Þjóðviljinn - 06.07.1974, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 06.07.1974, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. júli 1974. innlend Kjötstyrjöld stendur enn Kjötstyrjöid hófst með skæruhernaði i Reykjavik skömmu eftir að landbúnaðar- vörur voru lækkaðar i verði fyrir rúmum mánuði. Ein skæðasta orrusta kjötstriðs- ins til þessa var við kjötbúr Sláturfélags Suðurlands fyrir skömmu er óli Þór kaupmað- ur hugðist sækja þangað kjöt til að selja i verslun sinni. Hann fékk ekkert kjöt i bilinn og lagði honum þá fyrir dyr kjötbúrs og kvaðst ekki hreyfa hann þaðan fyrr en hann fengi kjötið. SS-mennirnir á staðn- um hleyptu ekki úr byssum, heldur lofti úr hjólbörðum á bil kaupmannsins. Siðan mun vélaherdeild SS hafa rutt biln- um frá dyrunum með bryn- drekum sinum. Gæslusveitir lögreglunnar komu á vettvang eftir viðureignina, gerðu mæl- ingar á staðnum og blésu i dekkin á ný. Myndin er af bil kaupmannsins eins og hann var útleikinn eftir orrustuna (Ljósm. A.K.). Fjölbreytt skólastarf i MI Fyrstu stúdentarnir frá Menntaskólanum á Isafirði út- skrifuðust i vor. Starf MI var fjölbreyttara i vetur en nokkru sinni áður. Nám við skólann er skipulagt á þremur kjörsvið- um, þ.e. félagsfræðakjörsviði og raungreinakjörsviði, sem aftur skiptist á lokaári milli eðlissviðs og náttúrusviðs. A liðnu skólaári var i fyrsta sinn tekin upp kennsla i val- greinum, sem nemendur á 3. og 4. ári geta valið sér til við- bótar námi i kjarna og á kjör- sviðum. Helstu valgreinar sl. vetur voru: latina, rússneska, viðbótarnám i þýsku, sálfræði, tónlistarsaga og isl. og erlend- ar samtimabókmennir. Auk þess völdu raungreinamenn sér námsgreinar á félags- fræðikjörsviði eins og t.d. bók- færslu og rekstarhagfræði og nemendur á félagsfræðakjör- sviði völdu viðbótarnám i lif- fræði og haf/fiskifræði. Auk þess tóku nokkrir raungreina- menn I. stig vélstjóranáms við Tækniskóla Isafjarðar sem valgrein. Löggilt starfsheiti auglteiknara Félag íslenskra auglýsinga- teiknara er nýtt nafn á félagi þvi sem áður hét Félag is- lenskra teiknara. Nafninu var breytt á siðasta aðalfundi fé- lagsins vegna löggildingar Minnisvarði um I tilefni 1100 ára afmælis Is- landsbyggðar lætur Lög- mannafélag Islands reisa minnisvarða að Breiðabólstað i Vesturhópi með áletrun sem á að minna á að landslög voru fyrst skrásett á Breiðabólstað starfsheitisins auglýsinga- teiknari. Félagar i Félagi islenskra auglýsingateiknara eru nú 36 að tölu. Formaður er Guðjón Eggertsson. lagaskráninguna veturinn 1117—1118 að Hafliða Mássonar. Steinsmiðja S. Helgasonar h.f. hefur tekið að sér að gera og reisa varðann sem afhjúp- aður verður laugardaginn 20. júli nk. Breiðabólsstaður er kirkjujörð. BSRB í Bréfaskólann BSRB, Bandalagi starfs- manna rikis og bæja, hefur verið boðin aðild að Bréfa- skóla SIS og ASl og fara nú fram umræður um það mál. Þetta kom fram á aðalfundi SIS sem haldinn var að Bifröst i júnímánuði. Fundurinn sam- þykkti að efla Bréfaskólann og leggja áherslu á stuðning hans við störf leshringa og náms- hópa. Skólastjóri skólans er Sigurður A. Magnússon. Akureyrarstúdentar stofna NEMA N.E.M.A., Nemendasam- band Menntaskólans á Akur- eyri var stofnað 6. júni sl. af þessa árs afmælisárgöngum skólans, þ.e. þeim, sem eiga i ár 40, 25 og 10 ára stúdentsaf- mæli. Um 100 manns sóttu stofn- fundinn. Tilgangur félagsins er fyrst og fremst að auka kynni gamalla stúdentaár- ganga og treysta tengsl þeirra við skólann. Auk þess er fyrir- hugað að v.inna að bættri að- stöðu til félagsstarfa nemenda MA með gjöfum og fjárfram- lögum. RÚnólfur Þórarinsson var kjörinn fyrsti formaður sam- bandsins. Skatialœkkun eða hvað? Tailendingar mótmœla bandariskum