Þjóðviljinn - 24.07.1973, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 24.07.1973, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 24. júll 1973. íslandsmeistaramótið í golfi: Björgvin Þorsteins. sýndi mikið öryggi á síðustu holunum Og sigraði þá Loft og Kjærbo með 3ja högga mun Islandsmeistara- mótinu i golfi lauk sl. laugardag á Hvaleyrar- holtsvelli i Hafnarfirði með glæsilegum sigri Björgvins Þorsteins- sonar frá Akureyri, sem sýndi fádæma öryggi á siðustu holunum og sigraði þá Loft Ólafsson og Þorbjörn Kjærbo með 3ja högga mun, en þeir voru aðal keppinautar hans i mótinu. Greini- legt var, að Kjærbo þoldi ekki álagið sem á honum var siðustu 6 holurnar, en þá hafði hann eins höggs forustu. Hann lék ekki vel þessar siðustu holur á sama tima og Björgvin lék hvað bezt i mótinu. Þegar yfin lauk hafði Björgvin farið á 299 höggum, en þeir Loftur og Kjærbo fóru á 302 höggum og urðu að heyja einvigi um 2. sætið. og það einvigi vann Kjærbo á einu höggi eftir 3 holur. Kjærbo hafbi forustu þegar keppni siðasta dagsins hófst, eitt högg framyfir þá Björgvin og Hannes Þorsteinsson, en 2 högg framyfir Loft. Á fyrstu 12 holun- um siðasta daginn lék Hannes illa og má segja,að hann hafi fallið úr keppninni um efsta sætið á fyrstu 12 holunum.en Björgvin seig á Kjærbo og eins Loftur. Þegar svo 3 holur voru eftir hafði Kjærbo enn eins höggs forustu,sem hann svo missti þarna á 16. holunni og þeir voru þvi jafnir hann og Björgvin þegar að 17. holunni kom. Þar missti Kjærbo enn eitt högg og 2 á siðustu holunni, svo Björgvin var öruggur sigurvegari og það sem meira er; það er afar sjaldgæft að fara undir 300 högg- um á Islandsmóti. En litum þá á úrslit mótsins. Mfl. Karla islandsmeistari: Björgvin Þor- steinsson GA 299 högg. 2. Þorbjörn Kjærbo GS 302 högg 3. Loftur Ólafsson GR 302 högg 4. Gunnlaugur Ragnarsson GR 306 högg 5. Hannes Þorsteinsson GL 307 högg. Mfl. kvenna ísla nds m eistari: Jakobina Guðlaugsdóttir 351 högg 2. Laufey Karlsdóttir 380 högg 3. Ólöf Geirsdóttir 380 högg. 1. fl. karla 1. Ómar Kristjánsson 321 högg 2. Marteinn Guðjónsson 330 högg 3. Örn Isebarn 332 högg 1. fl. kvenna 1. Kristin Pálsdóttir 417 högg 2. Svana Tryggvadóttir 424 högg ' 3. Inga Magnúsdóttir 428 högg 2. fl. karla 1. Finnbogi Gunnlaugsson 348 högg 2. Halldór B. Kristjánsson 349 högg 3. Gunnar Pétursson 351 högg Framhald á bls. 15. Markvarzlan er kjörgvin Þorsteinsson fagnar sigri eftir siöasta púttið, en Þorbjörn Kjærbo, sem varð nr. 2, horfir vonsvikinn á. höfuöverkur Framara Tvö klaufamörk kostuðu 2 stig á Akureyri „Þaö er alltaf þægileg tilfinning að sigra” Þeir voru margir sem þurftu að óska hinum nýbakaða Islandsmeistara í golfi, Björgvini Þorsteinssyni til hamingju með sigurinn i golf- skála Keilis í Hafnarfiröi sl. laugardag, að lokinni keppni. Okkur tókst þó að króa Björgvin af augnablik og fá hann til að rabba stuttlega við okkur. „Jú, það er