Þjóðviljinn - 08.09.1974, Page 9

Þjóðviljinn - 08.09.1974, Page 9
Sunnudagur 8. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 3ð snúa Sinfóníuhljómsveit Islands: Starfsárið 1974-1975 alþjóðlegt sjónvarp, sem er nú alltaf verið að tala um, þá er það að sjálfsögðu allt annars eðlis. Það sem er sérstaklega athuga- vert við hersjónvarpið, er þessi forgangsréttur bandarlkja- manna, aðstaða þeirra hér um- fram alla aðra. önnur áhrif eru augljós. Staða hersins I þjóöfélaginu er önnur nú en fyrir tuttugu árum. Fyrir tutt- ugu árum var það nokkurn veginn viðurkennt, að herinn væri nauð- synlegt böl. Enginn taldi hann æskilegan. Jafnvel þeir sem vildu hafa herinn hér, töldu hann nauð- synlegan, litu á hann sem óæski- legan. Næu er enginn vafi á að herinn er orðinn mjög vinsæll meðal stórs hluta þjóðarinnar. Þar ber margt til, en ég álit að þessi fjölmiðlunarstarfsemi hers- ins hafi ráðið þar mestu um, og björgunarstarfsemin. Og nú gæti farið svo, að stjórn- málamennirnir færu að keppast um að notfæra sér vinsældir hers- ins, keppa um vinsældir meðal á- kveðins hluta þjóöarinnar. Vegir yfirvaldanna.... Rikið hefur einkarétt á útvarpi hérlendis. Og stundum hafa yfir- menn ríkisútvarpsins talað nokk- uð digurnarkalega um að herinn brjóti þennan einkarétt með út- varpi sinu og sjónvarpi. Njörður P. Njarðvik sagði t.d. þegar hann tók við formennsku i útvarpsráði, að nú ætti að loka i krafti einka- réttar útvarpsins. Þrátt fyrir þetta er ekkert gert. Hvers vegna? Það er eins og menn vita, að vegir yfirvaldanna eru litt rann- sakaniegir. Það er ljóst að bæði útvarps- og sjónvarpsstöðin eru ólöglegar. Og ég hef sjálfur rök- stutt þetta á prenti, án þess að rökstuddum andmælum hafi ver- ið breytt. Það hefur ekki stafur i minni röksemdarfærslu verið gagnrýndur á prenti. Þaö kemur llka I ljós, að út- varpið hundeltir hvern þann mann sem eitthvað fitkar við út- vörpun. útvarpið er stöðugt á hælum ýmissa áhugamanna, sem eru að fást við þetta, en þegar kemur að þeim sem meira mega sln, þá virðist annað hljóð komið i strokkinn. Mér þótti hálfundarlegt, að ut- anrlkisráðherra þyrfti að fara til Washington til að semja um lok- um stöðvarinnar. í varnarsamn- ingnum er varnarliðið skuldbund- ið til að fara eftir islenskum lög- um. Það fékk á slnum tima leyfi til útvarps- og sjónvarpsreksturs, að vlsu með vafasamri lagaheim- ild, en þegar nýju útvarpslögin voru gengin I gildi, var skylt að afturkalla þetta leyfi. Og um það þurfti ekki neina samninga við Bandarikjamenn. Andlegur skæruhernaöur Sumir halda þvl fram að fjöl- miðlunarstarfsemi Amerikana hér sé andlegur skæruhernaður til að venja okkur við herinn. Aðr- ir að útvarpið sé aðeins hugsað sem dægradvöl fyrir dáta. Ilvað heldur þú? Ég hygg að þetta sjónvarp sé fyrst og fremst afþreying fyrir hermennina, og hafi I upphafi verið hugsað þannig. Hitt er ann- að mál, að ég hygg að sú auka- verkan sem sjónvarpið gæti haft, þ.e. að festa herinn I sessi hér, hafi ekki þótt neitt verri frá sjón- armiði bandarikjamanna. Við vitum að áróðri er mikið beitt I á- tökum stórveldanna. I Vietnam var hersjónvarp bandarikja- manna undir yfirstjórn sálfræð- inga hersins. Nú mun það staðreynd, að her- mannasjónvarp á vegum banda- rikjamanna, er hvergi rekið i Vestur-Evrópu eða annars stað- ar, nema I Vietnam. Bandarikja- menn ráða yfir miklum hernáms- svæðum og herjum i Evrópu, en" sjónvarp er aðeins rekið hér. Já, og.