Þjóðviljinn - 15.12.1974, Blaðsíða 21
Sunnudagur 15. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21
Núna fyrir helgina kom
á markaðinn ný breiðskífa
með Jóhanni G. Jóhanns-
syni og reyndar sú fyrsta
sem hann er skrifaður einn
fyrir. Nefnist platan Lang-
spil eftir hinu eldforna ís-
lenska hljóðfæri sem Jó-
hann notar í einu laganna.
Jóhann fór til London i septem-
ber þar sem platan var tekin upp.
Fór upptakan fram i Olympic
Studios og tók Jóhann sér góðan
tima þar. Meö honum á plötunni
leikur heill her frægra manna.
Sá frægasti er vafalaust
trommuleikarinn Jon Hiseman
sem löngum lék i hljómsveitinni
Jon Hiseman’s Colosseum. Kona
hans er einnig meö en hún heitir
Barbara Thompson, og er einn
frægasti blásari i breskum popp-
heimi. Annar þekktur blásari er
Harry Beckett. Aðrir sem viö
sögu koma eru Ronnie Verral
sem ma. lék undir á nokkrum
fyrstu plötúm The Beatles, Miller
Anderson Ur Keef Hartley Band,
Brian Gasgoigne sem leikið hefur
meö John Williams ofl.
Plötuumslagiö verður tvöfalt, á
forsiöu er sjálfsmynd eftir Jó-
hann en eins og menn vita hefur
hann einnig fengist nokkuð viö
myndlist, og innan i verða allir
textar plötunnar. Umslagið er
prentað i Litbrá en hannað af
Auglýsingaþjónustunni.
Plötunni verður dreift hér á
landi undir merki Jóhanns,
SUN-records en fjárhagslegur
bakhjarl Jóhanns er JUlius P.
Guðjónsson umboðsmaður Sony
ofl. Lengri sögu er hins vegar að
segja af dreifingu hennar erlend-
is.
Fyrir tilstilli kunningja sinna i
Englandi komst Jóhann i sam-
band við skemmtikraftaskrifstof-
una Screenpro i London. Hefur
skrifstofa þessi nU tekið að sér að
Utvega honum samning við eitt-
hvert stórt hljómplötufyrirtæki.
Jóhann fer aftur utan eftir ára-
mótin og i janUar eða febrUar fer
hann á nokkurs konar markað I
Suður-Frakklandi en hann fer
fram árlega og þar semja plötu-
Bílaeigendur
SPARIÐ
og kaupið sólaða hjól-
barða hjá okkur. Látið
okkur sóla slitnu hjól-
barðana.
BARÐINN
Ármúla 7,
Sími 30501 og 84844
ÖKUKENNSLA
Æfingatímar, ökuskóli og
prófgögn. Kenni á Volgu
1 973. Vilhjálmur
Sigurjónsson, sími 40728
fyrirtæki við listamenn og öfugt.
Um leið og platan kemur á
markaðinn hérlendis koma einn-
ig á markað kassettur og 8 rása
spólur með lögunum. Sama verð
er á þessum þremur Utgáfum,
1.395 krónur.
Upplag plötunnar verður 5 þUs-
und eintök en hægt er að stækka
það upp i 7 þUsund. Eru aðstand-
endur plötunnar bjartsýnir á að
hUn seljist upp. Þess má geta til
fróðleiks að islenskar plötur hafa
yfirleitt ekki farið upp fyrir 4—5
þUsund eintök i sölu. Undantekn-
ingar eru þó til á þessu eins og
öllum góðum reglum. Til dæmis
mun sala á plötu Rió triós. Allt i
gamni, vera aö nálgast 9 þUsund
eintök og plata Pelican, Upptekn-
ir, mun vera i 7—8 þUsund um
þessar mundir.
Eins og áður segir hefur Jóhann
einnig fengist við myndlist og nU
er einmitt að koma á markað eft-
irprentun af einni mynda hans
sem hann nefnir Lifsbaráttu.
—ÞH
Breiðskífa
frá
JóhanniG.
EINANGRUN
Frysti- og kæliklefar
Tökum að okkur að einangra frysti- og kæliklefa, skiptum
um einangrun i gömlum klefum. Notum eingöngu
sprautaða polyurethane einangrun. Tökum að okkur að
einangra hverskonar húsnæði.
EINANGRUNARTÆKNl H/F
P. Box 9154, Reykjavfk
Simi 72163 á kvöldin
|pS ■ A| ['f i 1 !
i wtm ^H /m**l*Wn Al Jtt, 1 W j| HHr 1
1 nf31|| ^ J
1. 1 wj&r fM iL
A J ' ^ Jjm 1 Wrnjt \ BH Í - m
Æ WdÆ '-SÁ wr Jiú Æmí <! 1 fli§
Höíundur I. hindis cru: Þorlcifur Einarsson, Siguröur Uórarinsson, Kristján Hldjárn, Jakon Bcncdiktsson, Sigurónr Líndal.
Ilöfundar 2. bindis cru: (iunnar Karlsson. Magnús Stcíánsson, jónas Kristjánsson, Björn i h. Björnsson. Hallgrímur Hclgason. Arni Björnsson.
, Saga
Islands
Islenskar tónmenníir, bokjnenntir og myndlist.
' ÞjéShœttir og fornminjar. Truarbrögö, stjórnmál og
Hafin er útgáfa Sögu íslands. Verkið verður
væntanlega í 5-7 bindum, enda umfangs-
mesta yfirlitsrit, sem út hefur komið um
sögu lands og þjóðar. Þaö spannar tímann
frá því fyrir landnám og til vorra daga.
Ritverkið er gefið út að tilhlutan Þjóð-
hátíðarnefndar 1974. Útgefendur eru Sögu-
Hið íslenzka bókmenntafélag
Vonarstræti 12, Reykjavík. Sími:21960.
] Sendið mér fyrsta bindi Sögu íslands gegn póstkröfu.
| Eg óska inngöngu í hið íslenzka bókmenntafélag.
Nafn:_________________________________________________
Heimili:______________________________________________L_
Sfmi: ___________________
félagið og Hið íslenzka bókmenntafélag.
Fyrsta bindið er komið út. Búðarverð þess
er kr. 3-570.-. Félagsmenn, - og að sjálfsögóu
þeir sem gerast félagsmenn nú, fá bókina
fyrir kr. 2.856.- í afgreiðslu Hins íslenzká
bókmenntafélágs aö Vonarstræti 12 í
Reykjavík. Annað bindi verksins kemur út
í janúar n.k.
Af Sögu íslands kemur út viðhafnarútgáfa
innbundinn í geitarskinn og árituð. Við-
hafnarútgáfan verður aðeins seld í afgreiðslu
bókmenntafélagsins. Móttaka pantanna er
þegar hafin.
Hiö íslenzka bókmenntafélag
KRISTlNAR 1^4—