Þjóðviljinn - 08.09.1974, Page 7
Sunnudagur 8. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
KUBA
Háskalegasta atlaga Bandarikjanna gegn kúb-
önsku byltingunni var varla innrás sú, sem utan
Kúbu er venjulega kennd við Svinaflóa en á Kúbu
sjálfri við Playa de Girón, heldur það viðskiptalega
hafnbann, sem sett var á Kúbu i þeirri von að svelta
landsmenn til uppgjafar fyrir bandariska auðvald-
inu. Þetta var i sannleika geigvænleg atlaga, þvi að
á þeirri tið — fyrir um tólf árum — voru áhrif
Bandarikjanna slik að með þessu móti gátu þau þvi
sem næst einangrað Kúbu viðskiptalega og pólitiskt
frá gervöllum heiminum utan sósialisku rikjanna.
Þessa dagana hefur Fidel Castro fulla ástæðu til aö hefja sigurfána hátt
á loft, eins og hann gerir hér i heimsókn til yfirrábasvæöis Þjóöfrelsis-
fylkingarinnar I Suöur-VIetnam.
Viðskiptabannið er
að verða að engu
Ríki Rómönsku-Ameríku vingast viö Kúbu
Til þess að bjarga sér úr heljar-
greipum bandarisku auðhring-
anna uröu kúbanir I snarheitum
að flytja öll sin viöskipti til sósial-
Isku rikjanna, einkum Sovétrlkj-
anna, og enn I dag eru þau helstu
viðskiptalönd þeirra. Þetta hefur
allt saman gengiö dável, og þaö
eina, sem bandarlski auðskrillinn
hafði upp úr ofsóknum sinum á
hendur kúbönum var aö stæla þá I
þeim ásetningi aö koma sinni
sósialisku byltingu á legg og
treysta tengsli þeirra við Sovét-
rlkin og önnur sósialísk rlki.
Sjaldan hafa vopnin snúist jafn
herfilega I höndum nokkurs stór-
veldis og Bandarikjanna I þessu
tilfelli.
Háðulegasti ó-
sigur kanans
Þótt viðskiptabannið á Kúbu
misheppnaðist þannig að visu, fór
ekki hjá þvi að það ylli kúbönum
miklum óþægindum og tjóni.
Fyrir byltingu höfðu viðskipti
Kúbu einkum verið við lönd Ame-
rlku og Vestur-Evrópu, og það
segir sig sjálft aö það er ekki tek-
ið út með sældinni fyrir neitt riki,
slst af öllu vanþróað og sárfátækt
eins og Kúba þá var, að flytja öll
utanrikisviðskipti sln I einum
hvelli yfir á rlki, sem lltil við-
skipti voru við áður.
Nú er hinsvegar svo komið að
viðskiptabannið er ekki mikið
meira en dauður bókstafur og
minnismerki um háðulegasta
pólitiska ósigur, sem bandarlska
auðvaldið hefur nokkru sinni beð-
ið. Og jafnframt vitnisburöur um
hverju litil þjóð fær áorkað gegn
margföldu ofurefli, ef hún á til
manndóm og virðingu fyrir sjálfri
sér. Þvi miður fer þvi fjarri að
allar smáþjóðir hafi sllkt I jafn-
rikum mæli og kúbanir.
ViðsKipti Kúbu eru enn sem
fyrr segir fyrst og fremst við
Sovétrikin og önnur sósialisk rlki,
en viðskipti þeirra við önnur rlki
fara hraðvaxandi, þar á meðal
riki sem ekki eru vinsamlegri
kommúnistum en Japan og
Spánn. Og tvö siðustu árin hafa
sjö Amerikuriki tekið upp opinber
samskipti við Kúbu og virða
þannig að vettugi þá pólitisku og
viöskiptalegu einangrun, sem
bandalag Amerlkurikja (OAS)
hafði dæmt Kúbu I að skipan
Bandarikjanna.
Vináttutengsli Kúbu
og Panama
Slðast þessara sjö rlkja til þess
að taka upp eðlilegt samband við
Kúbu var Panama, en siðla i
ágúst sendi stjórn þess þrjátiu
manna sendinefnd til Havana.
Voru fagnaðarlætin mikil við það
tækifæri og mátti ekki á milli sjá
hverjir kátari voru, kúbanir eða
gestirnir. Þessi endurupptaka
sambands við Kúbu er að sjálf-
sögðu af Panama hálfu öðrum
þræði leikur i pólitiskri skák gegn
Bandarlkjunum, sem halda Pan-
amaskurðinum og talsverðu
svæði báðum megin viö hann
samkvæmt nauðungarsamningi
frá þvi um aldamót. Panama-
menn hafa margsinnis krafist
leiðréttingar þeirra mála, en auð-
vitað ekki fengið.
