Þjóðviljinn - 10.10.1973, Page 7
Miðvikudagur 10. október 1973. ÞJÓDVILJINN — StÐA 7
KYNÞÁTTAFORDÓMAR GAMLA NÝLENDUVELDISINS LEGGJAST
ÁSVÖRTU UNGLINGANA
„Ég saka
England
fyrir”
Allirsem komiö hafa til
Englands hljóta að verða
furðu lostnir yfir þeim
fjölda þeldökks fólks sem
þar er að sjá. Þeir sem eru
svartir á hörund setja
verulegan svip á götu-
myndina í London, og í
ýmsum þjónustustörfum
er orðið algengara að sjá
svart fólk en hvítt. Ýmsir
fordómar eru ríkjandi í
garð þess fólks sem er
framandi að útliti, ekki
síst af hálfu þeirra sem
eru hvað stoltastir af for-
tið Bretlands sem ný-
lenduveldis. Sjálft er
þetta langt að komna fólk
oft á tiðum óhamingju-
samt yfirtilveru sinni eins
og titt er um þá sem rifnir
hafa verið upp með rótum
úr umhverfi sínu.
Aðstæöur hjá ungu fólki
svörtu á hörund eru liklegar til
að verða alvarlegasta félagslegt
vandamál i Bretlandi á næsta
áratug, stóð nýlega i bresku
blaði. bað biður lesendur sina
að fylgjast með sér inn i af-
skekkt hús i London þar sem
komið hefur verið upp hæli fyrir
svarta unglinga sem hvergi eiga
höfði sinu að að halla.
Hér er Páll, 18 ára, og greiðir
hár sitt á afriskan máta (flóka-
þyrill). Hanner ljósari á hörund
en flestir hérna i Harambee, bú-
inn að vera viðloða i tvo mánuði.
Hvað hafði komið fyrir?
,,Ég var rekinn að heiman,
gamli maðurinn vildi ekki hafa
mig af þvi honum féll ekki
hvernig ég hagaði mér. Ég
slæptist en hafði peninga upp úr
hinu og þessu án þess að vera i
vinnu. Hann skammaðist yfir
þvi svo ég sagðist bara fara. Ég
fór út á laugardagskvöldi, hann
læsti dyrunum og vildi ekki
hleypa mér inn aftur. Ég var
rétt nýkominn úr flotanum. Ég
hafði siglt með flotanum i rúm
tvö ár, en var svo rekinn þaðan.
Ég sló undirforingja utanundir,
hann lét mig ekki i friði svo ég
lét hann bara fá einn. bað var
lika aðferð til að komast burtu,
þvi mig langaði ekki til að vera
niu ár i flotanum. Ég vissi ekki
um neina aðra leið til að
sleppa”.
Af hverju hafði hann verið
tekinn á herskipaflotann? Jú,
það er vist ekkert sérstaklega
eftirsóknarvert i Englandi að
vera einn af þessum óbreyttu á
herskipunum, og það eru oft
teknir unglingar sem hafa brot-
ið eitthvað af sér. bá eru þeir
látnir skrifa undir skuldbind-
ingu um að vera svo og svo
mörg ár i þjónustu, þá verði
brot þeirra fyrnd og gleymd. Og
svolitill máli fáist greiddur við
lok samningstimans. betta er
eins konar herleiðing.
Einmitt þetta hafði komið fyr-
ir hann Pál. Hann hafði leiðst út
i „slæmt liferni” á unga aldri,
skrópað úr skóla, verið i felum,
læðst i hús og gert smá innbrot.
Hver var sagan að baki þessu?
Páll fæddist i Leeds i Eng-
landi, barn manns frá Nigeriu,
konu frá eynni Barbados við
Amerikustrendur. Foreldrarnir
skildu að skiptum þegar hann
var um eins árs gamall, móðir
hans tók hann með sér til
Barbados en sneriaftur til Eng-
lands nokkrum árum siðar. bá
tók amman barnið að sér um
skeið, en svo tók upptökuheimil-
ið við. A barnaheimilum dvaldi
Páll til 13 ára aldurs, en fór þá
til föður sins.
Hann segist vera til með að
vinna, einhvern tima, reyndar
bráðlega. bvi maður þarfnast
peninga. En hann eigi erfitt með
innilokun frá 9 til 5, hann þurfi
meira frjálsræði.