auðvitað alltaf þægileg tilfinning að sigra og það er anzi gaman að vera búinn að endurheimta titilinn, sagði Björgvin, en hann varö tslandsmeistari i fyrsta sinn 1971. — Við spurðum hann hvort hann hefði æft betur i sumar en áður, þar eö hann hefur sýnt mun betri leik i golfinu en nokkru sinni fyrr? — Nei, ekki er það nú, ég hef ekki æft neitt betur en undanfarin ár, en hinsvegar hefur mér tekizt að ná beinni höggum og ég þakka þvi framfarirnar hjá mér. — Telurðu þig hafa lært mikið á Portúgal- Sagði nýbakaður íslandsmeistari í golfi feröinni á dögunum? — Já, við höfðum allir áreiðanlega mjög gott af henni og lærðum mikiö; svona stórmót eru alltaf lærdómsrik fyrir mann. — Er góð aöstaöa til golfiðkunnar á Akureyri? — Hún hefur farið mikið batnandi undanfarið og ég má segja,að hún sé orðin nokkuð góð. — Og áhuginn fyrir golfinu, er hann mikill? — Nci, hann er frekar dræmur, en það eru þó alltaf nokkrir sem iðka þar golf. — Og þú hefur góðar aðstæður til að æfa þig? — Já, ég hef það. Eftir að ég lauk stúdents- prófi I vor hef ég unnið við golf-völlinn á Akur- eyri og þvi haft ágæta aðstöðu til að æfa. — Og hvað tekur nú við? — Næsta verkefni er ferð með u-landsliðinu á Evrópumótið; við leggjum af stað á morgun, (sl. sunnudag) svo það verður ekki mikil hvfld næstu daga. —S.dór Markvarzlan er orðin mikill höfuðverkur hjá tslands- meisturum Fram, eftir að. Þor- bergur hætti að leika með liðinu. Tvö mjög Ijót klaufamörk fékk liöið á sig norður á Akureyri á sunnudaginn og þau kostuðu Fram 2 stig og gerðu um leið von- ir liðsins um að vera með i toppbaráttunni i sumar cndan- lega að engu. Hinsvegar má telja vist,að þau hafi gulltryggt Akur- eyringum 1. deildarsætið. Leikurinn I heild var nokkuð góður. Fyrri hálfleikur fremur jafn, en þann siðari áttu Framarar nær algerlega en ÍBV- vörnin stóð fyrir sinu og.hleypti þá cngum bolta inn. Fyrsta markið kom eftir 5 minútur af leik. Dæmd var horn- spyrna á Fram og Sigbjörn Gunnarsson framkvæmdi hana, og það ótrúlega gerðist, hann skoraði beint úr spyrnunni. Hroðalegt klaufamark. Og það var einnig ljótt klaufa- mark sem Ómar Friðriksson skoraði 9 minútum siðar, cftir hornspyrnu scm Sigbjörn fram- kvæmdi, 2:0. A 40. minútu lagaði Asgeir Eliasson stöðuna fyrir Fram með laglegu marki og staðan i leikhléi var þvi 2:1. Þrátt fyrir nær stanzlausa sókn Framara allan siðari hálfleikinn náðu þeir ekki að skora. Aftur á móti bættu heimamenn cinu marki við og var ómar aftur að verki cftir að hafa fengið Framhald á bls. 15. staöan Staðan i 1. deild eft- ir 8 umferðir er nú þessi: ÍBK 8-8-0-0-20: 3-16 Valur 8-6-1-1-22:11-13 ÍBV 8-5-0-3-16:10-10 ÍA 8-3-1-4-22:13- 7 Fram 8-2-2-4- 9:13-6 KR 8-2-1-5- 6:16-5 ÍBA 8-2-1-5- 8:19-5, UBK 8-1-0-7-11:29-2 Markahæstu menn: Hermann Gunnarss. Val 12 Teitur Þórðars. ÍA 9 Matthias Hallgrimss. ÍA 7 Steinar Jóhannss. ÍBK 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.