Þjóðviljinn - 15.12.1974, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 15.12.1974, Blaðsíða 26
26 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. desember 1974. FULL BÚÐ.AF HANGIKJOTI HÓLSFJALLA- SAUÐAHANGIKJÖT Læri kr. 448 pr. kg. Frampartar kr. 353 pr. kg. LAMBAHANGIKJÖT Læri kr. 448 pr. kg. Frampartur kr. 353 pr. kg. Kjötbúðin, Laugavegi 32 Sigrún Framhald af bls. 2. dallar og pottar, en ég er nú ein af þeim fáu konum sem fá alltaf hjálp við það. Hvernig fara þær konur að, sem fara ekki heim fyrr en kl. 12? Nú er þessi leiðinda- skjóða, klukkan, að verða eitt og ég fer aftur á minn vinnustað. í dag er fiskurinn slæmur, smár og mikið um orma. Hávaði og kliður er talsverður i salnum. Það hringlar og smellur i pönnum og járnum, bakkar slást saman og loftið er þungt og drungalegt inni en rigning úti. Við erum þvi orðnar heldur daufar i dálkinn þegar loks kemur hinn langþráði kaffitimi. Nú liggur fyrir vit- neskja um það, að vinna skuli til kl. 7 eins og undanfarið. Hópur af konum þýtur út úr húsinu til að nota kaffitimann til að kaupa i matinn og sinna margvislegum erindum, sem ekki er alltaf hægt að láta börnin gera. Sem við sitj- um þarna, verður einni konunni að orði: „Þökkum bara fyrir, stelpur mlnar, að ekki verður unnið til kl. 11”. Já, þær eru vissulega margar Pollyönnur hverdagslifsins. Kaffitiminn er óðar búinn. Skömmu eftir kaffið kemur verk- stjórinn til min. Það þarf að bæta konum i að flaka. Við erum fimm, sem töltum fram i flökunarsalinn og okkar biður sá ljóti og leiði fiskur keilan. Þaðer vont að flaka hana, hún er eins og gúmmi. Svo eru innan um stórar löngur, svo stórar, að við verðum tvær saman að flaka eina. En verst af öllu er þó hávaðinn i flökunarsalnum, þvi allar vélar eru i gangi. Við reynum að tala saman, en það er vonlaust nema garga. Loks kemur þó að þvi, að vinnu- timinn er búinn við þvoum svunt- ur okkar og týjum okkur til heim- ferðar og röbbum saman um leið. Það er föstudagur og þvi helgi framundan og við ætlum að nota hana til að hreinsa og pússa heimilin okkar, laga fatnað og annað, sem hefur safnast saman. Og flestar reikna með að vera að vinna fram eftir kvöldi á laugar- dag. Hjá sumum kviknar þó von um aö geta ef til vill á sunnudag haft það rólegt, ef allt gengur vel, farið út með börnin sin og þær bjartsýnustu hugsa kannski til bókalesturs. Ein heyrist segja: ,,Ég er nú búinn að vera að telja út i smá- púða i þrjá mánuði, kannski get ég saumað hann á sunnudaginn, svo að það er hugmyndin, að þá geti ég rabbað við börnin og haft það rólegt. En seint á laugardagskvöldi, þegar ég er búin að sinna öllu þvi, sem mest var aðkallandi, er nú samt eftir að strauja og það bfður sunnudagsins. Og löngun min stefnir ekki til bókar, ekki til gönguferðar eða rabbstundar, að- eins ein ósk verður ofan á. Að mega sofa allan sunnudaginn og fara aldrei meir i frystihús, svo allt fari ekki á hvolf heima hjá mér og ég sjálf verði ekki allar helgará harðahlaupum, hrópandi svör min við spurningum barn- anna. Og sem ég er að gæla við óskirnar minar kemur ein stór spurning fram i hugann Efviðhúsmæður, sem vinnum i frystihúsum, gætum allar hætt að vinna úti og unnið bara eitt starf, sem er ærið nóg, starf hús- móöurinnar. Hver vinnur þá i frystihúsum? Sigrún Clausen Svavar Framhald af bls. 7. Seltjarnarnesi stærsta stjörnu- kiki sem til þessa hefði verið að- gengilegur á Islandi. Dagblaðið hafði það eftir visindamanninum sem sér um kikinn mikla að vis- indamenn og áhugamenn um stjörnuskoðun gætu skoðað i kik- inn. Visindamaðurinn var einmitt einn þeirra sem beittu sér fyrir undirskriftasöfnun um hersetu á Islandi. Kannski býður hann hin- um „aðstandendunum” 13 að skoða I kikinn. Kannski fá þeir að kikja út I heiminn. Vonandi sjá þeir sem allra allra mest. Von- andi sjá þeir vetrarbrautirnar, sólkerfin og fjósakonurnar. Svö geta þeir félagar borið saman bækur sinar, litið harla ánægðir hver á annan og sagt: Þetta er harla gott. Viðhöfum unnið afrek, sem er einstakt i heiminum, þvi hvergi nokkurs staðar annars staðar i hinum óendanlega heimi okkar hafa herskarar bundið ann- an eins krans og gert var á tslandi á 11 hundruð ára afmæli Islands- byggðar með 55 þúsund undir- skriftum. Akureyri Framhald á bls. 4 átta, lyftir atburðum sög unnar og umhverfinu. Og lesand- inn, sem stendur þar með höf- undi, nýtur ekki einungis gáfna hans og skilnings, heldur verður aðnjótandi sýnar hans, jafnvel gegnum hóla. Það liggur við að eftir lestur Sóleyjarsýnar, finnist lesandanum Eyjafjörður vera eini dalurinn, eina sveitin, sem tákn Islands. I fjarlægð sér maður þetta hérað með sýn byggðamannsins, sem hlýðir á þjóðsöguna af manninum, sem fann græna og gróðurrfka dalinn i hvarfi jöklanna, en þar var auður dalur, hjarðir i grænum hliðum, reisuleg bændabýli, hraust og kjarnmikið fólk. Eins og þetta var draumur þjóðsögunnar, þá er þetta einnig ævintýrið um Eyja- fjörð. Það er ekki laust við, að á stöku stað gæti nokkurs stolts höfundar yfir eign sinni I fegurð norðursins, — fegurð og dásemd héraðs, sem hefur fætt þjóðinni einn afreks- manninn öðrum meiri. — Ég sagði eign, það er kannski réttara að segja hlutdeild. En er það stolt ekki skiljanlegt þeim, sem i drunga og súldi fer héðan að sunnan norður yfir heiðar og leið- ingarnar elta hann, þangað til fer að halla norður af. Þá greiðist gráminn i sundur og varminn og birtan vekja til nýrrar sýnar. Ég þakka Kristjáni frá Djúpa- læk fyrir ritgerðina hans, fróð- legu og skemmtilegu. Og útgef- endum ber að þakka hina mynd- arlegu og fágætu bók, sem vafa- laust verður yndi margra, bæði hér á landi og erlendis. Gunnar M. Magnúss. Við flytjum nú á helginni á Digranesveg 5 frá Álfhólsvegi 7 ÍJtvegsbanki íslands, Kópavogb veitir öllum viðskiptamönnum sinum almenna bankaþjónustu og að auki annast bankinn innheimtu gjaldeyrisviðskipta. Ath. Siðdegisafgreiðslutimi kl. 17 til 18.30 fellur niður mánudaginn 16.12. 1974. tJT VE GS BAN Kl ÍSLANDS Útibúið Kópavogi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.