Þjóðviljinn - 06.07.1974, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. júll 1974.
APRICHOS KENJAR
Mynd: Franrvisco Goya y Lucientes
Mál: Guöbergur Bergsson
72. Þú munt
ekki sleppa
Sú léttfætta ætlar að dansa frá fortiðinnii
og illum öndum hórkarlanna. En hún mun;
ekki sleppa. Andar fortiðarinnar eru
stöðugt á eftir henni og hvisla i eyrað
minningum.
Stúlkan dansar ekki á neinu ákveðnu
sviði. Leikhús hennar er allur heimurinn.
Svipur andanna i kringum hana er dæmi-
gerður svipur gamalla kvennabósa, sem
eru orðnir svo soðnir i elli og vini, og
smurðir tóbakstjöru, að þeir fara ekki
lengur fram á neitt annað hjá ungum
stúlkum en að þær sitji aðeins við hliö
þeirra, meðan þeir supla sætvin. Stöku
sinnum leggja þeir lófa og skreytta fingur
á hnjákollinn á þeim, en sá, sem áður var
ansi fingralangur undir kjólfaldi þeirra,
liggur nú linur. Einstaka sinnum klipa
þeir stúlkurnar kannski i hökuna. Siðan,
þegar þeir eru einir á kaffihúsunum,
segja þeir af sér ótrúlegustu kvennafars-
sögur, útblásnir, feitir og þjáöir af bólgu I
blööruhálskirtlinum.
Þegar konur Goya stiga dansspor, stiga
þær alltaf sama sporið. Annað hvort hafa
þær verið einstaklega fákunnandi I dansi
(sjá mynd númer 61) eða Goya fákunn-
andi I listinni. A öllum dansmyndum
teygja stúlkurnar fram hægri fótinn og
baða út höndunum. Að hætti kvenfólks
manierismans eru þær fremur nettar að
ofan, mittið er langt, rassinn siöur og
lærin sver, eins og hafmeyjar á myndum
likar selum á þurru landi. Hábrjósta
konur með hekk þóttu afar rennilegar
fram á nitjándu öld. A málverkum
margra manierista hefur Ésúbarnið
sama likamsvöxt. Ésús er eins og feitt
selabarn og teygir oft hendurnar, eins og
stúlkan á mynd Goya, á móti móður sinni,
og sópar gólfið með siðum rassi, rauö-
bleikum, eins og Maria hafi ekkert gert
annað en flengja hann.
Línumenn
berjast
fyrir
hœrri
launum
°g
betri
að
búnaði
Frá Félagi islenskra línu-
manna hefur blaðinu borist eftir-
farandi greinargerð:
Vegna viðtals Þjóðviljans hinn
3. þ.mán., við Guðjón Guðmunds-
son skrifstofu- og starfsmanna-
stjóra Rafmagnsveitna rikisins
RARIK, vill Félag Islenskra linu-
manna taka fram eftirfarandi:
Linumenn hófu verkfall hinn 19.
júni s.l., og siðan þá hefur enginn
samningafundur verið haldinn i
deilunni. Ekki verða linumenn
varir við að RARIK hafi þann
áhuga á samningum, sem fram
kemur I téðu viðtali. Helstu kröf-
ur lfnumanna eru hærri laun og
bætturaðbúnaður, en hér er um
mjög erfiða og hættulega vinnu að
ræða, sem oft er unnin við sérlega
slæmar aðstæöur eins og t.d., við-
geröir I óveðrum sem eru algeng-
ar eins og alkunna er.
F.h. Félags Islenskra línu-
manna
Sigurður Sigmundsson, form.
Frá Menningar- og friðarsamtökum islenskra kvenna
Undirbúningur
kvennaársins
Reykjavik 25/3 1974.
Ágætu konur!
Þau gleðilegu tíðindi hafa nú
gerst, að Mannréttindanefnd
Sameinuðu þjóðanna hefur beitt
sér fyrir þvl, að beina athygli
heimsins að réttinda- og hags-
munamálum kvenna.
1 desember 1972 samþykkti
Allsherjarþing Sameinuðpu þjóö-
anna að árið 1975 skyldi helgað
málefnum kvenna, og að S.Þ. og
stofnanir þeirra beittu áhrifa-
valdi slnu eftirtöldum málum til
eflingar:
a) Að efla réttindi karla og
kvenna.
stefnu, sem haldin var i Finnlandi
dagana 10.-13. ágúst 1973, og voru
þær reifaöar af aðstoðar-aðalrit-
ara Mannréttindanefndarinnar,
Helvi Sipila frá Finnlandi.
Alþjóðasamband lýðræðissinn-
aðra kvenna (WIDF) neytti að-
stöðu sinnar innan Mannréttinda-
nefndarinnar til þess að nefndin
og siðan Allsherjarþingið tæki þá
mikilveröu ákvörðun að boða- tii
„árs kvenna”.
