Þjóðviljinn - 10.11.1974, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 10.11.1974, Qupperneq 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. nóvember 1974. Sovésk-bandarísk kvikmynd um Pavlovu MOSKVU (APN). Eftir aö samningur var geröur um fyrstu sovésk-bandarisku kvikmyndina, Blár fugl eftir Maurice Mater- linck, hefur bandarlski kvik- myndaframleiöandinn Erwin Hiller fyrir hönd Paramount boö- iö sovéska kvikmyndafélaginu Sovinfilm samstarf um nýtt verk, kvikmynd um hina frægu ballet- dansmey önnu Pavlovu. Hefur bráöabirgöasamningur þegar verið undirritaður. Pavlova, sem var aðaldans- mær viö Mariinskileikhiisiö I Pét- ursborg, dansaöi oft erlendis, m.a. I Stokkhólmi 1908, og hafði mikil áhrif á þróun ballettdans- listar. Til er fjöldi mynda og kvikmynda um Pavlovu, og á Einföld aðferð til aðfinna krabbamein Vlsindamenn við Læknahá- skólann I Virginiu, Bandarlkjun- um, hafa fundið tiltölulega ein- falda aöferð til að hafa upp á krabbameini. Enn er mál þetta á rannsóknastigi, en nákvæmni að- ferðarinnar er sögð um 87%. Prófun þessi fer I stórum drátt- um þannig fram, aö sjúklingur gleypir hylki meö feiti, sem inni- heldur geislavirk karbón-14 og tuttugu stundum slöar er hann látinn anda frá sér i einskonar poka. Slðan er innihald geislavirks karbónvioxýðs I útöndunarloftinu mælt og ef þaö fer yfir visst magn gefur þaö til kynna að um æxli sé að ræöa I likamanum. Til þessa hafa 160 manns gengist undir þetta próf, og nokkrir reyndust ganga með æxli sem voru „mjög lftil” og hvorki þeir né aörir höfðu hugmynd um. Kerfi þetta er byggt á þeirri staðreynd, að krabbamein dregur úr fitumagni I likama sjúklinga. (IHT) grundvelli þessara heimilda hef- ur enski kvikmyndahandritahöf- undurinn Anthony Masters gert handrit að vætnanlegri kvik- mynd. Sovéskir leikarar munu fara meö hlutverk önnu Pavlovu og mótdansara hennar, Njinskls og Mordkins og ballettmeistarans Fokins, en vestrænir leikarar verða I öörum stórum hlutverk- um, m.a. hlutverki Sergej Djagilevs. Listamenn frá Bosloj- og Kirovballettunum munu koma fram I kvikmyndinni, sem verður tekin I Sovétrlkjunum, Banda- rlkjunum og Bretlandi. Kvik- myndin, sem verður I litum, á aö veröa tilbúin I árslok 1975. Stangl Framhald af bls. 4. myndu menn sjá ýmislegt. Ég þekki til dæmis þrjá bændur þarna I sveitinni sem alltaf eiga gott neftóbak blandað meö sér- stöku heimabruggi og þekkist þessi aöferö hvergi nema þarna. Allskonar bækur eru þarna viöa til, bæöi Snorri Sturluson, Ingi- björg Sigurðardóttir, Halldór Laxness og Ib Cavling og bónda þekki ég sem hefur sjálfur bundiö inn allan Tlmann frá þvi á al- þingishátíðinni 1930. Þá gleyma höfundar myndarinnar því alveg, aö þarna eru til mörg félög, bæöi ungmennafélag, kvenfélag, systrafélag safnaöarins, aust- firðingafélag og vest- firöingafélag, skákfélag og kaup- félag, og að öll þessi félög koma saman I félagsheimilinu á veturna og spila framsóknarvist. Þaö er alveg rétt, aö óperetta hef- ur ekki verið samin I sveitinn i lengi, en margir fara meö rútunni niöur i Arkavik, sem er ekki langt frá, til aö horfa á Grænu lyftuna. Og þá heföu þessir