Þjóðviljinn - 19.03.1974, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur 1». marz 1074.
Islandsmótiö í blaki:
UMFB varð
íslands-
meistari
UMF Biskupstungna
varö íslandsmeistari í
blaki eins og flestir
bjuggust við, en liðið hefur
verið í nokkrum sérflokki í
því móti sem lauk sl.
sunnudagskvöld. Liðið er
skipað nemendum frá
iþróttakennaraskólanum á
Laugarvatni, sem keppa
undir merki UMFB. Helstu
andstæðingar þeirra voru
einnig frá Laugarvatni,
UMF Langdæia, en það lið
er að mestu skipað
kennurum frá skólunum á
Laugarvatni og má segja
að þessi tvö lið séu nær
ósigrandi fyrir önnur blak-
lið hér á landi, en í
uppgjörinu þeirra á milli
varð UMFB sterkara.
Um siðustu helgi fóru siðustu 5
leikir mótsins fram. Á laugar-
Aðalfundur
Víkverja
Ungmennafélagið Vikverji
heldur aðalfund sinn að Hótel
Esju sunnudaginn 24. mars n.k.
og hefst hann kl. 14.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verður rætt um starf-
semina á þjóðhátiðarárinu.
daginn sigraði UMF Biskups-
tungna UMS Eyjafjarðar 3:1.
Hrinurnar fóru 15:2 — 15:1 —
21:23 og 15:0. Þá sigraði UMF
Laugdæla ÍMA einnig 3:1, hrin-
urnar fóru 15:11 — 15:12 — 14:16
og 15:12.
Siðustu 3 leikirnir voru svo
leiknir i Laugardalshöllinni á
sunnudagskvöld. í fyrsta leiknum
sigraði UMF Laugdæla UMS
Eyjafj. 3:1; 8:15 — 15:2 — 15:2 og
15:6.
Þá var komið að leik 1S og
Vikings um 3. sætið i mótinu.
Þetta varð all sögulegur leikur
sem stóð i nær 2 tima, enda eins
jafn og frekast má verða. 1S
tryggði sér 3ja sætið með þvi að
sigra 3:2. Hrinurnar fóru þannig:
15:4 — 15:7 — 11:15 — 10:15 en
úrslitahrinuna vann svo 1S 15:13.
Siðasti leikur mótsins var á
milli UMF Biskupstungna og
IMA. UMFB varð að vinna
þennan leik til að hreppa íslands-
meistaratitilinn. UMFL hefði
unnið mótið ef UMFB hefði tapað
leiknum. En iþróttakennaraefnin
gáfu ekkert eftir og menntaskóla-
piltarnir frá Akureyri áttu aldrei
neina möguleika. UMFB sigraði
3:0, 15:9 — 15:9 og 15:10,og þar
með var Islandsmeistarastyttan
komin i þeirra hendur og verður
geymd næsta árið i iþrótta-
kennaraskólanum á Laugarvatni.
Röðin i mótinu varð þvi þessi:
1. UMF Biskupstungna.
2. UMF Laugdæla.
3. 1S
4. Vikingur.
5. ÍMA
6. UMS Eyjafjarðar.
Fram oröið
meistari í
mfl. kvenna
gerði jafntefli við Víking 10:10
og það dugði Fram-stúlkunum
til sigurs í mótinu
Fram varð íslandsmeistari i mfl. kvenna sl. sunnudag með þvi að
gera jafntefli við Viking 10:10 en Fram þurfti aðeins eitt stig úr
þeim tveim leikjum sem liðið átti eftir fyrir þcnnan leik til að
hreppa titilinn. Siðasti leikur mótsins milli Fram og Vals skiptir þvi
engu máli en þessi tvö lið liafa barist um íslandsmeistaratitilinn sl.
5 ár og eru og hafa verið í algerum sérflokki i kvennaboltanum.
Fram-liðið var greinilega þrúgað af taugaspennu i þessum leik,
enda mikið i húfi. i fyrstu gekk þó allt vel og útlit fyrir stórsigur. Til
að mynda var staðan í leikhléi 8:3 Fram i vil. En i slðari hálfleik
gekk allt á afturfótunum og leiknum lauk með jafntefli 10:10. Fram
skoraði þvi ekki nema 2 mörk allan siðari hálfleikinn.
En þetta dugði og Fram er orðið islandsmeistari i mfl. kvenna.
Annar leikur fór fram i mfl. kvenna á sunnudaginn en þá sigraði
Valur FH með miklum yfirburðum cða 17:6 cftir að hafa haft yfir i
leikhléi 8:3.
islandsmeistarar UMFB i blaki
*
i lf
2. deild í handknattleik:
I
Þróttur og Grótta
leika til úrslita
Þróttur tryggði sér úrslitaleik með því að sigra
KR 24:16
Það verður aukaleikur milli
Þróttar og Gróttu um það
hvort liðið leikur i 1. deild i
handknattleik næsta vetur.
Þróttur sá til þess sl. sunnu-
dag með þvi að sigra KR með
miklum yfirburðum eða 24:16
i siðasta leik þessara liða i 2.
deildarkeppninni. Úrslita-
leikurinn milli Gróttu og
Þróttar fer fram á laugardag-
inn kemur.
Leikur Þróttar og KR á
sunnudaginn var allan timann
heldur ójafn, Þróttarar höfðu
nær allan timann yfir, enda
höfðu þeir allt að vinna en KR
ekki neitt, og einkenndi það
leik KR-inga nokkuð.
i leikhléi hafði Þróttur yfir
8:6 cn KR tókst að jafna
snemma isiðari hálfleik 10:10.
Uppúr þvi tók Þróttur öll völd
á vellinum og komst i 17:10 og
þar incð var ekki lengur
spurning um hvort liðið myndi
sigra heldur hve stór sigur
Þróttar yrði og hann varð eins
og áður segir 24:16
Það verður áreiðanlega
skemmtilegur leikur þegar
Grótta og Þróttur leika til úr-
slita um hvort heldur áfram
upp i 1. deild. Þessi lið hafa
leikið saman tvisvar i vetur og
unnið sinn hvorn leikinn.
Þróttur sigraði Gróttu á Sel-
tjarnarncsinu. en Grótta
sigraði hinsvegar þegar liðin
mættust i Laugardalshöllinni.
Þetta er i 3ja sinn á 5 árum
sem Grótta stendur við inn-
ganginn i 1. dcild cn aldrei
hefur liðinu tekist að komast
innfyrir. Hinsvegar hefur
Þróttur ekki komist svona
nærri 1. deild frá þvi liðið féll
niður á sínum tima. Oft hefur
þó Þrótti verið spáð sigri í 2.
deild og svo var einnig nú og
kannski er loks komið að þvi
að Þróttur standi við fyrir-
heitið.
—S.dór
Svcinlaugur Guðmundsson skorar hér eitt af mörkum Þróttar I
leiknum gegn KR á sunnudaginn.