Undirbúningur „Kvennaársins
1975” var til umræöu á þinginu i
Dipoli I Finnlandi og var is-
lenski fulltrúinn Þórunn
Magnúsdóttir, varaformaður
M.F.I.K. Þau alþjóðasambönd
sem þarna áttu fulltrúa voru
meðal annars Alþjóðasamband
lýðræðissinnaðra kvenna
(WIDF), Alþjóðasamband
kvennrettindafélaga (IAW),
Alþjóðasamband háskólakvenna
(IEUW), Samband húsmæðrafé-
laga I Evrópu (EFU), Alþjóða-
sambandið til baráttu fyrir friði
og frelsi (WILPF), Alþjóðasam-
band versiunarkvenna (IFBPW),
svo nokkur sambönd séu nefnd.
Þess ber og að geta, að öll sam-
bönd finnskra kvenna voru sam-
eiginlega gestgjafar þingsins,
sem var afburöa vel skipulagt.
Menningar- og friðarsamtökum
islenskra kvenna er ljúft og skylt
að hafa frumkvæði að samvinnu
kvennasambanda, félaga, stofn-
ana, áhugahópa og einstaklinga
til undirbúnings „Kvennaárinu”.
Með þessu bréfi viljum við óska
eftir samstarfi, hvort sem það
yrði á þann hátt, að kosin væri
nefnd, eða samstarfsfulltrúi, eða.
á annan hátt sem viðkomandi
þætti best henta.
M.F.I.K. hefur þegar kosið
nefnd úr sinum hópi, undir for-
mennsku prófessors Margrétar
Guðnadóttur (simi 8-34-85),
einnig gefur upplýsingar Þórunn
Magnúsdóttir (simi 1-79-52.) Viö
vonum fastlega að sem flestar
konur leggi hönd á plóginn og erji
akurinn.
Virðingarfyllst,
Margrét Guðnadóttir,
formaður undirbúningsnefndar.
Þórunn Magnúsdóttir,
varaformaður M.F.I.K.
mga
Vegna þjóðhátiðar Vestfirðinga
i Vatnsfirði dagana 13. og 14. júli
mun Vestfirðingafélagiö i
Reykjavik efna til hópferöar á
hátlðina ef næg þátttaka verður.
Nauðsynlegt er að panta far fyrir
sunnudagskvöld I sima 1-54-13.
Allir Vestfirðingar eru velkomnir
i þessa ferð, bæði félagsmenn og
aðrir.
Hópferð
Vestfirð-
- og friðar-
samtökum íslenskra kvenna
b) að tryggja fulla þátttöku
kvenna i allsherjar framþróun
með þvi að leggja áherslu á
mikilvægt hlutverk þeirra og
ábyrgð á sviði fjármála félags-
og menningarmála, bæði á þjóð-
legum vettvangi og alþjóðlegum.
A það er og bent, að þetta er i
fullu samræmi við mannréttinda-
yfirlýsingu S.þ.,
c) að gera kunnugt það mikil-
væga starf, sem konur ynna af
hendi til styrktar friði i heimin-
um, og að friðsamlegri sambúð
þjóðanna.
Þessar efnisgreinar voru
kynntar á alþjóðlegri kvennaráð-
Snemma á siðastliðnu hausti
hófust M.F.l.K. handa um undir-
búning „Kvennaársins 1975”,
með kynningu á markmiðum þess
á fundum, i fréttatilkynningum til
fjöimiðla og með bréfum til
þeirra kvennasambanda og fé-
laga, er vænta mátti að hefðu
áhuga fyrir samstarfi að undir-
búningi árangursriks „Kvenna-
árs”. (Sjá meðfylgjandi bréf.)
Fjölmenn „Samstarfsnefnd
Kvennaársins” hefur nú tekið til
starfa, og verður verkefnum
nefndarinnar skipt á milli vinnu-
hópa, þannig að verkakonur og
opinberir starfsmenn vinni að at-
hugun á kjara- og atvinnumálum,
listakonur eru að undirbúa menn-
ingarviku, útgáfustarfsemi er
einnig i undirbúningi o.fl.
Þau félög og kvennasambönd,
sem ekki hafa enn látið formlega
vita, hvaða konur taka af þeirra
hálfu sæti i „Samstarfsnefnd
kvennaársins”, eru beðin að hafa
samband við M.F.l.K. við fyrstu
hentugleika. Sömuleiðis eru þau
sambönd, félög og starfshópar,
sem vilja vinna að glæsilegu
„Kvennaári 1975” beðin að láta
okkur vita, þó við höfum ekki snú-
ið okkur til allra aðila bréflega.
Laugardaginn 6. júli hefst
Eystrasaltsvikan I Rostock, og
verða sex islenskar konur á
kvennaráðstefnunni þar,. Eitt af
helstu umræðuefnum Kvenna-
ráðstefnu Eystrasaltsvikunnar að
þessu sinni verður undirbúningur
„Kvennaársins 1975”. Þarna
gefst gott gækifæri til þess að
taka höndum saman um að nota
þau mannréttindi sem við þegar
höfum á pappirnum.
Reykjavlk 7/7 1974
Stjórn M.F.í.K.