Þjóðviljinn - 10.10.1973, Page 15
Miftvikudagur 10. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Fundurinn
Framhald af bls. 9.
skuröi hans nú segir i 21. og 22.
gr. orðrétt:
„Saga samningaviðræðnanna
sýnir ekki einungis tilgang aðila,
en skýrir einnig þýðingu þess, að
rikisstjórn Islands átti að senda
rikisstjórn Hins sameinaða
konungsrikis tilkynningu með sex
mánaöa fyrirvara, þvi að fyrir-
svarsmenn Hins sameinaða
konungsrikis lýstu þvi hinn 2.
desember 1960, aö trygging sú.
sem þeir leituðu eftir, skyldi,
meðal-annarra atr,. kveða á um,
,,að engar aðgerðir, sem beitt
yrði til framkvæmda slfkri reglu,
skyldu taka til breskra skipa
meðan máliö væri til meðferðar
fyrir dómstóinum”.
Og áfram segir i greinargerö-
inni: „Aðiiar uröu ásáttir um
þessa tilkynningarskyldu. Gera
má ráð fyrir að þeir hafi litið svo
á, að siikur tlmafrestur yrði
nægilegur til aö leiða úrlausnar-
efnið með samningum til lykta,
eða næðist ekkert samkomulag,
þá til að leggja allt málsefnið til
dómstólsins, þar á meðal gildi að-
geröa, sem miðuðu að útilokun
breskra skipa meöan á málsmeö-
ferð stæði.samkvæmt réttarregl-:
um um vaid dómstólsins”.
Gunnar veit betur«-Hann
samdi þetta sjálfur
Og Lúðvik hélt áfram:
Það er vitanlega alveg ómögu-
legt fyrir Gunnar Thoroddsen að
láta eins og hann viti þetta ekki.
Hann stóö að þvi að semja þetta.
Og auðvitað hefðum við verið
fastir I netinu, ef samningurinn
frá 1961 ætti að gilda. Gunnar seg-
ir,að átt hafi að senda menn til að
vinna lagalegan sigur i Haag,en
við vitum, að þvi fer fjarri að
neitt liggi fyrir um að við mætt-
um vænta sliks sigurs þar. Það er
alkunna, að ágreiningur er mikill
um það, hvað séu alþjóðalög i
þessum efnum. Við höfum haldið
þvi fram, að engin slik bindandi
alþjóðalög væru til, en Bretar
halda allt öðru fram sem kunnugt
er. Það eru hins vegar ekki-liðin 3
ár siðan jafnvel sumir helstu sér-
fræöingar viðreisnarstjórnarinn-
ar i þjóðréttarmálum héldu þvi
fram, að hámark fiskveiðiland-
helgi að alþjóöalögum væri 12
milur. Þetta er og hefur verið
mikið ágreiningsefni lögfræðinga
um allan heim.
En áttum við svo að segja undir
þessum kringumstæðum, við
Haagdómstólinn: Þið skuluð
dæma eftir samningunum frá
1961, hvað séu lög i þessum efn-
um.
Sú yfirlýsing hefur reyndar
komið fram i útvarpsumræðum
fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins,
að flokkurinn teldi samningana
frá 1961 uppsegjanlega. Og rikis-
stjórnin sagði samningunum upp,
svo að við lokuðumst ekki inni
með okkar lifshagsmunamál hjá
þessum gamaldags dómstól.
Gunnar Thoroddsen segir, að
það sé ég sem ráði ferðinni i land-
helgismálinu. Þetta er nú að visu
ekki alveg rétt en vist er um það,
að þetta er ekki sagt mér til
viröingar og er þvi áreiðanlega til
marks um það, að þeir Sjálf-
stæðismenn telji stöðuna i land-
helgismálinu engan veginn góða.
