. 8370,- i Stofnfjár- sjóð fiskiskipa eða alls kr. 92.070,90. Þess skal getið, að notaðar eru rafmagnsrúllur við handfæra- veiðarnar. — Gisli.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.