Þjóðviljinn - 15.12.1974, Side 17
SuBBndagar 15. desember 1974. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 17
ÓDÝRTí
KRON
Bl. grænmeti Co-op 16 oz
Haframjöl Co-op 680 gr
Tannkrem Co-op 75 gr
Shampo Co-op
Handsápa Co-op 142 gr
Cirkel kakó 200 gr
Cirkel kakó 500 gr
Cocktail ávextir 1/2 ds
Kaffiduft Co-op 4 oz
Bláber Krakus 345 gr
Bláber Krakus 900 gr.
Jarðarb. sulta Krakus 1 lbs
Bláberjasulta Krakus 1 lbs
Aprikósusulta Krakus 1 lbs
Ananassulta Krakus 1 lbs
Ferskjusulta Krakus 1 lbs
kr.
64,00
52,00
57,00
95,00
33,00
59,00
138,00
98,00
189,00
112,00
173,00
93,00
93,00
93,00
93,00
93,00
KAUPFÉLAG
REYKJAVÍKUR
OG NÁGRENNIS
EIGINMENN
Gefið konunni grávöru
í jólagjöf.
Cape, trefil, húfu eða kollý
í tískuskinnunum.
EINNIG SKINN í PELSA
FELDSKERINN
Skólavörðustíg 18. Sími 10840.
ÚTBOÐ
Umbúða- og sorppokar
Tilboö óskast í umbúðapoka fyrir A.T.V.R. o.fl. og einnig
sorppoka fyrir grindur eöa kassa til notkunar viö Ibúöar-
hús o.fl.
Ótboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
» Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Atvinna ■ Atvinna
Skrifstofustarf
Óskum að ráða mann til fulltrúastarfa við
bókhald og endurskoðun frá n.k. áramót-
um.
Góð bókhaldsþekking nauðsynleg.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist Vegamálaskrifstof-
unni, Borgartúni 1, Reykjavik, sem fyrst.
VEGAGERÐ RÍKISINS
SITT
ÚR
HVERRI
ÁTTINNI
Liggur í leyni
Oxlin fór úr liði, fóturinn
snerist og andlitið rispaðist þeg-
ar sænska óperusöngkonan Bir-
git Nilsson datt i þrepum á
sviðinu I Metrópolitanóperunni
i New York fyrr á árinu.
Marlene Dietrich varð fyrir
svipuðu óhappi i byrjun ársins i
Washington og I Las Vegas
slasaðist Ann-Margret aö'
tjaldabaki.
I tilefni þessara frétta rifjar
sænskur blaðamaður upp orð
Birgittar i viðtali við blað hans:
— öfundin liggur i leyni aö
tjaldabaki!
í RUSLI
Forstjóri nokkur i Hamborg
var vanur að setja afrakstur
dagsins ekki i peningaskápinn á
kvöldin, heldur i ruslakörfuna,
þar sem hann hélt þvi fram, aö
þjófum mundi aldrei’detta i hug
að leita.
En hann var aldeilis i rusli
einn morguninn þegar hann
hafði gleymt að taka tillit til
þess, að ný ræstingakona var
byrjuð á skrifstofunni og
þarsem hún þekkti ekkert til
þessarar venju húsbónda sins
tæmdi hún ruslakörfuna með
öllu sem i henni var, um 12 þús-
und mörkum i seðlum.
En heppniner með sumum. 11
ára strákur fór að róta i ösku-
haugum, fann peningana og
skilaði þeim til lögreglunnar
sem fann rétta eigandann eftir
nokkurn tima.
Peningaskápurinn er aftur
kominn i notkun.
MÓTSÖGN
Viö lifum i heimi fullum af
timasparandi vélum, en erum
þó ævinlega kúguppgefin —
svotil öll.
VÍSNA-
ÞÁTTUR
S.dór.sss :
Nýtt og
gamalt
Okkur hafa borist margar
snjallar visur, gamlar eöa nýjar
eftir atvikum, og mun þessi
þáttur aö mestu leyti helgaöur
þeim sem hafa verið svo elsku-
legir aö láta okkur hafa visur
sinar.