En þó að ég ráði ekki einn ferðinni
i landhelgismálinu, þá eru þaö
skrif Morgunblaðsins, sem eru
komin nokkuð á veg með að gera
mig að eins konar „súperstjörnu”
svo sem einn ungur Sjálfstæðis-
maður komst aö orði i ræðu hér
áöan. Ég hef átt að gera þetta og
ég hef átt að gera hitt, þó að oft-
ast væri um að ræða ákvarðanir,
sem teknar voru sameiginlega i
rikisstjórninni og reyndar oft i
samráði við þingflokk Sjálf-
stæðisflokksins.
Hér eru strangari friðunar-
reglur en annars staðar, en
friða þarf meira
Svo heldur Gunnar Thoroddsen
þvi fram, sagöi Lúðvik, að ég vilji
bara drepa fiskinn i sjónum en
hann vilji hins vegar friöun. Það
er látið að þvi liggja að við friðum
ekki til jafns við aðrar þjóðir. En
allir sem til þekkja viðurkenna,
aö hér eru margfalt strangari
friöunarreglur en i nokkru ööru
iandi, sem viö þekkjum til. Sild-
arstofninn hefur veriö alfriðaður i
3 ár. Hvaða önnur þjóð hefur gert
það? Við höfum bannaö
smásildarveiði á fjöröum inni, en
t.d. Norðmenn hafa algerlega
neitaðað innleiða slikt bann. Við
höfum sett sérstakar reglur um
möskvastærð i þorskanetum, þar
sem gert er ráð fyrir miklu stærri
möskvum en i nokkru landi i
kringum okkur. Okkar mörk um
smæsta fisk, sem koma má með
að landi, eru miklu hærri en i öör-
um löndum. Við höfum bannað
þorsk- og ufsaveiðar i þorskanót,
þó að slikt sé jafnan leyft annars
staðar. Við höfum sett reglur um
bann viö togveiðum, sem eru þaö
strangar, að útlendingar fást
eiginlega alls ekki til að trúa, —
þvi að annars staðar eru heima-
menn viðast að veiða alveg upp i
landsteinum, eins og t.d. i Bret-
landi.
En auðvitað þurfum við þrátt
fyrir þetta að gera margt fleira i
friðunarmálum varöandi okkar
eigin veiöar, en það er ekki eins
einfalt og ýmsir vilja vera láta,að
banna t.d. bara að veiða fisk fyrir
Norö-austurlandi i 3 ár, eins og
tillögur hafa verið uppi um. Það
er auövelt að tala um slikt á götu I
Iteykjavik, en annað að standa
ábyrgur fyrir slíkri aðgerð gagn-
vart fólkinu i þeim sjávarþorpum
sem um ræðir. Það er vissulega
til staöar margvislegur ágrein-
ingur um okkar fiskfriöunarmál,
og t.d. telja ýmsir þekktustu
fiskifræðingar okkar ástæðulaust
að halda uppi jafn ströngum
bönnum við togveiöum og nú
gilda.
Þetta er aö slá fyrir neðan
beltisstað
Gunnar Thoroddsen minntist á
frumvarp fiskveiðilaganefndar-
innar, sem kom fram á siðasta
alþingi. Þetta mikla frumvarp,
sem samið var af nefnd þing-
manna úr öllum flokkum, kom
fram rétt fyrir þinglausnir, svo að
litið tóm var til að málið fengi þá
meðferð á alþingi sem efni stóðu
til. Það komu þvi fram óskir frá
meirihluta þingmanna um að
málinu yrði frestaö til næsta
þings. Þessi ósk var borin fram af
þingmönnum úr öllum flokkum,
m.a. öllum þingmönnum frá
Norðurlandi.
Þvi var svo haldiö fram á al-
þingi, að ég hefði stöðvað
frumvarpiö. Þvi minnist ég
þess t.d. að það var Sverrir Her-
mannsson, flokksbróðir Gunnars
Thoroddsen, sem kom I ræðustól
og sagöi, að slikur málflutningur
væri aö slá fyrir neðan beltisstað,
að ráðast á ráðherrann fyrir
þetta. Það erum við sem höfum
farið fram á þetta.sagði Sverrir
Hermannsson þá. En svo kemur
Gunnar Thoroddsen hér nú og
endurtekur slikar árásir.
