Þjóðviljinn - 15.12.1974, Blaðsíða 19
Sunnudagur 15. desember 1974. ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 19
Cannabis saliva heitir þessi planta á latinu,en úr henni má bæbi vinna
Katrín
Guðjónsdóttir
velur gítargrip við
vinsæl lög
TÖKUM
LAGIÐ!
hass og niöslerkan pappir.
ur en þeir sem koma frá rofnum
fjölskyldum.
Næst var athuguð staða neyt-
enda, hvort neytendur gengju i
skóla eða væru i vinnu eða hvor-
ugt. Það virtist litil áhrif hafa á
neysluna. Þó var aðeins hærra
neysluhlutfall hjá þeim sem voru
i skóla. Hins vegar voru fimm
manns i öllum hópnum hvorki i
Kröfuaftgerð um frjálsa sölu
cannabis I Bandarikjunum.
Fremst á myndinni er skáldift
Allen Ginsberg,en hann hefur
verið nefndur hirftskáld
cannabisneytenda.
skóla né vinnu, né féllu þeir i hóp
húsmæðra. Fjórir af þessum voru
neytendur. Af þeim sem voru i
skóla voru flestir i mennta- eöa
háskóla.
Athugað var hvort neytendur
hefðu siður lokið prófum i skóla
en þeir, sem ekki höfðu reynt efn-
ið.Kom i ljós að22,8% þeirra sem
lokið höfðu prófum voru neytend-
ur en 26.8% þeirra sem ekki höfðu
lokið prófum. 1 könnunum sem
geröar hafa veriö erlendis hefur
yfirleitt komið fram miklu meiri
munur sem bendir til erfiðleika
neytenda viö að aðlagast skóla-
kerfinu.
Menningarkiminn
kannaður
Tengsl freginna við aðra neyt-
endur voru könnuð og kom i ljós
að tæplega 70% kváöust kannast
við slikt fólk. Hins vegar vilja að-
eins tæplega 50% kannast viö aö
vinir þeirra séu neytendur og 10%
eiga vini sem lent hafa i yfir-
heyrslum hjá lögreglu vegna
neyslu sinnar. Er hlutfallið i öll-
um tilvikum hærra meðal neyt-
enda og þeirra sem aldrei hafa
reynt cannabis.
Unga fólkið var spurt að þvi
hvort það gæti útvegað annað
hvort cannabis eða LSD eða
hvorttveggja á 2—3 dögum. Um
þriðjungur kvað já við þvi. 51
treysti sér til að útvega cannabis,
ein stúlka kvaðst geta útvegað
LSD og 23 sögðust geta útvegað
hvort tveggja. 16.4% voru alveg
vonlaus en um helmingur var
ekki viss.
Tvær spurningar miðuðu að þvi
að kanna viðhorf freginna til efn-
anna. Afstaðan til þess hvort selja
bæri efnin á frjálsum markaði
skiptist þannig: 3.6% neytenda
vildu leyfa sölu á bæði LSD og
cannabis en 1.1% þeirra sem ekki
neyttu efnanna. 26.8% neytenda
vildu leyfa frjálsa sölu cannabis
en aðeins 6.3% ekki-neytenda.
Enginn vildi leyfa sölu á LSD
einu. 57.1% neytenda vildu hvor-
ugt efnanna frjálst og 86.9% ekki-
neytenda. Alls voru þvi 79,7%
freginna andvig þvi að gefa annað
hvort eða bæði efnin frjáls, 12.9%
vildu leyfa cannabis eða hvort
tveggja og 7.3% voru ekki viss i
sinni sök.
Hin spurningin var sú hvort
unga fólkiö gæti hugsað sér að
reyna cannabis ef tryggt væri að
lögreglan kæmist ekki að þvi. Við
þessari spurningu komu mjög at-
hyglisverð svör. Aðeins 16.7% af
öllum hópnum gat hugsaö sér að
reyna það þótt 23.9% hefðu þegar
reynt það. Karlar voru mun fús-
ari að reyna efnið en konur.
Neytendur voru spurðir hve oft
þeir hefðu neytt cannabis siðustu
30 dagana áður en viðtaliö fór
fram. 41 eða 73.2% höfðu aldrei
neytt þess, 8 1—3 sinnum, 4 4—10
sinnum og 3 oftar en 10 sinnum.
Þarna kemur fram kynskipting
þvi aðeins 4 konur höfðu neytt
þess siðasta mánuðinn á móti 11
körlum og aðeins 1 kona hafði
neytt þess oftar en 4 sinnum.
Hjá hverjum fékkstu efniö
fyrst? voru neytendur spurðir. 48
eða 85.7 höföu fengið það hjá fé-
lögum sinum, 6 eöa 10.7% hjá
„einhverjum sem viðkomandi
þekkti varla” og aðeins 2 eða
3.6% hjá ókunnugum. Hér á landi
virðast þvi mun fleiri komast
fyrstyfir efnið fyrir tilstilli félaga
sinna en erlendis og dregur Þór-
unn þá ályktun af þvi aö cannabis
sé svo til eingöngu flutt inn til
notkunar fyrir kunningjahópinn
en ekki til að selja Pétri eða Páli.
Næst er kafli um neyslu LSD en
þar sem aðeins 6 manns viður-
kenndu aö hafa prófað það getur
það vart talistmarktækt og mun-
um við þvi hlaupa yfir þann kafla.
Enginn greinar-
munur
Siðasti kaflinn er hins vegar
mun athyglisverðari, en hann
fjallar um islensku löggjöfina um
neyslu efnanna, áróður og loks
eru almennar hugleiðingar um
cannabis og viðhorf manna til
þess.
