Þjóðviljinn - 10.11.1974, Síða 10

Þjóðviljinn - 10.11.1974, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. nóvember 1974. cTVIyndir úr sögu verkalýðshreyfingar og sósíalískra samtaka 7. JÚLÍ1932 Myndirnar i þættinum i dag eru allar teknar sama daginn, 7. júli 1932, og á sama stað, i Templarasundi i Reykjavik á útifundi verkamanna. Arið 1932 fór atvinnuleysi vaxandi i Reykjavik og viðar um land og baráttan fyrir vinnu harðnaði. Forystuafl i þeirri baráttu var Kommúnistaflokk- urinn, sem tókst að koma á við- tækri samfylkingu atvinnuleys- ingja. Nefndir atvinnuleysingja voru stofnaðar og störfuðu þar náið saman verkamenn meö hinar ólikustu skoðanir. 1 Reykjavik urðu fjölmennir úti- fundir og kröfugöngur á fund bæjar- og stjórnvalda tiðir at- burðir, en jafnframt færðust i vöxt afskipti lögreglu af fundum atvinnuleysingja. Einn þessara funda verka- manna var haldinn 7. júli fyrir utan fundarsal bæjarstjórnar Reykjavikur I Templarahúsinu 1 eða réttar sagt fyrir utan Þórs- hamar við Templarasund, þvi þaðan af tröppunum fluttu menn ræður sinar, meðal ann- arra Einar Olgeirsson. Kom þar til handalögmála milli lögreglu og fundarmanna og i eftirfar- andi réttarhöldum voru nokkrir menn úrskurðaðir i varðhald uppá vatn og brauð á þeim for- sendum að þeir hafi neitað að svara spurningum fyrir rétti, að þvi er Jón Rafnsson segir i bók sinni „Vor i verum”, sem við höfum áður vitnað til i þessum þáttum. Hinsvegar voru vissir lögbrjótar yfirstéttarinnar ekki látnir svara til saka, segir Jón. Illa þokkað. Hjörtur B. Helgason var fyrstur settur inn, en siðan Ein- ar Olgeirsson, Jens Figved, Indiana Garibaldadóttir og Stefán Pétursson, sem svöruðu úrskurðinum með hungurverk- falli. Jón Rafnsson segir þannig frá viðbrögðum: „Þessar handtökúr eru illa þokkaðar hjá verkalýð höfuð- staðarins. Og nú verður at- vinnuleysingjabaráttan jöfnum höndum baráttan fyrir þvi að fá leyst úr varðhaldinu þá menn, sem þannig eru meðhöndlaðir vegna þátttöku sinnar fyrir rétti manna til vinnu og daglegs brauðs. Svo höllum fæti veit rikisvald- ið sig standa i almenningsálit- inu út af þessum fangelsunum, að blöð þess, Morgunblaðið og Visir, forðast eins og heitan eld að minnast á þær. 1 stað þess birta þau nú margar greinar um vonsku og skaðsemi kommúnista I þjóðfélaginu, Rússaþjónustu þeirra osfrv. Alþýðublaðið birtir alltaf öðru hvoru lesmál um nauðsyn og réttmæti atvinnubóta, en ræðst jafnframt á framkvæmd at- vinnuleysingjabaráttunnar, sem það kallar kommúnista- óspektir. Og þótt það fagni ekki með berum orðum fangelsunum kommúnistanna, er þaö svo fjölort og ómyrkt I máli um „sök” kommúnistanna á at- burðunum 7. júli, að það fær ekki dulið samúð sina með ihaldsréttvlsinni i þessu máli. 1 augum þeirra Alþýðublaðs- manna eru nú kommúnistar og vinstri öflin meðal verkamanna orðin sá höfuðóvinur, sem jafn- vel ihaldið siálft hverfur i skuggann fyrir, enda gerir nú blaðið allt hvað það má til aö þagga niður einingarölduna, sem risið hefur með verkalýön- um á götum borgarinnar, gegn atvinnuleysinu. 1 Reykjavik á samfylking at- vinnuleysingjanna og hinna fangelsuðu að visu ekki nema eitt málgagn: Verkalýðsblaðið, vikublað Kommúnistaflokksins, gegn öllum blaöakosti hinna. En þetta jafnar verkalýðurinn upp með útifundum og stærri kröfu- göngum en áður.” Föngunum sleppt. Meðal þessara funda eru úti- fundir á ýmsum stöðum I bæn- um 27. júli, sem haldnir eru samtimis á vegum Kommúnistaflokksins og at- vinnuleysingjanefndar til undir- búnings stórum fundi og kröfu- göngu að fangahúsinu næsta dag. Sá fundur hefst i fundar- húsinu við Bröttugötu, en er sið- an fluttur út á Kalkofnsvég vegna þrengsla. Lýsir Jón þvi að á þeim fundi og i kröfugöng- unni að fangahúsinu við Skóla- vörðustig hafi verið saman kominn mesti mannfjöldi, sem sést hafði til þessa i Reykjavik á útisamkomu á vegum verka- lýðssamtaka. Ræðumenn við fangahúsið, þeir Hjalti Arnason og Guðjón Benediktsson, eggja fólkið til að knýja fram rétt sinn til vinnu og brauðs, heimta fulltrúa sina úr klóm stéttardómstóls burgeis- anna og linna ekki baráttunni, fyrr en kröfurnar séu uppfyllt- ar, segir Jón. Lauk fundinum með að kosin var nefnd til að bera fram kröfur fjöldans og viðvörunarorð. „Daginn eftir rikir grafar- þögn i dagblöðum andstæðing- anna um þennan mikla fjölda- fund. En áhrif hans eru þeim mun augljósari: Þennan dag er föngunum sleppt út úr fangels- inu, og um kvöldið er þeim fagn- að á fjölmennum verkalýðs- fundi. Það er troðfullt hús I Bröttugötunni og hugir manna eru sigurglaðir.” Hverjir þekkjast? Þannig lýkur Jón Rafnsson frásögn sinni. Og á myndunum i dag séSt upphaf þessara at- burða — fundurinn I Templara- sundi. A mynd nr. 11 hluti fundarmanna fyrir utan Þórs- hamar. Mynd nr. 12 er tekin er Einar Olgeirsson flytur ræðu sina af tröppum hússins og mynd nr. 13 fyrir utan Templarahúsið eða Gúttó einsog flestir Reykvikingar kölluðu það lengstaf, eftir að rutt hafði verið frá dyrunum. Varla verða greind nein andlit á myndum 11 og 13, en ef lesendur þekkja þá sem sjást á mynd nr. 13, væri okkur þökk á að fá upp- lýsingar um þá. Hvar eru véstmanna- eyingar? Við höfum þegar fengið tals- verðar upplýsingar varðandi myndirnar i siðasta sunnudags- blaði Þjóöviljans, en aftur sára- litlar um vestmannaeyingana á mynd nr. 7 I blaðinu 27. október sl. Þar ættu þó ýmsir að þekkjast svo tiltölulega skýr sem myndin er. Skorum við nú á eldri eyjamenn að skoða verk- fallsvaktina betur og láta okkur vita, annað hvort Eyjólf Arna- son, bókavörð Dagsbrúnar eða Vilborgu Harðardóttur blaða- mann. Við erum bæði i sima 17500. —vh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.