Þjóðviljinn - 08.09.1974, Side 1

Þjóðviljinn - 08.09.1974, Side 1
UÚÐVIUINN Kennslubækurnar og skólavörurnar Bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18 Sunnudagur 8. september 1974 — 39. árg. 170. tbl. Ahrif á vísitöluna: Um 15 stiga hækkun vegna aðgerða stjórnarvalda Þjóðviljinn hefur kannað áhrif efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar síðustu tvær vikurnar á vísitölu framfærslukostnaðar. Samkvæmt þeirri könnun bendir margt til þess að vísitalan hækki um ca. 14 stig einungis vegna þeirra aðgerða sem núverandi ríkisstjórn ber ábyrgð á. Kaupgreiösluvisitalan heföi átt aö hækka i 122,58 1. sept. sl., en þaö geröist ekki vegna þess aö bráöabirgöalögin frá i vor um frestun á greiöslu verölagsupp- bótar voru framlengd um einn mánuö. Gildistimi þeirra rennur út 1. október en fyrir þann tima mun ætlun rikisstjórnarinnar aö gera ráðstafanir meö setningu bráðabirgöalaga. En eftir að visi- talan var reiknuð út miöaö viö verölag 1. ágúst eiga sér staö miklar breytingar á verölagi sem skerða þegar verulega kjör launafólks. Þessarbreytingar eru helstar, mælt i visitölustigum: Hækkun landbúnaðarvara 3,5 stig. Þessi hækkun er að mestu leyti þegar fram komin, en inni i tölunni er einnig um að ræða hækkanireftir að haustverö hefur tekiö gildi. Hækkun þjónustugjalda i Reykjavik 2,6 stig. Hér er átt viö þá hækkun sem borgarráð Reykjavikur hefur samþykkt á hitaveitu (um 41%), rafveitu (um 30%) og strætisvagnafargjöldum (um 56%). Hækkunarbeiðni borgarstjórn- arfhaldsins liggur hjá ríkisstjórn- inni, en ekki er annað vitað en að Geir Hallgrimsson hyggist hleypa hækkunina i gegn. Vegna gengislækkunar 6—7 visitölustig. Vegna fyrirhugaðrar hækkunar á bensini 0,7 stig, (frá 9. september). Vegna söluskattshækkunar 1,9 stig. Tekur gildi 1. október. Aðrar hækkanir af ýmsu tagi 2—4 stig. Samtals er þvi hér um að ræða hækkanir upp á 14,8—17,8 stig? þar af er hækkun beinlinis vegna aðgerða rikisstjórnarinnar um 13—16 stig á visitölunni. Þessar hækkanir koma til framkvæmda á misjöfnum timum, en til þessa verður óhjákvæmilega að taka tillit i kröfugerð verkalýðsfélag- anna á hendur rikisstjórninni. Ráðstafanir sl. vor Þegar visitöluuppbótum var frestað frá 1. júni sl. gerði fyrr- verandi rikisstjórn um leið ráð- stafanir til þess að frestuniii yrði að fullu bætt með auknum niður- greiðslum,með þvi að halda niðri öllum almennum verðhækkunum á timabilinu svo sem frekast var unnt. Þannig var i þeim ráðstöf- unum tryggt að launamenn héldu óbreyttum kaupmætti miðað viö það sem samið var um i febrúar i vetur. Þær hækkanir sem núver andi rikisstjórn hefur ákveðið einhliða koma hins vegar allar til skerðingar á kaupmættinum þar sem engar aðrar ráðstafanir hafa Framhald á bls. 13 Sigurður Líndal um kana- sjónvarp „Þeir sem eru betur efnum búnir. Þeir sem eru i forystu i atvinnulifi, þeir leggja að öðru jöfnu meira upp úr stöðug- íeika og öryggi i þjóðfélaginu. Þessir menn lita á herinn sem afl til að styrkja þennan stöð- ugieika, það er að segja, hið óbreytta ástand... Herínn hér á landi hefur forgangsrétt hér til fjölmiðlunar. Hann tekur sér rétt, að visu óiöglega, sem engin innlend samtök hafa... það er undarlegt að menn skuli bera þennan „rétt” er- lends herveldis svona fyrir brjósti”. Sigurður Lindal, laga- prófessor, ræðir i blaðinu i dag við blaðamann Þjóðviljans um hermannasjónvarpið og af- leiðingar þess. Sjá Opnu. Fiskmatið hundsar Hvað kosta skólabækur ? landslög Anna Einarsdóttir af- greiðslustúlka í bókabúð Máls og menningar heldur hér á því veganesti sem byrjandi í menntaskóla leggur upp með á þessu hausti. Raunar er það nokkuð meira, því nokkur hluti námsefnisins er fjöl- ritaður og seldur í skólun- um sjálfum. — Sjá 3. síðu Fiskmat rikisins hefur ekki auglýst lausa stöðu til umsóknar mörg undanfarin ár. Fiskiðnaðarmaður einn, út- skrifaður úr Fiskvinnsluskólan- um, hafði samband við Þjóðvilj- ann og sagði það undarlega lög- leysu, að rikisstofnun skuli líðast að auglýsa aldrei þau störf eða stöður, sem hjá henni losna. Sam- kvæmt lögum, er rfkisstofnunum skylt að auglýsa lausar til um- sóknar þær stöður sem losna. Fiskiðnaðarmaðurinn fullyrti, aö nú væru sex ár siðan Fiskmat rikisins siöast auglýsti stöðu. Þjóðviljinn hefur aflað sér upp- Hefur ekki auglýst lausa stöðu um árabil, en rœður menn eftir öðrum leiðum lýsinga um, að upplýsingar iðn- aðarmannsins eru réttar — amk. er áreiðanlegt, að liðin eru mörg Flokksþing Alþýðubandalagsins 1974 Samkvæmt ákvörðun miðstjórnar, verður flokksþing Alþýðubandalagsins haldið í Reykjavík dagana 21. tii 24. nóvember 1974. — Dagskrá þingsins verður auglýst síðar og send formönnum flokksfélaga með bréfi. F.h. miðstjórnar Alþýðubandalagsins Ragnar Arnalds. ár frá þvi siðast var auglýst laus staða við Fiskmatið. Vitað er að við Fiskmatið, eins og aðrar stofnanir, er jafnan tals- verð hreyfing á starfsmönnum, þannig að af og til losna störf hjá stofnuninni, sem henni er skylt að auglýsa. Heimildarmaður Þjóðviljans skýri-svo frá, að hjá Fiskmatinu hefði sú regla verið viðhöfð, að þeir starfsmenn sem fyrir væru hjá stofnuninni, færðust upp eftir stöðuskalanum, eftir þvi sem störf losnuðu. en einnig væru ráðnir til stofnunarinnar utanað- komandi aðilar, „sem vitað er að eru hinir hæfustu menn”, sagði heimildarmaður okkar. Enginn úr Fiskvinnslu- skólanum hefur fengið vinnu Enginn þeirra, sem útskrifast hafa úr Fiskvinnsluskólanum, hefur fengið vinnu við Fiskmat rikisins, en Þjóðviljanum er kunnugt um, að ýmsir fiskiðn- aðarmenn hafa leitað eftir störf- um þar. Fiskiönaðarmenn úr Fisk- vinnsluskólanum hafa margir fengið vinnu sem verkstjórar i frystihúsum eða hjá sölusamtök- um, SIS og SH, að þvi er skóla- stjóri Fiskvinnsluskólans tjáði Þjóðviljanum, en hann kvað sér ekki kunnugt um að útskrifaöir nemendur hans væru i vinnu hjá Fiskmatinu. —GG

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.