ungu menn átt aö kvikmynda réttardag þarna i sveitinni. Það er sannkölluö al- þýöumenningarhátiö með virkri þátttöku, sameiginlegum söng, sem kveður niöur firringuna í hjörtunum og margri hugkvæmni I mannlegum átökum og sam- skiptum sem skapa þá dramatisku spenningu I mannlifið sem engin menning má án vera. Skaði Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar hefur opnað útibú að Asparfelli 12 Breiðholti (við hliðina á barnadeild Heilsuverndarstöðvarinnar). (Jtibúið þjónar eingöngu ibúum Breið- holtshverfa I, II og III og annast alla þá fyrirgreiðslu, sem Félagsmálastofnunin hefur með höndum. Simatimi starfsmanna er alla virka daga, nema miðvikudaga, kl. 13-14. Viðtöl eru tekin eftir samkomuIagi.Tekið á móti viðtalsbeiðnum í sima 74544 eða i af- greiðslu útibúsins. r ..... Starf umboósmanns í HAFNARFIRÐI er laust frá áramótum Allar upplýsingar gefur Jón Bergsteinsson skrifstofustjóri. Umsóknir sendist Aóalskrifstofu HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLA ÍSLANDS W Tjarnargötu4, Reykjavík, fyrir 20. nóvember. ÚTBOÐ Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik óskar eftir tilboðum i eftirfar- andi verkþætti og efni, vegna fyrirhugaðra byggingaframkvæmda við 308 ibúðir i Seljahverfi í Reykjavik: Verkútboð Efnisútboð Gluggasmiöi: efni og vinna. Hita- og hreinlætislagnir innanhúss: efni og vinna. Blikksmiöi: efni og vinna. Þakjárn. gler hreinlætistæki og fylgihlutir ofnar (Jtboðsgögn verða afhent i Lágmúla 9, 5. hæð Reykjavik, gegn 5.000 króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á Hótel Esju 2. hæð, kl. 14.00 föstudaginn 13. des. 1974. Fiðlusnillingur- inn D. Ojstrakh látinn Fyrir skömmu lést I Amsterdam einn kunnasti tón- listarmaöur heims sovéski fiölusnillingurinn Davlö Ojstrakh. Hann var 66 ára aö aldri og var á tónleikaferö I Hollandi. Banamein hans var hjartaslag. Ojstrakh var fæddur I Odessu 1908 og var af gyöingaættum eins og margir þekktir tónlistarmenn sem þaðan komu um og eftir aldamót. Fyrstu tónleika slna hélt hann þar I borg fimmtán ára að aldri. Frægðarbraut hans var hröö — verölaun hlaut Davlö mörg og aöeins 26 ára gamall varð hann prófessor við Tónlistarháskólann I Moskvu. Hann fór i ótal tónleikaferöir og flutti flest helstu verk fiölu- bókmenntanna um leiö og hann kynnti ný eftir landa sína, m.a. Sjostakovitsj og Prokoféf. „Með Ojstrakh hefur heimurinn misst dásamlegan mann, sem fullur var kærleika og örlætis og helgaöi lif sitt því aö gera heiminn hamingjusamari.” segir bandarlski fiöluleikarinn Daviö Ojstrakh. Menuhin um Ojstrakh látinn. Menuhin getur þess, aö Davíð hafi ekki aðeins verið einn fremsti fiöluleikari heims heldur og á seinni tímum einhver fremsti hljómsveitarstjóri sem völ var á. „Dauði hans er harmleikur fyrir tónlistarlíf heimsins”, segir Menuhin ennfremur. Davlö átti son, Igor, sem einnig er heimsþekktur fiðluleikari. Frakklandsforseti fordæmir Stehlin PARIS 8/11 — Valery Giscard d’Estaing, Frakklandsforseti, sagöi I dag viö blaöamenn að frakkar heföu bæöi orðið fyrir álitshnekki sem þjóð og auk þess beöiö efnahagslegan skaöa vegna ummæla Stehlins hershöföingja