Þórunn bendir á að i lögunum
sem banna dreifingu, varðveislu,
afhendingu, innflutning, fram-
leiðslu o.s.frv. á cannabis og LSD
o.fl. efnum sé enginn greinar-
munur gerður á efnunum, þ.e.
lögin gera ráð fyrir sömu há-
marksrefsingum fyrir innflutning
á hassi og heróini.
Siðan varpar hún fram þeirri
spurningu hvort almenningur
geri það nokkuð frekar en lög-
gjafinn. Ekki er til nein könnun á
islensku almenningsáliti i þessum
efnum en Þórunn vitnar I norska
könnun þar sem menn voru beðn-
ir að svara þvi hvort menn yröu
frekar vanabundnir einu efni en
öðru af fimm efnum sem upp voru
gefin: morfin, cannabis, tóbak,
róandi lyf og áfengi. Var útkoman
sú i stórum dráttum aö fólkið
taldi meiri hættu á að menn yrðu
háðir cannabis en morfini eftir
stöðuga notkun i einn mánuð.
Einnig voru þeir fleiri sem álitu
meiri hættu á þvi að menn yrðu
háðir tóbaki en róandi lyfjum.
Einnig var áberandi i þessari
könnun að menn álitu áfengi mun
skaðminna en cannabis þótt flest-
ir læknar séu á öndveröum meiði.
,,Af þessu sést að fólkið virðist
hafa fengið rangar upplýsingar
um skaösemi og áhrif hinna ýmsu
efna. Ætli það sé nokkuð ótrúlegt
að áætla að ástandið sé svipað
hérlendis” segir Þórunn. Hún
veltir fyrir sér þeim möguleika að
þetta stafi af þvi að áfengi er hér
selt hverjum sem hafa vill og fólk
telur sig þekkja áhrif þess en
cannabis þekkja menn einungis
af afspurn og flestir af umtali
fjölmiðla. En hvernig er þvi um-
tali háttað?
Skapa skynsamleg
viðhorf
„Umræður um cannabisefni
hafa frá upphafi verið samflækt-
ar umræðum um aðra og óviðkom-
andi hluti, þ.e. umræðum um
sterkustu eiturefni, svo sem mor-
fin og ópium. 1 fjöímiðlum koma
fram alls konar valdamenn og
segja hryllingssögúr um að allir
sem neyti ópiums hafi byrjað á
cannabis og fleira og fleira. Út frá
samfélagslegu sjónarmiði hlýtur
það að vera mjög óheppilegt að
yfirvöld geri engan greinarmun á
t.d. cannabis og morfini. Árang-
urinn verður sá, að stór hluti ungs
fólks sem sjálft hefur reynt efnið
dregur þær ályktanir að upplýs-
ingar yfirvalda hafi verið rang-
ar... Þetta getur leitt til „con-
fidence gap”, þ.e. traust fólks á
þvi hvað yfirvöld segja minnkar,
lika á þvi sem þau hafa aö segja
um önnur málefni en cannabis”.
Þórunn veltir þvi fyrir sér
hvaða afleiðingar það hefði ef
sala cannabisyrði gefin frjáls hér
á landi og segir svo: „Og er rétt
að gera um 25% fólks i Reykjavik
á aldrinum 18—24 ára lögbrjóta
fyrir þær sakir einar að hafa fikt-
að eitthvað við cannabisefni?”
Lokaorð skýrslunnar og jafn-
framt þessarar greinar eru þessi:
„Þetta eru punktar á sitt hvorum
enda á sömu stöng. i fyrsta lagi aö
„dramatisera” cannabisneyslu,
gera hana jafn alvarlega og
neyslu sterkra stungulyfja (sbr.
lögin), i öðru lagi að gefa hana
frjálsa. Raunhæft bann er óraun-
verulegt. En e.t.v. er enn timi til
að skapa skynsamleg viðhorf
gagnvart cannabis og öðrum
vimuefnum með umræðum og
réttum upplýsingum”.
—ÞH tók saman
Lagið i dag kannist þið áreiðan-
lega flest við, en það er þekktur
mótmælasöngur gegn striði og
hefur veriö þýddur á mörg tungu-
mál. Texti við þetta lag er m.a.s.
til á islensku, en þar sem mein-
ingin hefur alveg glatast og ein-
hver væmni verið sett i staðinn I
þýöingunni höldum við okkur við
enska textann.
WHERE HAVE ALL
THE FLOWERS GONE?
G C D7
Where have all the flowers gone, long time passin?
G a D7
Where have all the flowers gone long time ago?
G
Where have all the flowers gone?
c D7
Gone to young girls everyone.
C G
When will they ever learn?
C D7 G
When will they ever learn?
Where have all the young girls gone, long time pass-
in’?
Wherehavealltheyoung girls gone, long time ago?
Where have all the young girls gone?
Gone to young men everyone.
When will they ever learn?
When will they ever learn?
Where have all the young men gone, long time pass-
in’?
Where have all the young men gone, long time ago?
Where have all the young men gone?
Gone to soldiers everyone.
When will they ever learn?
When will they ever learn?
Where have all the soldiers gone, long time passin’?
Where have all the soldiers gone, long time ago?
Where have all the soldiers gone?
Gk>ne to graveyards everyone.
When will they ever learn?
When will they ever learn?
Where have all the graveyards gone, long time
passin’?
Where have all the graveyards gone, long time ago?
Where have all the graveyards gone?
Gone to flowers everyone.
When will they ever learn?
When will they ever learn?
a-hljómur. G-hljómur. G-hljómur. D'-hljómur.