Þá byrjum við á visum sem
Magnús J. Jóhannsson hefur
sent okkur,og þiggjum við með
þökkum fleiri visur frá honum
sem fyrst, en gefum þá Magnúsi
orðiö:
Undirritaöur var á ferð með
ókunnum manni i myrkri. Festi
annan fótinn I holu og skall endi-
langur:
Við i gjótu aö festa fót
flatur skall ég herra.
Að faðma grjótið fyrir snót
finnst mér allmjög verra.
Undirritaöur kom að manni,
er var að kljúfa rekavið með
eikarfleygum:
Ýmislegt er erfiöið.
— Undarlegt að tarna —.
Ertu að reyna að reka við
i raufina þá arna.
Tveir „góðtemplarar” báðu
undirritaðan að kveða visu með
eftirfarandi afleiðingum:
Skyldi lengi rima af rögg,
rjála um strengi lúna,
ef ég fengi litla lögg,
ljúfu drengir núna.
Um fjallgöngumann:
Hetjan kleif á hæsta tind,
— hennar var það siður —.
Loks þar stóð og leysti vind,
laumaðist siöan niöur.
Magnús J. Jóhannsson.
Þá eru hér tvær visur eftir vin
okkar Valdimar Lárusson, þann
snjalla hagyrðing úr Kópavogi:
Vorvísur
Undir þaki ei frið ég fæ,
frjóar vaka grundir.
Fuglar kvaka um fold og sæ
fjöllin taka undir.
Grundin brosir blómum prýdd,
búin flosi vænu,
hæð og kvos er skógar-skrýdd
skarti mosagrænu.
Staka
Þegar villir þokan mig
þykk og ill á vegi.
Gott er,hylli, aö þekkja þig,
þú mér spillir eigi.
! Vilhjálmur Einarsson frá Sel-
fossi sendir okkur þessar vísur:
Ekki tjáir um að kvarta
eða neinum segja frá,
heldur bera harm i hjarta
hvað sem gengur á.
Lifa kátur list mér máti bestur,
þó að bjáti eitthvað á
úr þvi hlátur gjöra má.
Ei skal kvlða ævitíö
áfram liöur svona
þverr um siöir þetta strið
þess er aö biöa og vona.
Betra aö fleiri væru svona
bjartsýnir, þá væri ekki margt
að.
*
SH er greinilega ekki hrifinn
af kirkjubyggingarfarganinu:
Hefði Kristur heimsins völd
hlyti að breytast viða,
kannski lét’ann i eina öld
enga kirkju smiða.
N. sendir okkur þessar vlsur:
Það er inntak allra vona
um að sigra lifsins þraut,
ef að bæði karl og kona
keyra sömu þroskabraut.
Ihaldið vill okkur fá
EFTA traustu hlekki.
Svava vildi sitja hjá
en sendiherrann ekki.
Þ. sendir okkur þessa:
Kviði ég þvi sem koma skal
kuldanum úr fjallasal.
Ef himi ég einsog Hannibal
að höggva við i Selárdal.
Má ég biðja um
undirskrift?
Undirskrift gangi enn á ný
um meðal landsins barna.
Varnarland þurfum að vera i
og veröa amerisk stjarna.
SVB
Frelsi
Frelsi það sem fólkið nýtur
fólgið I þessu er:
að ráða menn að ráða menn
að ráða yfir sér.
SVB
Loks eru svo hérna nokkrir
botnar viö siðasta fyrripartinn
en þeir bárust of seint fyrir
siðasta þátt!
Ýmsum þykja atómljóöin
einskis viröi:
Pundið jafnt og léttu lóðin
leti yrði.
Að rimiö sjálft og háu hljóðin
hugurinn myrði.
Að betur diki brimiö og flóðin
bragurinn stiröi.
Samt er hún þarna söngvaglóöin
sem ég viröi.
Aum er hún veröld axli þjóðin
enga byröi.
Eins ég væri upp i móðinn
ef ég þyrði.
Hart er I búi ef ég óðinn
úti giröi.
Gullkornin i sjónarsjóðinn
samt ég hirði.
Kvæðin likt og fögur fljóðin
fyrir mér viröi.
Stormurinn blés en storma-
slóðin
storminn kyrröi.
FB