Onnur Amerikurlki, sem tekið
hafa upp stjórnmálasamband og
viðskipti við Kúbu síðustu tvö ár-
in eru Perú, Argentina, Jamaika,
Gvæana, Barbados og Trini-
dad-Tabagó. Þar við má bæta
Mexikó, sem eitt Amerikurikja
hlýðnaðist aldrei skipuninni frá
Washington um slit stjórnmála-
sambands við Kúbu. Perú, þar
sem tiltölulega vinstrisinnuð og
umbótagjörn herforingjastjórn er
við völd, er I áberandi miklum
kærleikum við Kúbib, Raul Castro
varnarmálaráðherra Kúbu og
bróðir Fidels, var þar I opinberri
heimsókn I siðastliönum mánuði
og var tekið þar með sérstökum
fögnuði og viðhöfn af háum sem
lágum. Argentina er þegar komin
I röð mestu viðskiptalanda Kúbu,
og má segja að siðan Peron sneri
aftur hafi argentinumenn haft
forustu um að rjúfa viöskipta-
bannið á Kúbu. Rétt áður en
Peron gaf upp öndina veitti hann
Kúbu 1,2 miljarðs dollara lán til
þess að kaupa argentinskar vörur
og I júll höfðu argentlnumenn
skammt frá Habana mestu vöru-
sýningu, sem þeir hafa nokkru
sinni haldið erlendis. Og snemma
þetta ár fóru þeir að selja kúbön-
um bila i stórum stil, þar á meðal
marga sem framleiddir eru af
útibúum bandariskra fyrirtækja I
Argentinu. Með þessu eru argen-
tlnumenn öðrum þræði að sýna
Bandarikjunum fram á að I
Argentinu liðist bandariskum
auðhringjum ekki að
vaða yfir hausinn á ríkisstjórn-
inni, eins og annars hefur verið
reglan i Rómönsku-Ameríku og
víðar. Fjölþjóðlegu auðhringarn-
ir, sem mestu ráða um verslun og
viðskipti i heiminum utan sósial-
Isku landanna og bandarísk
fyrirtæki eiga mest i, voru ein-
mitt eitt áhrifarikasta vopnið I
höndum Bandarikjastjórnar til að
tryggja framkvæmd viðskipta-
bannsins á Kúbu.
Viðurkennir
Ford ósigurinn?
Slöan 1969 hafa viðskipti róm-
ansk-amerískra rlkja við Kúbu
fimmfaldast, og nú róa nokkur
rómansk-amerisk riki að þvi öll-
um árum að siðustu hindrununum
I vegi eðlilegra samskipta við
Kúbu verði rutt úr vegi. Gert er
ráð fyrir að þetta mál verði borið
upp á þingi OAS, sem er að hefj-
ast þessa dagana. Kostariku-
menn eru sagöir sérstaklega
áhugasamir um þetta, og er haft
eftir utanrikisráöherra þeirra,
Gonzalo Facio, að seytján af tutt-
ugu og fjórum OAS-rikjum væru
reiðubúin að greiöa atkvæði með
þvi að viöskiptabanninu væri létt
af Kúbu. Það myndi þýða að
bannið væri opinberlega numið úr
gildi. Aðeins örgustu afturhalds-
rikin eins og Bólivia, Chile, E1
Salvador, Nlkarakva, Paragvæ
og Brasilia eru talin likleg til þess
að vilja halda áfram að fjand-
skapast við Kúbu.
Þegar svo er komið, spá þvl
margir að Bandarikjastjórn láti
sjálf ekki lengi dragast að taka
upp eðlilegt samband við Kúbu.
Gerald Ford smælar nú framan I
þjóð sina og heiminn sem mest
hann má og gerir allt til þess aö
láta svo lita út að með honum sé
nýr og betri maöur kominn I
Hvita húsið, þaö sé nú eitthvað
annað en skattsvikarinn og inn-
brotsþjófurinn hann Nixon. 1
samræmi við þetta er trúlegt að
Ford sjái sér hag i þvi að taka upp
eðlilegt samband við Kúbu, þótt
svo að sú viðurkenning væri um
leið viðurkenning bandarlska
auðvaldsins á háðulegum pólit-
iskum ósigri þess.
dþ.
4 0ÓÓÓÓ& fcr
2 000.000 —
800-000 —
0,000 000
y -
16 400 000 —
—r*