Þjóðviljinn - 15.12.1974, Síða 4

Þjóðviljinn - 15.12.1974, Síða 4
4 StPA — ÞJÓÐVILJINN" Sunnudagur 15. desember 1974. DJÚÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Frnmkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur) SvavarGestsson Prentun: Blaðaprent h.f. KAUPIÐ BUNDIÐ TIL 1. JÚNI - STEFNIR AÐ 60% HÆKKUN VERÐLAGS Á ÁRINU Eitt af þvi, sem Sjálfstæðisflokkurinn boðaði fyrir siðustu alþingiskosningar var að stöðva verðbólguna. Dag eftir dag og mánuð' eftir mánuð var á þvi hamrað i málgögnum Sjálfstæðisflokksins, að verð- bólgan væri dauðasynd vinstri stjórnar- innar og að öllu leyti á hennar ábyrgð. Þvi var haldið fram, að þótt ekki kæmi fleira til hefði vinstri stjórnin unnið sér til óhelgi með þvi að leiða óðaverðbólgu yfir þjóðina, og yrði þvi að vikja svo að þeir fengju að stjórna, sem kynnu tökin á verð- bólgunni, það er leiðtogar Sjálfstæðis- flokksins. Vart þarf að efast um, að einmitt þessi áróður varð vinstri stjórninni þungur i skauti, þvi að vist var verðbólgan mikil og meiri en i nálægum löndum. Málgögn Sjálfstæðisflokksins voru nú heldur ekkert að minna lesendur sina á, að verðbólgan hafði reyndar vaxið örar á Islandi en i ná- lægum löndum áratugum saman, en ekki bara á valdatimum vinstri stjórnarinnar og liggja til þess ýmsar orsakir, sem ekki verða raktar hér. Og staðreyndin er reyndar sú, að á þriggja ára timabili allt frá kosningaverð- stöðvuninni fyrir alþingiskosningarnar 1971 og fram undir lok siðasta árs, þá óx verðbólgan hægar á Islandi en næstu þrjú árin þar á undan, ár viðreisnarstjórnar- innar. Um þetta liggja fyrir óyggjandi töl- ur. Þarna var sannarlega um mjög at- hyglisverðan árangur að ræða hjá vinstri stjórninni, þvi að á sama tima hafði hin al- þjóðlega verðbólga færst mjög i aukana, og hraði verðbólguhjólsins farið stórlega vaxandi i öllum öðrum löndum. Aðeins á íslandi tókst að draga úr verð- bólguhraðanum á þessu timabili. Siðustu mánuði vinstri stjórnarinnar varð svo hér breyting á til hins verra, sem ekki skal dregin dul á. Kom þar sitthvað til, en mestu skipti annars vegar áhrif hinnar alþjóðlegu verðbólgu og hins vegar sú staðreynd, að stjórnin hafði ekki þing- styrk til að ráðast gegn vandanum. Ahrif kjarasamninganna i febrúar sögðu einnig til sin. En hvernig skyldi þvi fólki nú liða, sem fyrir alþingiskosningarnar i sumar tók mark á fagurgala Sjálfstæðisflokksins og kaus frambjóðendur hans i þeirri trú, að með þvi væri það að stöðva verðbólguna? Á þeim nær fjórum mánuðum, sem nú eru liðnir siðan Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn mynduðu hinn nýja þingmeiri- hluta þá hefur verðbólgan vaxið mun örar en nokkru sinni fyrr. Þann 1. desember s.l. var framfærslu- visitalan komin i 354 stig og hafði hækkað um tæp 20% á fjórum mánuðum, en það samsvarar um 60% verðbólguvexti á ári. Þótt teknir séu niu siðustu mánuðir vinstri stjórnarinnar til samanburðar, timi, sem hana skorti þingstyrk til að taka á málum, var verðbólguvöxturinn þó ekki meiri en svo, að samsvaraði rúmlega 40% á ári. Rikisstjórn Sjálfstæðisflokksins, sem þóttist ætla að stöðva verðbólguna hefur ekki staðið við gefin heit. Þvert á móti hef- ur verðlag hækkað mun örar en nokkru sinni fyrr. Aðalatriði þessa máls er þó það, að á ár- um vinstri stjórnarinnar fór kaupmáttur launa vaxandi, þrátt fyrir verðbólgu. Kaupið hækkaði meira en verðlagið. Nú er þessu öfugt farið, — verðlagið þýtur upp með meiri hraða en nokkru sinni, en kaupið er bundið fast með lögum. Kjararannsóknanefnd, er sameiginleg stofnun aðila vinnumarkaðarins, atvinnu- rekenda og launafólks. Á vegum hennar eru gerðar reglubundnar athuganir á þró- un kaupmáttar launafólks, þ.e. bornar saman breytingar á annars vegar launum og hins vegar verðlagi. Samkvæmt upplýsingum, sem fram koma i 25. Fréttabréfi kjararannsókna- nefndar, er út kom i haust, hækkaði kaup- máttur tímakaupsverkamanna um fullan þriðjung, rúm 33% á valdatima vinstri