Þjóðviljinn - 24.07.1973, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.07.1973, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN ÞriOjudagur 24. júli 1973. Enginn er í vafa um, að leikföng eru mjög mótandi uppeldistæki. Flestir for- eldrar reyna að ná í þrosk- andi leikföng fyrir börn sin, á meðan þau eru enn í vöggu. Þá eru hengdir upp litskærir hreyfanlegir hlut- ir í seilingarfjarlægð frá barninu. Þegar barnið fer að þroskast og komast á legg, er reynt að fá því leikföng, er efla sköpunargáfu þess. Alls konar kubbar, rað- myndir, litir og leir eru þá vinsælustu leiktækin. Það kom okkur því nokk- uð á óvart, er við vorum á gangi á Skólavörðustígnum, að sjá á skilti leikfanga- búðar nokkurra mynd af hryllilegasta morðtóli. I fyrstu vorum við ekki vissir um hvort verið væri að auglýsa skotvopn eða leik- föng, en nánari eftir- grennslan sýndi, að ein- göngu var verzlað með leikföng. Þetta varð til þess, að við röltum í nokkrar leikfanga- verzlanir og athuguðum, hvað væri á boðstólum af drápstólum eða eftirlíking- um þeirra. Leikur og heimur fullorðinna Börn reyna i leik að likja eftir hegðan hinna fullorðnu, enda er leikurinn tæki, sem barnið notar til að öðlast skilning á ýmsum fé- lagslegum tengslum. Leikurinn býr barnið undir þátttöku i lifs- baráttunni, á svipaðan hátt og leikur kettlinga er æfing fyrir veiðar siðar meir. Börnin reyna að likja eftir full- orðnum. Þau fara i mömmuleik, bilaleik eða setja upp bú, og leik- ur þeirra er smækkuð mynd hins daglega lifs. Borgarsamfélagið hefur að visu skapað ógnvekjandi gjá milli full- orðinnaog barna. Mörg börn i út- hverfum Reykjavikur vita ekkert um, hvað foreldrar þeirra starfa. Pabbi eða mamma fara i vinnuna og koma svo heim á kvöldin, en hvað þau eru að gera i vinnunni, það veit enginn. Þaö er töluverð- ur munur á sliku sambandi og þeim tengslum, sem rikja milli barna og fullorðinna á sveitabýli eða i litlu þorpi. Sveitabarnið fylgist með vinnu foreldra sinna, og öðlast smám saman fullan skilningá þvi.hvers vegna þarf að vinna ákveðin störf á ákveðnum tima. Á unga aldri er barnið farið að taka þátt i störfunum, án þess að um nokkra barnaþrælkun sé að ræða i þvi sambandi. Leikirnir breytast Gamlir og miðaldra tslending- ar vita, að leikir barna hafa breytzt töluvert mikið. Flestir miðaldra tslendingar hafa án efa átt sér bú á barnsaldri. Smækk- aða mynd af islenzku bændabýli, — Sendisveinar Þjóðviljans eftir leiðangur i vopnabúr leikfangaverzlunar, — Vandamálin leyst á einfaldasta hátt. Or bandarisku barnablaði. miðlarnir gæfu börnunum raun- sanna mynd af heimi fullorðinna, en þvi miður er fjarri þvi að svo sé. Hver sem staldrar ögn við og gaumgæfir „hetjurnar”, sem is- lenzkum börnumeru nú kærastar, sér fljótlega, að hér er ekki neitt venjulegt fólk á ferðinni. Hetjurn- ar eru alltaf vopnaðar. Að visu berjast þær fyrir góðum málstað, eða svo er að minnsta kosti látið heita, en þetta fólk fer engan veg- inn eftir þeim almennu siðgæðis- reglum,sem mótast hafa i venju- legu samfélagi. Þær taka lögin i sinar hendur, ákvarða á svip- stundu, hvaða