Lúðvik sneri sér nú að þvi, að
svara spurningum, sem fram
höfðu verið bornar,og sagði m.a.:
Landhelgisgæslan hefur fyrir-
mæli um aö halda uppi fullri
gæslu. Stjórnmálaslit koma strax
til ef Bretar sigla inn meö
herskipin á ný. Bretar hafa enga
aðstöðu til að kúga okkur, — þeir
geta stoliö hér einhverjum fiski,
en eru dæmdir til að gefast upp
fljótlega. Það er vonlaust að friða
allar hrygningarstöðvar þorks-
ins algerlega, nema Is-
lendingar ætli aö hætta að
veiða fisk. Ekki þarf að efa,
að Breta hafi brotið hér af
sér að undanförnu varðandi
möskvastærð, en slikt er oft erfitt
að sanna. tslenska landhelgis-
gæslan hefur staöið sig vel. Það
er alltaf auðveldara fyrir okkur i
landi að finna að. Það er
misskilningur, að ég fari meö
yfirstjórn landhelgisgæslunnar.
Ég hef hins vegar sagt þaö nokkr-
um sinnum að ég vonaði aö togari
yrði tckinn og ég segi það enn.
Þeir sem unnið hafa að kynningu
landhelgismálsins erlendis eiga
þakkir skildar og nefni ég þar
Hannes Jónsson og Jónas Arna-
son og lika Pétur Guðjónsson,
sem ekki hefur falliö i þá gryfju
að vilja slaka eitthvað á I land-
helgismálinu, af þvi að annaö
kunni aö meiða einhverja hjá
NATO. Hann hefur sem sagt ekki
viljaö láta landhelgismálið vikja
fyrir NATO eins og nokkrir
flokksbræður hans.
Ég hef ekki viljaö blanda land-
helgismálinu og afstöðunni til
NATO saman. Með landhelgis-
málið hefur NATO ekkert að
gera, en þegar eitt NATO-rikja
brýtur tvimælalaust á okkur
NATO-samninginn með herskipa-
innrás, þá gerum við þá kröfu aö
NATO skipi þeim út.
En veit nokkur upp á hvaö
Gunnar Thoroddsen vill
semja?
Að lokum sagöi Lúðvik:
En nú ættu menn að hugleiöa
um hvað við Gunnar Thoroddsen
erum i rauninni að deila.
Ilalda menn að okkur greini á
um það, að Gunnar vilji 200 milur,
en ég ætli aö fara á hafréttarráð-
stefnuna og segja þar að viö vilj-
um bara 50 mllur, og ekkert nema
50 mflur?
Eða haldið þið að ágreiningur-
inn sé um það, að ég vilji miða
landhelgina við milufjölda, en
Gunnar vilji dýptarlinur á skakk
hringinn i kringum landið, en þó
megi veiða allsstaðar upp aö 50
milum næstu þrjú ár, eins og til-
laga Sjálfstæðisflokksins hljóö-
aði?
Eða haldið þið að það sé rétt,
sem hér er gefið i skyn, að ég sé
sá stóri þröskuldur, sem allir
samningar stranda á? Ég hef
sagt það skýrt og skorinort upp á
hvað ég gæti hugsað mér að
semja. Bretar vita það. Sjálf-
stæðisflokkurinn veit það. — En
veit nokkurt ykkar upp á hvað
Gunnar Thoroddsen vill semja?
Hefur hann sagt nokkuð um það?
Það er hægt að deila á mig fyrir
að standa nokkuö fast á tillögum
sem Islenska rikisstjórnin hefur
gert. En ef það eru einhverjir,
sem vilja slaka meira til,þá eiga
þeiraðkoma fram m.a. á þessum
fundi, eins og hér. Var það sem
mér heyrðist, að Gunnar væri að
segja eitthvað? — Jú, gerðu svo
vel Gunnar , komdu hérna upp I
pontuna!