stjórnarinnar. Þetta mikið hækkuðu laun- in umfram verðlagshækkanir á þremur vinstri stjórnar árum. Nú er öldin önnur. Nýir herrar eru sestir i valdastólana, og nú skal þvi náð til baka, sem verkafólki tókst að bæta við sinn hlut á árum vinstri stjórnarinnar. Og það er gengið rösklega til þeirra verka. Verð- bólgan æðir áfram með hraða, sem sam- svarar 60% verðlagshækkun á ári. Allt hækkar nema kaupið. Það skal bundið fast til 1. júni á næsta ári, nema hvað þeir allra lægst launuðu fengu 3500,- krónur á mánuði og svo 3% kauphækkunin nú þann 1. des. Það skiptir ekki máli, hvort Fram- sóknarflokkurinn er i rikisstjórn eða ekki. Það skiptir máli, hvort hann vinnur þar með Alþýðubandalaginu eða Sjálfstæðis- flokknum. Það ættu ekki lengur að geta farið fram hjá neinum. Utanaðkomandi erfiðleikum ber að svara með niðurskurði á bruðli og sóun þeirra þjóðfélagshópa, sem i alltof rikum mæli hafa dregið til sin arðinn af striti verkafólks. Það er hins vegar augljóslega stefna rikisstjórnarinnar að verkafólkið skuli bera byrðarnar, þótt aðrir sleppi. Verkalýðshreyfingin á íslandi stendur nú frammi fyrir miklu verkefni, að sækja rétt félagsmanna sinna i hendur fjandsam- legri rikisstjórn. Það er fyrst og fremst undir hug og samstöðu almennra félags- manna komið, hvernig til tekst. AKUREYRI OG NORÐRIÐ FAGRA Akureyri og noröriö fagra. Útgcfandi Bókaforlag Odds Björnssonar, Akureyri, í samvinnu viö Iceiand Re- view. Texti eftir Kristján frá Djúpalæk. Mér er minnisstætt, er sá at- buröur gerðist fyrir rúmu ári, að Söngfélagið Gigjan, sem konur á Akureyri skipa, og Karlakór Akureyrar voru á söngferð hér syöra. Konurnar gengu á pallinn eins og gyðjur i grænum kirtlum. Það var undurfagur svipur yfir þeim. Þegar karlarnir gengu á bækur pallinn, kom annar blær á sam- kvæmið. Þeir voru svartir. Mér fannst, að þeir ættu að vera i hvlt- um hjúpum. Hvers vegna? Þetta voru eyfifskir söngvarar og mér fannst að vel færi á þvi, að þeir bæru liti Eyjafjarðar, grænt og hvitt. Þar eru tveir litir og tvær áttir. Annan árstimann er Eyja- fjörður hvitur, hliðar og háfjöll björt af mjöll og harðfenni, depla- laus. Svo kemur vorið og undan breiðunni kemur jörðin gróður- rik, mjúk ög hlý, dýjamosinn við lindir I hliöum er kannski feg- ursta tákn græna litarins. Mér kom þetta i hug, þegar ég fékk I hendur bókina: Akureyri og norðrið fagra. — Þetta er ljóm- andi fögur bók með 74 litmyndum eftir 16 ljósmyndara, en textinn er eftir Kristján frá Djúpalæk. Myndirnar eru frá Akureyri og einnig ýmsum byggðum Eyja- Kristján frá Djúpalæk. fjarðar, svo sem Dalvik, Hrisey, Olafsfirði og Grlmsey. Og þá einnig úr Þingeyjarsýslu, af Goðafossi, Laxá, Dettifossi og úr Mývatnssveit. Bókin er gefin út á ensku og Islensku. Segir útgef- andinn, að ætlunin hafi verið ,,að bókin kæmi eingöngu á ensku til að bæta úr brýnni þörf, þar sem fram að þessu hefur engin bók veriö fáanleg um Akureyri og önnur þau viðfangsefni, er hin nýja bók gerir skil, en þegar handrit Kristjáns frá Djúpalæk lá fyrir, og hið mikla safn litmynda, þótti einsýnt, að bókin ætti ekki sfður erindi til islendinga”. Undir þetta skal tekið og þvi bætt við, að bókin er ekki ein- göngu fögur að öllum búnaði, hún er einnig fróðleg og skemmtileg og veitir gleði þeim, sem til henn- ar leitar. Sóleyjarsýn heitir ritgerð Kristjáns frá Djúpalæk, löng og skemmtileg. Hún fjallar um land og sögu Eyjafjarðar frá dögum Helga magra og reyndar á undan þeim tlma, slðan er rennt I gegn- um aldirnar i stórum dráttum, en þó meö undarlegri nákvæmni. Það er gaman, að Kristján frá Djúpalæk skyldi skrifa textann I þessa bók. Hann er kátur i fram- setningu, leiðir lesandann upp á kögunarhól, þar sem sér til allra Framhald á 26. siðu. ÞJÖDVILJANS 1974 Skrifstofa happdrættisins að Grettisgötu 3 er opin milli kl. 14 og 18 í dag HAPPDRÆTTI ÞJÚDVIIJANS 1974 Notið frídaginn og gerið skil

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.