Þjóðviljinn - 02.02.1975, Page 10

Þjóðviljinn - 02.02.1975, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. febrúar 1975. FELLAHELLIR Nafnið Fellahellir kem- ur mönnum eflaust ekki kunnuglega fyrir sjónir og þegar Klásúlur heyrðu nafn þetta í fyrsta sinn, stuttu fyrir jól, var ákveðið að reyna að grennslast fyrir um þessa frumlegu nafngift. Þá kom það i Ijós að Fellahellir væri félags- miðstöð íbúa í Breiðholti þrjú og að þar væri rekin viðamikil félagsmála- starfsemi. Klásúlur lömdu sig upp i svefn- hverfið Breiðholt föstudagskvöld eitt ekki alls fyrir löngu, i há- vaðaroki og skafningi. Eftir mikla leit fundum við loks Fella- skóla hvar félagsmiðstöðin er til húsa. Þegar inn kom, glumdi popp- tónlist i eyrum og unglingar á aldrinum þrettán til fimmtán ára á rölti um svæðið. Margir voru að dansa, nokkrir að spila borðtenn- is og enn aðrir að kaupa kók og slappa af. Ekki gátu Klásúlur séð annað en unglingarnir skemmtu sér konunglega. Nú, ekki er það einhver nýjung að unglingum finnist gaman að dansa og spila borötennis, hugsuðum við annars hugar. NÝ FÉLAGS- MIÐSTÖÐ í BREIÐ- HOLTI Húsnæðið þarna er mjög rúm- gott og vel skreytt, enda að miklu leyti gert af krökkunum sjálfum. Okkur voru sýndir margkyns sal- ir, borðtennissalur, danssalur og fundasalur auk ýmissa herbergja sem flest eru nýtt á einn eða ann- an hátt. • A göngu okkar um staðinn rák- umst við á forstöðumanninn, Val Þórarinsson, fyrrum kennara sem hefur nú verið ráðinn sem fastur starfsmaður við Félags- miðstöðina. Hann sagði okkur upp og ofan af starfseminni á sinn látlausa hátt. Einnig röbbuðu Klásúlur við fjögur skýr og ákveðin ungmenni sem voru að skemmta sér þetta kvöld. Eftir þessa stuttu kynnisferð i Fellahelli komumst við á þá skoð- un að slikri starfsemi þyrfti að koma inn i öll hverfi borgarinnar. Það sem helst myndaði þessa skoðun okkar var hinn jákvæði andi sem virtist svifa þarna yfir vötnum. Allir sem við hittum að máli, virtust sammála um ágæti slikrar félagsmiðstöðvar og þeim veittist erfitt að benda á neikvæða hluti i starfseminni. Það er þvi von Klásúlna að borgaryfirvöld vakni af svefninum og hefjist handa um að gera raunhæfar úr- bætur i æskulýðsmálum borgar- innar. 1' v á , V j|||| ... Nýi gó gó-dansinn, en ekki voru allir jafn vissir á sporunum — FÉLAGSMIÐSTÖÐIN ER STÖKKBREYTING TIL HINS BETRA Við hittum að máli fjóra, hressa krakka sem voru að skemmta sér I diskótekinu þetta kvöld og lögðum fyrir þau eftir- taldar spurningar: 1) Hvaða breyting finnst þér hafa orðið á æskulýðsmálum umhverfisins eftir aö félags- miðstöðin tók til starfa? 2) Hverjir eru helstu van- kantar á starfseminni að þinu mati? Anna M. Bragadóttir 1) Framfarirnar eru æðis- gengnar, þvi krakkarnir koma hingað i staðinn fyrir að sækja Grillið. Hér dansar maður, fer á K.F.U.K.-fundi,er i plötuklúbb o.fl. Stærsta breytingin er þó að hér hefur maður samastað og við getum virkilega talað sam- an. 2) Það mættu vera oftar hljómsveitir hérna. Viö krakk- arnir héldum ball um daginn með hljómsveit og það var mjög gaman. Þá eru margir af strák- unum sem mæta á böllin fremur leiöinlegir, þvi að þeir æða beint I borðtennis um leið og þeir koma og eru i borðtennissalnum allt kvöldið. Við stelpurnar þurfum þá að dansa saman sem er ekki nógu skemmtilegt þegar til lengdar lætur. Annars finnst mér þetta vera allt saman þræl- mátulegt hérna. Díana Sveinbjörnsdóttir 1) Breytingin er mjög mikil frá þvi sem áður var vegna þess að krakkarnir hafa róast mjög siðan að félagsmiðstöðin komst i gagnið. Núna erum við jafnvel meira heimavið, og samkomu- lagið á heimilunum er liklega öllu betra. En stærsti kosturinn við Fellahelli er eflaust sá að nú vita foreldrarnir alltaf hvar við erum og það er ákaflega mikil- vægt. 2) Mér finnst að sjoppan hérna mætti selja meira. Svo er ég alveg sammála þvi sem Anna sagði um strákaa og þeir þyrftu að vera fleiri hérna þvi aö við stelpurnar erum i mikl- um meirihluta hérna. En úr þvi að starfsemin er nýbyrjuð er hún alveg nóg svona i fyrstu. Sveinbjörn Sigurðsson 1) Eiginlega mætti kalla þessa breytingu stökkbreyt- ingu. Ég mæti hingað alltaf þegar eitthvað er um að vera, t.d. erum við nokkrir krakkar búnir að safna okkur fyrir Akur- eyrarferö. Ef að Fellahellir væri ekki hér þá væri ég ekki á förum norður i land. Þetta dæmi nægir til þess að skýra breyting- una. 2) Töluvert er um klikur hérna, en viö þvi er ekkert að gera, þvi að þær mynduðust flestar áður en félagsmiðstöðin tók til starfa. Að öðru leyti er ég alveg i sátt við systemið. Einar Guðmundsson 1) Þetta er stór breyting til batnaðar. Krakkarnir eru meira saman núna og þeir sækja ekki eins mikið niður i bæ á staði eins og Tónabæ og Þórs- café. Þá má nefna það, að meðan við vorum mest i Grill- inu var alltaf allt vitlaust og Anna M. Bragadóttir Diana Sveinbjörnsdóttir Sveinbjörn Sigurðsson Einar Guðmundsson RÆTT VID FJÖGUR UNGMENNI ÚR BREIÐHOLTINU löggan þurfti að mæta þangað á hverju kvöldi til að róa lýðinn. Núna horfa málin öðru visi við eins og þið hafið heyrt. 2) Töluverður galli er ásókn krakka úr öðrum hverfum. Annars finn ég fáa vankanta á starfseminni, enn sem komið er. ■S*

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.