Gunnar Thoroddsen gengur að
hljóðnemanum og spyr, hvort
rikisstjórnin ætli að standa við
fyrra tilboð sitt viö Breta um
117.000 tonn á ári.
Lúðvik heldur áfram:
Tilboð rikisstjórnarinnar til
Breta i vor var i mörgum liðum.
Það er misskilningur, að viö höf-
um nokkurn timan boðið þeim
117.000 tonn, þvi enda þótt talað
væri um 117.000 tonn sem
hámarksafla þá var um að ræða
margvislegar aðrar veiði-
takmarkanir, sem gera það harla
óliklegt, að þessum afla yröi
nokkru sinni náð. Einn forystu-
manna Breta i samningunum hef-
ur haldið þvi ákveðið fram, að
tilboð okkar þýddi 50.000 tonna
afla fyrir þá. Ég tel það nú of lága
tölu, en 117.000 er ugglaust of
hátt.
En ég hef sagt, að það sé engan
veginn vist aö tilboð okkar i heild
frá þvi i vor standi. Tilboðið var
miðað við stöðuna eins og hún
var þá, — áður en herskipa-
innrásin var gerð.
i
Gunnar tekinn aftur upp að
töflu
En hvað telur Gunnar Thorodd-
sen, að við eigum eiginlega að
vera að gera i samninga nú um
undanþágur frá 50 milum, ef
landhelgin á að verða 200 milur,
fyrir lok næsta árs, eða eigum við
kannski að telja okkur vera með
200 milna landhelgi, en heimila þó
veiöar innan við 50 milur? Ég
heyri aö Gunnar vill svara þessu.
— Gerðu svo vel Gunnar. —
Gunnar Thoroddsenjtemur aftur i
pontu og gefur nú yfirlýsingu um
að allar undanþágur frá 50 milum
eigi að hlada áfram þó fært sé út i
200 milur!!
Lúðvik heldur áfram:
Já svona vill Gunnar hafa það,
en ég er nú með þvi marki
brenndur að ég tel að við þurfum
að komast 50 milur fyrst til þess
aö ná út i 200 inilur. En Gunnar
vill láta dæma um 50 milurnar
okkar i Haag og þá sjálfsagt 200
milurnar Hka.
Það er annars ekki nema von,
að margir góðir og gegnir Sjálf-
stæðismenn eigi erfitt með að átta
sig á tilburðum flokksforystu
sinnar i landhelgismálinu. Og
mér er mætavel kunnugt um þaö,
að það eru fleiri en Pétur
Guðjónsson úr þeirra hópi sem
hafa aftur á móti býsna lika af-
stöðu til landhelgismálsins og ég.
Slikt hef ég orðið var við á mörg-
um fundum.
Framámenn Sjálfstæðisflokks-
ins um allt land eru reyndar al-
gerlega á öndverðum meiði viö
Morgunblaðið. Og ég vildi mega
ráðleggja Gunnari Thoroddsen aö
hætta aö elta Eyjólf Konráð
Morgunblaðsritstjóra i land-
helgismálinu, liann mun hvort
sem er ekki eiga Eyjölfi neitt gott
aö gjalda. Við erum tilbúnir að
bjóða Gunnar velkominn undir
okkar merki i landhelgismálinu.
Þar með var þessum sérstæöa
og sögulega fundi lokið. Ekki var
nú hrópað húrra, en ugglaust hef-
ur mörgum samherjum Lúðviks
verið húrrahóp i hug, en Gunnar
beit á jaxlinn.
Hafa ekki
Framhald af bls. 11.
að þetta hefur verið gert um
nokkur liðin áramót. llöllin hcf-
ur þá verið teppt frá þvi fyrir jól
og framyfir áramótin vegna
dansleikjahalds, þrátt fyrir þá
staöreynd að tslandsmótið i
handknattleik stæði sem hæst og
félögin þvi orðið að missa slna
æfingatiina i húsinu sem er þaö
eina I allri Reykjavík með lög-
lega vallarstærð. Og ekki nóg
með það, heldur hefur landsliðið
i handknattleik, sem notað hef-
ur jólahelgina og áramótin til
æfinga, oröiö að víkja einnig
vegna dansleikjanna.