skúrkar megi tóra en taka þá, sem ekki eru þeim að skapi, af lifi við fyrsta tækifæri. Valdbeiting er sá eiginleiki þeirra, sem mest ber á. Mannslífið lítils virði Sá heimur, er hetjur kvik- mynda og „skemmtiþátta” sjón- varps hrærast i, eðlisólikur hin- um raunverulega mannheimi. Margvisleg blæbrigði mannlifsins fyrirfinnast þar alls ekki. Allt er þar annað hvort hvitt eða svart, ekkert finnst þar á milli. Annað hvort eru menn skúrkar, sem sjálfsagt er að drepa við fyrsta tækifæri, eða menn eru hetjur, með sérstakt leyfi til manndrápa. Hetjan beitir nær alltaf ofbeldi, að visu oft i sjálfsvörn eða ,,góð- um” málstað til framdráttar. Of- beldið leiðir auðvitað oft til þess, að skúrkarnir deyja, en við þvi er ekkert að gera. Þótt hetjan verði mannsbani, snertir það hana ekki. Hún þarf að visu að greiða sér eftir slagsmálin og ef til vill stundum að skipta um föt, en eftir skamma stund má sjá hana á- hyggjulausa á næstu vinstúku, brosandi og fria við samvizkubit. Kaupmenn koma til móts við neytendur Það er ekki ný bóla, að svona hetjur skemmti tslendingum. Þeir hafa þekkt slika menn i margar aldir, þvi að margar hetj- ur fornbókmenntanna eru einmitt þessu merki brenndar, fyrst og fremst þær, sem vaða uppi i ridd- arasögum og fornaldarsögum. Hetjur flestra tslendingasagna eru annars eðlis og drepa fæstar menn upp á sport. I islenzku bændasamfélagi hef- ur þó engu barni dottið i hug, að raunverulegur heimur fullorð- inna væri svipaður heimi forn- aldarsagnanna. Samband barn- anna við brauðstrit foreldranna var allt of sterkt til þess, að það gæti orðið. Nú gegnir öðru máli. Börnin i borgunum fá einfaldlega ekki að vita nóg umlif og störf þeirra full- orðnu, mörg þeirra reyna þvi að gera sér mynd af lifinu út frá þeim heimi, sem birtist þeim i fjölmiðlum. Kaupmenn sjá nýjan markað opnast og reyna eftir megni að uppfylla „þarfir” neytenda. Þeir hafa á boðstólum pistólur, hrið- skotabyssur, handsprengjur og herklæði. Leikfangaverzlanir likj- ast nú einna helzt vopnabúrum. Sköpunargleðinni fullnægt Ef börnin þreytast á að drepa hvert annað, er unnt að höndla Framhald á bls. 15. — Skemmtileg líkön, sem börn geta eytt mörgum ánægjustundum viö aö búa til. þar sem þurfti að mjólka sauð- kjálka kvölds og morgna, fleng- riða á legg, smala völubeinum og slá túnið með vasahnif, þegar vel viðraði. Það er tilgangslaust og reyndar ástæðulaust að harma þá þróun, sem orðið hefur á atvinnuháttum tslendinga. tslenzka þjóðfélagið hefur breytzt úr bændasamfélagi i borgarsamfélag. En hins vegar er ekki nema sjálfsagt, að menn liti með nokkrum ugg til þeirrar þróunar, að börnin séu i æ rikara mæli lokuð frá heimi hinna full- orðnu. Nýjar fyrirmyndir Þegar tengslin milli barna og fullorðinna slitna, finna börnin sér nýjar fyrirmyndir. öflugir fjölmiðlar reyna eftir mætti að fylla það skarð, sem verður á þroskaferli barnanna vegna þess, að þau eru lokuð frá heimi full- orðinna. Um þetta væri ekki nema gott eitt að segja, ef fjöl- Kaupmenn og fjölmiðlar koma til móts við yngstu neytendurna

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.