Þjóðviljinn - 19.09.1974, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 19. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Valsmenn gerðu jafntefli í EB:
Hvaö gerir Fram
gegn RM í kvöld?
spánverjarnir hyggja á stór-sigur vegna auka-
greiöslna fyrir unninn leik og skoruð mörk
Það er i dag kl. 17.30 sem
leikur Fram gegn spánska
liðinu Real Madrid hefst á
Laugardalsvellinum og eftir
að Valur gerði jafntefli gegn
irska liðinu Portadown spyrja
menn — hvað gerir Fram i
kvöld gegn spánverjunum?
Þarna er að visu óliku
saman að jafna svo miklu
sterkari sem spánverjarnir
eru en irarnir. Og svo þegar
það bætist ofan á að spönsku
leikmennirnir fá auka-
greiðslur fyrir unninn leik og
hvert skorað mark þá þarf
ekki að þvi að spyrja, þeir
munu reyna að skora eins
mörg mörk og þeir frekast
geta og gefa örugglega ekkert
eftir.
Von Fram um sigur er vonin
um að kraftaverk gerist hins-
vegar hafa islensk lið náð
jafntefli á móti ekki ófrægari
né veikari liðum en Real
Madrid og hvers vegna ætti
Fram þá ekki að geta það
lika?
Það er einnig alveg öruggt
að Framararnir munu leggja
sig alla fram i þessum leik og
við höfum einmitt oft séð það
til islenskra knattspyrnu-
manna að þegar sem minnstu
er búist við af þeim vegna
styrkleika andstæðinganna þá
ná þeir sinu besta.
Bikarmeistarar Fram 1973 sem ikvöld mæta Real Madrid
Leikmenn
Real
Madrid
Nctzer, einn v-þýsku heimsmeistaranna, Icikmaöur með Real Madrid
Mariano Garcia Remon: Mark-
vörður, f. 1950, spánskur deildar-
meistari, 1 áhugam. landsl. 1 B-
landsleik og 2 A-landsleiki. Er al-
inn upp hjá félaginu.
Miguel Angel Gonzales Suares:
Markvörður, f. 1947, spánskur
deildarmeistari og bikarmeistari.
Grcgorio Benito Rubio: Miðvörð-
ur, f. 1946, spánskur deildar- og
bikarmeistari. Evrópumeistari i
tennis áhugamanna. 13 áhuga-
mannalandsl. 2 B-landsl. og 11 A-
landsleiki. Er alinn upp hjá félag-
inu.
José Antonio Camacho Alforo:
Miðvallarspilari, f. 1955, 3 U-
landsl.
José Luis Lopes Peinada: Bak-
vörður, f. 1943. Spánskur deildar-
og bikarmeistari, 4 A-landsleiki.
'Er alinn upp hjá félaginu.
Juan Morgado Dorado: Bakvörð-
ur, f. 1952.
Banito Rubinan Soutullo: Bak-
vörður f. 1949. Spánskur deildar-
meistari.
Juan Carlos Tourino Cancela:
Bakvörður, f. 1944. Spánskur
deildar- og bikarmeistari. 1 A-
landsleikur.
Juan Vcrdugo Perez: Bakvörður,
f. 1949. Spánskur deildar- og bik-
armeistari, 6 áhugamannalandsl.
og 4 B-landsleiki.
José Martinez Sanches „Pirri”:
Miðvallarspilar, f. 1945. Spánskur
deildar- og bikarmeistari.
Evrópumeistari, 1 U- 4 áhuga-
manna, 5 herlandsl. og 24-A
landsleiki. Fyrirliði liðsins.
F’rancisco Javier Aguilar Garcia :
Hægri-útherji f. 1949. Spánskur
deildar- og bikarmeistair. 1 B-
landsl. og 3 A-landsleiki.
Carlos Alfonso Gonzales „Santill-
ana”: Miðherji, f. 1952. Spánskur
deildar- og bikarmeistari 1 U, 4
áhugamanna og 1 landsleik.
Francisco Javier Alvarez Uria:
Bakvörður, f. 1950. Keyptur ný-
lega frá Real Oviedo. 1 B-og 3 A-
landsleiki.
Amancio Amaro Varela: Fram-
herji, f. 1939. Spánskur deildar- og
bikarmeistari, Evrópumeistari
og Evrópubikarmeistari. 42 A-
landsleikir.
Vincente Del Bosguc Gonzalez:
Framherji, f. 1950. Spánskur bik-
armeistari. Er alinn upp hjá fé-
laginu. 1 U og 1 áhugamanna-
landsleik.
José Maganas Pcrez: Vinstri út-
herji, f. 1953. Spánskur bikar-
meistari. 14 U og 1 áhugamanna-
landsleik.