þetta sýnir, að við islend- ingar sættum okkur ákaflega vel við að vera meðhöndluð sem ann- ars flokks þjóð. Finnst þér liklegt, að hægri menn taki upp breytta stefnu gagnvart hernum. Muni einhvern tima senda hann til sins heima i þeirri trú að með þvf siái þeir vopn úr hendi vinstri manna? Það finnst mér óliklegt. En þegar að þvl kemur að þeir þurfa að borga herkostnaðinn, eins og aðrar þjóðir þurfa að gera, þá munu þeir vilja losa sig við her- inn. Aö kljúfa þjóöina Eins og við höfum orðið vör við i vor og sumar, með undirskrifta- söfnun „Varins lands”, þá skipt- ist þjóðin i tvær fylkingar. Getur þessi skipting ekki haft varanleg áhrif á landsmenn? Ég hef áður haldið þvl fram, að varanleg áhrif hersins og sjón- varpsins gætu orðið mjög háska- leg. Þau gætu valdið alvarlegum klofningi i Islensku þjóðfélagi, og þá skulum við hafa það I huga, að islenskt þjóðfélag er ákaflega heillegt, ef svo má segja. Agrein- ingsatriði á Islandi, snerta ekki nein grundvallaratriði, eins og víða annars staðar. Við getum nefnt sem dæmi Irland, Kýpur, eða jafnvel Frakkland, þar sem menn greinir á um grundvallar- atriði stjórnskipunar. Þó að við deilum hart, þá eru hér engin verulega djúpstæð ágreinings- atriði, sem varða bókstaflega undirstöðu þjóðfélagsins. Ég tél að við langvarandi erlend áhrif, sé hætta á þessu. Þessa hættu má alls ekki vanmeta. Þegar, og ef það kemur raunverulega fram, þá verður of seint að snúa við. Starfsárið 1974/75 er um það bil að hefjast, og verða fyrstu tón- leikarnir 3. október og siðan ann- an hvern fimmtudag. Norski hljómsveitarstjórinn Karsten Andersen hefur verið enduurráð- inn sem aðalhljómsveitarstjóri. Aðrir hljómsveitarstjórar verða Vladimir Ashkenazy, J.P. Jac- quillat frá Frakklandi, Kari Tikka frá Finnlandi, Kobert Satanowsky frá Póllandi, Samuel Jones frá Bandarikjunum, Al- berto Ventura frá ttallu, svo og Páll P. Pálsson. Einleikarar og söngvarar verða þessir: Ralph Kirshbaum, celló- leikari, Michael Roll pianóleik- ari, Vaclav Hudecek fiðluleikari, Gunnar Egilson, klarinettleikari, Sheila Armstrong sópran, Dag- mar Simonkova pianóleikari, André Previn pianóleikari. J.P. Rampal flautuleikari, Itzhak Perlman fiðluleikari, Rögnvald- ur Sigurjónsson pianóleikari, Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari, Vladi- mir Ashkenazy pianóleikari, Arni Egilsson bassaleikari, Gunnar Kvaran celloleikari, Aaron Ros- and fiðluleikari og Sigriður E. Magnúsdóttir söngkona. Auk reglulegra áskriftartón- leika, sem verða 16 á starfsárinu, heldur hljómsveitin fjölskyldu- tónleika, skólatónleika, barna- tónleika, tvenna aukatónleika og einnig nokkra tónleika utan Reykjavikur. A starfsárinu 1973/74 flutti hljómsveitin 40 tónleika, reglu- lega áskriftatónleika, aukatón- leika, fjölskyldutónleika, skóla- og barnatónleika, tónleika á Listahátið og sex tónleika utan Reykjavikur. Aðalhljómsveitarstjóri var Karsten Andersen frá Bergen, sem stjórnaði 12 tónleikum. Að- stoðarhljómsveitarstjóri var Páll P. Pálsson, en hann stjórnaði Stórblaðið International Herald Tribune skýrði nýlega frá þvi að vopnasöluhneyksli sem upp komst um i Grikk- landi geti haft áhrif á hern- aðaraðstoð Bandarlkjanna við landið og jafnframt gert enn stirðari sambúð grikkja og bandarikjamanna. Blaðið segir einng að hneyksli þetta geti skýrt að nokkru skyndilega afsögn grísku herforingjastjórnar- innar eftir að tyrkir höfðu gengið á land á Kýpur. Að sögn blaðsins eru Kara- manlis og nánustu ráðgjafar hans, þ.