herstöðvum Blóðugar óeirðir BANKOK 4/7 — Að ■— —. minnsta kosti fjórir menn voru drepnir og fjórtán særðir i Bankok, höfuðborg Tailands, i dag, er til heiftarlegra átaka kom milli lögreglu og mótmælafólks. Til þess að koma i veg fyrir frekari manndráp hafa stúdenta- samtök landsins frestað mót- mælaaðgerðum gegn herstöðvum Bandarikjanna i landinu þangað til i október. Aðgerðirnar, en þeirra helst var mótmælaganga, höfðu verið ákveðnar i tilefni þjóöhátiðardags Bandarikjanna, sem er fjórði júli. Öeirðirnar brutust út er lög- reglan handtók leigubilstjóra fyr- ir að hafa lagt bil sinum skakkt. Fólk safnaðist að og tók svari bil- stjórans, og færðist slikur hiti i leikinn að mannfjöldinn gerði á- hlaup á lögreglustöðina til þess að fá bilstjórann lausan. Skaut lög- reglan þá beint I hópinn og drap og særði marga. pi»p ,C/1. 'C' Aftenpostens tnedarbeider JOUN' CHOW'O — Reykjavik, 1. jull. Bet konservative Selvstemlighetspartiet, som er gátt markert j inn íor á beholde den amerikanske NATO-basen pá Keílavik, | cr klar seierhcrre 1 valget pá nytt Allting i Island. Folkeallian- sen (kommunistene) som er gátt Unot basen og islandsk NATO- mediemskap. Uar stort sett beholdt sitt rclativt sterke stilling | fra 1971, mens det fra fpr sá splittede Liberale Venstre er vai- gets taper. Fremskrittspartiet har ert Utcn fremgang, og Sosial- demokratcne cr gátt endcl tilbakc. Men valget har ikke gitt noc r.nitdig svar pá regjertegssporx- niálet, og det forestár trolig hardc koaiisjonídroftelser dersom ikite de to storste jiartiene — Selvsten- dighetspartiet og Fremskrittsi>ar- ' ' skulte hli enige om en stor- koalísjon. Om sá skjer, vil de ráde i over et fiertall pá cirka 43 av 60 il AUtingct. Det er stadig ganskel mye som taler for at et slikt sam~| Fortsatt siste side Norsk blöð kalla Sjá Ifs tœðisflokkinn ÁHANGENDUR KEFLAVÍKUR Þótt þetta atvik yrði til þess að hleypa óeirðunum af stað, fer ekki milli mála að ástæðan til þeirra er fyrst og fremst mikil reiði almennings vegna ítaka Bandarikjanna i landinu, en þeir hafa þar fjölmennar herstöðvar sem þeir meðal annars hafa notað til loftárása á Indókina. Opinber spilling og þjóðfélagslegt misrétti hefur lika gert sitt til þess að vekja reiði almennings. Stú- dentasamtökin hafa hér sem við- ar forustu i baráttunni, en ekki fer á milli mála að þau hafa við- tækan stuðning meðal almenn- ings. I október i fyrra voru mörg hundruð manns drepnir I óeirðum i Bankok, og lauk þeim ekki fyrr en þáverandi stjórn, sem var sér- staklega illræmd fyrir kanadekur og spiilingu, lét af völdum. En mörgum finnst sem þeir valds- menn sem tóku þá við séu ekki stórt betri. Stúdentasamtökin ákváðu að fresta mótmælagöngunni, sem átti að leggja af stað rétt i þann mund sem óeirðirnar hófust, eftir fund með forsætisráðherranum. Þess I stað héldu samtökin fjölda- fund til þess að leggja áherslu á kröfur sinar um að bandarísku herstöðvarnar I landinu verði lagðar niður. Það er oft fróðlegt að fylgj- ast með þvi hvernig erlend biöð skrifa um islenska at- burði. Þjóðviljanum hafa bor- ist úrklippur úr norskum i- haldsblöðum um kosningaúr- slitin. 1 fyrirsögn Aftenposten dag- inn eftir kosningar segir: „Fylgismenn Keflavikur i sókn”. Það er engu likara en ný nafngift sé komin á Sjálf- stæðisflokkinn þ.e. Keflavik- ............ urflokkurinn. Daginn eftir segir i sama blaði að kosning- arnar hafi leyst deiluna um herstöðina I Keflavik og gert ráð fyrir að aðeins verði um minniháttar breytingar á ,,varnarsamningnum ” að ræða eftir þessi úrslit. Þá er gert ráð fyrir að liklegasta niðurstaða um stjórnarmynd- un verði sterk samsteypu- stjórn Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.