Þjóðviljinn - 08.09.1974, Page 3

Þjóðviljinn - 08.09.1974, Page 3
Sunnudagur 8. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Verkaskipting í sjávarútvegi Þessa ágætu mynd fékk siðan senda frá starfsmanni I Útvegs- bankanum með eftirfarandi skýr- ingu: „Ólík starfsskipting kynjanna i islenskum útvegi. Myndin og máiverkið skýra sig sjálf”. Það gera þau svo sannarlega, en myndin er greinilega úr bók á ensku um starfsemi bankans. Ekki getum við stillt okkur um að birta um leið aðra mynd af verka- skiptingunni i sjávarútveginum, ofna mynd Hildar Ilákonardóttur af konum i fiskvinnu og verk- stjóra þeirra. „Skólabókaflóðið” Hvað kosta bœkurnar? Athugið útgjöld þeirra sem eru að hefja nám við menntaskóla Það er árviss viðburður þegar skólarnir byrja að blöðin geri sér mat úr kostnaði skólabóka. Trúir þeirri hefð útveguðu Þjóð- viljamenn sér bókalista fyrir fyrsta bekk við Menntaskólann við Tjörn- ina og fengum svo af- greiðslufólk Máls og menningar til aðstoðar við að verðleggja listann. Við skulum hugsa okkur að bus- inn okkar sé af alþýðuheimili þar sem langur vinnudagur hefur komið I veg fyrir að foreldrarnir geti varið miklum tíma i að kynna sér þau göfugu fræði sem menntaskólar bjóða upp á og þvi sé ekki um auðugan garð að gresja þegar leita skal að göml- um skólabókum. Þær sem til kunna að vera eru visast orðnar gamlar og búið að skipta um. Ef businn þarf að kaupa allar bækurnar þarf hann að sjá af um 11 þúsund krónum i hendurnar á afgreiðslufólki bókabúða. (Þessi tala er ónákvæm þar sem tafir urðu á þvi að kennslubækur bær- ust á réttum tima til landsins vegna gjaldeyrisástandsins.) Ofan á þetta bætast á að giska 2500 krónur fyrir fjölrituð hefti sem seld eru i skólanum og notuð eru við kennslu i sumum grein- um. Orðabækur dýrar En sé businn fátækur af orða- bókum fer gamanið að kárna. Ödýrasta orðabókin er ensk- enska orðabókin Advanced Learners sem mikið er notuð i menntaskólum en hún kostar 1.065 krónur. Nudansk ordbog kostar 1.620 krónur og Brockhaus hin þýska 1.245. En vilji hann fá sér islenskar orðabækur kosta þær sém hér segir: islensk-frönsk 1.488 kr., islensk-ensk 2.106 kr., þýsk-islensk 2.527 kr., og dönsk- islensk 2.925 kr. Þá höfum við afgreitt bækurn- ar. Til þess að eitthvert lag verði á náminu verður businn okkar að fá sér alls kyns önnur skólagögn. Al- geng gerð af stilabókum kostar 47 krónur en þær má einnig fá fyrir allt að 175 krónur. Lausblaða- mappa kostar 200 krónur og 100 blöð i hana kosta 160 krónur. Hver nemandi þarf minnst eina stila- bók fyrir hvert fag og gott er að hafa eina til tvær lausblaðamöpp- ur að auki. Svo má gera ráð fyrir að endur- nýja skriffærakost sinn og þá kostar algengur skólapenni 700 krónur. Sé skólataskan orðin slit- in kosta hinar vinsælu strigatösk- ur tvö þúsund krónur. Einnig mætti tina til alls kyns smádót, blýanta, bókaplast, strokleður o.fl. 20 þúsund Og ef undirritaður þekkir is- lenska menntaskóla rétt má bú- ast við þvi,að nýir kostnaðarliðir eigi eftir að lita dagsins ljós þegar liða tekur á veturinn. En ef við höldum okkur við of- angreindan lista eru útgjöld bus- ans okkar ekki langt innan við tuttugu þúsund krónur i upphafi vetrar. —ÞH Húsbyggjendur — Einangrunarplast Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-Reykjavikur- svæðið með stuttum fyrirvara. Afhending á byggingarstað. HAGKVÆM VERÐ. GREIÐSLUSKILMALAR Borgarplast hf. Borgarnesi Sími: 93-7370. Tilboð óskast Stjórn Verkamannabústaða i Reykjavik óskar eftir tilboðum i raflögn i 308 ibúðir i Seljahverfi i Reykjavik. Útboðsgögn verða afhent i Lágmúla 9, 5. hæð, gegn 10 þúsund króna skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð föstudaginn 27. september 1974. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Sigmundar Helgasonar bónda á Núpurn Vandamenn

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.