á.m. Mavros utan- rikisráðherra, þess fullvissir að herforingjastjórnin hafi haft i hyggju að ráðast gegn tyrkjum á landamærum rikj- anna þegar eftir ákvörðun tyrknesku stjórnarinnar að gera innrás á Kýpur. En þegar herútboðið átti að koma til framkvæmda kom i ljós að vopnabirgðir voru alls ófullnægjandi. Stórir kassar sem áttu að innihalda M-16 riffla frá Bandarikjunum voru fullir af grjóti i stað vopna. Efst var lag af venjulegum vopnum en undir var ekkert að finna nema grjót. Sömu sögu var að segja af kössum sem I áttu að vera vélbyssur, fallstykki, eldflaugar og skot- færi. Meira að segja stigvélin voru horfin. einnig 12 tónleikum. Aðrir hljóm- sveitarstjórar voru dr. Róbert A. Ottósson, Vladimir Ashkenazy, Bohdan Wodiczko, J.P. Jacquillat, Okko Kamu, Richard Kapp, Jussi Jalas, Alain Lom- bard og Garðar Cortes við setn- ingu Listahátiðar. Hljómsveitin flutti á starfsárinu 115 tónverk eftir 69 tónskáld, þar af 10 tónverk eftir 10 Islensk tónskáld. Frum- flutt voru islensku verkin: At- hvarf eftir Herbert Hribershek, Epitafion eftir Jón Nordal, Leik- leikur eftir Jónas Tómasson, Dialoge eftir Pál P. Pálsson og Heimaey eftir Skúla Halldórsson. Fastráðnir hljóðfæraleikarar voru 61, en auk þeirra voru ráðnir 46 aukamenn, sem léku á einstök- um tónleikum. Hafa þvi 107 hljóð- færaleikarar leikið i hljómsveit- inni á starfsárinu. Hljóðrituð voru fyrir Rlkisútvarpið 15 tónverk eftir islensk tónskáld og 16 tón- verk eftir erlend tónskáld. Með hljómsveitinni komu fram á starfsárinu 12 söngvarar, 8 planóleikarar, 3 fiðluleikarar, 2 cellóleikarar, 1 violuleikari, 2 flautuleikarar, 1 óbóleikari, 1 gitarleikari. Söngsveitin Filharmonia flutti Messlas eftir H'ándel á þrennum tónleikum i desember undir stjórn dr. Ró- berts A. Ottóssonar, Kór félags islenskra einsöngvara söng með hljómsveitinni á Listahátíð i júni. Hljómsveitin flutti á Þjóðhátið á Þingvöllum 28. júll verðlauna- verkin Tilbreytni eftir Herbert H. Agústsson og Ellefu hugleiðingar um landnám eftir Jónas Tómas- son yngri undir stjórn Páls P. Pálssonar. A Reykjavlkurhátið 3. og 5. apríl flutti hljómsveitin með Söngsveitinni Filharmoniu og Guðmundi Jónssyni Völuspá eftir Jón Þórarinsson. Höfundur stjórnaði. Að sögn IMT var þetta rot- höggið á stjórnina sem þegar var orðin mjög aðþrengd vegna valdaránsins á Kýpur sem hún stóð að baki. Ekki er vitað til fullnustu hversu mikið magn vopna hef- ur horfið. Kunnugir telja að vopnin hafi verið seld til Afriku gegn staðgreiðslu og hafi I þvi verið farið á bak við æðstu yfirmenn griska hers- ins. Blaðið bendir á að fyrir utan þau áhrif sem þetta hneyksli hafði á herforingjastjórnina geti það haft afleiðingar vest- ur i Bandarikjunum. Hernaðaraðstoð Bandarikj- anna við grikki hefur löngum sætt harðri gagnrýni á banda- riska þinginu en eftir þetta er hætt við þvi að andstaðan gegn henni geti aukist svo mjög að henni verði hætt. Auk þess getur hneyksli þetta haft áhrif á hernaðarað- stoð Bandarikjanna við önnur lönd. Andstæðingar hennar i bandariska þinginu hafa bent á mikil fjárútlát við þessa að- stoð sem þjóðin geti vel sparað sér, einkum og sér i lagi vegna þess að þiggjendur hennar virðast ekki hafa hæfileika til að nýta vopnin á „viðeigandi” hátt og benda þeir m.a. á Suð- ur-Vietnam i þvi sambandi. ÞH —GG 3 sér „rétt sem enginn iur erlendur Steinar í staö vopna Varð vopnasöluhneyksli grísku herforingjastjórninni að falli?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.