Roberto Martinez Martinez:
Hægri útherji, f. 1946. Nýlega
keyptur frá Espanol. 3 A-lands-
leikir.
Reykjavíkurmótið
í körfuknattleik
hefst á sunnudag
mótið er nú haldið í 18. sinn með
þátttöku 32ja flokka frá 6 félögum
Reykjavikurmótið i körfuknatt-
íeik hið 18. i röðinni hefst i
Laugardalshöllinni á sunnu-
daginn kemur. 1 mótinu taka þátt
32 flokkar frá 6 félögum.
Eru þá ótaldir þátttökuflokkar i
minniboltamóti, sem verður
haldið öðru hvorum megin jóla.
Láta mun nærri, að keppendur
verði um 550, þegar allt er talið.
Þau félög, sem taka þátt i
mótinu að þessu sinni eru:
Ármann, Fram, ÍR, 1S, KR og
Valur.
Sé litið til baka á siðasta
tslandsmeistaramót, ætti að
mega lofa jöfnum og spennandi
leikjum i körfuboltanum i vetur.
KR og ÍR bera ekki lengur sama
ægishjálm yfir önnur félög og
áður, og óvilhallur spámaður
mun ekki svara óhikað og
umsvifalaust spurningunni: Hver
verður Reykjavikurmesitari i
körfubolta 1974?
Hafður verður sami háttur á og
i fyrra að bjóða nemendum 5-6
gagnfræða- og æðri skóla á hvert
leikkvöld, þeim að kostnaðar-
lausu. Þurfa þeir einungis að
Reykjavíkur-
meistarar
frá upphafi
Rey k ja v ik ur m.eis tar a r i
körfuknattleik frá þvi mótið
fór fyrst fram 1957 hafa orðið:
1957 ÍS
1958 iR
1959 KRF
1960 ÍR
1961 ÍR
1962 ÍR
1963 ÍR
1964 ÍR
1965 KFR
1966 KR
1967 KR
1968 ÍR
1969 ÍR
1970 ÍR
1971 Ármann
1972 KR
1973 KR
Leikdagar
Leikdagar í meistaraflokki i
Reykjavikurmótinu i körfu
1974:
22. sept. kl. 14.00
Valur:Ármann
1.5. :Fram
4. okt. kl. 20.15
K.R.:1.S.
l.R.:Ármann
8. okt. kl. 18.30
Valur:K.R.
1.5. :l.R.
Fram: Armann
15. okt. kl. 20.15
Fram :Valur
l.R.:K.R.
21. okt. kl. 20.15
Fram :1.R.
1.5. Ármann
25; okt. kl. 20.15
1 S.: Valur
Fram :K.R.
27. okt. kl. 19.00
l.R.:Valur
K.R.:Ármann
sýna skólaskirteini við inn-
ganginn. Er þetta gert til þess að
glæða áhuga ungs fólks á þessari
ágætu iþrótt, sem er i örum vexti
hér á höfuðborgarsvæðinu.
Þátttakendur i Reykjavikur-
mótinu nú eru um 200 fleiri en i
fyrra, og er það um 58% aukning.
Hellas
kemur
4. okt.
Eins og við sögðum frá i
Þjóðviljanum sl. þriðjudag, er
sauiska handknattleiksliðið
Hellas væntanlegt til íslands I
næsta mánuði. Nú höfum við
fengiðnánari fréttir af þessari
heimsókn.
llellas kemur 4. október og
leikur þann 6. við Islands-
meistara FH, þann 7. við
landsliðið, 9. okt. og 10. okt.
við þau tvö lið sem verða i úr-
slitum Reykjavikurmótsins i
handknattleik sem hefst á
laugardaginn kemur. Það er
HKRR sem býður Hellas til ts-
lands.
Handknatt-
leikurinn
byrjar á
laugardag
meö Rvík-
urmótinu
A laugardaginn keinur hefst
handknattleikstimabilið hjá
okkur á þessu hausti, en þann
dag fara fram tveir fyrstu
leikirnir i Reykjavikurmótinu.
Það eru Fram og Armann og
Valur og Fvlkir sem leika 2
fvrstu leikina i mótinu, en sá
fyrri hefst kl. 14.
Mótiö verður leikið á aðeins
8 dögum, frá 21. sept. til 2.
ökt„ en þá fara úrslitaleikirnir
fram, en þátttökuliðunum 8 er
skipt I tvo riðla. Liðin i riðlun-
um eru:
A-riðill:
Fram
Armann
KR
Vikingur
B-riðilI
Valur
Þröttur
ÍR
Fvlkir
Framhald á 11. siðu.