Eins verður að þessu sinni.
Landsliöið verður I áriðandi
undirbúningi á þessum tima og
nú bætist körfuknattleikurinn
vift-_________ —S.dór
Hlálegt
Framhald af bls. 2.
að setjast i Háskðla tslands,
þá heilögu stofnun, til þess að
sækja sér frekari upplýsingar
um þær greinar sem þeir
kenna og hafa kennt. Háskóli
tslands er fyrir stúdenta, sem
ekki hafa kennt neinum neitt,
sem ekki hafa staðiö frammi
fyrir 20-30-40 nemendum og
þekkja þann vanda sem hverj-
um kennara er á höndum, fyr-
ir þá sem ekkert vita um
kennslu og enga reynslu hafa i
kennslu. Þeim eru deildir
Háskóla tslands opnar.
Rekstur Háskóla tslands á
þann hátt sem nú er, er auk'
þess að vera hlálegur, þjóð-
félagslega hættulegur. Það
hlýtur að vera þjóðfélagslega
hættulegt að skóli skuli ekki að
neinu meta reynslu manna og
þá þekkingu sem þeir afla sér
við störf, en einblina á
stúdentspróf, sem segir litið
um hæfi þess, sem það hefur
upp á vasann, til að stunda það
nám, sem hann ætlar sér: að
taka til náms i hinum ýmsu
greinum einvörðungu fólk sem
ekkert til þekkir, en úthýsa
þeim sem fyrir hafa reynslu
og þekkingu á þvi sviöi sem
námsbrautir skólans fjalla
um.
Það getur verið að slikt
háttarlag sé siður frá útlönd-
um, eða góðum og gömlum
dögum. En slikir siðir, þrátt
fyrir forsögu þeirra, eiga ekki
rétt á sér, nema að þvi sé
stefnt að framleiða sivaxandi
fjölda enn dugminni háskóla-
borgara en fyrir eru. Þaö ætti
ekki aö vera stefna eins né
neins. Það ætti þvi ekki að
veröa erfiöleikum háð fyrir þá
sem með völdin fara, að taka
upp skynsamlegri stefnu i
þessum málum. Það liggur
ljóst fyrir hvernig sú stefna
ætti að vera. Og það liggur
jafnljóst fyrir að beiti valdhaf-
ar ekki valdi sinu til úrbóta i
þessu efni og opni Háskólann
fyrir þeim sem þa ð eiga
erindi, hvort sem þeir ganga
með stúdentspróf upp á vas-
ann eða ekki, eru þeir aö vinna
þjóð sinni ógagn. — úþ
ER
EITTHVAÐ
AÐ
GERAST?
5 ný ungtemplarafélög verða
fimmtudaginn 2. október n. k.
Fáksheimilinu:
Fyrir Breiðholtshverfi.
Árbæjarskóla:
Fyrir Árbæjarhverfi.
Safnaðarheimili Grensássóknar
v/ Háaleitisbraut:
Fyrir Háaleitishverfi,
Bústaðahverfi, Fossvogs-
hverfi, Smáibúðahverfi.
stofnuð í Reykjavík
á eftirtöldum stöðum:
Kaffiteriunni i Glæsibæ,
2. hæð:
Fyrir Laugarneshverfi, Lang-
holtshverfi, Heimahverfi,
Sundahverfi.
Templarahöllinni
v/ Eiriksgötu, 2. hæð:
Fyrir Vesturbæ, Miðbæ,
Norðurmýri, Hliðar.
DANS — GLEÐI — OG ÍÞRÓTTIR
Allir fundirnir hefjast kl. 20,30. íslenskir
Lágmarksaldur: Fædd 1959 og fyrr. ungtemplarar