,,Ég veit ekki hvort það er
erfiðara af þvi að ég er svartur,
þvi ég veit ekki hvernig það er
að vera hvitur. En ég kann ekki
við það þegar það fyrsta sem
sagt er við mann þegar maður
leitar sér að vinnu er þetta:
Heyrðu, þú kippir þér ekkert
upp við það þótt þú sért kallaður
negri og svartur hundur, er
það? En ég segi þeim að eiga
sig. Jafnvel þótt þeir kalli þá á
eftir manni: Ég er ekkert á móti
þeldökkum.”
„begar ég var litill var ég
vanur að segjast vera enskur og
vera stoltur af þvi. En svo fann
ég allt i einu að Englendingar
vilja ekki hafa mig sem Eng-
lending. betta var erfitt. En ég
fann að ég yrði aldrei Englend-
ingur.”
„Ég veit hvað ég mundi gera
ef ég ætti nóga peninga. bá
mundi ég fara heim til Barba-
dos og alls sem þar er. Ég kalla
Barbados heima. betta er ekki
heima. Ég kalla Afriku heima.
bað er heima. En England er
ekki heima. Vegna þess að ég
tilheyri ekki þessu.”
„Jafnvel þótt ég sé fæddur
hérna þá á ég ekki heima héma
og kalla mig ekki Englending.
Ég er yfirleitt viðs fjarri enska
kynþættinum. beir lita á mig
sem aðskotadýr, og þá lit ég á
mig sem aðkomumann i þessu
landi”.
„Ég var lengi að gera mér
grein fyrir þessu. betta kom
svona smátt og smátt. Einu
sinni hélt ég að ég væri einsog
allir hinir. En svo fór mér að
skiljast annað. Fyrst þegar
óeirðirnar voru 1965 i Watts. bá
fór ég að lita öðru visi á heim-
inn. Mér varð ljóstað ég varö að
haga mér eins og svartur maður
og varð stoltur af þvi”.
„Ég saka England fyrir þaö
sem hefur gerst. bað var Eng-
land sem niðurlægði mig og
sagði svertingi við mig, þó ég sé
fæddur hérna. Og svo var mér
sagt að þú mátt ekki gera þetta
og ekki þetta. Svartur.”
((Jr Sunday Times).
CHILE:
Hnífa fyrir taflmenn
STOKKHÖLMI 8/10 — Alþjóðieg
nefnd sósialiskra flokka, sem ný-
verið fór til Santiago,höfuðborgar
Chile, heyrði fjölmargar hroða-
legar lýsingar á framferði valda-
ránsklikunnar.
Meðal annars var nefndar-
mönnum sagt að oft fyndust rekin
á bökkum vatnsfalla lik manna,
sem myrtir hefðu verið af böðlum
herforingjakiikunnar og borgara-
stéttarinnar, og einnig er hermt
að algengt sé að lik sjáist borin út
af knattspyrnuleikvanginum,
sem er helsta fangelsi valdaræn-
ingjanna og kominn vel á veg með
að ná hliöstæðri frægö og morð-
búðir nasista i heimsstyrjöldinni
siðari.
Eiginkonum handtekinna
manna er mörgum bannað að
yfirgefa heimili sin, og pyndingar
heyra til daglegustu viðburðum.
Sjónarvottur sagði nefndinni að
sjóliðar, sem hertóku háskólann i
Valparaiso, heföu rist bringur
nokkurra handtekinna stúdenta i
reiti og teflt siöan skák á þessum
skákborðum — með hnífa fyrir
taflmenn.
Úganda sendir sjálfboöaliöa
KAMPALA 9/10 — Idi Amin, for-
seti Úganda, sagði i dag á blaða-
mannafundi að sjálfboðaliðar úr
her landsins væru þegar lagðir af
stað til landanna fyrir botni Mið-
jarðarhafs til að berjast með
Aröbum.
Ekki gat hann þess hve margir
hermenn þessir væru, en kvað þá
alla hafa lýst sig óðfúsa að deyja
fyrir frelsi Afriku, eins og forset-
inn orðaði það. Eftir að Mið-
austurlönd hafa veriö frelsuð,
sagði Idi Amin ennfremur, munu
sjálfboðaliðarnir fara i hernað
gegn þjóðernisminnihlutastjórn-
unum i sunnanverðri Afriku.
1 frétt frá Kinshasa, höfuðborg
Zaire, segir, að stjórnin i Rúanda
hafi slitið stjórnmálasambandi
við ísrael. Halda Rúandamenn
þvi fram að tsraelsmenn eigi alla
sök á ófriðnum, þar eð þeir hafi
ekki skilað herteknu svæðunum
frá þvi i sexdagastriðinu.
Páll I hópi félaga sinna á unglingahælinu
Unglingar I London, svartir og atvinnulausir