þess efnis, aö frönsku Mirageorr- ustuþoturnar væru lélegri en hliö- stæöar bandariskar tegundir. Stehlin var áður yfirmaður her- ráös flughers frakka, en er nú kominn á eftirlaun. Hann hefur lengi haft orö á sér sem ákafur „atlantisti”, en svo eru gjarnan nefndir i Frakklandi og viöar I Natólöndum þeirmenn,sem mest Klásúlur Framhald af n. siöu. ekki beint við um Tónabæ, en þar eru ágætis samkomur haldnar öðru hverju og þar hafa popp hljómsveitir fengið tækifæri til að sýna raunverulega getu slna. Tjarnarbúð er einnig staður sem er sóttur aö miklu leyti til aö hlusta á góðar hljómsveitir og þangað sækja allar bestu hljóm- sveitir höfuðborgarsvæðisins, hver af annari. I Klúbbnum og Sigtúni ríkir algerlega hin marg- umtalaða brennivlnsmenning, og ætla Klásúlur ekki að fara nánar út I þá sálma. Af framansögðu má sjá hversu brýn nauðsyn er á húsnæði, sem fullnægir kröfum nútimans um hljómleikahald og aðrar skemmtanir. Hér er sérstaklega átt viö hljómleikahöll, en öðru hvoru hefur heyrst að slik bygg- ing væri i aðsigi. Ef slik bygging verður að raunveruleika, þá verður popptónlist að skipa töluverðan sess I rekstri þess, þvi þaö má ekki ske að þeirri tónlist sem stór hluti þjóðarinnar hlustar nær eingöngu á, sé úthýst úr hinu væntanlega musteri. Einnig er þaö áhugamál að fá veitingahús eða einhvers konar klúbb þar sem hægt er að setjast inn eina kvöld- stund og hlusta á (frumsamda) islenska popptónlist. Rekstur sliks staöar þyrfti aö vera á allt öörum grundvelli en rekst- ur núverandi öldurhúsa lands- ins, en hér stöðvar áfeng- islöggjöfin enn þróunina. Það er þvi eitt af baráttu- málum ungs fólks að lög- gjöfin verði aðlöguð nútimanum og endir bundinn á öfugþróunina. Hljómleikahöllin og klúbbarnir eru aðeins enn sem komið er draumar, en það er ósk Klásúlna að draumar þessir veröi aö veruleika sem fyrst. leggja upp úr sem nánustu sam- bandi viö Bandaríkin. Forsetinn ræddi viö blaðamenn nýkomna úr sólarhrings siglingu með franska kjarnorkukafbátn- um Terrible (Hræðilegur) og fór hinum hörustu orðum um hers- höföingjann, sem hann kvaö hafa misnotað aðstööu sina til aö gera pólitlsk viðhorf sln gildandi. I Frakklandi er almennt litið svo á að Stehlin hafi látið ummæli sin berast út beinlinis I þvi skyni að bæta aðstööu bandariskra fyrir- tækja, sem framleiöa orrustu- flugvélar, I samkeppninni viö franska flugvélaiönaöinn. Þetta mál er sérstaklega viökvæmt inn- an Nató um þessar mundir vegna þess að fjögur rlki þess, Dan- mörk, Noregur, Holland og Bel- gía, eru I þann veginn aö endur- nýja orrustuflugvélaflota sinn og hafa verið á báðum áttum um hvort þau ættu heldur aö velja Mirage eöa bandariskar tegund- ir. Giscard d’Estaing sagði aö það kæmi til kasta flughersins og þjóðþingsins eö komast að niöur- stööum vegna þessa athæfis Stehlins, sem skaöað heföi hags- muni Frakklands bæði hernaöar- lega og efnahagslega. HLJÓMLEIKAR ÞRIÐJUDAGINN I2.NÓV. kl.2032 I' LAUGARDALSHÖLLINNI Miöúsala: Plötuportið Laugaveg 17, Vikurbær Keflavik, Epliö Akranesi, Radió og Sjónvarpsstofan Selfossi, Tónabúóin Akureyri.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.